Morgunblaðið - 18.11.1997, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Enginn vinnur
sitt dauðastríð
ÞAÐ ER í sjálfu sér
alveg rétt hjá Tómasi
Inga Olrich að frum-
varpið um takmörkun
kvótaeignar er mála-
myndafrumvarp sett
fram til þess að reyna
að slá á óánægjuna með
milljarða króna
’ kvótaeign örfárra
manna. Þorsteinn Páls-
son gerir sér vonir um
að sér takist að slökkva
elda óánægjunnar sem
nú loga um land allt.
Það er hins vegar alger
misskilningur hans að
það slökkvistarf takist.
Bráðum verða eldar
óánægjunnar að því báli sem ekki
aðeins svíður stélfjaðrir
Sjálfstæðisflokksins heldur munu
logarnir leika um fleiri flokka og
stofnanir landsins. Logar sem
brenna fleira heldur en ráðherr-
astólana undan ríkisstjórninni,
. ylogar sem munu brenna burtu
margs konar óréttlæti og
harðdrægni sæaðals og forrétt-
indaliðs undanfarinna tveggja ára-
tuga - bálför hins gamla valda-
kerfis stjórnmálaflokka og hags-
munahópa er í aðsigi.
Sú gerjun sem nú á sér stað í ís-
lenzku samfélagi og endurspeglast
kannski skýrast í straumi nýrra
félaga inn í Samtök um þjóðareign
er ávísun á nýja tíma, forboði þess
að fólk hefur fengið nóg - ekki
aðeins af siðlausri
meðferð á opinberu fé
og gjöfum Alþingis til
stjórnmálaflokka og
útvalinna gæðinga svo
sem hina svokölluðu
SR sölu, eða afhend-
ingu fiskimiðanna til
sæaðalsins heldur
margra áratuga
óráðsíu og bruðli í rík-
isrekstri. Það hefur
lengi verið lenzka hér
að líta á embætti og
áhrif í stjórnkerfinu
eins og tímabundna
aðstöðu til að stunda
rán og rupl á almanna-
fé. Menn hafa í því
sem öðru gengið misdjarflega
fram en í heildina má hiklaust full-
yrða að siðlaust sukk hafi lengi
viðgengist með almannafé á
íslandi.
Nú er í aðsigi sala á Pósti og
síma og reikna má með því að
bráðlega komi að sölu ríkisbank-
anna. Það verður að vera skýlaus
krafa fólksins í landinu að þessi
fyrirtæki verði alls ekki látin í
hendur einkavæðingarnefndar né
að nokkur ríkisstarfsmaður eða
stjórnmálamaður komi þar nærri.
Það er aðeins ein leið til. Finna
verður út verð á fyrirtækin, deila í
þá tölu með íbúafjölda landsins á
því augnabliki sem fyrirtækin
verða afhent þjóðinni og sérhverj-
um Islendingi verði síðan sent
hlutabréf sitt í Pósti og síma hf.,
Landsbankanum hf. og
Búnaðarbankanum hf. Með þessu
móti er réttlætinu fullnægt og
ríkið getur síðan haft tekjur sínar
af skattlagningu einstaklinga
vegna þessa eigna- og tekjuauka.
Samtök um þjóðareign hafa nú
/ /
Hvenær skyldu LIU-
menn átta sig á því,
spyr Bárður G.
Halldórsson, að þeir
eru menn fortíðarinnar
og enginn vinnur sitt
dauðastríð?
starfað í rúman mánuð. Á þessum
tíma hafa 2000 manns gengið til
liðs við samtökin. Betur má ef
duga skal. Til þess að Samtökin
nái fram markmiðum sínum þarf
að stefna að 15-20 þús manns.
Samtökin þurfa nú á liðsinni félaga
sinna að halda og kalla til sjálf-
boðaliða. Allir sem hug hafa á að
hjálpa okkur að safna liði eru
beðnir um að hafa samband við
skrifstofuna í Brautarholti 4 eða í
síma 552-7200.
Fljótt á litið virðist svo sem
persónulegir hagsmunir fjöldans
skipti ekki mjög miklu máli og að
Bárður G.
Halldórsson
Þörfin fyrir tölvu-
menntað fólk
SÁ HLUTI atvinnu-
lífs Evrópu og Amer-
íku þar sem vænst er
mestrar aukningar á
umsvifum er tengdur
alnetinu. Umferð um
'r^netið hefur tvöfaldast
á 10 mánaða fresti
síðustu ár og mun
halda áfram að vaxa
með svipuðum hraða
næstu ár. Mikill hluti
notkunarinnar er utan
eiginlegs atvinnulífs en
þegar búið verður að
leysa vandamál tengd
öryggi og peninga-
greiðslum sem gert
verður á allra næstu árum, mun
efnahagsstarfsemin þar springa
út.
Tölvuháskóli Verzlunarskóla
íslands (TVÍ) hefur lagt aukna
-.áherslu á netið, m.a. með því að
kenna forritunarmálið Java og
láta nemendur fá verkefni við að
fást sem vinna þarf á netinu. Enn-
fremur hefur skólinn keypt 20% í
Internet á íslandi hf. (INTÍS),
Míkrá úrval ðf
fallegum rúmffltnaái
Skóbvflrfudlg 21 Simj 5SI 4050 Rrykiavlk
fyrst og fremst til þess
að eiga greiðari
aðgang að þekkingu.
Geysimikill vöxtur
er í útflutningi
hugbúnaðar frá
Islandi svo sem m.a.
hefur komið hefur
fram í opnugrein í
Morgunblaðinu 29.
september 1996.
Þannig hefur útflutn-
ingur hugbúnaðar
vaxið úr engu í 400
m.kr. árið 1994 og í
1.129 m.ki'. árið 1996.
Hafa þarf í huga að
eigi iðnaðurinn að
vera gjaldgengur þegar sam-
keppnin harðnar verður
skólakerfið að geta veitt honum
bakstuðning. Samkeppnin mun
harðna þegar betra jafnvægi
kemst á í nálægum löndum þannig
að keppinautarnir eigi þess kost
að fá það menntaða starfsfólk sem
þeir fá ekki nú og að því kemur.
Nú er lag til þess að komast
inná alþjóðlegan hugbúnaðar-
markað vegna þess að eftirspurn
eftir tölvuþekkingu er langt um-
fram framþoð og við erum raunar
að mjaka okkur þar inn með vax-
andi hraða. Strax þarf að huga að
þeirri framtíð sem bíður okkar
þegar betra jafnvægi kemst á með
því að auka magn og gæði og
fjölbreytileika tölvuþekkingar
landsmanna, ella missum við aftur
þá fótfestu sem við höfum náð nú í
upphafi.
TVÍ hefur útskrifað 30-35
nemendur á ári síðustu ár og
ráðgerir að útskrifa 45 nemendur
næsta vor. Háskóli Islands (HI)
hefur útskrifað 9 nemendur á ári.
Fullyrða má að ef TVÍ hefði ekki
Fullyrða má, segir
Ragnar S. Halldórs-
son, að ef TVÍ hefði
ekki notið við, væri
staða hugbúnaðar-
*
iðnaðar á Islandi allt
önnur og verri en
hún þó er í dag.
notið við, væri staða
hugbúnaðariðnaðar á íslandi allt
önnur og verri en hún þó er í dag.
I ár sóttu 311 nemendur um nám í
TVÍ og féllst mennta-
málaráðuneytið á að gi-eiða vegna
120 þeirra sem þá voru teknir inn.
Fyrirhugað er að taka árlega 330
nemendur inn í hið nýja
háskólahús sem nú er verið að
reisa við Ofanleiti 2, enda er nú
sérstök ástæða til að leggja
áherslu á menntun í
hugbúnaðargerð.
Skólamir, bæði TVÍ og HÍ,
gera meira gagn en kemur fram í
útskriftartölunum. Margir nem-
enda sem ekki ljúka prófi hætta til
þess að fara að vinna en eru ekki
að gefast upp. Það er þó einn
greinilegur munur á skólunum.
Stærri hluti nemenda TVÍ en HI
ræður sig beint til atvinnulífsins.
Hinsvegar er nú mjög mikill
skortur á tölvumenntuðu fólki og
er því mikið ánægjuefni, að hinn
nýi háskóli getur stórlega fjölgað
nemendum í tölvunarfræðum.
Ilufundur er verkfræðingur og
formaður fiáröflunarnefndar Versl-
unarráðs Islands vegna byggingar-
framkvæmda nýja háskólainissins.
Ragnar S.
Halldórsson
hagsmunir sæaðalsins séu svo gíf-
urlegir að þeir svífist einskis. Þeg-
ar hins vegar er grannt skoðað,
hlýtur öllum að verða ljóst, að
hagsmunh- allra íslendinga fara
hér saman - hagsmunir allra eru
þeir að arður af auðlindum þjóðar-
innar renni til hennar allrar að frá-
dregnum eðlilegum arði af nytjum
þeirra. Hagsmunir allra - nema
lénsaðalsins - eru þeir að komið
verði á opnu, lýðræðislegu stjórn-
kerfi - að þrískipting valdsins
verði sett á í reynd - að kerfi ætt-
bundinna forréttinda verði
afnumið strax og hætt verði að líta
á opinber embætti á Islandi sem
eins konar veiðikvóta á eignir al-
mennings - að jafnræði - réttlæti
og frelsi verði leidd til öndvegis í
þjóðfélginu.
Við samtakamenn höfum glögg-
lega fundið fyrir því að sæaðallinn
kaupir menn til liðs við sig, ógnar
og hótar starfsmönnum eins og
berlega kemur fram í því að í hvert
skipti og einhver opnar munn um
kvótakerfið byrjar grátlið
útgerðarinnar að heimta brott-
rekstur, kalla menn öfundsjúka
eða sósíalista og rægja þá hvar
sem við verður komið. Það er
reyndar athugunarefni hvað þessi
sjúkdómur hefur skotið fóstum
rótum á skrifstofum sæaðalsins,
sbr. lítt dulbúna kröfu Kristjáns
Ragnarssonar um brottrekstur
Markúsar Möller og Kristjáns
Guðmundssonar fyrir skoðanir
þeiira og nýleg skrif Jónasar Har-
aldssonar um Árna Finnsson.
Hvenær skyldu LÍU-menn átta sig
á því í að þeir eru menn fortíðar-
innar og enginn vinnur sitt
dauðastríð? Þeir hafa engan
hljómgrunn hjá þjóðinni. Það er al-
veg sama hvað þeir birta margar
auglýsingasíður í Morgunblaðinu
um eigið ágæti eða láta Ragnar
Árnason gefa sér ágætiseinkunnir
fyrir rekstur - það hefur ekki
nokkur önnur áhrif en þau að allir
hætta að trúa Ragnari Árnasyni
og hann bætist þannig í hóp með
Illuga, Orra og Hannesi sem með
skrifum sínum hafa unnið það eitt,
að enginn tekur mark á þeim og
myndi varla nokkur maður þora að
spyrja þá hvað klukkan væri.
Stríðið er tapað. Undanhaldið er
hafið. Þeir stjórnmálamenn sem
ekki átta sig á þessu fara allir eina
leið - á öskuhauga sögunnar með
fríðu föruneyti íslenzka sæaðals-
ins. Fari þeir vel.
Höfundur er varaformaður Sam-
taka um þjöðareign.
Æ sér gjöf
til gjalda
Sádar taka 4,3 milljarða dollara
að láni til flugvélakaupa
Undirfyrirsögnin hér
að ofan vakti athygli
mína þegar ég fletti
síðustu helgarútgáfu
Fjármálatíðinda
(FINANCIAL TIMES
8.-9. nóvember 1997).
Það er ekki á hverjum
degi sem hinum olíu-
riku aröbum er fjár
vant og því hlaut, eðli
málsins samkvæmt, að
vera eitthvað mikið á
ferðinni þegar þeir
standa í lántökum.
Gömul baktería, flug-
dellan, gerði einnig
vart við sig svo ég hóf
lesturinn.
Nú veit ég ekki hvort Morg-
unblaðið hefur sett sér reglur af
því tagi sem skjaladeild Alþingis
hefur, sem sagt þær að ekki skuli
birta texta á erlendum tungumál-
um í þingskjölum. Sýna skuli hinni
íslensku tungu þá virðingu, og
auðvitað Alþingi og þingræðinu í
leiðinni. Skýt því hér inn í að þetta
er greinarhöfundi í fersku minni
af því ég hugðist leggja fram á
þingi tillögu um viðræður við
bandarísk stjórnvöld um brottför
hersins og það hvernig Islending-
ar tækju við rekstrinum á Kefla-
víkurflugvelli. Þá rakst ég á þá
óþægilegu staðreynd að samning-
ur eða bókanir um umsvif hersins
hér á landi frá 1994 og 1996 voru
aðeins til á ensku. Af því leiddi að
setja varð plöggin í þýðingu til að
hægt væri að taka þau með sem
fylgiskjöl. Lærdómurinn af þessu
er einfaldur, hin opinbera tunga
hermangsins er enska.
Hafandi sagt þetta leitar samt á
mig hvort ekki sé vissast að birta
tilvitnun úr áðurnefndum Fjár-
málatíðindum á frummálinu
þannig að ekkert fari nú á milli
mála, svo lygilegur sem hann er.
Það stóð einfaldlega á innsíðu
þessarar helgarútgáfu undir fyr-
irsögninni um lántökur Sáda; eft-
irfarandi:
„The order for 61 Boeing and
McDonnell Douglas aircraft was
made two years ago after
pressure from Washington, which
saw the deal as Saudi
repayment for US
military action during
the Gulf War.
President Bill
Clinton urged King
Fahd at the time to
favour the US
companies over their
European rival, Air-
bus Industrie." (Fyrir
tveimur árum voru
pantaðar 61 Boeing
og Mc-Donnel Dou-
glas-flugvélar eftir
mikinn þrýsting frá
Washington. En þar
á bæ litu menn á
kaupin sem greiðslu
Saudi-Araba vegna hernaðar-
aðgerða Bandaríkjamanna í Pers-
aflóastríðinu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lagði á sínum tíma hart að Fhad
konungi að taka bandarísku fyr-
irtækin fram yfir keppinaut
*
Afram deyja börnin í
Irak þúsundum saman í
mánuði hverjum, segir
Steingrfmur J.
Sigfússon, og eru þó
þegar meira en 600
þúsund fallin úr hungri
og vegna lyfjaskorts og
sjúkdóma.
þeirra, evrópska flugvélafram-
íeiðandann Air-Bus.)
Sem sagt, húrra fyrir frjálsri
samkeppni, lýðræðisást og
virðingu fyrir mannréttindum.
Áfram deyja börnin í írak
þúsundum saman í mánuði hverj-
um og eru þó þegar meira en 600
þúsund fallin úr hungri og vegna
Íyfjaskorts og sjúkdóma frá því
Flóabardaga hinum nýrri lauk.
Höfundur er alþingismaður.
J. Sigfússon