Morgunblaðið - 18.11.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
PRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 53
I
I
)
)
)
I
I
I
I
I
I
I
1
I
I
í
í
i
i
i
(
(
(
<
(
Sameining Félags hrossabænda og Hrossaræktarsambands fslands
AÐALPUNDUR og jafnframt sameiningarfundur Félags hrossabænda og Hrossaræktarsambands íslands þótti mjög árangursríkur þar sem sam-
þykkt var afturhvarf til fyrri vinnubragða í kynbótadómum.
Þungamiðja
ákvarðana-
töku komin
á einn stað
SAMEININGARALDA ríður yfir
þjóðfélagið um þessar mundir.
Samtök hestamanna voru samein-
uð fyrir nokkrum vikum og hrossa-
ræktarmenn sameinuðu í síðustu
viku Félag hrossabænda og
Hrossaræktarsamband Islands
undir nafni fyrrnefndu samtak-
anna. Endapunkturinn á þessu
ferli átti sér stað á aðalfundi Fé-
lags hrossabænda sem var haldinn
á fimmtudag. Góð eining ríkti um
þessa skipulagsbreytingu og hún
almennt talin gera samtök hrossa-
ræktenda skilvirkari og til hags-
bóta fyrir viðfangsefnið.
Landssamtök eða félag
Kosið var um nafn á samtökin og
voru tveir valkostir í boði, annars
vegar Félag hrossaræktenda með
tilliti til þess að í dag stunda marg-
ir utan bændastéttarinnar ræktun
hrossa. Hinn kosturinn var Félag
hrossabænda sem varð ofan á í
kosningunni. Það vekur athygli að
landssamtök skuli nefnd félag en
ekki samband eða samtök eins og
almennt tíðkast þegar félög mynda
heildarsamtök. Ekki hefði verið
óeðlilegt í þessu ljósi að nafnið yrði
til dæmis Hrossaræktarsamtök ís-
lands eða Landssamtök hrossa-
bænda eða hrossaræktenda. Nafn-
ið er kannski ekki höfuðatriði held-
ur hitt hvað samtökin gera og hvað
þeim verður ágengt í sínum hags-
munamálum.
Með þessum samruna er Félag
hrossabænda orðið þungavigtaraflið
í málefnum hrossaræktarmanna.
Allar samþykktir samtakanna fara
að vísu fyrir Fagráð hrossaræktar-
innar sem leggur blessun sína yfir
ákvarðanir aðalfundar FH. Ráðið
getur þó breytt þeim eða fellt en
ekki þykir líklegt að slíkt muni eiga
sér stað. A fundinum voru gerðar
allnokkrar samþykktir varðandi
kynbótadóma og kynbótamat. Er
þar fyrst að nefna að mörk til heið-
ursverðlauna stóðhesta fyrir af-
kvæmi voru lækkuð eins og búist
hafði verið við. Nú þurfa stóðhestar
með 50 dæmd afkvæmi eða fleiri að
ná 120 stigum í kynbótamati í stað
125 áður. Verðlaunaflokkar í viður-
kenningum fyrir afkvæmi verða nú
tveir í stað þriggja áðm'. Til að
hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi
þurfa stóðhestar með 15 til 49
dæmd afkvæmi sömuleiðis að ná
120 stigum en einnig er möguleiki
fyrir þá að hljóta þessa vegtyllu
með 115 til 119 stig en þá verða við-
komandi hestar að eiga minnst
þrjátíu eða fleiri dæmd afkvæmi.
Sýna verðm- 12 afkvæmi með heið-
ursverðlaunahestum en sex tii
fyi-stu verðlauna. Önnur verðlaun
fyrir afkvæmi falla út.
Fyrstu verðlauna hryssur
út af sýningum
Þá beindi fundurinn þeim til-
mælum til kynbótanefndar fagráðs
Ræktunarmaður ársins
BRYNJAR Vilmundarson hrossaræktandi að Feti í Rangárvallasýslu
var útnefdur ræktunarmaður ársins á uppskeruhátíð hestamanna sem
haldin var í Súlnasal Hótels Sögu sl. föstudag. Brynjar hefur á síðustu
árum náð skjótum árangri í hrossarækt og á núlíðandi ári komu marg-
ar hryssur frá honum til dóms og skiluðu þær aðalstóðhesti hans
Kraflari frá Miðsitju fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi. Við val á rækt-
unarmanni ársins er notað ákveðið reikningskerfi en árangur Ki-aflars
reiknast þó ekki ræktunarstarfi Brynjars til tekna í keppninni um
þennan titil heldur þeim aðila sem hesturinn er fæddur. Sigurgeir
Þorgeirsson búnaðarmálastjóri aflienti viðurkenninguna en milli
þeirra er veislustjórinn Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur.
Knapi ársins
ENGUM á óvart var Sigurbjörn Bárðarson tilnefndur knapi ársins.
Hefur Sigurbjörn hlotið þennan titil í öll skipti frá því byrjað var að
veita hann að tveimur skiptum undanskildum. Sýnir þetta glögglega
yfirburði Sigurbjörns sem keppnismanns og virðist keppinautunum af-
ar erfitt að skáka lionum á þessum vettvangi. Það sem er kannski
athyglisverðast við þennan árangur Sigurbjörns er hversu óumdeilan-
lega hann hlýtur titilinn. Fáir eða engir virðast komast með tærnar
þar sem hann hefur liælana þegar hlutirnir eru gerðir upp að loknu
kcppnistímabili. Sólveig Ólafsdóttir aflienti viðurkenninguna styttuna
Alsvinnn.
að hætt verði sýningum hryssa
með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
Hryssum sem náð hafa einkunna-
stigum til heiðursverðlauna hafi
rétt til að koma fram á lands-,
fjórðungsmótum og héraðssýning-
um. Hins vegar verði árlega birt í
Hrossaræktinni nöfn þeirra hryssa
sem náð hafa einkunnastigum til
fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og
eigendum sent heiðursskjal. Lengi
vel hefur verið talað um að gildi af-
kvæmasýninga hryssa væri lítið og
líklegast hefur maraþonsýning á
hryssum með afkvæmum á fjórð-
ungsmótinu á Kaldármelum verið
banabitinn.
Einn knapi í einu og allir
allsgáðir
Þá vakti athygli samþykkt þar
sem segir að sami knapi skuh sýna
hross í einni og sömu sýningu en
einhver brögð hafa verið að því að
knapar hafa kallað til annan knapa
til að sýna stökú gangtegundir.
Heimilt er þó að annar knapi komi
til sögunnar við yfirlitssýningu. í
þessari sömu samþykkt segir að
knapar skuli vera allsgáðir og þeir
ásamt umráðamönnum hrossa sýni
prúðmannlega framkomu. Að öðr-
um kosti komi til skriflegi-ar rök-
studdrar áminningar. Ekki treystu
fundarmenn sér til að hafa með í
samþykktinni ákvæði um að knöp-
um skuli vísað frá sýningu. í rök-
stuðningi segir að dómnefndar-
menn og sýningarstjórar hafi rétt á
að beita áminningum.
Samþykkt var tillaga varðandi
lyfjanotkun í kynbótasýningum þar
sem segir að verði knapi uppvís að
því að hestur hans greinist með
óleyfileg lyf sbr. lyfjareglugerð
hljóti hann dóm samkvæmt ís--
lenskum lögum og alþjóðareglum
þar um. Þá segir að hafi knapi
gerst brotlegur samkvæmt lyfja-
reglugerð LH gildi sá dómur sem
hann hlýtur einnig í kynbótasýn-
ingu. Til skýiingar með tillögunni
segir að með kynbótasýningu sé
átt við þegar hrossi er riðið til
dóms eða sýningr í samræmi við
reglur Bændasamtaka Islands þar
um. Þá segir einnig að í lögum og
reglugerðum teljist hestur hluti
knapa sem ekki verður skilið á
annan veg en að sé knapi dæmdur í
keppnisbann gildi það einnig um
hestinn. Eins og áður sagði eiga
allar þessar samþykktir eftir að fá
umfjöllun kynbótanefndar fagráðs
þar sem þær verða endanlega af-
gi-eiddar.
Uppstillinganefnd gerði tillögu
að fyrstu stjórn sameinaðra sam-
taka og var hún samþykkt með
lófaklappi. Formaður er Bergur
Pálsson, aðrir stjórnarmenn eru
Armann Ólafsson, Ólafur Einars-
son, Ingimar Ingimarsson og
Skjöldur Stefánsson. í varastjóra
voru kjörnir Jósef Valgarð Þor-
valdsson, Ægir Sigurgeirsson og
Már Ólafsson.
Gustar um formanninn
Aðeins gustaði um formanninn er
hann fékk mótframboð þegar kosið
var um fulltrúa samtakanna á bún-
aðarþing. Formaðurinn hafði það
þó af en ekki var allt komið í ró því
formaður uppstillinganefndar,
Guðmundur Birkir Þorkelsson,
kom með þá hugmynd að fundur-
inn tilnefndi fulltrúa samtakanna í
fagi-áð hrossaræktar og var for-
maðurinn ekki með í hans uppá-
stungu. Samkvæmt lögum á stjórn
að tilnefna þessa fulltrúa en fund-
arstjóri gaf fundinum færi á að
veita stjórn góð ráð við val á mönn-
um til setu í ráðinu. Heyra mátti á
mönnum að formaðurinn þætti
störfum hlaðinn og ef til vill orðinn
of valdamikill. Ekki virðist þó nein-
um blöðum um að fletta þrátt fyrir
þessar smávægilegu væringar í
fundarlok að formaðurinn nýtur
trausts og þykir vel starfanum vax-
inn.
Valdimar Kristinsson