Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 1
108 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 279. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Borís Jeltsín lætur til sín taka á rússneska þinginu Fjárlög samþykkt við fyrstu umræðu Moskvu. Reuters. DUMAN, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti frumvarp til fjárlaga næsta árs við fyrstu um- ræðu í gær, nokkrum mínútum eftir að Borís Jeltsín forseti ávarpaði þingmennina til að skora á þá að styðja frumvarpið til að koma í veg fyrir óvissu í efnahagsmálunum. 231 þingmaður af 450 greiddi at- kvæði með frumvarpinu, 136 voru á móti og sex sátu hjá. Önnur umræð- an af fjórum er ráðgerð 17. þessa mánaðar. „Eg er ánægður," sagði Jeltsín við fréttamenn þegar hann gekk út úr þinghúsinu eftir atkvæðagreiðsluna. „Getið þið ímyndað ykkur hvaða skilaboð öllum þjóðum heims hefðu verið send ef frumvarpið hefði ekki verið samþykkt? Þær hefðu sagt að óstöðugleiki ríkti í Rússlandi, að það væri ekki þess virði að eiga viðskipti við Rússa.“ Kyoto-ráðstefnan Clinton „hæfilega bjartsýnn“ Washington. Reuters. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagðist í gær „hæfilega bjart- sýnn“ á að takast mundi að ná sam- komulagi um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið, á ráðstefnu um lofts- lagsbreytingar sem nú stendur yfir í Kyoto í Japan. „Eg tel möguleikana á að við ná- um samkomulagi vera sæmilega góða ef allir samningsaðilar vilja í raun og veru samkomulag," tjáði Clinton fréttamönnum í Washington áður en hann hitti að máli æðstu talsmenn Evrópusambandsins, Jacques Santer, forseta fram- kvæmdastjómar ESB og Jean- Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, sem nú er í forsæti í ráðherraráði sambandsins. Mikið ber 1 milli Bandarískii- embættismenn lögðu áherzlu á að fundurinn væri ekki lið- ur í samningaviðræðum Bandaríkj- anna og ESB um aðgerðir gegn gróðurhúsaáhrifunum, en mikið ber enn í milli fulltrúa þessara tveggja áhrifamestu aðila sem þátt taka í við- ræðunum í Kyoto. ESB vill að iðn- ríkin skuldbindi sig til að minnka útblástur um 15% fram til ársins 2010 miðað við árið 1990 en Banda- ríkin leggja til að í kring um 2010 verði losunin jafnmikil og 1990. Aðspurður um möguleika á að málamiðlun næðist í deilunni sagði Clinton að ekkert væri útilokað svo fremi að vilji væri fyrir hendi. „Við viljum að þetta verði upphaf ferlis sem með tímanum leiði til þess að allir jarðarbúar taki þátt í að takast á við þennan vanda,“ sagði forsetinn. ■ Óánægja/32 Enn er óvíst hvort frumvarpið verður samþykkt endanlega fyrir áramót en niðurstaða atkvæða- greiðslunnar í gær og árangursrík íhlutun Jeltsíns auka líkm-nar á því að frumvarpið verði að lögum í tæka tíð. Að loknum fjórum atkvæða- greiðslum í Dúmunni þarf Sam- bandsráðið, efri deild þingsins, að samþykkja fjárlögin áður en forset- inn getur staðfest þau. Óvænt íhlutun Ihlutun Jeltsíns kom á óvart, enda hefur hann aðeins einu sinni áður mætt í þinghúsið og þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar Dúmuna þar. Þegar Dúman íhugaði vantrauststil- lögu gegn stjórninni í október hringdi Jeltsín í forseta hennar til að afstýra því að tillagan yrði samþykkt en hann fór þá ekki í þinghúsið. „Eg bið ykkur um að styðja frum- við Rómó DANSKIR sjávarlíffræðingar reyndu í gær sitt ýtrasta til að bjarga þrettán búrhvölum sem strönduðu í fyrradag á grynn- ingum við eyna Romo undan Norðursjávarströnd Jótlands. Allar tilraunir til að ná hvölun- um aftur á flot reyndust árang- urslausar. Tólf hvalir drápust þar sem þeir lágu en einum hafði tekizt að synda á brott af sjálfsdáðum. Þegar var hafizt handa við að reyna að nýta eitt- hvað af þeim hundruðum tonna af hvalspiki sem liggja nú á strönd eyjarinnar. Á siðastliðnum átta árum hafa óvenju mörg búrhveli endað æv- ina við Jótlandsstendur. I marz í fyrra rak 16 búrhvali á land við Romo og drápust allir. varpið strax," sagði Jeltsín í ávarp- inu. „Þið eruð allir embættismenn mikils heimsveldis sem er að koma á lýðræði, læra að lifa eftir reglum lýð- ræðisins. Allur heimurinn, ekki að- eins Rússar, bíður eftir ákvörðun Dúmunnar, enda er allt fjármála- keitl heimsins í uppnámi." Samkvæmt frumvarpinu verður fjárlagahallinn 4,7% af vergii lands- framleiðslu. Efnahags- og framfara- stofnunin, OECD, spáði því í gær 3% hagvexti í Rússlandi á næsta ári eftir langt samdráttarskeið. Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm- únista, var niðurlútur eftfr atkvæða- greiðsluna í gær, enda var flokkur hans klofinn í afstöðunni til frum- varpsins. „Við forystumenn komm- únista greiddum atkvæði gegn frum- varpinu," sagði hann og bætti við að stjórnin gæti ekki enn hrósað sigri í fjárlagadeilunni. Brusscl. Reuters. ÁKVÖRÐUN Evrópusambandsins, ESB, um að banna tóbaksauglýs- ingar hefur vakið hörð viðbrögð. Baráttuhópar íyrir bættu heilbrigði hafa fagnað ákvörðuninni en tó- baksframleiðendur og tímaritaút- gefendur eru komnir í skotgrafirn- ar, og segjast reiðubúnir til að berj- ast gegn banninu fyrir dómstólum enda eigi það sér litla lagalega stoð, sé brot á ákvæðum ESB um frelsi einstaklinga og lykti af því að stjórnmálamenn séu að kaupa sér vinsældir. Talsmenn hópa sem barist hafa Átök á Gaza- svæðinu ÍSRAELSKUR hermaður miðar byssu sinni á palestínskan frétta- mann sem mundar myndavélina. Til átaka kom á Gazasvæðinu í gær eftir að ísraelsher hóf undir- búning að uppsetningu nýrrar eftirlitsstöðvar. Fimm Palestínu- menn hlutu skotsár, þar á meðal einn myndatökumaður alþjóð- legu fréttastofunnar Associated Press. fyrir banninu fögnuðu því í gær. Talsmaður danska heilbrigðis- og reykingaráðsins sagði bannið vera „stórkostlegan sigur.“ Almennur aðlögunartími að bann- inu er þrjú ár, en fjögur ár fyrir dagblaðaauglýsingar og lengri fyrir kostun viðburða á borð við For- múlu-1 kappaksturinn. Bannið á ekki við um auglýsingar í fjölmiðl- um sem gefnir eru út utan Evrópu. „Óréttlát aðgerð“ Tóbaksframleiðendur eru æfir vegna bannsins sem þeir segja Reuters Dulhyggju- stefna slær í gegn Los Angeles. The Daily Telegraph. NÝJASTA æðið í trúmálum í Hollywood á rætur í guðspeki- legri túlkun á Gamla testament- inu og flefri ritningum. Búdda- trúin er sögð á útleið og þess í stað hafa hinir ríku og frægu hallað sér að kabbala, dul- hyggjustefnu í gyðingdómi, sem þar til fyrir skemmstu átti sér fáa fylgismenn í Bandaríkjun- um. Á meðal þeirra sem hafa hellt sér út í kabbala-fræði eru Ma- donna, Elizabeth Taylor, Ros- eanne Barr og Jeff Goldblum. Nýtur kabbala nú svo mikilla og skyndilegra vinsælda að ekki eru nægilega margir kennarar til að kynna mönnum fræðin. Chaim Solomon, rabbíi í Los Angeles, segir kabbala vera orðið að æði en hann er einn þeirra sem kennir fræðin. Hann segir ástæðu vinsældanna ekki síst þá að frægðarfólkið hafi uppgötvað hina fomu speki að ríkidæmi og frægð séu ekki ávísun á hamingju. Ekki eru þó allir jafnhrifnir. Robert Kirschner, rabbíi í Los Angeles, telur áhugann stundar- fyrirbrigði og að kabbala- kennslan í Hollywood sé sniðin að óskum fólks sem vilji einfóld svör við öllum heimsins vanda. skapa fleiri vandamál en það leysi. Ihuga framleiðendur Lambert & Butler vindlinga að fara í mál. Þá hétu samtök tóbaksframleiðenda í ESB því að berjast fyrir rétti sín- um til að „höfða til fullorðinna neytenda". Útgefendur blaða og tímarita brugðust ekki síður hart við ákvörð- un ESB enda mun tekjutap þeirra vegna bannsins verða mikið. Sam- band evrópskra tímaritaútgefenda kvaðst ætla að berjast gegn þvi að „þessi óréttláta aðgerð" kæmi til framkvæmda. Reuters Hvalreki Bann Evrópusambandsins við tóbaksauglýsingum Tóbaksframleið- endur hóta málsókn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.