Morgunblaðið - 18.11.1997, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1997 61
BRIDS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
Það þótti tíðindum sæta að
Zia Mahmood og Peter
Weichsel skyldu enda í sext-
ánda og síðasta sæti í
boðstvímenningi Politiken,
enda unnu þeir mótið árið
1996! En það getur allt
gerst í brids, eins og fót-
bolta. Reyndar lítur út fyrir
að þeir hafi látið slæma
byijun fara í taugarnar á
sér og leiðst út í glannaskap
í sögnum í von um að ná
sér á strik. Það gefur sjald-
an góða raun:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ K973
V ÁK8
♦ 863
♦ 752
Vestur
* 8
V 10974
♦ Á1042
♦ KD98
Austur
♦ D10542
V
♦ 95
♦ ÁG10643
Suður
♦ ÁG6
V DG6532
♦ KDG7
♦ -
Vestur Norður Austur Suður
Zia Schaffer Weichsel Andersen
Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 3 hjörtu* 4 hjörtu
5 lauf Pass Pass 5 hjörtu
6 lauf Dobl Pass Pass
Redobl Allir pass
*Spaði og láglitur.
Eftir pass Weichseis í
byijun getur Zia varla hafa
sagt sex lauf til vinnings,
svo redoblið virðist þjóna
þeim tilgangi að hræða NS
til að taka út í sex hjörtu.
En Danirnir Schaffer og
Andersen sátu sem fastast.
Utspilið var tromp og Zia
endaði tvo niður, sem gaf
Dönunum 1000 og 13 IMPa.
Það er athyglisvert að
hægt er að vinna sex hjörtu,
ekki síst eftir þessar upplýs-
andi sagnir. Segjum að út
komi lauf, sem suður tromp-
ar og tekur á hjartaás. Spil-
ar svo tígli. Vestur tekur á
ásinn og spilar aftur laufí.
Suður trompar, tekur tvo
slagi á tígul og trompar tíg-
ul í borði. Spilar síðan hjar-
takóng og spaða á gosann.
Martens og Helgemo
fengu að vinna fimm lauf í
AV, þar eð vörnin trompaði
aldrei út. Aðalsteinn Jörg-
ensen og Sigurður Sverris-
son vörðust hins vegar í
þremur gröndum gegn Hall-
berg og Wrang:
Vestur Norður . Austur Suður
Aðalst. Hallberg Sig. Wrang
2 spaðar 3 hjörtu
Paas 3 grönd Allir pass
Opnun Sigurðar sýndi
veika hönd með spaða og
láglit til hliðar. Sigiirður
kom út í iaufi og vörnin tók
fyrstu sjö slagina: 300 og
10 IMPar í AV.
Með morgun-
kaffinu
Aster...
■.. aðfara á völlinn þeg-
arHANN erað leika.
TM Reg U S. P»t 06 — ali rtght* reserved
(c) 1997 LosAngotes Times Syndicate
Árnað heilla
inn 19. nóvember, er átt-
ræður Herbjörn Björg-
vinsson, Ásvegi 26, Breið-
dalsvík. Herbjörn tekur á
móti ættingjum og vinum á
Hótel Bláfelli, á afmælis-
daginn kl. 15.
Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman _ 6. september í
Stærri-Árskógskirkju af sr.
Huldu Hrönn Helgadóttur
Berglind Sigurpálsdóttir
og Jónas Ingi Sigurðsson.
Heimili þeirra er á Öldu-
götu 13, Árskógssandi.
Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
BRÚÐKAUP. Gefrn voru
saman 26. júlí í Grundar-
kirkju af sr. Hannesi Erni
Blandon, Ingigerður Guð-
mundsdóttir og Jón
Gunnar Jónsson. Heimili
þeirra er í Hraunbæ 128,
Reykjavík.
Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 9. ágúst í Minja-
safnskirkjunni á Akureyri
af sr. Svavari A. Jónssyni
Valgerður Petra Hreið-
arsdóttir og Hörður Ey-
jólfur Hilmarsson. Heim-
ili þeirra er að Árstíg 9,
Seyðisfirði.
Hiutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu til styrktar Rauða kross
íslands kr. 3.060. Þær heita: Henný Hrund Guðmundsdótt-
ir, Guðrún Hrönn Jónsdóttir, Hafdís Anna Bragadóttir,
Dagbjört Vestmann Birgisdóttir og Natalía Anna Þórðar-
dóttir.
/, TÖLVAN E.R. I MÍUOS."
STJÖRNUSPÁ
cftir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefur mikla þörffyrir til-
finningalegt öryggi oggott
fjölskylduiíf.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vandaðu þig við að tjá skoð-
anir þínar svo þú verðir ekki
misskilinn. Þú færð ánægju-
legar fréttir langt að.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert á réttri leið með við-
fangsefni þitt og blómstrar
í félagslífinu. Gættu þess að
sóa ekki peningum í óþarfa.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní) 4»
Þú ert í rífandi sólskins-
skapi og ættir ekki að leyfa
neinum að trufla það.
Skiptu þér heldur ekki af
annarra málum.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí)
Eigi einhver ættingi þinn
um sárt að binda, ættirðu
að bjóða fram aðstoð þína.
Haltu að þér höndum í fjár-
málum.
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú þarft að temja þér þolin-
mæði og umburðarlyndi
gagnvart starfi þínu. Lyftu
þér upp í kvöld með góðum
félögum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú þarft að gæta vel að
heilsufari þínu og matar-
æði. Þú ættir að taka þátt
í sameiginlegu verkefni,
verði til þín leitað.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Einhver ættingi þinn þarf
sérstakrar umönnunar við
og fjölskyldan tekur málið
í sínar hendur. Haltu fast
um budduna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ættir ekki að beita þrýst-
ingi við að koma ákveðnu
máli í gegn, heldur sýna
þolinmæði. Það ber bestan
árangur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) jSO
Þú ert ekki á sama máli og
félagi þinn um starfsaðferð-
ir. Finnið lausn á málinu
áður en allt fer í háaloft.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér verður vel ágengt í við-
skiptum í dag og munt sjá
að misjafn er sauður í
mörgu fé. Róaðu vin þinn
niður í kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) &&
Þú mátt vera ánægður með
daginn að kveldi. Ef ijármál-
in eru óljós, skaltu skoða
þau í kvöld og gera áætlun.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 2*
Siðferðileg spurning leitar á
huga þinn, svo þú skalt
skoða málið og leita ráða
hjá þeim sem þú treystir vel.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Hún er ekki byggð
á traustum grunni vísindaiegra
staðreynda.
py
k*ír
tltf
FROTTE SLOPPAR
Margar gerðir
Verð frá kr. 5.550
lympla_
Laugavegi 26, sími 551 3300 Kringlunni 8-12, sími 553 3600
JVJý sending fVá Jtalm
Ctlæsilegai* lÁlpwT, C T I / I
jakkaT og flawelsbwNWT. / ' | *—
38-48 Skólavörðustíg 4,
sími 551 3069
Ljósakrónur
Kertastjakar
Nýkomnar vörur
Antik nmmir, Klapparstíg 40, sífri 552 7977.
c
Alþingi
Er með viðtalstíma
á fimmtudögum
frá kl. 9.00 til 10.30
Frekari upplýsingar
í síma 563 0900
Guðmundur Hallvarðsson
10. þingmaður Reykvíkinga
Jóla myndatöku
tilboðið okkar stendur
til 20. des.
Myndataka, þar sem þú ræður
hve stórar og hve maigar
myndir þú færð, innifaliðein
stækkun 30 x 40 cm í ramma.
kr. 5.000,oo
Þú færð að velja úr 10 - 20
myndum af bömunum, og þær
færðu með 30 % afslætti firá
gildandi verðskrá ef þú pantar
við myndatöku.
Pantaður tímanlega, svoþú
missir ekki af jólamynda-
tökunni byrjað er að skrá
niður fermingarmyndatökur
í vor.
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 4207
Ljósmyndstofa Kópavogs
sími: 554 3020
Hringdu á aðrar ljósmyndastofur og kannaðu verð á stækkunum,
og hvort okkar verð er ekki lægsta verðið á landinu.