Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmynda-
sagan leiðrétt
►MARGIR kvlkmyndagerðar-
menn lentu á svörtum lista þegar
hreinsa átti út kommúnista i
Hollywood við upphaf sjötta ára-
tugarins. Sumir handritshöfund-
ar brugðust við faglegri útilokun
sinni með því að skrifa undir
dulnefni eða með því að láta
nafn sitt hvergi koma fram í
.tengslum við kvikmynd. Nú,
mörgum árum síðar, er verið að
leiðrétta kvikmyndasöguna með
því að láta nöfn þeirra á þær
kvikmyndir sem þeir unnu við.
í lok október standa samtök
handritshöfunda í Hollywood
fyrir athöfn þar sem þess verður
minnst að 50 ár eru liðin frá því
að fyrstu höfundarnir voru kall-
aðir fyrir Un-American Activiti-
es Committee og beðnir um að
nefna nöfn starfsfélaga sem
grunaðir voru um að aðhyllast
kommúnisma. Nokkrir þessara
handritshöfunda, t.d. Lester
Cole, Alvah Bessie, og John How-
ard Lawson, voru fangelsaðir
fyrir að neita að nefna nöfn.
Nafn Lawsons verður nú sett
t.d. á kvikmyndina „Cry, The
Beloved Country" með Sidney
Poitier. Myndin var byggð á bók
Alans Patons og var hann skrif-
aður fyrir handritinu en það var
í raun Lawson sem umskrifaði
bókina fyrir bíó.
Aðrar þekktar myndir sem
hafa ekki verið skrifðar á rétt
nöfn eru t.d. „An Affair to Rem-
ember“ með Cary Grant og De-
borah Kerr en það var Donald
Odgen Stewart sem átti heiður-
inn að henni, „Ivanhoe" með
Elizabeth Taylor og Robert Tayl-
or en það var Margurite Roberts
sem skrifaði handritið, og „The
Robe“ sem var skrifuð af Albert
Maltz.
Helgartilboð:
itór Egill kr. 350
CataCína
Lambalaeri bearnaisc kr. 790.
Viðar Jónsson skemmtir
gestum til ki. 03.
HíamraÉOTtf 11 ■ sími SS4 2166
Listamennirnir
Raggt Bjama og Stefán Jökulsson
halda uppi stuðinu á Mímisbar.
Súlnasalur
lokaður vegna einkasamkvamis.
m
-þín saga!
í kvöld
í síðasta sinn í
Óperukj allaranum
Björgvin
Halldórsson
og !
Óperubandið
Ik '3FH mmm
FÓLK í FRÉTTUM
LEIGUBILSTJORINN Jerry Fletcher (Mel Gib-
son) heldur að spillingu og samsæri sé að finna
alls staðar i þjóðfélaginu.
ALICE (Julia Roberts) ráðfærir sig við Dr. Jonas
(Patrick Stewart), sem er geðlæknir sem starfar
fyrir ríkisstjórnina.
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna spennutryllinn Conspiracy Theory með þeim
Mel Gibson og Juliu Roberts í aðalhlutverkum. í myndinni þurfa þau skötu-
hjúin að fletta ofan miklum spillingarvef um samsæri á æðstu stöðum í
stjórnkerfi Bandaríkjanna
Spilling
í hveiju
skúma-
skoti
LEIGUBÍLSTJÓRINN Jerry Fletch-
er (Mel Gibson) lifir í ótta við fortíð
sem hann getur með engu móti
munað eftir. Á meðan hann eyðir
deginum í að keyra leigubíl sinn í
stórborginni New York veitir hann
ýmsu fyrir sér og trúir hann því að
spillingu sé að finna alls staðar í
þjóðfélaginu. Jerry hefur fastmótað-
ar skoðanir á öllu sem nöfnum tjáir
að nefna, en innra með honum bær-
ast þokukenndar minningar sem þó
eru raunverulegar og vægast sagt
ógnvekjandi. Hann veit hins vegar
ekki hvort um er að ræða ímyndun
eða raunveruleika og enginn nennir
að hlusta á þessi vandamál
hans. Hugsanir hans skarast
þó við raunveruleikann þegar
hann kynnist lögfæðingnum
Alice Sutton (Julia Roberts).
Faðir hennar féll fyrir morð-
ingja hendi nokkrum árum
áður og öll málsmeðferðin í
kjölfarið var hin dularfyilsta.
Alice hefur einsett sér að
leysa þetta mál og komast
að sannleikanum á bakvið
morðið og við þá iðju sína
verður Jerry á vegi hennar
og saman takast þau á við
að leysa þá gátu sem þau
standa frammi fyrir í sameiningu.
Leikstjóri Conspiracy Theory er
Richard Donner, sem gert hefur
marga spennumyndina í gegnum tíð-
ina. Meðal þeirra eru The Omen,
Maverick, Assassins, og Lethal We-
apon myndirnar þrjár. Framieiðandi
myndarinnar er Joel Silver, en Mel
Gibson hefur áður unnið með þeim
félögum við gerð Leathal Weapon
myndanna. Joel Silver er einhver
happasælasti kvikmyndaframleið-
andinn nú til dags, en tekjur af
myndunum sem hann hefur fram-
leitt eru orðnar sem svarar til 150
milljarða íslenskra króna. Á síðasta
ári stóð hann á bak við myndina
Executive Decision með þeim Kurt
Russell og Steven Seagal í aðalhlut-
verkum og var það ellefta mynd
framleiðandans sem skilaði meiru
en 100 milljónum bandaríkjadala í
tekjur. Fyrirtæki Silvers lauk nýlega
við að framleiða myndina Father’s
Day með Robin Williams og Billy
Crystal í aðaihlutverkum og um
þessar mundir er verið að ljúka við
gerð myndarinnar Midnight in the
Garden of Good and Evil sem Ciint
Eastwood leikstýrir.
Gibson er fæddur í Bandaríkjun-
um en hann flutti til Ástralíu með
foreldrum sínum og 11 systkinum
INNRA með Jerry bær-
ast þokukenndar minn-
ingar sem þó eru raun-
verulegar og vægast
sagt ógnvekjandi.
þegar hann var 12 ára gamall.
Fyrsta myndin sem vakti á honum
athygli var Tim frá árinu 1979 en
í henni lék hann vangefinn strák og
hreppti ástralska Óskarinn fyrir. Það
sama ár lék hann í fyrstu Mad Max-
myndinni og endurtók leikinn tveim-
ur árum seinna. Eftir að hafa leikið
í Gallipoli og The Year of Living
Dangerously flutti Gibson til Banda-
ríkjanna en þar hafði hann vakið
áhuga frammámanna í kvikmynda-
iðnaðinum. Leikur hans í myndum
á borð við Lethal Weapon, Bird on
a Wire, Air America tryggði honum
vinsældir vestan hafs, reyndar um
heim allan, og athygli vakti frammi-
staða hans í hlutverki Hamlets í
mynd Franco Zefferellis. Flestir
þekkja framhaldið en hápunkturinn
á ferli Gibsons hingað til er Brave-
heart sem krækti í fímm helstu ósk-
arsverðlaunin, og hlaut Gibson verð-
launin sem besti leikstjórinn. Síðasta
myndin sem kappinn lék í var svo
Ransom sem var ein af vinsælustu
myndunum sem gerðar voru á síð-
asta ári.
Julia Roberts prýðir hvíta tjaldið
um þessar mundir í myndinni My
Best F’riend’s Wedding, en þar áður
lék hún á móti Liam Neeson í Mich-
ael Collins. Julia ólst upp við leik-
list í barnæsku því foreldrar hennar
ráku leikhúsverkstæði þar sem fjöl-
skyldan bjó í borginni Smyrnu í
Georgíufylki. Eric bróðir Juliu
hjálpaði henni til að fá fyrsta kvik-
myndahlutverkið, en þá hafði hann
getið sér þokkalegt orð sem leikari.
Hún vakti þó ekki athygli fyrr en
hún lék í myndinni Steei Magnol-
ias, en fyrir það hlutverk var hún
tilnefnd til óskarsverðlauna. Heims-
frægðin var svo handan við hornið
því næsta hlutverk hennar var í
kvikmyndinni Pretty Woman þar
sem hún lék á móti Richard Gere
og var hún þá aftur tilnefnd tii ósk-
arsverðlaunanna. Hlutverkið gerði
hana að einni eftirsóttustu leikkon-
unni í Hollywood á níunda áratugn-
um. Eftir að hafa leikið í nokkrum
myndum sem sumar þóttu ágætar
en aðrar slæmar dró Julia sig í hlé
um nokkurt skeið en hún var orðin
þreytt á því að vera stöðugt undir
smásjá fjölmiðlanna og almennings.
Hún kom svo aftur fram á sjónar-
sviðið 1992 þegar hún lék í mynd-
inni Pelican Brief og síðan hefur
hún átt ágæta spretti.
ÞAU Jerry og Alice
reyna í sameiningu að
fletta ofan af spilling-
unni sem þau verða vör
við í stjórnkerfinu.
Frumsýning