Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ ;76 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 Morgunblaðið/Golli Hvaðan kemur þessi unaðs- lega tónlist? TÓrVUST Geisladiskur BLUE Tvöfaldur geisladiskur hljómsveitar- innar Pornopop sem skipuð er Pétri Jóhanni Einarssyni og Ágústi Arnari Einarssyni. Lög á diski 1: Pétur og Ágúst. Textar: Pétur. Lög á diski 2 eftir Pétur. Upptaka og hljóðblönd- un: Árni Gústafsson, Pétur og Ágúst. Hljómsveitin gefur sjálf út. 1.899 kr. 31 min. (diskur 1) 50 min. (diskur 2). JÁ DETTA mér nú allar lýs af höfði, dauðar jafnt sem lifandi. Hljómsveitin Pornopop hefur skot- ist fram á sjónarsviðið fullmótuð með eina albestu íslensku plötu árs- ins. Tónlistina má kalla þungapopp, drungalega og sorglega á köflum, tilraunakennda með fljótandi og rifnum gítar undir rafrænum trommutakti. Ýmiskonar skrýtin hljómborð og söngur á heimsmæli- kvarða. Sumir hafa líkt Pornopop við hljómsveitina U2, en slíkur saman- burður er að mínu viti ekki við hæfi. Jú, víst minnir raust Péturs söngv- ara á Bono, en tónlistin er mun metnaðarfyllri og frumlegri en hjá gömlu köllunum írsku. Nær væri að bera Pornopop saman við Radio- head, þá frábæru Oxford-sveit, enda er greinilegt að Pornopoppar- ar hafa hlýtt á sitthvað af afurðum hennar. Platan hefst með krafti á laginu Fashionably Thin og þar með er maður rifinn inn í heillandi heim „Klámpoppsins". Hljómkaflann undir erindinu minnir á Frank gamla Black, enda er trixið hans notað, síðasta taktinn vantar í hljómaganginn. Millikaflinn er aftur í anda sveitarinnar My Bloody Va- lentine; hljómveggur. Þvílík byrjun. Svo kemur lagið Hangover You, sem byrjar á xýlófón-stefi en breyt- ist snögglega þegar gítararnir og söngurinn hellast yfir hlustandann. Xýlófónninn hverfur þó ekki. í lag- inu You and Me nýtur baritónrödd Péturs sín vel. Orifinn rafgít- arryþmi og fljótandi geimhljóm- borð. Bassinn spilar eigin laglínu. My Bed = My Gravity er dimmt og drungalegt þriggja hljóma lag með gítarleik sem minnir á U2. Lag- ið sjálft er hins vegar á allt öðrum slóðum en tónlist þeirra skallapopp- ara. Saints of Hanging Heads hefst á píanóstefi en svo tekur kassagítar- inn við. Staðfastur raftrommuryþmi. Söngurinn minnir á Robert litla Smith söngvara the Cure. God Is My Dog er bara nokkuð upplífgandi miðað við fyrri lögin, þótt textinn bendi kannski í aðra átt; hefst á línunni „I kill myself for you“. Kannski er þetta lakasta lag plötunnar, enda er viðlagið heldur einhæft. Atomic Heartswing er að miklu leyti instrúmental, nema í framúrstefnulegum millikaflanum, þar sem enskuframburðurinn er ekki nógu góður. Have You Ever Been In Mono? er tímabær spurn- ing í frábæru lagi. Síðasta lagið heit- ir Letter from the Edge og þar beita þeir svipuðum brögðum og fyrr á plötunni; láta gítarinn spila sama hljóm á meðan bassinn breytist. Diskur 2 er ekki síður mergjaður, þótt hann sé í allt öðrum dúr. Þar er að finna einskonar umhverfis- og danstónlist, magnaða hljóðgjörn- inga eftir Pétur. Félagarnir í Pornopop gefa plöt- una sjálfir út og það skiptir engu máli að greinilegt er að hún er gerð af vanefnum. Hljómurinn er ekki sem skyldi og ýmsa hnökra má heyra í hljóðfæraleik ef grannt er hlustað. Þeir mega vera fyllilega ánægðir, því skífan atarna er ein sú albesta á árinu. Ivar Páll Jónsson Jóíaveisfa Danskur jólamatur kr. 1.490,- Lambalæri bearnaise 790,- Viðar Jónsson skemmtir til kl. 03. O Catatma !tíammí)org 11, sími 534 2166 FÓLK í FRÉTTUM Draugar í farteskinu NÚ UM sinn hafa báðar sjón- varpsstöðvarnar, sú sem er í eigu ríkisins og hin í eigu Jóns Ólafs- sonar og Chase Manhattan, keppst við að sýna landsmönnum þætti, sem eru einskonar amerísk útgáfa af vísindalegum drauga- gangi. Þátturinn nefnist Ráðgát- ur og er ekki illa gerður. Hann virðist svo vinsæll að ekki dugir minna en hafa hann á báðum stöðvum samtímis og sýna að auki í tvígang hvern þátt í ríkissjónvarpinu. Ung var ég gefin Njáli sagði Bergþóra á ögurstund. Þeir voru eitt sinn ungir en eru nú farnir eða eru á fórum, sem aldir voru upp við draugatrú. Draugagang, á borð við þann sem boðið er upp á í Ráðgátum, hefði ekki verið hægt að nefna annars heims athafnir fyrstu áratugina eftir síðustu aldamót hér á landi, hjá þjóð sem „átti hann litla Loft“, sem stytti dægrin fyrir Gvendi í Svefneyj- um eða Glám sem Grettir glímdi við svo hurðir gengu af stöfum, en það var að vísu sænskur draugur, sem lagst hafði í sósíal- isma uppi á íslandi. Draugar virðast misjafnir eftir þjóðum. Bretar eiga drauga ekki ólíka okkur. Þeir eiga líka eins konar afturgengna hunda, eða menn sem breytast í ferfætt dýr. En frægastar eru vofur Breta; ljóslíkamar sem líða um hallir gamalla ætta jarla, hertoga og baróna. Þessir draugar hafa að- lagast hinni kunnu bresku stétta- skiptingu, enda hefur ekki heyrst af þeim meðal alþýðunnar. Aftur á móti hafa draugar á íslandi verið fram úr hófi stéttvíst al- þýðufólk; varla að heyrst hafi að þeir hafi sest upp hjá hreppstjór- um eða oddvitum. Bandaríkja- menn halda drauga, en þeir eru eins konar afbrigði frá vísindun- um. Samt hræðast þeir að úthluta lóðum á gömlum og aflögðum grafreitum indíána, sem hafa sýnt sig í að sækja að íbúum þeirra húsa, sem þar hafa verið byggð. Þá fást þeir við að reka út illa anda, bæði úr húsum og fólki. Og dæmi eru um, og skrifaðar um það bækur, að heilu húsin séu haldin drauga- gangi vegna voðaverka sem þar hafa verið framin. Fasteignamat þeirra mun hafa lækkað eitthvað af þeim sökum. Vinsældir þáttarins Ráðgátna hérlendis munu stafa að ein- hverju leyti af því, að þjóðin saknar draugagangsins gamla. Hann kemur eflaust ekki aftur frekar en húskuldinn og myrkrið, þegar konur þorðu ekki í fjós að mjólka af því Þorgeirsboli gæti verið að þjónusta mjólkurkúna. í staðinn fyrir hann er kominn skrítinn mannskapur af öðrum hnöttum með stór augu og sköll- óttir. Þessir UFO’s eru heil at- vinnugrein, að ekki sé sagt vís- indagrein, og kansellí þeirra vestra hafa ekki við að neita að geimverur séu þegar komnar. Hitt sakar svo engan, þótt gerðir séu þættir fyrir almenning til að halda honum við trúna. Við þekkjum það héðan að almenn- ingur vill trúa því sem honum sýnist og gengur bara fyrir þingið vilji þeir sem betur vita ekki játa villur síns vegar. Nú er mikil auglýsinga- og fréttatíð framundan í sjónvarpi og verður svo framundir jól. Um sinn hefur aðventan verið eins- konar sjónvarpstími og hefur yf- irleitt margt tekist vel í sjón- varpsdagskrá fyrir og um jól. Um jól fara menn með friði hver að öðrum og leita hins betra í fari manna. Talið er, vegna góðæris, að verslunin verði meiri fyrir þessi jól en áður og þess gætir í auglýsingum sjónvarps, útvarps og blaða. Sá sérsiður er enn í gildi að gefa út bækur á þessum árstíma. Blöð eru því full af bóka- tíðindum, en sölutíminn er svona tuttugu dagar. Sjónvörp eru treg að minnast á bækur og þykja þær léleg tíðindi, að því er virðist. Um margt má bókin búa við nokkra niðurlægingu. Kaupa- héðnar hafa farið þannig með hana, að strax í upphafi vertíðar spyr fólkið hvenær eigi að lækka verðið. Ekki er beðið eftir lægra verði á annarri vöru. Síðan í janú- ar eru óseldar bækur sendar til baka og sjást varla meir fyrr en á bókamörkuðum. Sú var tíð að stolt þjóðarinnar bjó í bókum; góðum eða vondum eftir atvikum. Nú þykir það helst vænlegt fyrir markað, sem snúið hefur baki við bókinni, að skrifa sérkennilegan texta um þá, sem ráða varla önd eða æði. Sjónvarpið er einn þeirra miðla, sem gæti snúið nið- urlægingu í sókn. Indriði G. Þorsteinsson. SJONVARPA LAUGARDEGI JADA Pinkett er alsæl þessa dag- ana enda á leiö upp að altarinu. Sönn ást LEIKKONAN Jada Pinkett þykir ein heppnasta konan í Hollywood um þessar mundir eða allt frá því leikarinn Will Smith bað hennar nú íyrir skömmu. Jada gengur nú um með risastóran trúlofunarhring og mun brúðkaupið verða snemma á næsta ári. „Hann bað mín uppi í rúmi. Spurði hvort ég vildi giftast sér og sagðist ekki geta lifað án mín,“ sagði Jada sem svaraði með því að gráta og faðma sinn heittelskaða. „Því næst trúlofuðum við okkur og urðum ólétt en það var alls ekki skipulagt.“ Parið hefur bú- ið saman í tvö ár og höfðu einhverj- ir látið sér detta í hug að eignar- réttarlög Kaliforníu kæmu í veg fyrir giftinguna en annað hefur komið á daginn. Jada sagði Will skömmu eftir bónorðið að hún myndi fús skrifa undir hvern þann hjúskaparsáttmála sem hann legði fyrir hana. Eins og hjá sönnum turtildúfum var ákveðið að enginn sáttmáli skyldi gerður og greinilegt að Will trúir á framtíð sína með Jada því samkvæmt skilnaðarlög- um Kaliforníu er eignum skipt til helminga. Will Smith hefur leikið í hverri stórmyndinni á fætur á annarri og er löngu orðinn millj- ónamæringur. Sölumaður- inn James Bond ►MGM kvikmyndaverið, sem framleiðir „Tomor- row Never Dies“, er þeg- ar búið að liala inn um 100 milljónir Banda- ríkjadollara fyrir myndina og það löngu fyrir frumsýningu. Hver er galdurinn? Jú, að selja öðrum fyrirtækj- um leyfi til að nota Bond-nafnið til að auglýsa vöru sína, og einnig að láta fyr- irtæki borga MGM ef Bond notar til- tekna vöru í myndinni. Þegar 007 notaði BMW Z3 í „Gold- eneye“ árið 1995 höfðu sölumenn BMW varla við að selja bilinn mönnum sem sáu sig líklega í anda drýgja hetju dáðir leyniþjónustumannsins breska. Fyrir þessi jól er Bond-nafnið t.d. notað til að selja Ericsson bflasima og Smirnoff vodka, auðvitað í martini-blöndu. Einnig koma Bond og Q við sögu í auglýsingum fyrir Visa-kort, og jafnframt má finna Pierce Brosnan í Bond-gervinu í aug- lýsingum fyrir L’Oreal snyrti- vörur svo eitthvað sé nefnt. HETJAN Bond auglýsir allt frá snyrtivöruni til vodka. Stutt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.