Morgunblaðið - 14.11.1997, Síða 33

Morgunblaðið - 14.11.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 33 Alþj óðlegnr dagur sykursjúkra Á DEGI sykur- sjúkra koma í hug orð Vilmundar Jónssonar fyrrum landlæknis sem sagði árið 1938 að sykursýki væri mjög sjaldgæfur sjúk- dómur á íslandi og að það væri alveg sér- stakt fyrir lækni að rekast á sjúkling með þann sjúkdóm. Ekki er þessi sjúkdómur þó sjaldgæfari en svo að nú eru um 500 íslend- ingar sem þurfa dag- lega að sprauta sig með insúlíni og árlega eru 4.000 komur á sykursýkisgöngudeild fullorðinna á Landspítalanum. Sykursýki er dæmi um sjúkdóm þar sem einkennum hefur verið ítarlega lýst og meingerð rækilega rannsökuð. Sú vinna hefur vísað veginn og verið undirstaða mark- vissrar meðferðar til þess að bæta einstaklingnum skort hans á insúl- íni, með insúlínsprautum eða öðr- um sykursýkislyfjum. Jafnframt hefur þróast umhverfi sem byggist á stöðugu eftirliti og teymisvinnu er miðar að því að mæta þörfum sjúklingsins um ýmsa fræðslu, s.s. um næringu og mataræði og að- stoð við að mæta því álagi sem langvinnur og vandasamur sjúk- dómur er. Árangur þessa teymis hvílir mikið á því að vel takist að virkja sjúklinginn sjálfan og að- standendur þegar um barn er að ræða. Nýgengi sjúkdóms- ins hérlendis er með því lægsta sem gerist. Þannig er nýgengi meðal barna á hinum Norðurlöndunum á bil- inu 23-43/100.000 meðan íslensk rann- sókn frá 1991 sýnir að talan hér er 9,4. Talið er að umhverfis- þættir eigi hér hlut að máli þótt ekki sé vitað nákvæmlega hveijir þeir eru. Það má gleðjast yfir því að nýgengi skuli hér vera svo lágt en það er ástæða til að vera hreykin af því hversu fagfólki hérlendis hefur tekist vel í dag þurfa 500 íslensk- ir sykursjúklingar, segir Ingibjörg Pálmadótt- ir, að sprauta sig dag- lega með insúlíni. við meðferð og eftirlit. Rannsóknir víða um heim hafa sýnt, svo ekki verður um villst, að árangur sem næst í því að fyrirbyggja alvarleg- an skaða s.s. í augum, nýrum og taugakerfi tengist gæðum eftirlits og meðferðar. Eftirlit og meðferð sykursýki er talandi dæmi um það sem við ger- um vel í íslenska heilbrigðiskerf- inu. Þar byggir á færu og áhuga- sömu fagfólki og góðu samstarfi þeirra er annast sjúklingana og hafa sérhæft sig á þessu sviði. Þannig er nú veitt skipulögð greiningar- og göngudeildarþjón- usta fyrir sykursjúk börn á Sjúkra- húsi Reykjavíkur og göngudeild fyrir fullorðna á Landspítalanum. Eftir greiningu tekur við margvís- leg fræðsla og síðan eftirlit á göngudeild. Þar er fylgst með blóð- sykri og lagt á ráðin með insúlín- gjafir eða önnur sykursýkislyf en jafnframt fylgst með því hvort fram komi líffæraskemmdir, s.s. í augum, nýrum eða æðakerfi. Sá árangur sem hér hefur náðst hefur vakið eftirtekt. Þannig er tíðni blindu meðal sykursjúkra hér- lendis með því lægsta sem gerist í heiminum. Tíðni blindu í þessum sjúklingahópi er minni en 1% hér á landi en víða er hún allt að tíu sinnum hærri. Sama gildir um tíðni nýrnasjúkdóma, en mjög sjaldgæft er að grípa þurfi til nýrnavélar til blóðskilunar hérlendis vegna af- leiðinga sykursýki. Þriðji þátturinn sem gjarnan er litið til hvað varðar meðferð sykur- sjúkra er hvernig til tekst með meðgöngu og fæðingu hjá sykur- sjúkum konum. Á árunum 1970- 1975 var burðarmálsdauði hjá þessum hóp um 10%. Hér hefur orðið breyting á og á árunum Ingibjörg Pálmadóttir 1980-1990 var hann kominn niður í rúm 2%. Frá 1983 hefur ekki orðið dauðsfall barns er rekja mætti til sykursýki móður á með- göngu. Hér hefur sem sagt náðst það markmið að ekki er munur á hvort konan er sykursjúk eður ei. Þótt ástandið hérlendis sé betra en víðast annars staðar má alltaf gera betur. Þannig er nú verið að stækka aðstöðu göngudeildarinnar á Landspítala og bæta þarf aðstöðu göngudeildarinnar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hver dagur hins sykursjúka er sykursýkisdagur. Alþjóðasykur- sýkisdagurinn minnir hina á að gæta að heilsunni og undirstrikar mikilvægi þess að sykursýki sé leitað vegna þess hve mikilvæg rétt viðbrögð eru. Hann á að minna einstaklinginn á að sinna skilaboð- um líkamans og láta ekki dragast að leita læknis ef grunur vaknar um sykursýki. Alþjóðasykursýkis- dagurinn er síðast en ekki síst hvatning til okkar að gera enn betur til að auðvelda sykursjúkum að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm. Höfundur er heilbrigðis- og tryggingaráðherra. ( N BIODROGA snyrtivörur Mikrá úrval rf fðllegum rúfflffltnaái - kjarni málsins! Munið Ráðstefnudaginn 1997 ii nóvember 1997 að Kjarvalsstöðum Skráning stendur yfir (I) Ráðstefnuskrifstofa ÍSLANDS SÍMI: 562 6070 BRÉFASÍMI: 562 6073 <N o Gæði prentunarinnar í Epson Stylus Photo prentaranum eru hreint út sagt frábær, þökk sé hinni nýju Epson PRQ tækni (Photo Reproduction Quality). Nú getur þú notið þess að fylgjast með Ijósmynd- unum þínum verða að veruleika heima hjá þér. Með því að taka myndirnar á stafræna myndavél frá Epson, vista þær inn á tölv- una þína og prenta út með Epson Stylus Photo bleksprautuprentaranum, losnarðu við hið hefðbundna framköllunarferli. Auk þess getur þú lagfært og breytt eigin myndum eftir smekk og prentað út eins mörg eintök og þú þarft, allt upp í A4 stærð. Ljósmyndaprentun hefur aldrei verið auðveldari en einmitt núna. TOLVUDEILD PÚR HF Armúla 11 - Blml BB8-1SOO Tæknival Skeifunni 17 Reykjavlkurvegi 64 Sfmi 550 4000 Sfml 550 4020 www.taeknival.iswww.taeknival.is •pifr** . ' EPSON Ljósmyndaprentun auðveldari en nokkru sinni fyrr með nýja Epson Stylus Photo bleksprautuprentaranum PHOTO REPRODUCTION Q U A L I T Y Stafræn myndavél frá Epson eða Epson filmuskanni, ásamt tölvunni þinni og Epson Stylus prentara, mynda hið fullkomna Epson myndastúdló.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.