Morgunblaðið - 18.11.1997, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997
AÐSENDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
Búsetulandslag
í Laugarnesi
I SEPTEMBER-
MÁNUÐI sl. var haldin
í Reykjavík merk nor-
ræn ráðstefna um bú-
setulandslag. Að ráð-
stefnunni stóðu Nor-
ræna húsið, Listasafn
Siguijóns Ólafssonar
og Nesstofusafn með
stuðningi frá Norræna
menningarsjóðnum,
menntamálaráðuneyt-
inu, Reykjavíkurborg,
norrænu sendiráðun-
um í Reykjavík og
Þjóðminjasafninu.
Hátt á þriðja tug
fræðimanna frá hinum
Norðurlöndunum sóttu
ráðstefnuna auk heimamanna.
Flutt voru mörg áhugaverð erindi,
sem m.a. færðu okkur heim sanninn
um að í nágrannalöndum okkar
hafa menn skilgreint og útfært
búsetulandslagssvæði af ýmsum
gerðum á meðan við erum á byijun-
arreit.
Búsetulandslag er oft nefnt þriðja
víddin þar sem fléttuð er saman
greining á menningarminjum, nátt-
úruminjum, sögu og búsetuminjum
tiltekins heildstæðs svæðis. Tilgang-
urinn með þessu hefur verið af fleiri
en einum toga, en þó fyrst og fremst
sá að draga fram sérkenni og sér-
stöðu viðkomandi svæðis og auka
þar með gildi þess t.d. fræðslugildi.
Þá getur greining búsetulandslags
mótað nýja sýn hvað snertir atvinnu
möguleika t.d. í sambandi við ferða-
þjónustu.
Á ráðstefnunni var
Laugamesið hér í
Reykjavík sérstaklega
tilgreint sem heppilegt
búsetulandslagssvæði.
Þar kemur margt til.
Sem dæmi má nefna
að Laugarnestáin er
nær eina strandlengj-
an á norðanverðu Sel-
tjarnarnesi hinu forna,
sem enn er óspillt. Ef
marka má Njálssögu
má telja nokkuð víst
að jörðin Laugarnes
hafi orðið sjálfstæð
jörð nokkrum áratug-
um eftir að land
byggðist. Þar bjó Hall-
gerður langbrók og munnmæli
herma að þangað hafi hún flust
eftir víg Gunnars og borið þar bein-
in (sbr. örnefni eins og Hallgerðar-
leiði).
Kirkja reis í Laugarnesi um 1200
og löngu síðar var þar um hríð bisk-
upssetur. I Laugarnesi eru svo til
einu hjáleigurústirnar sem benda
má á innan borgarlandsins. Það er
hjáleigan Norðurkot en frá Norður-
kotsvör var stundað útræði að ég
held alveg fram á þriðja áratug
þessarar aldar. Þarna eru einnig
landbúnaðarminjar s.s. beðasléttur
og svo er þar bæjarhóll Laugarnes-
bæjarins.
Á stríðsárunum reis mikið hverfi
hermannaskála í Laugarnesi. Einn
þeirra varð í lok stríðsins að vinnu-
stofu Siguijóns Ólafssonar mynd-
höggvara.
Guðrún
Jónsdóttir
í nýútkominni náttúrufarskönn-
un í Laugarnesi sem Náttúrufræði-
stofnun Islands hefur unnið fyrir
Reykjavíkurborg kemur m.a. fram
það álit stofnunarinnar að fjaran,
fjörukamburinn og klettar við
ströndina hafi ómetanlegt gildi sem
dæmi um hvernig norðurströnd
Reykjavíkur leit út áður en mann-
virkjagerð og önnur röskun ger-
breytti henni á þessari öld.
Þá segir í skýrslunni að spyrða
þurfi saman þá villtu náttúru sem
enn er þar að finna þ.e. jarðmynd-
anir, gróður og fuglalíf, aragrúa
sögulegra minja og þjóðargersemi
sem er fólgin í safni Siguijóns Ól-
afssonar myndhöggvara, en ævi-
Vonandi er stutt í það,
segir Guðrún Jóns-
dóttir, að borgaryfir-
völd samþykki deili-
skipulag fyrir
Laugarnes.
starf hans á íslandi er óafmáanlega
tengt búsetu hans í Laugarnesi allt
frá árinu 1945. Að því leyti hafi
svæðið gildi á landsmælikvarða
hvað varðar sögu og myndlist.
Vonandi er stutt í það að borgar-
yfirvöld samþykki deiliskipulag fyr-
ir Laugarnes þar sem lögð er
áhersla á að allt sem þar er fyrir-
hugað og gert falli að hugmyndinni
um búsetulandslag. í því sambandi
þarf sérstaklega að meta þýðingu
og hlutverk listasafns Siguijóns
Ólafssonar fyrir svæðið og Reykja-
vík.
Höfundur er form.
menningarmálanefndar
Reykjavíkur.
Verslunin
hættir!!
->«
Allt á að seljast
aðeins 4 verðflokkar!
990,- 1.990,-
2J990,- 3.990,-
Skóverslun Reykjavíkur
Laugavegi 87
Pilsaþytur í
Firðinum
Það var á fallegu fimmtudags-
kvöldi hinn 18. nóvember fyrir sex-
tíu árum að fjöldi hafnfirskra
kvenna tók sig til og ijölmennti að
bæjarþingssalnum í Hafnarfirði,
þeirra erinda að stofna
kvenfélag innan Al-
þýðuflokksins. Það var
pilsaþytur í Firðinum
þetta kvöld, eftirvænt-
ing í loftinu og ekki
laust við að spennu
gætti.
Veðrið var konum
hliðhollt svo og himin-
tunglin. Þennan dag
var tunglmyrkvi og
gömul speki segir að á
meðan sólin sé tákn
konungsins þá sé
tunglið tákn konunnar;
drottningarinnar.
Samkvæmt sömu
fræðum var það ör-
uggt merki stórtíðinda
fyrir kvenfólk þegar tungl myrk-
vaðist. Það var tákn umbrota og
nýrra tíma. Þessi fimmtudagur árið
1937 var því merkisdagur fyrir
hafnfirskar jafnaðarkonur og rétt
eins og tunglið sagði til um voru
nýir tímar í nánd. Nýir tímar þar
sem konurnar í flokknum tóku til
máls og seildust til áhrifa.
Stofnun Kvenfélags Al-
þýðuflokksins boðaði
stórtíðindi, segir Stein-
unn Þorsteinsdóttir og
var gæfuspor bæði fyrir
flokkinn og fyrir hafn-
firskar alþýðukonur.
Þetta kvöld skráðu sig 150 konur
í félagið. Til forystu völdust konur
er þekktar voru fyrir farsæl störf
innan Verkakvennafélagsins Fram-
tíðarinnar. Sigurrós Sveinsdóttir,
Sigríður Erlendsdóttir, Una Vagns-
dóttir, Guðrún Nikulásardóttir og
Arnfríður Long. Strax á fyrsta
fundi félagsins var stefnan mörkuð
og kynnt fyrir félagskonum og kom
það í hlut Arnfríðar. Hún benti
konum á hversu nauðsynlegt það
væri „að standa einhuga með hinum
ágætu foringjum Alþýðuflokksins,
til að gera þá öruggari í barátt-
unni.“
Konurnar stóðu með sínum for-
ingjum og kom það berlega í Ijós í
bæjarstjórnarkosningunum 1938
þar sem félagskonur börðust af
krafti og einhug að málefnum
flokksins. Þær unnu óeigingjarnt
starf og lögðu sig allar fram við
að ná sem flestum til fylgis við
flokkinn. 0g sigurinn varð þeirra.
Úrslit kosninganna voru lengi tví-
sýn, aðeins munaði íjóitán atkvæð-
um að meirihlutinn
félli.
Stefnu sinni að efla
og standa með foringj-
um flokksins fylgdi fé-
lagið mjög náið fyrstu
árin en jafnframt var
reynt að gera ýmislegt
til skemmtunar og
fræðslu. Oftar en ekki
voru fengnir fyrirlesar-
ar til að fræða konurn-
ar um gang bæjar-,
lands- og heimsmála.
Starfsemi Kvenfé-
lags Alþýðuflokksins
hefur verið með mis-
jöfnu sniði ár frá ári.
Stundum hefur verið
mikill kraftur og áhugi
hjá félagskonum og stundum minni
eins og gengur, allt eftir tíðarand-
anum. Félagið hefur alla sína tíð
verið virkur þátttakandi í bæjarpóli-
tíkinni í Hafnarfirði og látið sig
ýmislegt varða er snertir heill fjöl-
skyldna í landinu.
Hafnarfjörður hefur lengi verið
eitt helsta vígi Alþýðuflokksins, þar
og reyndar í Reykjaneskjördæmi
öllu hefur flokkurinn átt hljóm-
grunn meðal fólksins sem fylkt
hefur sér að baki frambjóðendum
hans. Fullyrða má að staða flokks-
ins væri ekki jafnsterk í kjördæm-
inu og í Hafnarfirði ef kvenfélags-
ins hefði ekki notið við. Óeigin-
gjarnt og fórnfúst starf þeirra í
þágu málstaðarins og sú vissa að
hugsjón þeirra væri baráttu virði,
hefur skilað árangri.
Kvenfélag Alþýðuflokkskvenn-
anna í Hafnarfirði er elsta kvenfé-
lagið innan Alþýðuflokksins og hef-
ur nú nokkra sérstöðu þar sem
önnur kvenfélög innan flokksins
hafa smátt og smátt týnt tölunni
og annað hvort verið lögð niður eða
sameinuð öðrum flokksfélögum.
Sextíu ár þykja kannski ekki svo
ýkja langur tími. En eins og tungl-
ið spáði fyrir um daginn sem félag-
ið var stofnað voru breytingar í
nánd og á þessum árum hefur
margt breyst er varðar stöðu
kvenna í þjóðfélaginu.
Karlinn í tunglinu vissi hvað hann
söng. Stofnun félagsins boðaði stór-
tíðindi og var gæfuspor fyrir flokk-
inn og það sem kannski er mest
um vert: gæfuspor fyrir hafnfirskar
alþýðukonur.
Höfundur er sagnfræðingur og
hefur skráð sögu Kvenfélags
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
Steinunn
Þorsteinsdóttir
Brúðhjón
Allm boiðbiínaður Glæsilcg gjafavara Briíðarhjóna lislar
Vtv)//VK\\A
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
í pípum og plötum sem má þrýsta
og sveigja, laust við CFC, í sam-
ræmi við ríkjandi evrópska staðla.
Hentar vel til einangrunar kæli-
kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi,
og fyrir pípulagningar.
PP
&co
Leitið frekari upplýsinga
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29.108 REYKJAVÍK,
SÍMI 553 8640 /568 6100.