Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 25
ERLENT
Deilur um fjármögnun kosningabaráttu Verkamannaflokksins
Blair biðst afsökunar
London. Reuters. The Daily Telegraph.
Reuters
UNGVERSKUR hermaður brosir til ljósmyndarans á heræfingu. Ung-
verski herinn bætist við herafla NATO 1999.
Ungverjar sam-
þykkja NATO-aðild
Búdapest, Brussel. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, baðst á sunnudag afsökunar á
því hvernig stjórn hans hefði tekið á
deilum um fjármögnun kosninga-
baráttu Verkamannaflokksins og
undanþágu Formúlu 1-kappaksturs-
ins frá banni við tóbaksauglýsing-
um. „Það var ekki tekið vel á þess-
um málum,“ sagði Blair í
sjónvarpsviðtali á sunnudag. „Eg
tek á mig fulla ábyrgð og biðst
afsökunar.“
Málið er hið versta sem komið
hefur upp í stjórnartíð Verka-
mannaflokksins sem tók við völdum
í maí sl. eftir stórsigur á Ihalds-
flokknum. í kosningabaráttunni og
síðustu ár fyrri stjórnar hamraði
Verkamannaflokkurinn á hverju
spillingarmálinu á fætur öðru er
tengdist stjórninni.
„Myndi aldrei gera neitt
óviðeigandi"
Flokkurinn fékk óskabyrjun
fyrsta hálfa árið, en deilurnar um
framlög Bernie Ecclestone, sem
rekur Formúlu 1, í kosningasjóð
Verkamannaflokksins og undanþágu
keppninnar frá banni við tóbaks-
auglýsingum, eru til marks um að
nú hafi alvaran tekið við.
Málið hefur undið svo upp á sig að
Blair tók þá ákvörðun á laugardag
að koma fram í viðtali í beinni
útsendingu á BBC-sjónvarps-
stöðinni á sunnudag til að bæta
skaðann. Hann sagði að stjórnin
hefði átt að taka fyrr á málinu. „Eg
geri ráð fyrir að á þeim sex
mánuðum sem ég hef setið í stjórn,
hafi ég varið um 45 mínútum,
kannski klukkustund, í Formúlu 1.
Það lítur út fyrir að hafa verið
stórmál, það sem stjórnin hafi ein-
beitt sér að - en svo var ekki.“
Kvaðst Blair vera sár og í upp-
námi vegna þess hvernig fjölmiðlar
hefðu tekið á málinu. „Eg er ósköp
hreinn og beinn náungi. Eg myndi
aldrei gera neitt óviðeigandi," sagði
Blair. Hann lagði áherslu á að
stjórnin myndi læra af þessari uppá-
komu og taka fyrr á málum sem upp
kæmu.
Þá sagðist hann reiðubúinn að
birta lista yfir alla stuðningsmenn
Verkamannaflokksins aftur til árs-
ins 1992, svo fremi sem aðrir flokkar
gerðu það einnig. Hefur stjórnin
heitið því að breyta lögum um
fjármögnun stjórnmálaflokka, sem
skylduðu þá til að upplýsa um
framlög stuðningsmanna. Hins veg-
ar sagðist hann ekki telja neitt at-
hugavert við að þiggja framlög
auðkýfinga í kosningasjóð og að
honum væri fyllilega stætt á því að
eiga fundi með mönnum á borð við
Ecclestone þótt þeir hefðu stutt
flokkinn myndarlega.
Frekari framlög
gagnrýnd
Andstæðingar Blairs voru ekki
sáttir við frammistöðu hans, sögðu að
fjölmörgum lykilspurningum hefði
ekki verið svarað, t.d. hafi talsmenn
flokksins verið tvísaga um hvort
stjóm hans hafi ætlað að þiggja frek-
ari framlög frá Ecclestone.
Þá hefur verið ráðist á ríkisstjórn-
ina vegna annars framlags í kosn-
ingasjóðinn, tæplega 120 milljóna
ísl. kr. sem Sainsbury lávarður lagði
fram. Hann var nýverið skipaður
aðalframkvæmdastjóri
stórmarkaðakeðju sem hefur fengið
leyfi til að byggja umdeilt verslun-
arhús í Richmond on Thames.
UNGVERJAR samþykktu með yfir-
gnæfandi meirihluta greiddra at-
kvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu á
sunnudag að land þeirra verði full-
gildur aðili að Atlantshafsbandalag-
inu, NATO. Þar með var rutt úr vegi
einni síðustu hugsanlegu hindruninni
fyrir fyrstu lotu stækkunar banda-
lagsins til austurs.
Rúmlega 85% þeirra sem greiddu
atkvæði studdu áformin um NATO-
aðild landsins, en tæplega 15% voru á
móti. „Þetta er stórkostleg niðurstaða,
þetta sýnir vilja þjóðarinnar," sagði
Gyula Hom, forseti Ungverjalands.
Rétt tæpur helmingur átta milljóna
Ungverja sem rétt höfðu til að greiða
atkvæði fóru á kjörstað, en kjörsókn
þurfti að vera a.m.k. 50% til þess að
niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar værí bindandi.
Talsmaður höfuðstöðva NATO í
Brussel sagði að þar væra menn
„sannarlega mjög ánægðir“. „Þetta
sýnir að aðild nýtur ekki aðeins
stuðnings forystuliðs stjómmálanna
heldur ekki síður yfirgnæfandi meiri-
hluta ungversks almennings."
21BOOOO
BILL
HEKLA
A
MITSUBISHI
-ítttUdum metum!
mitsubishi space wacon kostar frá kr.
Þegar stóra fjölskyldan ætlar að ferðast
saman er nauðsynlegt að hafa til taks
vandaða bifreið sem uppfyllir allar óskir
fjölskyldunnar. Space Wagon er
fjórhjóladrifinn sjö manna fjölskyldubíll,
bægilegur og rúmgóður. Öryggið er öllu
ofar og í bílnum eru öryggispúðar ásamt
voldugum öryggisbitum í hurðum sem
vernda farbega, komi til umferðaróhappa.