Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 66
( 66 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jólasveinar koma
í Kringluna
ÁTTA jólasveinar koma í
Kringluna í Reylqavík á laug-
ardag og verða þar kl. 13.30.
í frétt frá Kringlunni segir
að jólasveinamir ætli að koma
úr Esjunni um hádegisbil á
laugardag. Þeir ferðist á hey-
vagni og dráttarvél sem þeir
fengu lánaða hjá bónda á Kjal-
arnesi. Jólasveinarair verði á
Ártúnshöfðanum um kl. 12.30
og fari í lögreglufylgd eftir
Miklubraut í Kringluna. Þeir
muni skemmta á Kringlutorg-
inu og heilsa upp á bömin í
Kringlunni.
Einnig segir að jólasveinara-
ir hafi áformað að kaupa jóla-
gjafir í Kringlunni, til að gefa
börnunum í skóinn fyrir jólin,
en noti tækifærið af og til all-
an daginn til að skemmta
krökkunum.
Nokkrir jólasveinar verða
einnig á ferðinni á sunnudag
og skemmta bömum kl. 13,
13.45 og 14.30.
Afgreiðslutími Kringiunnar
hefúr verið lengdur fyrir jólin
og er nú opið alla daga til jóla.
Em verslanir opnar laugardag
frá kl. 10 til 18 og á sunnudag
frá kl. 13 til 18.
Mjallhvít í Ævin-
týra-Kringlunni
Klukkan 14.30 á laugar-
dag sýnir Furðuleikhúsið leik-
ritið Mjallhvít og dvergam-
ir sjö í Ævintýra-Kringl-
unni, sem er bama-
gæsla og listasmiðja fyr-
ir böm á aldrin-
um 2-8 ára og er á 3. hæð í Kr-
inglunni.
Leikarar eru Margrét Pét-
ursdóttir og Ólöf Sverrisdótt-
ir og leika þær öll hlutverk-
in. Gunnar Gunnsteins-
son er leikstjóri og lokalag-
ið samdi Ingólfur Steinsson.
Ævintýra-Kringlan er op-
in frá kl. 14 virka daga frá kl.
10 laugar-
daga og frá kl. 13 sunnu-
daga fram að jólum.
SVR tekur í notkun nýjan liðvagn
Uppfyllir ströngustu kröf-
ur um mengimarvarnir
SVR tók í gær í þjónustu sína 150
farþega liðvagn. Vagninum er ætlað
að koma til móts við það mikla álag
sem er á annatímum SVR en
algengt er að nauðsynlegt sé að láta
vagna fylgja bílum af hefðbundinni
stærð svo hægt sé að flytja alla þá
farþega sem vilja komast leiðar
sinnar á þeim tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá SVR
uppfyllir liðvagninn ströngustu
kröfur varðandi mengunarvarnir,
Euro II staðal, en sá staðall tekur
gildi árið 1998. Einnig er vagninn
útbúinn með tölvustýrða olíugjöf
sem tryggir hagkvæmustu brennslu
miðað við aðstæður og dregur þar
með úr loftmengun.
Liðvagninn mun verða á leið 12
sem ekur írá Hlemmi í Breiðholt og
þjónar þar Hóla- og Fellahverfi.
Hann er af gerðinni Scania
CN113ALB og vegur hann
fullhlaðinn 26.000 kg. Tekur í allt
150 farþega, þar af 59 í sæti. Vélin
er sérstaklega hljóðeinangruð,
gírkassinn er með spólvörn og er
vagninn með ABS bremsukerfi.
Vélin er 235 kW eða 320 hö. Tvöfalt
gler er í rúðum og sæti plussklædd.
Karlar ræða um sjó-
mennsku og karlmennsku
FJÖLSKYLDUKARLINN, úti-
legukarlinn, hvemig eiga pabbar að
vera? Þetta er meðal viðfangsefna á
ráðstefnu sem Menningar- og
fræðslusamband alþýðu gengst fyr-
ir í dag. Yfirskrift ráðstefnunnar
er: „Drengir góðir, karlar tala við
karla um karla“.
Á ráðstefnunni er lögð sérstök
áhersla á málefni karla í verkalýðs-
hreyfingunni. Konráð Alfreðsson,
formaður Sjómannafélags Eyja-
fjarðar, fjallar um hvernig það er
fyrir sjómanninn að vera margar
vikur á sjó fjarri fjölskyldu og
koma heim í stutta stund. Hann
skoðar þetta frá sjónarhóli sjó-
mannsins og veltir fyrir sér áhrif-
um þessa vinnufyrirkomulags á
fjölskylduna.
Snorri S. Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri MFA, fjallar um
karlinn sem fyrirmynd og upp-
alanda, en Snorri starfaði í mörg ár
sem bifvélavirki. Ingólfur Gíslason,
hjá Jafnréttisráði, kallar erindi sitt
fjölskyldukarlinn. Bragi Skúlason
sjúkrahúsprestur nefnir sitt erindi,
karlar í augum karla.
Astráður Haraldsson, lögmaður
ASI, og Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, fjalla um
karla í kjarasamningum og lögum.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Jámblendifélagsins,
spyr í sínu erindi, er líf eftir starfs-
lok? Þá spyr Karl Ágúst Úlfsson,
karlmennska, hvað er nú það?
Skotið verður inn skemmtiatrið-
um á milli erinda.
Sigurður G. Tómasson, sem séð
hefur um undirbúning ráðstefnunn-
ar, sagði að á ráðstefnunni væri
ætlunin að ræða mál sem karlar
hefðu ekki fjallað mikið um á opin-
berum vettvangi fram að þessu.
Hann sagðist hafa orðið var við mik-
inn áhuga á viðfangsefninu og greini-
legt væri að karlar í verkalýðshreyf-
ingunni, sem og aðrir, væru tilbúnir
til að fjalla um þessi mál.
Ráðstefnan er öllum opin. Hún
hefst í dag kl. 9:00 í Borgartúni 6
og henni lýkur á hádegi.
MYNDIN er tekin við afhendingu tækisins og þar sjást fulltrúar
samtakanna og Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka. í fremstu
röð á myndinni eru frá vinstri: Valur Valsson, bankastjóri íslands-
banka, Grétar Ólafsson yfirlæknir, Bjami Torfason yfirlæknir og
Gísli Eyland, formaður Landssamtaka hjartasjúklinga.
Blóðflæðimælir að gjöf
HINN 28. október sl. færðu Lands-
samtök hjartasjúklinga og íslands-
banki hjartaskurðdeild Landspítal-
ans að gjöf blóðflæðimæli.
„Tækið er meðal annars notað í
hjartaskurðaðgerðum við mælingar
á blóðstreymi í nýjum kransæða-
LEIÐRETT
Listmálaraþankar
í FRÉTTATILKYNNINGU um
upplestur á Súfistanum í blaðinu á
fimmtudag misritaðist nafn bókar
Hjörleifs Sigurðssonar. Bókin heitir
Listmálaraþankar. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Hjónaminning
í BLAÐINU á fimmtudag urðu þau
mistök í vinnslu minningargreinar
um Stefán Gíslason og Guðlaugu
Katrínu Kristjánsdóttur eftir Guð-
rúnu Huldu að upphaf greinarinnar
féll alveg niður. Er það rétt svona:
„Nú fækkar þeim óðum hinum
græðlingum og eykur það enn frekar
öryggi og árangur þessara aðgerða.
Deildin hafði ekki fé til kaupa á tæk-
inu sem er rpjög dýrt og kemur gjöf-
in sér því ákaflega vel,“ segir í
fréttatilkynningu frá Landspítalan-
gömlu fi-umbyggjum Kópavogs.
Einn þeirra, Stefán Gíslason húsa-
smiður, er látinn á 89. aldursári...“
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Heima er best
VEGNA fréttar er birtist í blaðinu
um verslunina Heima er Best sem er
ný húsgagna- og gjafavöruverslun
og opnaði á Selfossi þann 1. nóvem-
ber sl. skal tekið fram að verslunin
er ekki umboðsaðili fyrir neina aðra
verslun. „Heima er Best“ selur hús-
gögn frá Delí og Mira. Einnig selur
verslunin gjafa- og smávörur frá
hinu sænska merki, Sia.
Eigendur verslunarinnar eru
hjónin Sólveig Ósk Hallgrímsdóttri
og Gísli Þór Guðmundsson.
Jólafund-
ur um
Ave María
AVE María er yfirskrift jólafundar
Félags íslenskra háskólakvenna í ár
en hann verður haldinn sunnudag-
inn 7. desember kl. 15 í Þingholti,
Hótel Holti.
Þar mun Jón Stefánsson org-
anisti fjalla um lofsönginn til Maríu
guðsmóður en hún hefur orðið flest-
um tónskáldum erlendum sem og
innlendum yrkisefni. Hér er ef til
vill um dulbúna ást á mæðrum
þeirra að ræða. Ýmist styðja þeir
við texta latensku bænarinnar eða
aðra texta hinna ýmsu ljóðskálda.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir óp-
erusöngkona syngur nokkrar Marí-
ur en hún er einmitt núna að gefa út
geisladisk sem á eru einar fjórar
Maríur.
Fundir félagsins eru öllum opnir.
Mosfellsbær
Kveikt á jóla-
trénu í dag
KVEIKT verður á jólatré Mosfell-
inga við Þverholt í dag. Athöfnin
hefst kl. 16.30.
Við athöfnina leikur Skólahljóm-
sveit Mosfellsbæjar jólalögin, skóla-
kór Varmárskóla kemur og syngur
nokkur lög og von er á jólasveinum í
heimsókn með glaðning í pokahorn-
inu. Þá verður einnig flutt_ stutt
ávarp og síðan ljósin tendruð. í lokin
verður síðan dansað í kringum jóla-
tréð og jólalögin sungin og leikin.
um.
HEIMILISLAUSIR kettir í Kattholti.
Basar í Kattholti
KATTAVINAFÉLAG íslands heldur árlegan jólabasar í Kattholti í
Stangarhyl 2, sunnudaginn 7. desember kl. 14. Boðið verður upp á kaffi.
Allur ágóði rennur til líknarstarfsins í Kattholti.
J ólamerkispj öld
Hvítabandsins
HVÍTABANDIÐ, líknarfélag, gefur
út í fyrsta sinn jólamerkispjöld. Um
er að ræða fimm myndir sem ís-
lenskar myndlistakonur hafa gefið
félaginu. Það er Sjá, nóttin er á
enda og Umhyggja eftir Þórdísi
Elínu Jóelsdóttur, Keilir eftir Dröfn
Guðmundsdóttur, Jólatré eftir Ásu
Ólafsdóttur og Jólatelpa eftir Ásdísi
Sigurþórsdóttur.
Merkispjöldin eru seld 10 í pakka
á kr. 200 og fást í Listakoti, Lauga-
vegi 70, Grafíkverkstæðinu, Þing-
holtsstræti 5, Óskablóminu, Hring-
braut, Thorvaldsensbazar, Austur-
stræti 4, Ull og gjafavörum, Hótel
Sögu, Tímadjásni, Grímsbæ, Úra-
og skartgripaverslun P.R. Heide,
Glæsibæ, Gullsmiðju Óla, Hamra-
borg, Kópavogi, og í verslunum
Hvítabandsins að Aflagranda 40 og
Furugerði 1 og einnig hjá félags-
konum. Allur ágóði rennur til líkn-
armála.
Franskur vín-
smökkunarsér-
fræðingur með
kynningu
KAMPAVÍNSSMÖKKUN verður í
Sunnusal Hótels Sögu sunnudaginn
7. desember kl. 18 á vegum Matar-
og vínklúbbsins Sunnan sjö. I tilefni
þess er staddur hér á landi útsendai-i
franskra vínútflytjenda, Jörgen La
Cour Harbo vínsmökkunarsérfræð-
ingur, og sér hann um smökkunina.
Fræðslan er öllum opin og er þátt-
tökugjald 2.000 kr.
Kvikmyndasýn-
ingar fyrir börn
KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir
börn eru í Norræna húsinu alla
sunnudaga kl. 14.
Sunnudaginn 7. desember verður
sænska myndin „Jul och Juveler-
Ture Sventon" sýnd en hún segir frá
Ture Sventon, færasta einkaspæjara
Svíþjóðar sem er kallaður til að leysa
gátuna um innbrotið hjá skartgripa-
salanum Eriksson.
Myndin er með sænsku tali og er
sýningartími 101 mínúta.
Lifandi tónlist
á Súfistanum
LIFANDI tónlist verður leikin fyrir
gesti Súfistans og bókabúðar Máls
og menningar á Laugavegi 18,
Reykjavík, í dag milli kl. 15 og 18.
Að þessu sinni mun Ingunn Jóns-
dóttir, þverflautuleikari úr Tónlist-
arskólanum í Reykjavík, leika frá kl.
15 en þar á eftir mun strengjakvar-
tett Tónlistarskólans taka við með
léttri klassískri tónlist. Kvartettinn
skipa fiðluleikarinn Kristín Björg
Ragnarsdóttir og María Huld Sig-
fúsdóttir, víóluleikarinn Valgerður
Ólafsdóttir og sellóleikarinn Sólrún
Sumarliðadóttir.