Morgunblaðið - 18.11.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 21
H O N D A
Stór fjórhjóladrifinn bill á frábæru verbi
FRÁ KR! 2.190,000,- Á 6ÖTUNA.
Volkswagen með í
slaginn um Rolls-Royce
Frankfurt. Reuters.
VOLKSWAGEN AG hefur
opinberlega látið í ljós
áhuga á bílaframleiðand-
anum Rolls-Royce, en
fréttum um að VW hafi
slegið út keppinautinn
BMW er vísað á bug.
Franski bankinn BNP
sagði að Rolls-Royce yrði
dýr og benti á að kaup-
verðið yrði líklega á bilinu
900 milljónir marka til 1,2
milljarðar marka, tvöfalt
hærra en 690 milljóna
marka sala fyrirtækisins
1996.
Aðrir segja tilboð frá
VW skynsamlegt og
gróðavænlegt, en telja að
gróðinn muni ekki skila
sér strax heldur á 8-12
árum.
Móðurfyrirtækið Vic-
kers Plc vísaði á bug þeirri
frétt þýzka blaðsins Hand-
elsblatt að VW hefði þegar
sigrað BMW AG í sam-
keppninni. Vickers neit-
ar því einnig að BMW
geti slegið út alla keppi-
nauta sína.
Lengi vel lét enginn
annar framleiðandi en
BMW áhuga á Rolls-
HIÐ fræga einkennismerki Rolls Royce.
Royce og samkomulag var talið
innan seilingar. BMW á brezka fyr-
irtækið Rover Group og margir eru
enn vissir um að BMW eignist Rolls.
Fyrir tveimur árum komst BMW
að samkomulagi um að útvega vél-
ar í Rolls-Royce og Bentley bíla.
BMW hefur ítrekað áhuga sinn
og ef fyrirtækið bíður lægri hlut
fyrir VW mun það líklega hóta að
segja upp samningum smíði á vélum
í lúxusbíla og sportbíla um aldamót-
in samkvæmt heimildum í geininni.
BMW nýtur góðs af því að réttur-
inn á nafni Rolls-Royce er enn í
eigu Rolls-Royce Plc, flughreyfla-
framleiðandans, sem var skilinn frá
bíladeildinni þegar hið sameiginlega
fyrirtæki varð gjaldþrota 1973.
BMW og Rolls-Royce vinna sam-
an að gerð flughreyfla.
Sérfræðingar segja að það
samband hafi haft úrslita-
áhrif þegar BMW sigraði
Mercedes í keppni um
smíði Rolls-vélarinnar.
Starfsmenn VW, sem
mun eiga 16 milljarða
marka, í varasjóði, segja
að hægt verði að nota
nýju V-12 vélian, sem
sýnd var á bílasýningunni
í Tókýó, í Rolls bíla.
AðrirTiugsanlegir bjóð-
endur eru Ford Motor
Corp, Daimler-Benz AG,
Fiat og Toyota .
Daimler einnig með
tilboð
Daimler-Benz AG hefur
einnig áhuga á að taka við
rekstri Rolls-Royce, þótt
fyrirtækið hafi oft neitað
því, að sögn fréttatíma-
ritsins Der Spiegel.
Daimler vill nota Rolls-
Royce til að auka úrval
sitt að sögn Der Spiegel
„Daimler býður í Rolls-
Royce, jafnvel þótt fyrir-
tækið neiti því,“ sagði rit-
ið.
Því er einnig haldið
fram að Daimler forstjórinn Júrgen
Schrempp sé „ófús til málamiðlun-
ar“ í viðureign sinni við Volkswagen
AG um Rolls.
Daimler hefur hvað eftir annað
neitað því að hafa áhuga á Rolls
og kveðst ætla að bjóða upp á glæsi-
útgáfu af Maybach bílnum, sem var
sýndur nýlega á bflasýningunni í
Tókýó.
■peningana
fara í VSKinn
Hjá B&L fæst gott úrval af bílum til
atvinnustarfsemi sem undanþegnir
eru virðisaukaskatti.
Renault Express _______
Verð frá 1.003.000 kr. án vsk.
Afborganir á mánuði: 11.458 kr.*
Rekstrarleiga á mánuði: 22.236 kr.’1
* Afborgamr á mánuði m.v. 84 mán.
(Innborgun 25%) lokaverð með vöxtum og kostnaði: 1.274.530
Einnig hægt að fá 100% ttn í 72 mánuði.
** Miðað viö 3 ár og 60.000 km. akstur.
RENAULT
B&L, Suðurlandsbraut 14 & Armúla 13, Sími
575 1200, Söludeild: 575 1220, Fax: 568 3818
Blab allra landsmanna!
JHorötmlblíibiti
-kjarnimálsms!