Morgunblaðið - 14.11.1997, Qupperneq 54
. 54 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
GfcWÆ> þAP/AÐTTL //£> ÁZ/Hjs/
/ S/TÓ6A(ZFE££>/MJ /*>£& 1
telÐIEFnftL / TSMA NNlNUM, j
VEfZEHJ/U \//£>A£> F/ 7CHSA 1
yr/R ÖV/NAS/SE&i ...
'Tx
\(W*
1-tí
ii
<Qr<,
i<ao/
01997 Tribuoe Media Servkas. Inc.
All rights reservea.
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Vertu stolt af mér, Magga ...
ég er búin að vera í heilan
klukkutíma hér í mini-golfinu ...
Ég er afar stolt af þér, herra ...
og þú hefur aðeins týnt fimm
golfkúlum...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Fráleit frýjunarorð
Frá Árna Matthíassyni:
EKKI þótti mér gott að sjá að þeim
Davíð Haukssyni og Kjartani Vil-
hjálmssyni, aðdáendum hljómsveit-
arinnar Maus að eigin sögn, þyki
plata hljómsveitarinnar, Lof mér að
falla að þínu eyra, svo slök að ekki
sé hægt að skilja lofsamleg ummæli
mín um hana nema sem háð (sjá
Bréf til blaðsins 13. nóv.). Vissulega
er smekkur manna ólíkur og dómur
sem sá sem varð bréfriturum tilefni
skrifanna hlýtur að byggjast á mín-
um smekk fyrst og fremst. Ekkert
er við það að athuga að þeir tónlist-
arunnendur Davíð Hauksson og
Kjartan Vilhjálmsson hafí annan
smekk fyrir tónlist en ég, en leitt
að þeir komi ekki umbúðalaust að
efninu.
Ég hef fengið þakkir á fleiri plöt-
um en ég hef á tölu, en jafnan talið
að þar séu menn frekar að þakka
Morgunblaðinu en mér og þá fyrir
þá ræktarsemi sem blaðið leggur við
íslenska menningu, íslensk ung-
mennamenning meðtalin. Þakkir á
plötuumslagi eru því alls ekki vís-
bending um að ég hafi komið að
gerð plötunnar á einn eða annan
hátt eða þá að ég eigi einhverra
hagsmuna að gæta vegna útgáfunn-
ar. Reyndar óska ég þess helst að
allar íslenskar plötur „seljist í bíl-
förmum“ því íslensk plötuútgáfa er
dijúgur hluti íslenskrar menningar.
Dómur minn um plötu Mausverja
var vissulega jákvæður, þótt fráleitt
hafi annað eins „lof ... varla birst á
prenti í lýðræðisríki" (sérkennileg
staðhæfing). Ég stend með þeirri
skoðun minni að plata Mausliða sé
framúrskarandi góð, tel hana tví-
mælalaust með bestu innlendu plöt-
um sem ég hef heyrt á þessu ári,
þótt þeir félagar Davíð og Kjartan
kunni ekki að meta hana.
Kunningsskapur hlýtur ævinlega
að vera vandamál í fámennisþjóðfé-
lagi og eftir umfjöllun um íslenska
tónlist í á annan áratug er ég vissu-
lega málkunnugur grúa tónlistar-
manna, þar á meðal liðsmönnum
hljómsveitarinnar Maus. Þó mér sé
vissulega vel til piltanna, líkt og allra
sem eru að feta sig áfram á tónlistar-
brautinni, eru okkar samskipti tengd
því starfi mínu að fjalla um það sem
hæst ber og vert er að kynna í ung-
mennamenningu. Sú fullyrðing að
„Mausarar og Árni eru mestu mát-
ar“ vekur því furðu mína; má ekki
eins segja að við Rúnar Júlíusson
séum „mestu mátar“ vegna þess að
ég tók við hann viðtal sem birtist
sl. sunnudag, eða þá að við Noel
Gallagher Oasis-liði séum „mestu
mátar“ í ljósi þess að ég tók eitt
sinn við hann viðtal eða að við Bono
söngvari U2 séum „mestu mátar"
vegna þess að við ræddumst við
baksviðs eftir tónleika fyrir löngu?
Virðist reyndar sem Davíð og Kjart-
an telji það eitt að viðtalið sé
skemmtilegt aflestrar, eins og þeir
orða það, benda til þess að ég hafi
verið að ræða við vini mína. Það
hlýtur að vera aðal hvers blaða-
manns að samskipti hans og viðmæ-
landa séu óþvinguð og ef vinsamlegt
viðmót, sem ég sýni vissulega fleir-
um en liðsmönnum Maus, skilar sér
í blaðaviðtali er það ekki til marks
um annað en fagleg vinnubrögð.
Enn og aftur: Ekki er við því að
amast að þeir Davíð og Kjartan
hafi aðra skoðun á nýrri plötu hljóm-
sveitarinnar Maus en þá sem birtist
í dómi mínum í Morgunblaðinu, en
fráleit þau frýjunarorð að skrifum
mínum ráði vinskapur við hljóm-
sveitina. Dómurinn var að mínu
mati vel grundaður og unninn á
löngum tíma, frá því löngu áður en
platan kom út, og ég stend við hann.
ÁRNI MATTHÍASSON
tónlistargagnrýnandi.
Yar raunverulegt
tap á raðsmíðinni?
Frá Andrési Guðnasyni:
í FRÉTTUM að undanförnu hefur
mjög verið rætt um tap ríkisins á
smíði fjögurra fiskiskipa, sem smíðuð
voru á Akureyri 1982-1987. Menn
greinir á um hvort tapið sé átta
hundruð og sextíu milljónir króna,
þrettán hundruð milljónir eða jafnvel
sautján hundruð milljónir króna. Það
fer eftir því hvemig menn reikna
dæmið. En hvað sem rétt er í þessu
þá eru þetta hrikalegar tölur, ekki
síst vegna þess að þær eru til komn-
ar vegna stjórnleysis í kerfinu. Af
hveiju var smíði skipanna ekki boðin
út hér innanlands í stað þess að láta
menn vera að dútla við þetta í at-
vinnubótavinnu? Af hveiju voru skip-
in ekki boðin kaupendum á sam-
keppnishæfu verði miðað við þau
skip, sem útgerðarmenn voru að
kaupa erlendis frá á sama tíma? Ef
framleiðslukostnaður hér innanlands
hefur verið hærri, hefðu stjórnvöld
getað látið reikna út hveija skattpen-
inga ríkið fengi af öllum þeim sem
að framleiðslunni komu. Þótt ríkið
hefði þurft að endurgreiða þeim sem
að framleiðslunni komu. Þótt ríkið
hefði þurft að endurgreiða alla þessa
skatta til að jafna verðið á innlendri
framleiðslu og innfluttri, hefði það
borgað sig því þá var þó fagþekking-
in eftir í landinu. En það er alveg
sýnilegt að hér, eins og í svo mörgum
öðrum tilfellum, hafa embættismenn
átt að leysa vanda sem þeir höfðu
ekki vit á.
Á sama tíma og allur skipaiðnað-
ur var að leggjast af hér á landi,
voru íslenskir útgerðarmenn að
byggja upp skipasmíðastöðvar í Nor-
egi með styrkjum frá norska ríkinu.
Af hveiju gat ekki íslenska ríkið
eins gert íslenskum skipasmíða-
stöðvum kleift að framleiða skip á
samkeppnisfæru verði með styrkj-
um, sem það fengi síðan end-
urgreidda í sköttum? Þegar menn
fullyrða að tap ríkissjóðs hafi orðið
á annan milljarð króna vegna smíði
skipa innanlands væri ekki úr vegi
að draga frá þá skatta sem ríkið
fékk vegna þessarar starfsemi. En
það vill brenna við að menn fullyrði
að hagkvæmara sé að kaupa vörur
fullunnar erlendis frá vegna þess að
þær séu ódýrari, en gleyma marg-
feldinu, sem hver klukkustund unnin
innanlands gefur þjóðarbúinu.
ANDRÉSGUÐNASON,
Langholtsvegi 23, Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fróttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sórblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL(S)CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.