Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 23
MORGUNB LAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 23
FRÉTTIR
Rannsókn FBI
á TWA-slysinu
formlega lokið
Reuters
BRESKA barnfóstran Louise
Woodward kemur út af skrif-
stofu lögfræðinga sinna í Boston
í Bandaríkjunum sl. miðviku-
dagskvöld ásamt foreldrum sín-
um og fylgdarmönnum. Wood-
ward hefur haldið sig innan-
dyra á hóteli frá því dómur yfír
henni var mildaður 10. nóvem-
ber sl. Hafa fjölmiðlar setið um
hótelið. Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna, hefur lýst
stuðningi við þá ákvörðun Hill-
ers Zobels, dómara í máli Wood-
ward, að ómerkja úrskurð
kviðdóms, sem fann hana seka
Clinton
styður úr-
skurðinn
um morð að yfírlögðu ráði, og
úrskurða hana seka um mann-
dráp af gáleysi, en henni er
gefíð að sök að hafa valdið
dauða Matthews Eappens, átta
mánaða drengs sem hún gætti.
Fulltrúi forsetans sagði að
Clinton telji að ákvörðun dómar-
ans hafi verið réttmæt til þess
að réttlætið næði fram að
ganga, og það ætti einnig við um
dóm Zobels, er gerði Woodward
að sæta fangelsi í 279 daga, sem
hún hefur þegar afplánað.
Talsmaður Woodward-
fjölskyldunnar sagði á miðviku-
dagskvöld að hún reyndi nú að
lifa eðlilegu lífí, eftir að Louise
var látin laus. Hún getur þó
ekki yfírgefíð Massachusettsríki
fyrr en áfrýjunarmöguleikar í
málinu hafa verið kannaðir.
Bæði saksóknari og verjendur
Louise hafa sagt að þeir hyggist
áfrýja úrskurði og dómi Zobels.
New York. Reuters.
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, hefur formlega lokið
rannsókn á hrapi Boeing 747 þotu
bandaríska fiugfélagsins TWA úti
fyrir New York á síðasta ári. í
niðurstöðum FBI segir að „alls
engar vísbendingar hafi fundist"
um að glæpur hafi verið framinn,
að því er New York Times greindi
frá í gær.
Að sögn blaðsins sendi aðalrann-
sakandi lögreglunnar bréf þar sem
greint var frá þessari niðurstöðu til
fjölskyldna þeiiTa er fórust með
vélinni. 230 manns, áhöfn og
farþegar, voru um borð og komst
enginn lífs af.
Fulltrúar lögreglunnar sögðu að
bréfin, undirrituð af James Kall-
ström, yfirmanni New York-skrif-
stofu FBI, hafi verið send til þess
að það kæmi ættingjum þeirra er
fórust ekki að óvörum er tilkynn-
ing um lok rannsóknarinnar yrði
gerð opinber næstkomandi
þriðjudag.
í bréfinu segir Kallström að
starfsmenn sínir hafi yfirheyrt
rúmlega 7000 manns, gert um-
fangsmiklar tilraunir og ráðist í
„mestu endurbyggingu flugvélar í
sögu farþegaflugsins" án þess að
finna eina einustu vísbendingu um
að glæpur hafi verið framinn, að
því er New York Times segir.
Kallström segir ennfremur í
bréfinu að öll hugsanleg atriði hafi
verið rannsökuð til hlítar og banda-
rísk stjórnvöld hafi gert sitt
ýtrasta til þess að rannsóknin yrði
sem ítarlegust.
FBI hefur ætíð sagt að engar
vísbendingar væru um að þotunni
hafí verið gi’andað með sprengju
eða flugskeyti, en með bréfinu er
rannsókninni formlega hætt. FBI
hóf rannsókn málsins strax eftir að
þotan fórst, skömmu eftir flugtak
frá JFK flugvelli við New York 17.
júlí í íyrra.
Rannsakendur bandaríska
samgönguöryggisráðsins hafa
haldið því fram síðan í fyrra að
orsök slyssins hafi verið sú, að
eldsneytisgufa hafi safnast saman í
miðeldsneytistanki vélarinnar, en
ekki hefur komið í ljós hvað hafi
valdið því að kviknaði í gufunni.
Reuters
GORAN Persson og Tony Blair ræddu Evrópumál á fundi sínum í
Downingstræti 10.
Persson segir
Svíþjóð ekki vera
að einangrast
London, Kaupinannahöfn. Reuter.
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, vísar því á bug að landið
sé að einangrast í auknum mæli inn-
an Evrópusambandsins vegna þeirr-
ar ákvörðunar ríkisstjórnar hans að
Svíþjóð verði ekki stofnríki Efna-
hags- og myntbandalags Evrópu
(EMU) eftir rúmt ár.
Persson ræddi um Evrópumál við
Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, í
stuttri vinnu-
heimsókn til London.
„Við erum nánast í
nákvæmlega sömu
stöðu og ríkisstjórnir
Bretlands og Dan-
merkur. Við höfum sagt að við viljum
bíða og sjá og að við verðum ekki
með frá byrjun,“ sagði Persson eftir
fund sinn með Blair. „Við erum nógu
sterkir til að ganga inn, en við erum
líka nógu sterkir til að bíða.“
Persson sagði að ástand ríkisfjár-
mála væri einna bezt í Danmörku,
Svíþjóð og Bretlandi. Þess vegna
gætu öll ríkin tekið þátt í EMU, „en
fyrst viljum við fá umræðu."
Persson sagði að Svíþjóð myndi,
eins og Bretland, berjast fyrir því að
verða ekki útilokuð frá ákvörðunum
um myntbandalagið, þótt landið
stæði um sinn utan þess.
Danir vilja fá að vera með í
EMU-ráðinu
Dönsk stjórnvöld munu einnig
gera kröfu um að verða ekki útil-
okuð frá óformlegum umræðum
aðildarríkja EMU, að því er Niels
Helveg Petersen
greindi frá í fyrra-
dag. Frakkland og
Þýzkaland hafa
komið sér saman um
tillögu þess efnis að
sett verði á fót
óformlegt „EMU-
ráð“ ríkja, sem taka þátt í mynt-
bandalaginu. Gert er ráð fyrir að
ráðið komi saman fyrh’ fundi fjár-
mála- og efnahagsmálaráðherra
Evrópusambandsins og ræði mál-
efni myntbandalagsins.
„Franska tillagan, sem Þýzkaland
styður, um að aðeins ríki sem nota
evróið taki þátt, er ekki að okkar
skapi,“ sagði Helveg Petersen.
„Þetta myndi j-ýða að Danmörk yi’ði
útilokuð frá samræðum um mikilvæg
hagsmunamál okkar, þ.e.a.s. innri
markaðinn og gengissamstarfið.“
samM
SAAÍBÍ
SAM®Í
FRUMSYND I DAG
KRINGLUB8
SYND KL. 5, 6.30, 9 og 11
m iii nii