Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 55

Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 55
BRÉF TIL BLAÐSIIMS MORGUNBLAÐIÐ Vöndum valið Frá Andra Júlíussyni: VIÐ stöndum nú mörg í þeim spor- um að mega kjósa í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í fyrsta sinn næsta vor. Margir eru ákveðnir en þó enn fleiri óákveðn- ir. Ég tel óhætt að segja þeim að valið er óvenju auðvelt að þessu sinni. Undanfarið hafa sjálfstæðis- menn nýtt öll færi til að klekkja á okkur borgarbúum. Samgöngu- ráðherra vildi til dæmis hækka símareikning okkar upp úr öllu valdi og auka enn á gróða ríkis- hlutafélagsins Pósts og síma. Þar greip þó forsætisráðherrann í taumana og gerði tilraun til að bjarga ímynd flokksins með því að lækka mistök samgönguráð- herra um nokkur prósent. En framkvæmdasemi samgönguráð- herrans dreifist því miður ekki jafnt á alla hans málaflokka, því hann dregur lappirnar í hveiju hagsmunamáli höfuðborgarbú- anna á fætur öðru. Nægir þar að nefna Gullinbrú og Reykjavíkur- flugvöll. Það er þó engin nýlunda þar sem samgönguráðherrann á í hlut því hann hefur ávallt verið ráðherra eins kjördæmis fremur en annarra en ekki ráðherra allra landsmanna eins og honum ber að vera. Svo má spytja: Hvar eru þingmenn okkar Reykvíkinga og borgarfulltrúar úr röðum sjálf- stæðismanna? Ekki heyrist hátt í þeim þegar hagsmunir borgarbú- anna eru fyrir borð bornir. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sem á að heita þingmaður Reykvíkinga er ekki einungis þögull hvað varð- ar hagsmunamál okkar borgarbúa heldur beitir sér sérstaklega fyrir því að skera niður fjárveitingar til Sjúkrahúss Reykjavíkur, svo mikið að líkur eru á að það verði óstarfhæft á næsta ári. Líklegt má telja að rót vandans felist í því að atkvæði okkar Reyk- víkinga vegur nú orðið harla lítið í samanburði við atkvæði í dreif- býli. Þeim sem bera ábyrgð á þessu óréttlæti finnst það því lítið atriði að kjósendur hér í höfuð- borginni sitji á hakanum. Þing- menn Reykjavíkur með Davíð Oddsson í broddi fylkingar virðast láta sér það í léttu rúmi liggja þó að við borgarbúar búum við stór- lega skert lýðréttindi og að hagur okkar sé fótum troðinn. Það var þó eitt sinn mikið baráttumál sjálf- stæðismanna að jafna atkvæðis- rétt landsmanna en ekki fer mikið fyrir því nú. Getur það verið að við viljum fólk úr flokki sem þess- um til að stjórna borginni okkar? Mitt svar er nei! Við skulum taka höndum saman og tryggja það að Reykjavíkurlistinn með Ingibjörgu Sólrúnu í forystu haldi borginni í kosningunum í vor. ANDRIJÚLÍUSSON, Neðstaleiti 3, Reykjavík. Til hvers var svargreinin? Frá Valgerði Einarsdóttur: SJALDAN hef ég lesið jafn ámát- legar afsakanir og yfirklór _um verk R-listans og það sem Árni Þór Sigurðsson fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í R-listanum viðhafði i grein í Mbl. 11. nóv. sl. Þar var hann að svara Árna Sigfússyni. Árni hafði skýrt frá því í stuttri grein í Morgunblaðinu að hann hefði staðið fyrir því að hætt var við endurbyggingu Korpúlfsstaða, að kostnaður við Listasafn í Hafn- arhúsi væri að nálgast 700 milljón- ir króna og að fjölgun bama á leik- skólum hafi verið meiri á síðasta kjörtímabili en þessu. Þetta þótti alþýðubandalagsmanninum greini- lega hið versta mál og varð að svara einhveiju. En svör hans eru einfaldlega staðfesting á því sem Árni Sigfússon var að segja. Alþýðubandalagsmaðurinn mót- mælir og segir Áma fara með rangt mál en sýnir svo í rökum að Árni Sigfússon hefur rétt fyrir sér. Stundum sleppir alþýðubanda- lagsmaðurinn rökum. T.d. þegar hann útskýrir að fjölgun bama á leikskóla sé ekki eins mikil og á síðasta kjörtímabili. Það gerir hann bara með því að segja að ástandið hafi verið afar slæmt fyrir 5 árum en nú viti allir að það sé gott. Hann forðast að nefna tölurnar, því þær sýna að hér er ekkert bet- ur unnið en á síðasta kjörtímabili D-listans. Það er auðvitað grát- legt, því margir halda því fram að það eina sem standi eftir sem efnt loforð R-listans, tengist leikskóla- málum, það er ekki rétt. R-listinn lofaði að útrýma biðlistum. Það þurfti hann að gera til að yfirbjóða D-Iistann. Þetta loforð stendur hann svo ekki við, en nær svipuð- um árangri og D-listinn gerði á síðasta kjörtímabili. Það gerir hann þó með mun meiri kostnaði fyrir borgarbúa. VALGERÐUR EINARSDÓTTIR, Laugamesvegi 40, Reykjavik. Athugasemd Frá Jóni Viðari Jónssyni: í MORGUNBLAÐINU í gær (12. nóv. 1997) tekur Þröstur Helga- son blaðamaður sér fyrir hendur að lýsa efni greinar eftir mig, sem birtist í 2. tölublaði tímaritsins Fjölnis. í þessari „endursögn“, eða hvað á að kalla það, gætir því miður bæði ónákvæmni og mis- skilnings, sem ég get ekki látið standa án leiðréttingar. Svo virðist sem Þröstur telji aðaltilgang greinarinnar vera að deila á leikstjórnarferil Þórhildar Þorleifsdóttur. Hann vitnar beint í alllöngu máli í orð mín um það efni, en minnist hins vegar ekki á meginatriði málsins, sem er staða Leikfélags Reykjavíkur og Borg- arleikhússins nú í haustbyrjun 1997, fyrr en rétt í lokin. í grein minni rifya ég upp það, sem hefur verið að gerast innan leikhússins síðustu misseri, og reyni að greina helstu orsakir þess ömurlega ástands, sem þar blasir við. M.a. deili ég á borgaryfirvöld fyrir að- gerðir þeirra, eða öllu heldur að- gerðaleysi, í málum leikhússins. Ég geri það að vísu ekki fyrr en undir lok greinarinnar, en þá hef- ur blaðamaðurinn sennilega verið farinn að flýta sér við lesturinn. Álit mitt á leikstjórn Þórhildar er aðeins einn þáttur í þessari umfjöllun. Þórhildur ber sem leik- hússtjóri sannarlega sína ábyrgð á því, hvernig komið er, en því fer víðs fjarri, að ég geri hana að ein- hvetjum persónugervingi fyrir niðurlægingu LR og Borgarleik- hússins. í greininni ber ég lof á hana fyrir að hafa veitt nýju leik- stjórnar-blóði inn í leikhúsið og sagt gamalgróinni stöðnun stríð á hendur, en gagnrýni fyrir misráð- ið verkefnaval. Þó að flutningur á tveimur verkum Jökuls sé vissu- lega rós í hnappagatið, breytir það ekki því, að leikritavalið hefur á heildina litið verið mjög misráðið frá því hún tók við stjórnartaum- um. Að þessu leyti þykist ég sjá ákveðna hliðstæðu milli leikstjór- ans Þórhildar og leikhússtjórans: tilhneigingu til að ofmeta mikil- vægi ytri fagmennsku í sýningar- vinnunni, en vanmeta innihaldið, skáldskapargildi verkanna sjálfra. Það er að sjálfsögðu ánægju- legt, að Morgunbláðið skuli verja rými sínu til að fjalla um hina tímabæru og einkar þörfu tilraun Gunnars Smára Egilssonar til að koma á fót óháðu og metnaðar- fullu menningartímariti á íslandi. Fyrir nokkru gagnrýndi ég blaðið fyrir að minnast ekki á slíka út- gáfustarfsemi og fagna því þá að sjálfsögðu, að það skuli hafa tekið upp nýja og betri hætti. En þá verður líka að ætlast til þess af blaðamönnum, að þeir gefi ekki lesendum villandi mynd af því, sem þeir eru að skrifa um. JÓN VIÐAR JÓNSSON leiklistargagnrýnandi. Gull- og silfurskórnir komnir í st. 30-36 Verð kr. 2.290 Smáskór í bláu húsi við Faxafen Sími 568 3919 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 55

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.