Morgunblaðið - 14.11.1997, Side 68
Mewu£d
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐID, KHINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI569II00, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
NÝJA B 757-200 þotan, sem Flugleiðir fá afhenta upp úr miðjum janúar, á að fara í fyrsta reynsluflug sitt
um helgina. Myndin var tekin nýlega þegar vélin var á lokastigi í framleiðslulínu Boeing-verksmiðjanna.
Ný þota Flugleiða
í loftið um helgina
SMÍÐI nýrrar Boeing 757-200
þotu Flugleiða lýkur nú í vikunni
og er ráðgert að hún fari í fyrsta
reynsluflug sitt um helgina.
Flugleiðir munu taka við henni
upp úr miðjum janúar og fer hún
þá í vetraráætlun félagsins. Flug-
leiðaþotan nýja fær skráningar-
stafina TF-FIN.
Flugleiðir hafa ákveðið kaup á
tveimur B 757-200 þotum og
tveimur B 757-300, sem er ný
gerð og sjö metrum lengri, og
síðan á félagið kauprétt á allt að
átta B 757 þotum til viðbótar.
Gætu þær komið til afhendingar
á næstu átta árum.
B 757-200 þotur geta flutt 224
farþega en TF-FIN verður hjá
Flugleiðum með 189 sætum eins
og aðrar B 757-200 sem félagið
rekur. Til samanburðar má
nefna að stærri þotan, B 757-300
gerðin, mun taka 228 farþega
eins og hún verður útbúin fyrir
Flugleiðir. í farþegarými nýju
þotunnar verða 27 sjónvarps-
skjáir af nýjustu gerð.
Fyrstu vikurnar eftir að þotan
er tilbúin til flugs verður hún lán-
uð Boeing-verksmiðjunum til
prófana á nýjum fjarskiptabúnaði
um gervihnetti og ýmsum öðium
rafeindabúnaði sem tengist sér-
stakri áætlun Alþjóða flugmála-
stofnunarinnar um flugleiðsögu-
kerfi framtíðarinnar. I þeiri’i
áætlun felst að fiugfjarskipti,
flugleiðsaga og eftirlit með flug-
umferð muni í framtiðinni að
mestu fara fram um gervihnetti.
Slíkur búnaður verður fyrst um
sinn aðallega í flugi yfir Kyrra-
hafi en mun síðar breiðast út til
annarra svæða heimsins, meðal
annars í flugi yfir Atlantshafið.
A__
SIF gerir kaup-
tilboð í físk-
vinnslu í Noregi
Er hluti af samsteypu Kjell Inge Rökke
SÍF hf. hefur ásamt norskum sam-
starfsaðilum í Noregi gert kauptil-
boð í Hovden Fiskindustri as. í Bö í
Vesteraalen. Eigendur Hovden
Fiskindustri hafa tekið tilboðinu, en
stjórnir fyrirtækjanna eiga eftir að
samþykkja kaupin. Saman eiga SÍF
- 'Áí. og norsku aðilarnir fyrirtækið
Loppafisk í Finnmörku.
Hovden Fiskindustri as. er í eigu
Melbu Fiskindustri, en það er hluti
af sjávarútvegssamsteypu norska
kaupsýslumannsins Kjell Inge
Rökke, Norway Seafood. Hovden
Fiskindustri hefur verið leigt út að
undanfornu, en um þessar mundir
er verið að frysta síld þar.
Róbert B. Agnarsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri SÍF, segir að í
Hovden hyggist SÍF og norskir
samstarfsaðilar leggja áherzlu á
bolfisksöltun og síldarfrystingu.
Með því móti aukist umsvif SIF í
sölu á saltfiski, en auk þess er mikið
af síld unnið hjá dótturfyrirtæki
þess, Nord Morue, í Frakklandi.
SIF hf. á nú fyrirtækið Mar-Nor í
Tromsö, en það kaupir og selur fisk,
mest saltfisk; helmingshlut í Loppa-
fisk í Oksfjörd, sem einbeitir sér að
bolfisksöltun og loks Hovden
Fiskindustri með samstarfsaðilum
sínum, gangi þessi kaup eftir.
Auk þessa á SÍF hf. meðal ann-
ars fyrirtækið Nord Morue í
Frakklandi, rekur söluskrifstofu á
Ítalíu og dótturfyrirtæki á Spáni
og keypti nýlega fískvinnslufyrir-
tækið Sans Souci á Nova Scotia í
Kanada.
Forsætisráðherra um Byggðastofnun
‘ Lánveitingrmi
hugsanlega hætt
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær að til álita
kæmi að Byggðastofnun hætti með
öllu lánveitingum til fyrirtækja á
landsbyggðinni.
Davíð sagði að miklar breytingar
hefðu orðið á íjármálamarkaði frá
'dpVí lög um Byggðastofnun voru
sett. „Með eflingu hlutabréfamark-
aðar orkar meira tvímælis en áður
að opinberir aðilar stundi áhættu-
sama lánastarfsemi, þar sem komið
hefur fyrir að ián séu afskrifuð jafn-
harðan og þau eru veitt. Það er ljóst
að lánveitingar stofnunarinnar
skarast að nokkru leyti við starf-
Sjsmi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs-
ins, sem tekur til starfa um næstu
áramót. Ég tel því að það komi til
álita að hætta alfarið lánveitingum á
vegum Byggðastofnunar um leið og
starfsskipulag og hlutverk stofnun-
arinnar verði endurskoðað,“ sagði
forsætisráðherra.
Hann sagði að stjórnvöld yrðu að
horfast í augu við að þær aðferðir
sem þau hafa beitt til þessa, til að
reyna að viðhalda jafnvægi í byggð
landsins, hafi ekki gert það gagn
sem vonast var til. Þá yrðu stjórn-
völd að horfast í augu við að mögu-
leikar þeirra til að ákvarða eða hafa
stjórn á fólksflutningum væru
næsta takmarkaðir.
Aðgerðir gegn fólksfækkun/10
Morgunblaðið/Þorkell
AFLI Skarfakletts var færður í land til að létta trilluna og að unnt væri að kanna skenimdir.
Skipverjar gengu í land
TÆPLEGA sex tonna trilla,
Skarfaklettur GK 3 frá Sand-
gerði, strandaði við Setberg, um
einn km sunnan Sandgerðis laust
fyrir klukkan 20 í gærkvöld.
Tveggja manna áhöfn trillunnar
var engin hætta búin enda blíðu-
veður og gengu skipverjar í land.
Björgunarsveitir höfðu strax
mikinn viðbúnað enda ekki vitað
um aðstæður á strandstað né
hvort unnt væri að bjarga mönn-
unum frá landi eða af sjó. Milli 15
og 20 menn frá björgunarsveitun-
um Sigurvon í Sandgerði og Ægi
í Garði voru komnir á strandstað
innan við hálftíma eftir útkall.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
einnig köiluð út en aðstoð hennar
afþökkuð áður en hún fór í loftið
þar sem ijóst var að hægt var að
bjarga mönnunum úr landi.
„Þegar ég sá hversu stutt var í
land varð mér ljóst að engin
hætta var á ferðum,“ sagði Gunn-
ar Þór Grétarsson, skipstjóri, á
strandstað í gærkvöld þar sem
hann var að bjarga aflanum frá
borði með aðstoð björgunarsveit-
armanna. Gunnar sagði að ein-
hver sjór hefði komist í vél og
hugsanlega í lestina enda fór bát-
urinn nánast á hliðina þegar hann
tók niðri á grynningunum en þá
var að falla út. Sagði hann að
þegar skemmdir hefðu verið
kannaðar væri hægt að ákveða
hvort hann yrði dreginn á flot eða
hreinlega upp í sandfjöruna og
fluttur burt. Björgunarskipið
Elding GK var einnig kallað á
strandstað og var til taks ef
draga ætti bátinn á flot í nótt.
Gunnar vildi ekki geta sér til
um ástæðu strandsins en bátur-
inn var á leið til hafnar í Sand-
gerði. Gunnar gaf skýrslu hjá
lögreglu á strandstað.