Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Agústa Þórhildur Sigurðardóttir, húsmóðir á Selfossi ÁGÚSTA Þórhildur við trésúluna sem Hrafnarnir heimsækja á degi hveijum. Morgunblaðið/Sig. Fannar HRAFNINN gæðir sér á feitu kjöti. Selfossi - Ágústa Þórhildur Sig- urðardóttir, húsmóðir á Selfossi, hefur verið með tvo hrafna í föstu fæði í þrjú ár. Hrafnarir hafa þann sið að heimsækja Ágústu um hádegisbil og snæða hjá henni kræsingar. Agústa segir hrafnana vera sólgna í feitt kjöt og tólg. Hún gefúr þeim einu sinni á dag og færir þeim matinn f þar til gerð- an matarbakka sem stendur á trésúlu í framgarðinum hjá henni. „Hrafnamir eru nyög pólitískir," segir Ágústa. „Þeir hafa þann sið að éta aðeins úr blárri skál en það skrýtna er að síðan fljúgja þeir með matinn upp á þak hjá nágranna mínum, Guðna Ágústssyni, alþingismanni Með „póli- tíska“ hrafna í fullu fæði Framsóknarflokksins, og borða hann þar.“ Ágústa heldur að hrafnarir séu að lýsa yfir sam- stöðu með ríkisstjórninni en hún er samt ekki viss. Annar krunkar meira Ágústa er farin að þekkja hrafnana í sundur og hún hefur gefið þeim nöfn, Hrafn Gunn- laugsson og Ingvi Hrafn. „Annar þeirra er mun málgefnari en hinn,“ segir Ágústa en hún vill ekki segja blaðamanni hvor það er. Hrafnarnir eru Ágústu mjög þakklátir og þegar þeir fljúga neðan frá sjó og halda til fjalla á kvöldin koma þeir gjarnan við í garðinum og krunka í smá- stund. Ágústa segist hafa gam- an af fuglunum og hún sjái ekki eftir matnum ofan í þá. „Ég er viss um að þetta eru miklir gæfufuglar og mér er farið að þykja vænt um þá,“ sagði Ágústa Þórhildur Sigurðardótt- ir, „hrafnamóðir" og húsmóðir á Selfossi. Tveggja ára fangelsi fyrir árás í Olkjallara HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 39 ára gamlan mann í tveggja ára fangelsi vegna líkams- árásar sem framin var á veitinga- staðnum Ölkjallaranum í Pósthús- stræti í september sl. Maðurinn er dæmdur fyrir að hafa slegið fimm- tugan mann hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut heilaskaða og varanlegt heilsutjón. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið hinn hnefahögg í andlitið og hrint honum síðan svo hann féll inn á salerni veitingastaðarins og skall með hnakkann á flísalagðan stokk. Fram kom í dómnum að maður- inn hefði síðan legið á sjúkrahúsi. Hann var meðvitundarlaus og í önd- unarvél um tíma en hefur síðan ver- ið í slíku ástandi að hann var talinn óhæfur að koma fyrir dóminn og bera um atburðinn. Dómurinn taldi sannað, m.a. með framburði hins ákærða sjálfs, að hann hefði veitt hinum höggið en vegna framburðar vitna var ekki talið loku fyrir það skotið að sá sem fyrir högginu varð hefði síðan runn- ið á gólfinu vegna ölvunar og eða bleytu á gólfi og fallið við það að hörfa undan högginu. Fallið og áverkinn verði þó að mati dómsins að mestu leyti rakin til háttsemi hins dæmda þótt aðrir þættir komi þar einnig við sögu. Maðurinn, sem hefur hlotið 11 refsidóma fyrir ýmis afbrot, var dæmdur í tveggja ára fangelsi, en þar af eru 290 dagar uppdæmdar eftirstöðvar reynslulausnar sem hann hafði fengið vegna eldra brots. FRUMKAST heitir mynd Þorvaldar Skúlasonar sem saknað er. HAFNARMYND eftir Örlyg Sigurðsson sem stolið var. Tveimur lista- verkum stolið Samiðn mælir eindreg- ið gegn veitingu leyfa SAMIÐN mælir eindregið gegn því að félagsmálaráðuneytið veiti 25 iðnaðarmönnum frá Rúmem'u atvinnuleyfi hér á landi, en Norð- urál hf. óskaði eftir að mennimir fengju leyfi til að vinna að uppsetn- ingu reykhreinsivirkis við álverið á Grundartanga. Rúmenamir starfa hjá rúm- enska fyrirtækinu SAEM Energomontaj SA, en fyrirtækið er undirverktaki hjá fyrirtækinu ABB, sem sér um að reisa reyk- hreinsivirkið. Upphaflega var sótt um atvinnuleyfi fyrir 60 iðnaðar- menn. Umsókninni var hafnað og var þá sótt um aftur og að þessu sinni um 25 leyfi, þar af fyrir 22 jámiðnaðarmenn. Óheimilt að veita SAEM leyfi Samiðn bendir á í umsögn sinni til félagsmálaráðuneytisins að SAEM sé erlent fyrirtæki sem ekki sé með neinn rekstur hér á landi og því sé óheimilt að veita því atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin kveði á um að atvinnuleyfisum- sóknum skuli fylgja ráðningar- samningar. Engir slíkir samningar hafi verið lagðir fram. Ennfremur liggi engar upplýsingar fyrir um iðnréttindi Rúmenanna, en viður- kennd iðnréttindi séu forsenda þess að starfa megi í viðkomandi iðngrein. Samiðn segir í umsögn sinni að ekki hafi verið sýnt fram á að skortur sé á faglærðum jámiðnað- armönnum hér á landi. Bent er á að könnun Samiðnar bendi til að fýrirtæki geti bætt við sig verkefn- um í vetur. ABB hafi hafnað samn- ingi við innlent fyrirtæki um upp- setningu. Hins vegar liggi fyrir yf- irlýsing 22 fyrirtækja í málmiðnaði um að þau séu reiðubúin til að taka að sér þetta verkefni. Samiðn segir að íslenskt fyrir- tæki hafi nýlega sett upp reyk- hreinsivirki við álverið í Straums- vík. Því er þess vegna hafnað, sem fram hafi komið hjá lögmanni Norðuráls, að ekki sé víst að verk- þekking sé til staðar hjá íslenskum jámiðnaðarmönnum. Samiðn telur að lágmarkslaun tryggi ekki laun og starfskjör til jafns við heimamenn. Allur frá- gangur þessa máls af hálfu verk- taka sé með þeim hætti að reynt sé að komast hjá íslenskum lögum um veitingu atvinnuleyfa og beinlínis sé stefnt að undirboði í launakjörum. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sagði í síðustu viku að ef iðn- aðarmenn væru tiltækir hér á landi yrðu atvinnuleyfin ekki veitt. Hann ítrekaði þessa afstöðu í gær í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagð- ist eiga eftir að skoða greinargerð Samiðnar, en málið yrði afgreitt formlega eftir helgina. TVEIMUR málverkum í eigu Lista- safns Háskóla íslands hefur verið stolið. Voru þau í húsnæði Lyfjabúð- ar Háskólans við Austurstræti í Reykjavík og eru eftir Þorvald Skúlason og Órlyg Sigurðsson. Lögreglunni í Reykjavík var að morgni 28. nóvember tilkynnt um innbrot á fimmtu hæð að Austur- stræti 16, húsnæði Lyfjabúðar Há- skóla íslands. Kom í ljós síðar að tveimur verðmætum málverkum hafði verið stolið. Annað þeirra er Frumkast eftir Þorvald Skúlason, málað 1955 með akryl litum. Stærð þess er 29 x 23 em og er það merkt í hægra horni ÞS ‘55. Hitt málverk- ið er hafnarmynd eftir Örlyg Sig- urðsson, máluð 1947 með olíu á pappa. Stærð þess er 48 x 32 cm og er merkt í vinstra horni Örlygur ‘47. Þeir sem geta gefið upplýsingar um þjófnaðinn eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík. Suðurskautsfararnir nálgast pólinn Sækja í sig veðrið í 22 stiga frosti og mótvindi INGÞÓR Bjarnason, Ólafur Örn Haraldsson og Haraldur Örn Ólafs- son, suðurskautsfararnir þrír, höfðu í gær lagt 465 km að baki á leið sinni á suðurpólinn. Þeir eru búnir með meira en þriðjung leiðarinnar eftir 23 daga og hafa að meðaltali gengið 20,2 km á dag og hafa sótt mjög í sig veðrið undanfama daga. Tómas Bjamason, tengiliður þre- menninganna hér á landi, segir að undanfama daga hafi frostið á suð- urskautinu verið 22 stig að jafnaði. „Stöðugur mótvindur leikur við þá félaga nú sem endranær og hefur mest verið um 8 vindstig," segir Tómas. „Kælingin við 8 vindstig og 20 stiga frost á bert hörand er um 54 stiga frost og því mikil hætta á kali. Það er ekki að furða að þeir félagar eigi erfitt með að taka af sér vett- lingana." Gönguleið þremenninganna frá ís- jaðrinum á suðurpólinn er um 1.200 kílómetra löng. Áætlun þeirra fyrir ferðina alla gerði ráð fyrir 20 kíló- metra göngu á dag að jafnaði og 60 göngudögum alls. Undanfarna daga hafa þeir sótt í sig veðrið, gengu 31 km á miðviku- dag og 24 km fimmtudag og þriðju- dag. Þeir eru nú að komast á há- sléttu, að sögn Grétars Bjarnasonar, sem fylgist með boðum frá staðsetn- ingartækjum þeirra í húsnæði Flug- björgunarsveitarinnar í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.