Morgunblaðið - 14.11.1997, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fjögurra stjarna
kammerspil
Nýjar bækur
• TÖFRADALURINN er eftir
Elías Snæland Jónsson.
í dal bókanna, þar sem öll æv-
intýrin verða
til, eru undar-
legir hlutir að
gerast. Bóka-
nornin ill-
ræmda er með
áform sem
geta haft
skelfilegar af-
leiðingar fyrir
Elías Snæland ævintýrin Og
jónsson ævintýraper-
sónumar. Jenna Jeremías og
Júlíus vinur hennar halda af stað
í ferð til að stöðva nornina og
bjarga hetjum ævintýranna. Les-
andinn fylgir þeim inn í furðu-
heima og dregst brátt með þeim
inn í æsilega atburðarás sem
ekki sér fyrir endann á.
í kynningu segir: „Töfradalur-
inn er einkar skemmtileg og
spennandi saga úr veröld ævin-
týranna eftir hinn kunna verð-
launahöfund Elías Snæland
Jónsson, sem skrifað hefur fjölda
vinsælla bóka fyrir böm og ung-
linga.“
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 127 bls. Bókin er brotin
um hjá Vöku-Helgafelli en prent-
uð og bundin í Prentsmiðjunni
Odda. Leiðbeinandi verð er
1.880.
• SKÁLDSAGAN Falskur fugl
er eftir Mikael Torfason. Sögu-
sviðið er Reykjavík nútímans.
Arnaldur Gunnlaugsson er 16
ára og býr hjá
vel stæðum
foreldrum sín-
um í Grafar-
vogi. Hann er
myndarlegur,
gáfaður og fer
sinna ferða í
leigubílum -
auk þess er
Mikaei hann traflaður
Torfason á gegj
„Falskur fugl er nöpur og
hrottaleg lýsing á heimi sem allir
þekkja en fæstir þora að horfast í
augu við. Stjómlaust lendum við í
árekstri við óskabarn þjóðarinn-
ar, sem um leið er hennar versta
martröð,“ segir í kynningu.
Útgefandi er Plúton ehf.,
Laugavegi 66. Listaverð er 2.200
kr. Bókin er 160 blaðsíður.
• PÝRAMÍDAR er eftir Anne
Millard í þýðingu Haraldar Dean
Nelson og er fræðslubók fyrir
börn.
Bókin geymir fjölbreyttan
fróðleik um pýramída í Egypta-
landi og Ameríku og enn fremur
slíkar byggingar í nútímanum.
Höfundurinn veltir fyrir sér
ýmsum spumingum og skoðar
málið frá mörgum óvæntum
hliðum.
Útgefandi er Máli og menning.
Bókin er 62 blaðsíður, litprentuð,
í stóru broti og kostíir 1.590
krónur.
• BARNABÓKIN Kappi á
Krossgötum er eftir Stefán Aðal-
steinsson.
Jói er ellefu
ára, lendir
stundum í
slagsmálum og
leiðist lærdóm-
urinn. Um vor-
ið fer Jói í
sumardvöl í
sveit þar sem
hann kynnist
gjörólíkum lífs-
háttum og fær
tækifæri til að sanna hvað í hon-
um býr.
Stefán lýsir kátum krökkum
sem stöðugt finna sér ný við-
fangsefni. Hér segir af
hverfaslag, hestamennsku, lax-
veiðum, útilegu, draugagangi,
réttarferð og fleiru. I söguna er
íléttað miklum fróðleik, ekki síst
um lífið í sveitinni.
Freydís Kristjánsdóttir mynd-
skreytti söguna sem Mál og
menning gefur út. Bókin er 170
blaðsíður, prentuð í Svíþjóð og
kostar 1.390 krónur.-
• TÍGRISDÝRIÐ og vindhviðan
mikla, myndabók fyrir börn er
eftir Arngunni Yr Gylfadóttur
listamann.
Sagan er
byggðá
afrísku ævin-
týri og fjallar
um dýr í frið-
sælum dal. Þar
er lítill lækur
og fallegt
ávaxtatré sem
Tígri tígrisdýr
situr einn að
meðan hin dýrin svelta. En Klók-
ur kanína hefur ráð undir rifi
hverju og leikur á tígrisdýrið eig-
ingjarna.
Útgefandi er Mál og menning.
Allar 24 síður bókarinnar eru
skreyttar litmyndum og bókin
sem prentuð er í Danmörku
kostar 1.390 krónur.
• ÞJÓÐ Guðs - sögur úr Gamla
testamentinu er barnabók í end-
ursögn Geraldine McCaughrean.
Gamla testamentið er saga
þjóðar, þjóðar Guðs á Biblíutím-
anum. Geraldine McCaughrean
hefur hér endursagt vinsælar úr-
valssögur úr því, en hún hefur
hlotið ýmis verðlaun fyrir endur-
sagnir á gullaldarbókmenntum.
Útgefandi er Mál og menning
oggefur út samtímis upphaflegri
útgáfu í Bretlandi. Vilborg Dag-
bjartsdóttir íslenskaði ogAnna
Cynthia Leplar myndskreytti
bókina sem er 120 litprentaðar
síður. Verðið er 1.890 krónur.
• UNGLINGABÓKIN Galdra-
stafir og græn augu er eftir
Önnu Heiðu Pálsdóttur.
Sveinn finn-
ur galdrastaf
ristan í stein
suður í Selvogi
og er í sömu
svipan hrifinn
aftur til ársins
1713, en á
þeim tíma bjó
þar þekkt
þjóðsagnaper-
sóna, séra Ei-
ríkur í Vogsósum. Sveinn kynnist
lífsháttum 18. aldar og Stína,
fyrsta ástin, heillar hann með
grænu augunum sínum. Hann
vill samt komast aftur til nútím-
ans. Spumingin er hvort það
tekst því galdrapresturinn legg-
ur fyrir hann ýmsar snörar.
Mál og menninggefur út bók-
ina sem er 170 blaðsíður, prentuð
í Svíþjóð og kostar 1.880 krónur.
• ARNALDUR refur og grísirn-
ir þrír er eftir Georgie Adams og
Selina Young.
í kynningu frá útgefanda seg-
ir: „Arnaldur refur og grísimir
þrír er skemmtileg saga af góð-
hjörtuðum ref sem dag nokkurn
skömmu fyrir jól fer með vinum
sínum grísunum þremur að leika
söguna um grimma úlfinn og
grísina þrjá. En þá fara óvæntir
atburðir að gerast!"
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Valgerður Benediktsdóttir þýddi.
Bókin er prentuð í Danmörku.
Leiðbeinandi verð er 1.290
krónur.
• LITLIVÆNGUR er eftir Mats
Wánblad og Per Gustavsson.
Sagan fjallar um ungakríli með
agnarsmáa vængi sem tekst að
finna hamingjuna á óvenjulegan
hátt. Hann á í mesta basli með
að læra að fljúga en gefst samt
ekki upp!
I kynningu segir: „Litlivængur
er bráðskemmtileg saga þar sem
óvæntir hlutir gerast!“
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Pétur Ástvaldsson þýddi söguna.
Bókin er prentuð í Danmörku.
Leiðbeinandi verð er 1.290
krónur.
TONLIST
Búslaöakirkju
KAMMERTÓNLIST
Viðfangsefni eftir Prokofiev, Bartók
og Beethoven. Flytjendur, Einar Jd-
hannesson, Anna Guðný Guðmunds-
ddttir, Sigrún Eðvaldsddttir, Sigur-
laug Eðvaldsddttir, Helga Þdrarins-
ddttir, Richard Talkowsky, Richard
Korn, Josef Ognibene og Hafsteinn
Guðmundsson. 9. ndvember kl. 20.30.
Kammermúsikklúbburinn stóð að
þriðju tónleikunum á 41. starfsári
sínu í kvöld og það fyrir svo gott
sem fullsetinni Bústaðakirkju. Mér
er næst að halda að einsdæmi sé
hvað tónleikar klúbbsins era vel
sóttir og er ein sönnun þess að
bygging tónlistarhúss ætti að vera í
forgangsröð verkefna þess opinbera
og einu sinni sett fram fyrir íþrótta-
mannvirkin og bankaslotin. Sá
stjómmálaflokkur sem þorir að taka
á því verkefni fengi öragglega
margar heilbrigt hugsandi sálir til
liðs við sig og gerir um leið upp við
sig hvort hann kýs stundargamanið
eða hefur hugsjónir og vit tU að
standa með þróun og þroska mann-
lífs á plánetu okkar. Öll framþróun
hefur orðið til fyrir áhættu og sá
DJASS
Alternatc Views
HLJÓMDISKUR
Hljdmdiskurinn Alternate Views.
Flytjendur: Wolfert Brederode píand,
Gunnlaugur Guðmundsson kontra-
bassi og Eric Ineke trommur. Útgef-
andi: A-Records, Amhem, Hollandi.
HOLLENDINGAR era ekki
sérstaklega kynntir hér á norðlæg-
um slóðum sem miklir djassmenn
en þeir sem sóttu tónleika ví-
brafónleikarans Fríts Landes-
bergen á Rúrek hátíðinni 1995 vita
að mikil djassæð er í þjóðarsál Nið-
urlendinga. Philip Catherine, sem
lék með Birni Thoroddsen og fé-
lögum á Rúrek í fyrra, er líka stórt
nafn í hollenskum djassi.
I hljómsveit Landesbergen var
Islendingurinn Gunnlaugur Guð-
mundsson á kontrabassa og vakti
mikla athygli. Hann leikur einnig á
diski sem gefinn var út í Hollandi
fyrir skemmstu og heitir Alternate
Views. Með Gunnlaugi leika píanó-
leikarinn Wolfert Brederode og
Eric Ineke á trommur sem er einn
eftirsóttasti hljóðversspilarinn í
Hollandi og er talsvert eldri en
Wolfert og Gunnlaugur.
Efnið sem þeir flytja er að mestu
leyti djassstandardar með per-
sónulegum og dálítið ljóðrænum
sem engu þorir að hætta hlýtur að
mást út og visna. Upptaktur tónleik-
anna var Forleikur eftir Sergei
Prokofiev um hebresk stef, samin
fyrir klarinett, strengjakvartett og
píanó op. 34, skrifað upphaflega fyr-
ir hóp rússneskra tónlistarmanna
sem Prokofiev hitti fyrir í New
York. Klai-inettið setti í upphafi
rétta stemmningu í flutninginn og
þessari stemmningu hélt hópurinn
til enda. Ekki er hér um mjög erfitt
verk að ræða í flutningi, en náist
ekki rétta andrúmsloftið í spilið, fer
ekki mikið fyrir flutningnum. Tekið
skal fram að allir flytjendur tónleik-
anna í kvöld era fyrsta sætis hljóð-
færaleikarar og komu þannig ekki á
óvart. Þó má benda sérstaklega á
Sigrúnu Eðvaldsdóttur, sem sýndi í
þessu fyrsta verki og enn skýrar í
þeim verkum sem síðar komu, að
hún er áberandi góður kamm-
ermúsiker og leiðari. Anna Guðný
undirstrikaði og, bæði í Prokofiev og
Bartók, sem á eftir kom, hve traust-
ur og ágætur meðleikari hún er.
Andstæður (Contrasts) eftir Béla
Bartók segir kannske einskonar
sögu um það hvernig ungverskir
þorpspiltar vora plataðir til að
gegna herþjónustu, glæsihliðar her-
mennskunnar blinduðu piltana svo
formerkjum. Brederode og Gulli
(eins og Gunnlaugur er nefndur í
aðfaraorðum á plötuumslagi) eiga
þó sitt hvort lagið.
Diskurinn er á ljúfu nótunum og
flutningurinn allur pottþéttur.
Brederode er þrátt fyrir ungan
aldur þroskaður og hugmyndarík-
ur í sínum spuna. Stíll hans minnii-
talsvert á Chick Corea og áhrifin
leyna sér ekki í klipptum og flókn-
um laglínum hægri handar, öllum
bláu nótunum, og hófsemi í sam-
leik. Vert er að leggja við hlustfr
þegar Brederode situr við slag-
hörpuna.
Ineke er kjölfestan í þessu
ágæta tríói og setur kúrsinn jafnan
með þýðum simbalastrokum. Hann
er líka hófsamur á sláttinn þannig
að undiraldan úr strengjum
kontrabassans kemur eins og úr
djúpunum.
Gunnlaugur hefur síðustu ár
stundað nám í kontrabassafræðum
í Hollandi og hefur nú haslað sér
völl sem djassleikari þar í landi.
Framlag hans á Alternate Views
sýnir að þar fer tæknilega góður
og rytmískur bassaleikari með
þykkan og hreinan hljóm og full-
komnar tímasetningar.
Alternate Views er diskur sem
hægt er að mæla með við alla
djassunnendur.
að þeir tóku að dansa „sebes“, sem
táknaði að þeir voru um leið skráðir
í herinn. I þrem þáttum verksins,
herski'áningardansinum, hvíldinni
og Sebes, hraða dansinum, upplifði
maður söguna og hér brilleruðu þau
Sigrún, Anna og Einar í kadensum
og villtum leik, enda verkið skrifað
fyrir tvo virtúósa þessarar aldar, þá
Benny Goodmann og Joseph Szi-
geti, báðir heimsfrægir hljóðfæra-
leikarar.
Síðasta og kannske veigamesta
viðfangsefni kvöldsins var Septett-
inn í Es-dúr fyirir klarinett, horn,
fagott, fiðlu, lágfiðlu, knéfiðlu og
bassafiðlu (eins og stendur í tón-
leikaskrá). Hér sýndi Sigrún enn og
aftur að hún er frábær leiðari í
kammermúsik og hver segir að
Beethoven hefði verið á móti þeim
sígaunalitaða tóni, sem auðheyri-
lega er hluti af persónu Sigrúnar.
Septettinn er ekki á þeim alvarleg-
ustu nótum sem einkenna höfund-
inn, frekar að hver þáttur einkenn-
ist sem skemmtitónlist og þannig
var hann einmitt fluttur, og þrátt
fyrir sjö hljóðfæraleikara, einn besti
kammermúsikflutningur íslenskur
sem undirritaður minnist. Fjórar
stjörnur.
Sýningar í
anddyri Nor-
ræna hússins
í ANDDYRI Norræna hússins
hafa verið opnaðar tvær sýningar
sem tengjast Non-ænu bóka-
safnsvikunni sem stendur yfir
10.-16. nóvember og ber yfirskrift-
ina f ljósaskiptunum - Orðið í
norðri.
Sýningarnar eru: A norrænni
slóð sem fjallar um Norðurlöndin
og íbúa þeirra. Hér er um að ræða
samstarfsverkefni sem unnið var
undfr merkjum Nordliv verkefnis-
ins, sem Norrænu félögin á Norð-
urlöndum áttu framkvæðið að og
hófst það 1995 og lýkur á þessu ári.
Tilgangurinn er að efla almenna
þekkingu á norrænni sögu og sam-
félagsgerð, sérstaklega meðal ungs
fólks. Sýningin A noiTænni slóð er
unnin af danska rithöfundinum
Ebbe Klpvedah Reich, arkitektin-
um Soren Sass og verkefnisstjóran-
um Jesper Boysen. Þetta er far-
andsýning og hefur hún verið sýnd
í bókasöfnum víða um land og er
Norræna húsið endastaður hennar.
Einnig verið sett upp lítil sýning
frá Annegárdens Konstcentrum í
Helsingfors, en þar eru haldin
myndlistarnámskeið fyrir börn og
unglinga og er unnið eftir ákveðnu
þema á hverju ári. Sýningin nefnist
Líkamsski'eytingar eða Kropps-
dekorationer.
Það eru börn og unglingar sem
hafa skreytt og litað líkamann með
ýmsum hætti og leita m.a. til
skreytihefðar meðal frumbyggja og
frumstæðra þjóðflokka. Arangur-
inn má líta á spjöldum sem hanga
uppi í anddyrinu. Einnig eru til
sýnis „skartgripir", sem búnir eru
til úr gömlum og verðlausum hlut-
um og endurnýttir á listrænan hátt.
í bókasafni Norræna hússins er
til sýnis handunnin bók eftir
sænsku listakonuna Inger Anders-
son. Inger nefnfr bókina Café París
og inniheldur hún grafíkverk með
myndum og texta með minningar-
brotum frá íslandsdvöl 1993-94. In-
ger Andersson er fædd 1967 og
lauk myndlistamámi í Svíþjóð. Hún
var Nordplus styrkþegi og sótti
tíma í Myndlistar- og handíðaskóla
íslands veturinn 1993-94.
Sýningarnar standa út nóvem-
bermánuð.
Guðjón Guðmundsson.
Píanótónleikar á Siglu-
fírði og Sauðárkróki
ÞORSTEINN Gauti
Sigurðsson píanóleik-
ari heldur píanótón-
leika á Siglufirði laug-
ardaginn 15. nóvember
kl. 17 í Tónlistarskól-
anum. A efnisskránni
era þekkt verk eftir
Chopin, Liszt,
Rachmaninoff, Debus-
sy og Skrjabin.
Þorsteinn Gauti hef-
ur víða komið fram
sem einleikari, bæði
erlendis og innanlands
Þorsteinn Gauti
Sigurðsson
en þetta mun vera í
fyrsta skipti sem hann
leikur á Siglufirði.
Tónleikar á
Sauðárkróki
Einnig heldur Þor-
steinn Gauti píanótón-
leika á Sauðarkróki
sunnudaginn 16. nóv-
ember kl. 16 í Tónlist-
arskólanum.
A efnisskránni eru
sömu verk og flutt
verða á Siglufirði.
Stefán
Aðalsteinsson
Arngunnur Ýr
Gylfadóttir
Ragnar Björnsson.
Píanótríó