Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 38

Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 38
38 FOSTUDAGUR 14. NOVEMBBR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Sambandsslit Selljamarness og Kópavogs SIJMAR ákvarðanir breyta oft sögunni og oft er erfítt að átta sig á hvaða ákvarðanir þetta eru fyrr en eftir á. Tökum nokkur dæmi: 1) Sambandsslit Sel- tjarnarness og Kópavogs f. 50 árum. 2) Binding aflaheim- ilda við veiðiskip 1984- kvótakerfið. 3) Sala BÚH til Sam- heija. 4) Sala Guggunnar til Samheija. 5) Áhrif kvótakefísins á land- vinnsluna. 6) Áhrif af afnámi línutvöföldun- ar. 7) Áhrif sjófrystingar á land- vinnslu. Sambandsslit Seltjarnarness og Kópavogs fyrir 50 árum Seltjarnarneshreppur hinn forni náði yfír allt Nesið, sem liggur á milli Kollafjarðar og Skeijafjarðar og allt til fjalla, Bláfjöll og Vifíls- fell. Sífellt var gengið á lönd Sel- tjarnarness, þegar þéttbýliskjamar mynduðust í hreppnum. Reykjavík þurfti alltaf meira land. Skildinga- > nes í Skeijarfírði var tekið af hreppnum og lagt til Reykjavíkur með lögum frá Alþingi 1932. Skipting hreppsins milli Kópa- vogs og Seltjamarness var hins vegar innan hrepps mál. Við aukna þéttbýlismyndum í Kópavogi fór svo í hreppnefndarkosningunum 1946 að listi Framfarafélags Kópa- vogs fékk hreinan meirihluta eða 3 fulltrúa af 5. Þessu undu hrepps- nefndarmenn hinnar gömlu hreppsnefndar Framnessins (Sel- tjarnamess) afar illa. Sumarið 1947 gengu undir- skriftalistar um Nesið, þar sem farið var fram á skiptingu hrepps- ins. Undirskrifendur urðu 222 eða ^ rétt yfir tveimur þriðju atkvæðis- bærra manna. Söfnun undirskriftanna var lok- ið snemma í september og 20. þess mánaðar var boðaður almenn- ur fundur um skipt- inguna. Þar hafði Sig- uijón Jónssons fram- sögu og lagði hann áherslu á að erfítt væri fyrir eina hrepps- nefnd að vinna að hagsmunamálum fólks, sem byggi á tveimur aðskildum svæðum. Kom nú til kasta yfirmanna félags- málaráðuneytisins og óskaði það eftir tillög- um frá hreppsnefnd- inni um landamörk hinna tveggja hreppa, fjárhagsaðskilnað og loks nöfn nýju hreppanna. Nú kom sér illa fyrir Seltirninga að vera í minnihluta í hreppsnefnd, því Fimmtíu ár eru frá sam- bandsslitum Seltjamar- ness og Kópavogs. Guð- mundur Ingason veltir fyrir sér hvort þær tíma- mótaákvarðanir hafi verið réttar í dómi sög- unnar. Kópavogsbúar vildu fá allan „Upp- hreppinn", en Seltirningar vildu halda a.m.k. Lækjarbotnum, Gunnarshólma og Vatnsenda auk afréttarlanda. Fór svo að lokum að Kópa- vogsbúar fengu allan Upphrepp- inn, en Seltirningar óljósan sam- eiginlegan afnotarétt. Undirritaður hefur alist upp og síðan stofnað til heimilis á báðum stöðum þ.e. Seltjarnarnesi og Kópavogi. Hefði ekki komið til skiptingar hreppanna fyrir 50 árum hefði ég búið innan sama sveitarfélagsins. Seltimingar gáfu fyrir sjálf- stæðið það sem þeim er dýrast og fágætast í dag þ.e. land til vaxtar. Þessu ætti Kópavogsbær ekki að gleyma. Guðmundur Ingason Mynd/Oddur Sigurðsson/Orkustofnun Selljarnarneshreppur hinn forni. Framsal alls þessa lands til Kópavogs er í dag 50 árum seinna ómetanleg verðmæti og óbætan- leg, sérstaklega fyrir bæjarfélag eins og Seltjarnarnes sem á lítið land og verður búið með allt sitt byggingarland upp úr aldamótum. Kópavogsbúar hafa verið trylltir hin síðustu ár að byggja hin nýju lönd. Vaxtarhraði Kópavogs má helst líkja við „óhefta frumuskipt- ingu“. Vonandi verður það þeim til góðs. Var rétt og skynsamleg af Sel- timingum að krefjast aðskilnaðar hreppanna eftir að þeir töpuðu meirihluta í hreppsnefndinni 1946 og vera með undirskriftarsöfnun þessu til staðfestingar 1947? Vom menn full fljótir á sér? Eftir á má ef til vill segja að við hér á Framnesinu hefðum ekki ráðið við Kópavog, frekar en Reykjavík á sínum tíma. Við sáum ekki við margnum. I ljósi þess var aðskilnaður ef til vill réttur. Þéttbýlismyndunin var hæg hér á Nesinu og mun hægari en í Kópa- vogi. Hreppsnefndarmennirnir hin- ir gömlu hafa óttast að Framnesið yrði nokkurs konar „hornreka" í hinum nýja hreppi, Kópavogi. Nálægðin við höfuðborgina / þéttbýlið hefur orðið Seltjarnes- hreppi hinum forna dýrkeypt. En þrátt fyrir þetta líður okkur bara vel hér á Framnesinu. Við metum sjálfsæði okkar ef til vill meira en margir vegna þess að við gerum okkur ljóst hvað við erum búnir að tapa miklum land- svæðum til þess að fá að halda því. Seltimingar töpuðu löndum, héldu sjálfstjórn og forni frægð. En hefðum við getað náð betri samningum um skiptingu hrepp- anna fyrir 50 árum? Heimild: Seltirningabók 1991, Heimir Þorleifsson. Höfundur er líffræðingur og framkvæmdastjóri. Hver er að skrökva? í EINKAMÁL- GAGNI Kristjáns Ragnarssonar, Útveg- inum, 2. tbl. 6. árg. apríl 1997, er mikil breiðsíða send öllum „öfundarmönnum" hinna göfugu kvóta- eigenda ... „Bestir í heimi að mati OECD“. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það, hveijir eru beztir í heimi hér. Það eru auðvitað þeir sem framlenging LÍÚ í stjómarráðinu heldur að séu undur heimsins og öfundarefni um gervalla heimsbyggðina - sem sé ** sægreifamir. Nú hefur Bjami Haf- þór Helgason gengizt við því að hafa skrifað þessa frétt um af- burði íslenzka kvótakerfísins. í símtali við mig kveðst hann ekki vita hvaðan hann hafi þær tölur sem hann byggir þetta á en í frétt- inni vísar hann á „Hagfræðideild Háskóla íslands" (sic!). Ég talaði við forstöðumann Hagfræðistofnunar Háskólans, Tryggva Þór Herbertsson, sem ber af sér alla ábyrgð á þessum tölum, en fínnst líklegt að þær séu frá Ragnari Árna- syni, prófessor í fiski- hagfræði, og einum eindregnasta tals- manni séreignar sæað- alsins í íslenzkum fiskimiðum. Nú þegar Benedikt Valsson, hagfræðingur hefur sýnt fram á að tölur þessar era heilaspuni vaknar sú spuming hvaðan þessar tölur koma. Ég veit að Bjarni Hafþór er góður hagyrð- ingur eins og hann á kyn til en ég er samt nokkuð viss um að hann hefur ekki skáldað þessar tölur. Hann hefur þær frá einhveij- um sem hann hefur tekið mark á. Ég hef ítrekað reynt að ná tali af Ragnari Árnasyni til þess að spyija hann hvort hann hafí komið þess- Ég bið hvern þann sem kann að upplýsa, segir BárðurG. Halldórs- son, hvaðan þessar töl- ur um arðsemi kvóta- kerfisins eru komnar. um misskilningi í höfuðið á útvegs- mönnum, að þeir væru beztir í heimi en án árangurs. Nú bið ég hann og hvern þann sem kann að upplýsa, hvaðan þessar tölur era komnar um arðsemi íslenzka kvótakerfísins. Það er nóg lagt á íslenzka útvegsmenn að vera Stup- or mundi (undur heimsins) og öf- undarefni um allar jarðir fyrir gjaf- ir íslenskrar alþýðu þó þeir þurfí ekki að standa undir því að vera . . . „bestir í heimi. . . “ Höfundur er varaformaður Samtaka um þjóðareign. Bárður G. Halldórsson Yfir lækinn eftir vatni VEGNA einkenni- legra speglasjóna Afl- vaka í Reykjavík um starfsemi Landsbanka íslands á Vestfjörðum og Austurlandi er ástæða til að vekja at- hygli á eftirfarandi: Á Austurlandi rekur Landsbankinn 12 útibú og afgreiðslur, Bún- aðarbankinn eitt útibú, og tveir sparisjóðir starfa í ijórðungnum. Landsbankinn hefur því yfírburðastöðu í landshlutanum. Tíðum leika afurða- lánin ein á einum millj- arði - eittþúsundmilljónumkróna - til fyrirtækja í viðskiptum við bank- ann á Austurlandi, en afurðalán eru, svo sem kunnugt ætti að vera, flýtilán út á afurðir, þar til greiðsla berst við sölu. Þetta dæmi eitt og sér nægir til að sýna fram á hald- leysi í útlistun Aflvaka á lánastarf- semi Landsbankans þar eystra. Sama máli gegnir um Vestfirði. Innlán í Landsbankanum á Vest- fíörðum nema rúmum 1.800 millj- ónum kr. Afurðalán geta nú talizt um 800 milljónir kr. Nýleg endur- fjármögnun skips sem kom úr við- skiptum við annan banka nam 700 milljónum kr. Ef ekkert annað er sniðið af heildarútlánum bankans á Vestfíörðum eins og þau eru í dag nema þau um 2.400 milljónir kr. Margfeldistal Aflvakamanna milli inn- og útlána er því út i hött. Austurland og Vestfirðir eiga það sammerkt að þar snýst atvinnulífið að mestu um fískveiðar og vinnslu. Sveiflur í Iána- fýrirgreiðslum banka eru því tíðar og mjög miklar t.d. vegna af- urðalána. Ennfremur, eins og nefnt var, getur tilflutningur eins skips riðið mikinn bagga- mun. Ályktanir Aflvaka- manna vegna útlána- stefnu Landsbankans í þessum tveim lands- hlutum eru því á hæpn- um stoðum reistar, svo ekki sé meira sagt. Sérfræðingar þar á bæ hafa farið yfír bæjarlækinn eftir vatni sem Ályktanir Aflvaka- manna eru á hæpnum stoðum reistar, segir Sverrir Hermannsson, að því er varðar útlána- stefnu Landsbankans. þykir þarfleysa bæði eystra og vestra. Landsbankinn setur hag og nauðsyn atvinnulífsins á oddinn og vinnur þannig einnig einstaklingum og samfélaginu bezt. Höfundur er bankastjóri. Sverrir Hermannsson Sögulegar umræður á kvótaráðstefnu LAUGARDAGINN 8. nóv. hélt Sjávarút- vegsstofnun Háskól- ans merkilega ráð- stefnu um eignarhald á kvóta. Allvel hefur verið greint frá fram- söguerindum og þar á meðal frá einkar at- hyglisverðu erindi Þor- geirs Örlygssonar, en ég hef ekki orðið var við frásagnir af um- ræðum, sem mér fund- ust sögulegar fyrir a.m.k. tveggja atburða sakir. Orðalag man ég því miður ekki upp á hár, en umræðurnar munu vera til á segulbandi hjá Sjávarútvegsstofnun Háskólans og einhveijum fíölmiðlum. Annars vegar var Ragnar Árnason, prófessor, spurður að lokinni framsögu út í ummæli í erindi hans. Þar sagði hann, eftir að hafa lýst kostum kvótakerfís- ins, að ef sóst væri eftir einhveij- um félagslegum markmiðum, mætti ná þeim fram eftir öðram leiðum. Spurningin, sem beint var til hans, snerist um hvað hann hefði átt við og hvort hann þekkti einhveijar slíkar leiðir sem ekki fælu í sér beina gjaldtöku af sjáv- arútvegi. Hann svaraði að meðal slíkra leiða væri t.d. gjaldtaka. Mig rekur ekki minni til að hann hafi nefnt önnur dæmi um færar leiðir. Ég hygg að hann hafí árétt- að þessi ummæli í almennum umræðum eftir að aðrir frummæ- lendur höfðu lokið máli sinu. Hitt sem mér finnst frásagnar vert tengist því að í framsögu hafði Birgir Þór Runólfsson, dósent, mælt með því að núverandi kvóta- kerfi yrði fest í sessi og eignarrétt- ur útgerðarmanna á veiðiréttinum gerður skýr og ótvíræður, sem m.a. hefði í för með sér að hann nyti stjórnarskrárvemd- ar. í almennu umræð- unum var Birgir beð- inn að ráðleggja al- mennum, kvótalaus- um kjósanda sem vildi greiða atkvæði sam- kvæmt pyngjuhags- munum sínum, hvernig hann ætti að velja milli hugmynda Birgis og hugmynda sem Pétur Blöndal og fleiri hafa haft uppi um að senda hveijum íslendingi jafnan hlut í árlegum kvóta. Birgir færðist undan að gefa slíkar ráðleggingar og sagðist ekki hafa forsendur eða líkön til að gera þennan sam- anburð. Fréttnæmt er, segir Markús Möller, þegar helstu stuðningsmenn gjafakvótans í hópi hag- fræðinga eru svo hik- andi sem umræðan bar vitni. Nú er það að vísu svo, að menn eiga leiðréttingu orða sinna og treysta sér stundum til að ganga lengra að hugsuðu máli en í óundir- búnum umræðum. Engu að síður finnst mér það í frásögur færandi að þeir tveir hagfræðingar sem helst hafa haldið fram ágæti gjafa- kvótakerfisins í opinberri umræðu eru svo hikandi í stuðningi sínum sem þessi umræða bar vitni. Höfundur er hagfræðingur. Markús Möller

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.