Morgunblaðið - 18.11.1997, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÆTTU þessu væli, elskan. Það er líf eftir Jón Baldvin.
Við höfum nú spaugstofuna enn . . .
FÍB leitar nýrra leiða til að
bjóða bestu kjör á farsímum
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda
mun leita annarra leiða til að bjóða
félagsmönnum bestu kjör á farsím-
um nú þegar Póstur og sími hf.
hefur dregið til baka tilboð sitt til
félagsmanna FÍB í kjölfar úrskurð-
ar samkeppnisráðs um að tilboðið
stangist á við samkeppnislög. Þó
kemur til greina að FIB semji sér-
staklega við Póst og síma hf. um
að sértilboð fyrirtækisins á farsím-
um standi áfram en það verði óháð
samningi um afnotagjöld.
Seljendur farsíma hafa haft
samband við FÍB
í tilkynningu frá FÍB kemur
fram að samningar við aðra aðila
komi einnig til greina og nokkur
fyrirtæki sem selja farsíma hafí
haft samband við FÍB í því sam-
bandi.
Samkvæmt úrskurði Samkeppn-
isráðs eru þeir félagsmenn sem
keypt hafa síma af Pósti og síma
hf. samkvæmt tilboðinu óbundnir
því skilyrði tilboðsins að geta ein-
göngu skipt við Póst og síma hf.
næstu tvö ár komi samkeppnisaðili
í farsímaþjónustu inn á markaðinn.
Tónfeikar í Háskólabíói
fimmtudagínn 20. nóvember kl. 20:00
Hljómsveitarstjóri: Kynnir:
Petri Sakari Sigurður Ingvi Snorrason
Drengja- og
telpnameist-
arar í skák
DRENGJA- og telpnameistaramót
íslands í skák lauk á sunnudaginn.
Keppendur voru 45 talsins og skák-
meistari í drengjaflokki varð Sigurð-
ur Páll Steindórsson og í telpna-
flokki Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
Sigurður Páll hlaut 8 V2 vinning
af 9 mögulegum, Hjalti Rúnar Ómars-
son fékk 7 vinninga og í 3.-5. sæti
með 6 72 vinning urðu Guðmundur
Stefán Pétursson, Ómar Þór Ómars-
son og Eiríkur Garðar Einarsson.
Ingibjörg Edda hlaut 5 ‘/2 vinning
í telpnaflokki, Anna Lilja Gísladóttir
hlaut 4 vinninga og Ágústa Guð-
mundsdóttir 3 vinninga.
-----♦ ♦ ♦----
Leifur Þórarinsson: För
Wolfgang A. Mozart: Klarínettkonsert
Jean Sibelius: Sinfónía nr. 4
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói vi& Hagatorg
Sími: 562 2255
Fax: 562 4475
Veffang: www.sinfonia.is
Mibasala á skriístofu hljómsveitarinnar og vib innganginn
Bilun hjá
símanum
BILUN varð í skiptistöð Pósts og
síma í Landssímahúsinu í um eina
klukkustund eftir hádegi í gær. Bil-
unin olli truflunum á símasambandi
hjá stærri fyrirtækjum og stofnun-
um í Reykjavík sem eru tengdar
skiptistöðinni með beinu innvali,
m.a. hjá Landspítalanum. Að sögn
Hrefnu Ingólfsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa P&S, hafði tekist að gera
við bilunina um kl. þijú í gær.
Erindi og námsstefna um sállækningar
Einstaklingnrimi
í hópnum o g tengsl
hans við hópinn
Colin James
UUNDIR yfirskrift-
inni „Einstakling-
urinn í hópnum og
tengsl hans við hópinn"
stendur Þerapeia, Suður-
götu 12, næstkomandi
fimmtudag 20. nóvember
kl. 20:30 fyrir fyrirlestri í
Odda, Háskóla íslands, og
námsstefnu um sama efni
á föstudag og laugardag.
Fyrirlesari er Colin James,
þekktur enskur sálgrein-
andi frá Cambridge. Á
námsstefnunni stendur til
að fara meðal annars yfir
helztu hugtök sálgreining-
ar að fomu og nýju, ræða
um vaxandi mikilvægi við-
fangstengslakenninga
(object-relations theoríes)
fyrir meðferð og mann-
skilning. Fyrirlesturinn er
öllum opinn en námsstefn-
unni er fyrst og fremst ætlað að
höfða til fagfólks á sviði geðheil-
brigðisfræða og mannvísinda.
I símaviðtali fyrir komu sína
hingað til lands fékk Morgunblaðið
Colin James til að skýra nánar frá
efni fyrirlestrar síns.
- Getur þú gefíð iesendum yfírlit
yfír þær kenningar, sem þú hyggst
fjalla um?
„Það sem ég ætla að tala um
er að við emm öll hluti hóps, af
einni eða annari gerð. Við gleymum
því mjög oft, hve háð við emm
hópum.
Ég reyni að skýra tengsl ein-
staklingsins við hópinn og hinar
ýmsu aðferðir sem menn hafa þró-
að til að nálgast þetta viðfangs-
efni, og gildi hvors tveggja.
Maður að nafni Foulkes lýsti
einstaklingnum þannig, að hann
væri hluti hóps eins og af samof-
inni heild, en við séum háðari hóp-
um en við gemm okkur almennt
grein fyrir. Við leitumst við að
vera óháð, sjálfstæð. En við emm
mjög háð öðru fólki.
Freud fjallaði þannig um þróun
mannsins, að hann væri í upphafi
algerlega háður móðurinni og síðan
fjölskyldunni. Það sem hópsálgrein-
ing hefur bætt við þetta er að
hversu sjálfstæð sem við verðum
losnum við aldrei frá þeirri þýð-
ingu, því vægi sem hópar hafa fyr-
ir líf okkar.
Kenningarnar sem ég notast við
þegar ég reyni að skilja þessi fyrir-
bæri em annars vegar kenningar
Freuds, frá því snemma á ferli hans
og allt fram til dauðdaga hans, auk
kenningar sem nefnd er viðfangs-
tengslakenning. Þessi kenning
leggur áherzlu á, hvað varðar ein-
staklinginn sem slíkan, hversu háð-
ur hann er fjölskyldunni, foreldmn-
um og hveijum öðmm.
Freud aftur á móti leggur mest
upp úr því, að við höfum eðlislægar
þarfir, sem krefjast fullnægingar.
Viðfangstengslakenn-
ingin felur í sér, að
meginmarkmið okkar sé
að eiga samskipti við
annað fólk, og geðheilsa
okkar sé háð því hvem-
ig þessum samskiptum er háttað.
Gildi þessara kenninga er, sam-
kvæmt minni reynslu af því að
starfa að sálgreiningu bæði á ein-
staklingum, pöram og hópum, er
að þegar við höfum einu sinni sætt
okkur við það hve háð við eram
öðrum en okkur sjálfum getum við
lært heilmikið af þessari vitneskju
og orðið óhræddari við að tengjast
öðru fólki.“
Styrkleiki einstaklingsins tengist
því beint, hversu vel við emm, hvert
fyrir sig, í stakk búin til að bera
traust til þess hóps, sem við lifum
í. Öll lifum við í margs konar hóp-
► Colin James, MPhil, MB,
Ch.B, FRCPsych., er sálgrein-
andi, hópsálgreinandi og ráð-
gefandi geðlæknir. Hann er víð-
menntaður á þessu sviði og
þekktur heima fyrir og erlendis
fyrir störf sín, skrif, fræðslu og
handleiðslu. Meðal annars hefur
hann unnið gott starf á þessu
sviði á hinum Norðurlöndunum.
Hann býr og starfar í Cam-
bridge, Englandi.
um, sem einnig blandast í huga
okkar.
- / hvetju felst munurinn á nýj-
ustu kenningunni og þeim eldrí?
„Munurinn á sér rætur í verkum
Freuds, en í þeim er eitt og annað
að finna, sem bendir í áttina að
því, sem nýja kenningin gengur
út á, þar sem mest er lagt upp úr
því að einstaklingurinn sé háður
hópnum, fjölskyldunni, umhverf-
inu, nágrenninu, vinnustaðnum,
þjóðfélaginu, heiminum.
Einkum vegna þess að boðskipti
hafa vaxið svo hröðum skrefum,
þrátt fyrir allar hörmungar og stríð
mannkynsins, þá emm við, innst
inni, að leita eftir „hinni fullkomnu
veröld“, sem mjög ólíklegt er að
hægt sé að öðlast. Þar sem við emm
háð öðmm, bijótast vonbrigði okkar
út í árásargimi, sem jafnframt er
kjamaatriði í mannlegri hegðan."
- Er þá hæfíleikinn til að tjá sig
í hópnum lykilatríði í nýjustu sál-
greiningaraðferðinni?
„Hér er um tvo ólíka hluti að
ræða, sem rétt er að greina á milli.
Annar er sálgreining sem slík og
hitt er hvernig hún er notuð til að
hjálpa okkur að skilja okkur sjálf
í sambandi við annað fólk.“
„Ég get lýst kjama viðfangsefn-
isins með dæmisögu.
Sumir segja, að nú búist nýfætt
barn við eðlilegu, uppbyggilegu
umhverfi, erfðafræðilega. Síðan
fæðist þetta barn inn í fjölskyldu,
vex og verður þátttak-
andi í samfélaginu. Þá
rekur það sig á það, að
heimurinn er ekki eins
fullkominn og vonir
stóðu til. Þetta leiðir til
innri togstreitu. Þessi togstreita
getur verið spillandi, en hefur einn-
ig skapandi eiginleika. Það verk-
efni, sem felst í því að miðla málum
milli einstaklingsins og hópsins,
skilar bæði einstaklingnum og
hópnum áfram.“
„Heilbrigð samfélög þarfnast
heilbrigðs fólks. Heilbrigt fólk
þarfnast heilbrigðra samfélaga."
- Og þörfnumst við þá sálgrein-
ingarinnar til þess að viðhalda heil-
brigði þeirra?
„Við þurfum á aðferðum sál-
greiningarinnar að halda til að
skilja samhengi hlutanna, já.“
Snýst um
tengsl ein-
staklingsins