Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 10

Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson forsætisráðherra í þingumræðum um Byggðastofnun Aðgerðir gegn fólksfækkun hafa ekki komið að gagni DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær, er hann flutti þinginu skýrslu um Byggðastofnun, að til álita kæmi að stofnunin hætti lánveitingum til atvinnufyrirtækja. I máli forsætisráðherra kom fram að Byggðastofnun skilaði 127 millj- óna kr. hagnaði á síðasta ári. Eigið fé var um seinustu áramót 1.170 millj. kr. Almenn framlög ríkissjóðs til stofnunarinnar hafa verið um 200 millj. kr. á ári síðustu ár. Á seinasta ári lét stofnunin 128,5 millj. kr. renna til Vestfjarðaraðstoðar og 61 millj. vegna viðauka í búvörusamningi frá 1991. Byggðastofnun lánaði 1.600 milljónir kr. á seinasta ári og er það hærri fjárhæð en á árunum þar á undan. Heildarútlán uxu í fyrsta sinn í langan tíma um 300 millj. kr. og voru 7.600 millj. í árslok. „Skil á lán- um hafa ekki verið betri í annan tíma og námu vanskil aðeins 4,4% um ára- mót,“ sagði Davíð. Hallar undan fæti þar sem áður ríkti stöðugleiki Davíð vék sérstaklega að fólks- fækkun á landsbyggðinni og flutningi fólks til höfuðborgarsvæðisins. „Þær vísbendingar sem gefnar hafa verið um þróunina innanlands, það sem af er þessu ári, gefa því miður ekki til- efni til bjartsýni, því enn heldur þessi stríði straumur áfram. Ríkisstjórnin hefur nýlega rætt þá öru fækkun fólks sem átt hefur sér stað undan- farin ár á mörgum stöðum á lands- byggðinni. Þessi þróun er váleg fyrir margra hluta sakir, ekki síst vegna þess að hallað hefur undan fæti í byggðarlögum þar sem áður ríkti stöðugleiki,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra sagði orsakir fólksflutninga af landsbyggðinni flóknar og enginn hægðarleikur væri að snúa þróuninni við. Hann benti á að fækkun fólks hefði ekki síður verið í byggðarlögum þar sem atvinnuá- standið væri traust og afkoma fólks með því sem best gerðist í landinu miðað við meðallaun. Ekki væri held- ur hægt að halda því fram að fólks- flutningar ættu sér einkum stað frá stöðum þar sem opinber þjónusta væri ekki talin fullnægjandi. „Ólíkt því sem margir hafa vænst hefur betra árferði í efnahagsmálum undanfarið og bætt staða sjávarút- vegs ekki orðið til að draga úr fólks- fiutningum af landsbyggðinni og síð- ustu tölur um fólksflutninga benda til þess að sá árangur sem þama hefur HJÁLMAR Árnason, Morgunblaðið Ámi Sæberg Framsóknarflokks, í ræðustól í um- ræðunum um Byggðastofnun. náðst muni ekki hafa afgerandi áhrif til hins betra. Þessar töl- ur benda raunar í þveröfuga átt, þ.e. að betra ástand á atvinnu- markaði auðveldi fóiki flutninga,“ sagði hann. Síðar í umræð- unni um skýrsl- una, sem stóð langt fram eftir degi, setti Davið fram tilgátu um hvað ylli þessu, að fólk streymdi til höfuðborg- arsvæðisins jafnvel frá byggðarlög- um þar sem ástand atvinnu og þjón- ustu væri hvað best. „Kannski eru þetta eftirreitur," sagði Davíð, og út- skýrði þannig, að það los sem endur- skipuiagning undanfarins áratugar í atvinnugreinum eins og sjávarútvegi og landbúnaði hefði komið af stað hjá mörgu fólki úti um land skilaði sér í þessum búferlaflutningum, sem stæðu yfir í nokkur ár fram yfir þann tíma sem kreppan var verst, líkt og skriðþungi olíuflutningaskips ylli því að það staðnæmdist ekki fyrr en 10- 15 km eftir að fyrst er reynt að stöðva það. „Það tekur tíma að snúa þessu við,“ sagði Davíð og lýsti því yfir að þær skipulegu aðgerðir sem Byggðastofnun ynni að muni þegar fram liðu stundir auðvelda „varnar- baráttu byggðanna." Davíð sagði að stjómvöld yrðu að horfast í augu við að þær aðferðir sem þau hafa beitt til þessa, til að reyna að við- halda jafnvægi í byggð landsins, hafa ekki gert það gagn sem vonir stóðu til. Forsætisráð- herra sagði einnig að sam- keppni um eignarhald fyrirtækja hefði orðið virkari á seinustu árum og dregið hefði úr þörfinni á því að opin- berir aðilar gripu inn í ef á bjátaði í rekstri fyrirtækja. „íslenskur fjár- málamarkaður hefur einnig breyst. Með eflingu hlutabréfamarkaðar ork- ar meira tvímælis en áður að opin- berir aðilar stundi áhættusama lána- starfsemi, þar sem komið hefur fyrir að lán séu afskrifuð jafnharðan og þau eru veitt. Það er ljóst að lánveit- ingar stofnunarinnar skarast að nokkru leyti við starfsemi Nýsköpun- arsjóðs atvinnulífsins, sem tekur tii starfa um næstu áramót. Ég tel því að það komi til álita að hætta alfarið lánveitingum á vegum Byggðastofn- unar um leið og starfsskipulag og hlutverk stofnunarinnar verði endur- skoðað," sagði forsætisráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir, þingflokki jafnaðarmanna, spurði forsætisráð- herra sérstaklega út í hvort ekki væri fyrirhugað að grípa til ráðstaf- i ' y, ■ H < 'h , . fycp - m'ym 4p; / -ii' mwM, ALÞINGI ana til að bæta atvinnuhorfur kvenna úti á landsbyggðinni. Davíð sagðist ekki sjá þörf á því að grípa beri til „stórfelldra sértækra aðgerða" vegna þess að atvinnuleysi mældist meira hjá konum en körlum; það ástand ætti sér skýringar sem kölluðu ekki á slíkar aðgerðir af hálfu ríkisins. Skýrsla Aflvaka talin sleggju- dómar og óhróður Miklar umræður urðu um byggða- þróun á Alþingi í gær. í máli nokk- urra þingmanna kom fram hörð gagnrýni á nýútkomna skýrslu Afl- vaka hf. á vegum Reykjavikurborgar um framlög ríkisvaldsins til lands- byggðar og höfuðborgarsvæðis. Töldu þingmennimir ýmsar niður- stöður og ályktanir skýrslunnar frá- leitar, s.s. um að ríkið verji árlega 32 milljörðum kr. til að koma í veg fyrir byggðaröskun og þar af séu tæpir 13 milljarðar beinir styrkir. Davíð Oddsson sagði skýrsluna ekki til þess fallna að þjóna sem hjálpargagn „hvorki fyrir höfuðborg- ina né fyrir hina sem telja sig vinna að málefnum og heill landsbyggðar- innar.“ Sumt í skýrslunni sagði hann „nánast algjörlega út í bláinn“. Jón Kristjánsson Framsóknar- flokki fór hörðum orðum um skýrsl- una og sagðist hafa orðið skelkaður við lestur hennar. I henni væri að finna sleggjudóma um byggðaþróun og stuðning við landsbyggðina, sem væri umræðu um þau mál síst til framdráttar, heldur kyndi skýrslan undir deilum á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Sagði Jón að for- svarsmenn borgarstjórnarmeh-ihlut- ans yrðu að svara því hver væri til- gangurinn með þessari útgáfu. Krist- inn H. Gunnarsson Alþýðubandalagi og Magnús Stefánsson Framsóknar- flokki tóku einnig undir gagnrýni á skýrsluna. Magnús sagði skýrsluna setta frarn með þessum hætti til að etja saman höfuðborgarbúum og landsbyggðarbúum og borgarstjórn- armeirihlutinn bæri íyrst og fremst ábyrgð á því. Kristinn sagði margt missagt í skýrslunni, margt væri hreinn rógburður og óhróður. „Ég vil segja til þeirra sem þessa skýrslu skrifa, að þeir mega hafa það í huga að þeir sem úrslitum ráða í borgarstjórnarkosningum í Reykja- vík er fólkið sem áður bjó á lands- byggðinni, og hefur flutt þúsundum saman til Reykjavíkur á síðustu ár- um og áratugum," sagði Kristinn. Samkeppnisstofnun athugar banka og kortafyrirtæki FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra sagði í svari við fyrirspurn Tómasar Inga Olrich alþingismanns á Alþingi í fyrradag að Samkeppnis- stofnun ynni nú að athugun á ýmsum viðskiptaháttum greiðslukortafyrir- tækjanna í landinu. Einnig ynni hún að athugun á ýmsu samstarfi við- skiptabankanna með það fyrir augum að kanna hvort samstarfið stangist á við samkeppnislög. Fyrirspumir Tómasar Inga sner- ust um markaðshlutdeild stærstu fyrirtækja í átta greinum og hvort ástæða væri til sérstakrar lagasetn- ingar til að takmarka umsvif fyrir- tækjanna. Dagblöð og tímarit Viðskiptaráðherra kvaðst ekki telja ástæðu til sérstakrar lagasetn- ingar sem takmarka umsvif og starf- semi Arvakurs hf. og Frjálsrar fjöl- miðlunar hf., stærstu fyrirtækjanna í útgáfu dagblaða hér á landi, um- fram það sem samkeppnislög segja til um. í svari viðskiptaráðherra kom fram að samkvæmt skýrslu Sam- keppnisstofnunar frá desember 1994 um stjórnunar- og eignatengsl í ís- lensku atvinnulífi voru Árvakur hf. og Frjáls fjölmiðlun hf. stærstu fyrir- tækin í útgáfu dagblaða. Sú breyting hafi orðið að þessi fyrirtæki eru einu útgefendur dagblaða hér á landi. í svari ráðherra kom fram að ekki hafi verið aflað sérstakra gagna um veltu fyrirtækjanna tveggja á dagblaða- markaðnum. Ráðherra sagði að sam- keppni ríkti á dagblaðamarkaðnum auk þess sem samkeppni væri milli prentmiðla og ljósvakamiðla. Ekki hafi orðið vart við samkeppnishindr- anir þannig að ekki sé ástæða til sér- stakrar lagasetningar í framan- greindu skyni. Ráðheirann sagði að svo virtist sem virk samkeppni væri á tímarita- markaði og ekki ástæða til sérstakr- ar lagasetningar til að takmarka um- svif og starfsemi. Ekki hafi verið afl- að upplýsinga um veltu allra fyrir- tækja á þessum markaði svo sjá megi markaðshlutdeild tveggja stærstu fyiirtækjanna í dag. Greiðslukortafyrirtækin Tómas Ingi beindi þeirri fyrir- spurn einnig til viðskiptaráðherra hvort hann hefði upplýsingar um markaðshlutdeild stærstu greiðslu- kortafyrirtækja landsins og hvort ástæða væri til að setja sérstök lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra með tilliti til markaðshlut- deildar umfram það sem samkeppn- islög segja til um. Viðskiptaráðherra upplýsti .. að samkvæmt rekstrarreikningum fyrir árið 1996 væri markaðshlutdeild Greiðslukorta hf. 66% og Kreditkorta hf. 34%. Hann sagði að greiðslu- koi-tamarkaðurinn væri skilgi’eindur sem fákeppnismarkaður. „Samkeppnisstofnun vinnur að at- hugun á ýmsum viðskiptaháttum greiðslukortafyrirtækjanna og er nið- urstöðu að vænta fljótlega. Stofnunin fylgist í þessu sambandi náið rneð því sem er að gerast í Evrópu. Ég tel heimildir í lögum nægilegar til að hafa eftirlit með þessum markaði og þvi ekki ástæðu til sérstakrar laga- setningar í framangreindu skyni,“ sagði ráðherrann meðal annars. Matvæla- og gos- drykkjamarkaður Viðskiptaráðherra telur heldur ekki ástæðu til sérstakrar lagasetn- ingar til að takmarka umsvif og starfsemi tveggja stærstu fyrirtækja á íslenskum matvælamarkaði. Hann upplýsti að samkvæmt skýrslu Sam- keppnisstofnunar frá 1994 voru Slát- urfélag Suðurlands, 26%, og Kjötum- boðið hf., 11%, stærst á þessum Keflavíkurflugvöllur Islend- ingar yfír- taki rekst- urinn STEINGRÍMUR J. Sigfússon og þrír aðrir þingmenn Alþýðubanda- lags og óháðra ásamt tveimur þing- konum Kvennalista hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Islendingai' yfirtaki rekstur Kefla- víkurflugvallar. Lagt er til að kosin verði nefnd skipuð fulltrúum allra þingflokka undb' forystu formanns, sem utan- ríkisráðhen-a skipar án tilnefning- ar, til að ganga til viðræðna við bandarísk stjórnvöld um yfirtöku íslendinga á rekstri vallarins áður en gildandi samkomulag við banda- rísk stjórnvöld um umfang starf- seminnar á Keflavíkurflugvelli rennur út. Áfangaskýrsla til Alþingis í kjölfar könnunarviðræðna Gert er ráð fyrir að nefndin skili, að undangenginni athugun og könnunarviðræðum, áfangaskýrslu til Alþingis eigi síðar en í árslok 1998, þannig að nægur tími gefist til samninga um málið áður en upp- sagnarákvæði gildandi samnings verði virkt, sem er í apríl árið 2000, eða hann renni út, í apríl 2001. Alþingi Samanburður á stöðu eldri borgara ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna hefur óskað eftir því á Alþingi að forsætisráðherra hlutist til um gerð skýrslu um stöðu eldri borg- ara og samanburð við önnur ríki innan OECD. I greinargerð er bent á að nú eru um 27 þúsund manns yfir 67 ára aldri en eftir um 30 ár verði fjöldi aldraðra tæplega 20% þjóð- arinnar. I greinargerðinni er því haldið fram að hérlendis sé varið langminnstum fjármunum til aldraðra og félags- og heilbrigð- ismála á öllum Norðurlöndum. Heildarútgjöld opinberra aðila og annarra, s.s. lífeyrissjóða, til aldr- aðra sem hlutfall af landsfram- leiðslu séu 7,7% hér á landi, en 15,8% í Danmörku, 15,2% í Finn- landi, 13% í Noregi og 17,5% í Svíþjóð. markaði árið 1993. Síðan skýrslan var unnin hafi orðið breytingar á markaðnum þannig að hlutfallstölur sem þá giltu eigi ekki lengur við. Ráðherra telur að virk samkeppni sé á þessum markaði og ekki hafi orðið vart við samkeppnishindranir. Samkvæmt sömu skýrslu Sam- keppnisstofnunar voru tvö stærstu fyrirtækin í öl- og gosdiykkjafram- leiðslu árið 1993 Vífilfell hf. og Öl- gerðin Egill Skallagrímsson ehf. Ráðherra telur að virk samkeppni sé á þessum markaði og því ekki ástæða til sérstakrar lagasetningar. Viðskiptabankar og sparisjóðir Viðskiptaráðherra upplýsti að sam- kvæmt rekstrarreikningum við- skiptabanka og sparisjóða fyrir árið 1996 hafi markaðshlutdeild þriggja stærstu fyrirtækjanna í bankastarf- semi verið sem hér segir: Landsbanki íslands 34%, íslandsbanki 26% og Búnaðarbanki Islands 18%. RáðheiT- ann telur ekki ástæðu til að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi fyrirtækja í bankastarfsemi umfram það sem samkeppnislög segja til um. Markaðurinn sem viðskiptabankar starfa á hafi verið skilgreindur sem fákeppnismarkaður og Samkeppnis- stofnun vinni að athugun á ýmsu sam- starfi viðskiptabankanna með það fyrir augum að kanna hvort samstarf- ið stangist á við samkeppnislög.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.