Morgunblaðið - 14.11.1997, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.11.1997, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Eitt merkasta listaverkasafn í einkaeign boðið upp í New York eftir helgina Fjórtán milljarð- ar fengust fyrir 55 verk New York. Reuters. SAFN listaverka frá þessari öld, sem talið er hið merkasta sem boðið hefur verið til sölu á uppboði, seld- ist fyrir hærri upphæð í New York á mánudag en dæmi eru um með listaverkasöfn í einkaeigu. Verkin 55 sem voru í eigu Victors og Sally Ganz, seldust fyrir um 200 milljónir dala, um 14,4 milljarða ísL kr. Um 2.000 manns tróðu sér inn í upp- boðssalinn, fleiri en nokkum tíma á listaverkauppboðum. Hæst verð fékkst fyrir „Le Reve“, (Drauminn) eftir Pablo Picasso, 48,4 milljónir dala, um 3,4 milljarðar ísl. kr. Er það næsthæsta verð sem fengist hefur fyrir Picasso-verk. Alls voru tólf Picassoverk seld fyrir 164 milljónir dala, um 11,8 milljarða ísl. kr. Af öðrum verkum má nefna að „Kona situr i hægindastól" seldist á um 24,7 milljónir dala, um 1,7 millj- arða ísl. kr. og eitt af fimmtán verk- um úr myndröðinni „Konumar frá Algeirsborg" sem seldist fyrir um 31,9 milljónir dala, um 2,3 milljarða ísl. kr. Þá fengust um 8,3 milljónir dala fyrir „Lík og spegil" eftir Ja- sper Jones, og 2,2 milljónir fyrir höggmyndina „Ólokin, án titils eða ekki enn“ eftir Evu Hesse. Ganz-hjónin söfnuðu listaverkum í hálfa öld en „Draumurinn“ var eitt Reuters „DRAUMURINN" sem Pablo Picasso málaði af ástkonu sinni, Marie- Therese Walter. CHRISTOPHER Burge hjá Christie’s uppboðsfyrirtækinu býður upp mynd úr myndröðinni „Konurnar frá Algeirsborg" fyrir troðfullum sal í New York. keypti Sally aðeins eitt verk, ,Án 39 milljónir ísl. kr. Sally lést í janú- titils“ eftir Jasper Jones, sem seld- ar sl. ist á mánudag fyrir 550.000 dali, um fyrsta verkið sem þau festu kaup á. Greiddu þau um 7.000 dali fyrir verkið árið 1941. Um tíma áttu þau stærsta safn Picasso-verka í einka- eign í Bandaríkjunum en auk Picasso-verkanna söfnuðu Ganz- hjónin verkum eftir Jasper Jones, Robert Rauschenberg, Frank Stella og Evu Hesse. Safn hjónanna samanstóð af mál- verkum, verkum unnum með bland- aðri tækni, litógrafíum og högg- myndum. Ganz-hjónin létu lítið á sér bera og því fór fjarri að þau teldust vellauðug. Victor Ganz smíð- aði skartgripi og eiginkona hans starfaði í stórverslun áður en þau gengu í hjónaband. Óbrigðult auga fyrir efnilegum listamönnum Hjónin reyndust hafa óbrigðult auga fyrir efnilegum listamönnum og góðum listaverkum. Voru þau á meðal þeirra fyrstu sem uppgötv- uðu Johns og Stella, en báðir urðu listamennimir góðvinir hjónanna. Þau fóru að jafnaði á milli listasafna og gallería á laugardögum og skoð- uðu listaverk. Eftir að Victor settist í helgan stein, var hann gerður að varafor- seta stjórnar Whitney-listasafnsins. Hann lést árið 1987 og eftir það Keith Reed syngur á Egilsstöðum KEITH Reed heldur einsöngstón- leika í Egilsstaðakirkju laugardag- inn 15. nóvember kl. 17. Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Fljóts- Á efnisskrá eru lög úr ýms- um söngleikjum. Undirleikari verður Ólafur Vignir Alberts- son píanóleikari. Keit er sigurveg- ari í TónVakan- um, tónlistar- keppni Rfldsút- varpsins 1997. Þetta eru fyrstu opinberu tónleikamir sem hann heldur á Egilsstöðum en þangað flutti hann í fyrra frá Þýskalandi. Hann söng í ís- lensku óperanni og í Þjóðleikhús- inu m.a. í Nifl- ungahringnum eftir Wagner. Á að- ventu mun hann stjóma flutningi á óratóríunni Messíasi eftir G.F. Hándel með heimamönnum. ---------------- Fyrirlestrar í MHÍ NANA Petzet, þýskur myndlistar- maður og gistikennari við MHÍ, fremur gjöminginn „Endurvinnsla, nei takk“, í Málstofu, fyrirlestrarsal MHI í Laugamesi, mánudaginn 17. nóvember kl. 12.30. Anna Fjóla Gísladóttir ljósmynd- ari og starfandi kennari við MHI verður með fyrirlestur um konur, sem starfað hafa sem ljósmyndarar fyrr og nú, í fyrirlestarsalnum Barmahlíð, Skipholti 1, miðvikudag- inn 19. nóvember kl. 12.30. dalshéraðs. Ólafur Vignir Albertsson Hínn japanski Pan iómim Listasafn íslands EINLEIKSTÓNLEIKAR Einleiksverk eftir Yun, Takemitsu, Fukushima, Yuasa, Lavista og Soll- berger fyrir flautu án undirleiks. Kolbeinn Bjarnason, flauta/alt- flauta/bassaflauta. Listasafni ís- lands, miðvikudaginn 12. növem- ber kl. 20.30. HÓGVÆRÐ hefur alltaf verið talin til höfuðdyggða. En of mikið má úr öllu gera. Á tímum þegar af- þreyingarframboð síeykst, þarf að berja bumbur til að draga áheyr- endur upp úr hægindum heimil- anna, og þarf sá sláttur núorðið að vera meiri en nokkra sinni fyrr til að kafna ekki í gylliboðaflóði skrumsins. Fyrir aldarfjórðungi hefði sú forkynning að einleikstón- leikum Kolbeins Bjarnasonar sem nú lokkaði um 20 manns á staðinn eflaust nægt til að fylla sal Lista- safns íslands (hefði hann verið til þá) horna á milli. í dag þarf greini- lega meira til. Því er ástæða til að nefna þetta, að gæði tónverka, og þó sérstak- lega flutnings, voru hér í engu samræmi við aðsókn. Þeim áheyr- endum fyrirgefst kannski að vilja „forðast eldinn" er oftar en einu sinni hafa brennt sig á nýrri tón- list, enda þótt liggi í hlutarins eðli að slíkir tónleikar eru alltaf meira happdrætti en þegar aldareynd meistarastykki eru á boðstólum. En í þessu tilfelli vék svo við, að mörg tónverkin höfðu þegar sann- að gildi sitt, þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur, og túlkun þeirra var það framúrskarandi, að umsagn- araðilji verður að hafa sig allan við til að falla ekki í gryfju þórðar- gleðinnar og núa fjarstöddum tón- listarunnendum rækilega um nas- ir hvað þeir misstu af mikilli upp- lifun. Það kann að vera ákveðin freist- ing fyrir virtúósa eins og Kolbein Bjarnason að takast stundum á við verk sem gera tröllauknar tæknikröfur umfram tilhöfðunar- gildi, væntanlega ekki bara til að sýna getu sína - í því hefur Kol- beinn sannað sig fyrir löngu - heldur ekki síður til að færa miðl- ungsverk skör ofar í vitund áheyrandans. Um gildi slíkrar , já- kvæðrar blekkingar" má deila, enda þótt varla leiki vafi á, að við- komandi tónskáld hljóti að vera meira en lítið þakklát, þegar svo ber við. Þó var aðeins eitt verk á dagskrá að þessu sinni, Hara fyrir altflautu (1978), sem að mati und- irritaðs gæti hugsanlega fallið undir þá skilgreiningu, jafnvel þótt svigrúm flytjandans hafi ver- ið óvenju takmarkað, því skv. munnlegri kynningu einleikarans næðu túlkunarforskriftir tón- skáldsins þar niður í nánast hvert smáatriði. Ekki skorti höfund þekkingu á blásturstækni, því nærri því öllu var tjaldað sem síð- ari áratuga framsækni hefur látið sér til hugar koma, svo sem tví- hljómabeiting, „Flatterzunge", takkasmellir, örtónbil, glissandó, hvísl á innsogi eða útsogi, söngur með spili o.s.frv. En þrátt fyrir hnökralausan og 100% málamiðl- unarlausan flutning kom verkið hlutfallslega flatast út í óneitan- lega góðum hópi brátt sígildra nú- tímaverka fyrir flautu án undir- leiks, kannski ekki sízt fyrir þá sök, að tvö síðustu verk fyrir hlé voru sérlega áhrifamikil lítil meistaraverk. Þessar tvær einleiksperiur fyrir C-flautu, Itenerant (1989) eftir Toru Takemitsu og Mei (1962) eft- ir Kazuo Fukushima, sköruðu óhjákvæmilega nokkuð fram úr hinum verkunum sex, þökk sé miklu inntaki, vídd og spennu, sem að hluta átti rætur að rekja til blómlegrar náttúrulýríkhefðar Japans. Mátti þar gruna, að ef Pan væri uppi í dag, léki hann ekki á syrinx, heldur á shakuhachi. Kol- beinn blés af sérlega næmri innlif- un, sem frábær tækni hans færði í slíkt veldi, að skáldskapurinn hélzt ávailt í fyrirrúmi, líkt og sönnum listamanni sæmir bezt. Sjaldan hafði maður heyrt aðra eins styrkvídd eins og í þessum tveim meistaraverkum, er báru öll merki sígildleikans, allt niður í 5 p eða 6, eins og þegar Kolbeinn lék aipeggíó á yfirtónaformöntum, svo að maður hélt í fyrstu að kæmu lengst utan úr götu. Salur Listasafnsins virtist í flestu heppilega valinn fyrir flautueinleik, því minni flautu- gerðirnar, einkum G-flautan, hljómuðu afar fallega, þó að óm- tíminn hefði kannski mátt vera ívið lengri fyrir hið dúnmjúka ang- urværa bassaflautustykki Mexikó- ans Lavistas, Lamento (1984), sem ásamt Nocturno hans fyrir altflautu (1982), er m.a. státaði af afar fallegri tvíhljómanotkun, var meðal hápunkta dagskrár. Minni í sniðum, en engu að síður þokka- full, voru verkin tvö eftir Kóreu- búann Isang Yun, Æfíng (1974) og Salomo, svo og hið japanska Mai-Bataraki II fyrir altflautu (1987) eftir Joji Yuasa. Tónleikar þessir voru mikill sig- ur, bæði fyrir nútímaflautuleik og fyrir Kolbein Bjarnason, en hefðu að sönnu mátt fara fram í minni kyrrþey en raun bar vitni. Ríkarður Ö. Pálsson Málþing um Árna Magn- ússon FÉLAG um átjándu aldar fræði heldur Árnaþing um Árna Magnús- son laugardaginn 15. nóvember í Þjóðarbókhlöðunni, fyrirlestrarsal á 2. hæð. Máþingið hefst kl. 13.30 og því lýkur um kl. 16.30. Á málþinginu verður m.a. fjallað um ákveðið efni sem varðar Árna og hafa ekki verið gerð mikil skil áður. Flutt verða fjögur erindi: Már Jóns- son fjallar um réttlætiskennd Árna Magnússonar og íslenskan almúga í byrjun 18. aldar; Guðrún Asa Grímsdóttir: Ofurfjöldi bréfa. Um hlutdeild Árna Magnússonar í Jarðabókaverkinu; Sigurður Pét- ursson fjallar um latínukveðskap tengdan Árna Magnússyni; sr. Gunnar Kristjánsson kallar erindi sitt: Stígvélaði kavílerinn. Um Arnas Arnæus. Að erindunum loknum fara fram pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara. Fundarstjóri verður Kári Bjarnason, handritavörður. Öllum er heimill ókeypis aðgangur. ----------------- Er kirkjan í takt við trúna? “ÞAÐ telst vissulega til tíðinda þeg- ar Gunnar Dal rithöfundur sendir frá sér nýja bók. Bókin Lífið eftir lífið er líka að því leyti einstök að hún er mystísk skáldsaga en þó byggð á persónulegri upplifun Gunnars. Hann lýsir því í lok bókar- innar hvað gerist þegar menn fæð- ast til jarðarinnar, en slíka frásögn er hvergi að finna í öðrum bókum,“ segir í tilkynningu frá IV-bókaút- gáfunni. í tilefni af útkomu bókarinnar er boðað til almenns fundar sunnudag- inn 16. nóvember kl. 14 í Borgartúni 6 í Reykjavík. Á þessum fundi mun Gunnar Dal gera stutta grein fyrir bókinni og flytja erindi sem hann kýs að kalla: Er kirkjan í takt við trú fólksins í landinu? Að erindinu loknu mun Gunnar svara fyrir- spurnum. Auk þess munu örfá mál- verk Gunnar verða til sýnis. Hann hefur málað alls um 30 myndir og prýðir eitt þeirra forsíðu bókarinn- ar. Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. -------♦-♦-♦----- Ingunn Eydal sýnir glerlist- muni INGUNN Eydal heldur sýningu á glerlistmunum í vinnustofu sinni, Vogaseli 9, dagana 15.-30. nóvem- ber. Ingunn hefur haldið tólf mál- verka- og grafíksýningar hér heima og erlendis og tekið þátt í u.þ.b. 150 samsýningum um allan heim. í kynningu segir: „Nú hefur Ing- unn kynnst töfrum glersins og unn- ið af eldmóði við glerbræðslu og listmunagerð og sýnir afraksturinn í réttu umhverfi í vinnustofu sinni.“ Sýningin er opin daglega frá kl. 16-19 í nóvember. Vinnustofan verður opin daglega frá kl. 16-19 til jóla. -------♦♦♦------- Nýjar bækur ÍSLENSKT söngvasafn, sem verið hefur ófáanleg um nokkurra ára skeið, er endurútgefið. Fáar nótnabækur hafa reynst tónmennt í landinu eins notadrjúgar og íslenskt söngvasafn. Val texta og laga, en sérlega þó raddsetning Sigfúsar Einarssonar tónskálds er án efa undirstaða þeirra vinsælda, sem bækurnar hafa notið. Útgefancii er Bókafélagið. Bókin er 240 bls. Leiðbeinandi verð er kr. 2.195.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.