Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 78
MORGUNBLAÐIÐ
v 78 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBÖND
Fíflast án þess að
fara yfír strikið
>
>
Lygari Lygari
(Liar Liar)__________________
Gainaiimynd
■k'kVz
Framleiðandi: Brian Grazer. Leik-
stjóri: Tom Shadyac. Handritshöf-
undar: Paul Guay og Stephen Mazur.
Kvikmyndataka: Russel Boyd. Tón-
list: John Debney. 82 mín. Myndin er
öllum leyfð.
LIAR Liar segir frá sambandi
lögfræðings við ungan son sinn. Lög-
fræðingurinn, sem heitir Fletcher,
lifir og hrærist í lygum og á það oft
til að ljúga fólk fullt og skiptir það
hann engu máli hvort hann gerir það
í réttarsalnum fyrir framan dómara
og kviðdóm eða hvort hann skrökvar
að fyrrverandi konu sinni og syni.
En hans lygaheimi er ógnað þegar
konan hans fyrrverandi fær nóg af
lygunum og ákveður að flytja burt
með soninn. Auk þess verður
Fletcher fyrir mjög óþægilegri
reynslu sem hamlar honum að vinna
starf sitt sem skyldi einmitt á þeim
degi sem öll framtíð hans veltur á.
Jim Carrey er öllum kunnur fyrir
fíflalæti sín í gegnum tíðina, og hefur
hann oft átt góða spretti, en nýlega
hefur hann ekki verið að gera neitt
góða hluti þar til nú. Liar Liar er
sennilega besta mynd Carreys á eft-
ir Ace Ventura 1 og notar hann
tækifærið og fíflast að mestu án
þess að fara yfir strikið. Aðeins
einu sinni gerist það en það er í
atriði í réttarsalnum seint í
myndinni sem hann fer yfír
strikið og fer að fara dálítið í
taugamar á manni. En hann
nær sér á strik og endirinn er
væmin útkoma sem Carrey
nær samt að gera dálítið
asnalega og fyndna.
Kvikmyndatakan ber
mikinn keim af iðnaðar-
ménnsku en skiptir það
litlu máli í mynd sem þess-
ari. Eins er leikstjórinn Tom
Shadyac viljalaust verkfæri
Carreys og virðist hann bara
nokkuð sáttur við það. Hann
er einn af fáum leikstjórum
sem hefur getað
LIABLIAR sætt siK við
... ... stjórnsemina í
AMI^^I i-J: Carrey á tökustað
” því ekki beitt sínu
hann líkt og hann
gerði í framhalds-
Ventura, þar sem
hann lét reka
hvern leikstjórann á fætur öðmm
fyrir það eitt að vilja bara svolítið fá
að stjórna einhverju.
Tónlistin er eins og í öllum svona
myndum. Gleðileg þegar eitthvað er
fyndið og mjúk og fíngerð í
væmnisköflum. Það er varla að mað-
ur taki eftir henni. Þetta er ágætis
afþreying: maður sest niður, slekkur
á heilanum og setur spóluna í tækið.
Ari Eldjárn
Ari Eldjárn mun sjá um mynd-
bandarýni ásamt Hildi Loftsdóttur og
Ottó Geir Borg. Hann er 16 ára og
stundar nám við Menntaskólann í
Reykjavík.
A
n
3>
Styrkjum konurtil þátttöku í
ákvörðunum er varða líf þeirra
sjálfra.
• Aukin heilsugæsla,
• betri menntun,
• smálán til atvinnurekstrar og
• réttindafræðsla
bæta kjör kvenna og skila sér til
barnanna og samfélagsins.
w
HJÁLMUTOFNUN KWKIUNNAR
Fjáröflun Barnaheilla
Skamm-
degið
boðið
en fjöldi
HATIÐIN Jólaperla Matthildar
var haldin í Perlunni um síðustu
helgi þar sem meðal annars fór
fram fjársöfnun fyrir Bamaheill.
Söfnunin fór þannig fram að
gestir Perlunnar gátu keypt
ljósaperur sem voru hengdar á
jólatré fyrir utan Perluna og
þannig lagt málstaðnum lið. Að
sögn Kristínar Jónasdótt-
ur framkvæmdastjóra
Bamaheilla var söfnunin
samstarfsverkefni Barna-
heilla, Reykjavíkurborg-
ar, Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, útvarp-
stöðvarinnar Matthildar
og Perlunnar. Pening-
amir sem söfnuðust
renna til kaupa á ýms-
um búnaði fyrir heimili
Barnaheilla að Geld-
ingalæk þar sem böm
á aldrinum 6 til 12 ára
dveljast til skemmri
tíma.
„Rafmagnsveitan
og Reykjavíkurborg
lánuðu jólatré og jóla-
ljósin sem gestir
Perlunnar keyptu og
vora hengd á jólatrén.
Hver ljósapera kostaði
300 krónur og við seldum
á bilinu fimmtán hund-
rað til tvö þúsund per-
ur,“ sagði Kristín en þeir
sem keyptu fleiri en eina
peru fengu sérstakan af-
slátt. Þetta er í fyrsta
sinn sem fjáröflunarleið
af þessu tagi er reynd á
íslandi og ekki var annað
að sjá en fólk kynni vel að
meta framtakið.
Heimili Barnaheilla hef-
ur verið starfrækt í fimm ár og
að sögn Kristínar er það hlutverk
Bamaheilla að sjá um allan
stofnbúnað á heimilinu og halda
áfram að hlynna að því. Enn
vanti þó ýmislegt og renna pen-
ingarnir að öllum líkindum til
kaupa á húsgögnum og öðram
innanstokksmunum. „Þetta var
mjög skemmtilegt og jákvæður
ÁSGEIR Helgason starfsmaður
sá um að perurnar færu
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rafmagnsveitunnar
á réttan stað.
kvnnf •• a J<s,apriunni
Wo'nustu °rUrSlW^
ÍÞRÓTTAÁLFURINN úr Latabæ mætti
í Perluna og kenndi krökkunum nokkur
velvalin spor.
andi ríkti í Perlunni.
Við eram mjög þakk-
lát öllum sem tóku
þátt í þessu og sér-
staklega Rafmagns-
veitunni sem gaf
alla sína vinnu og
aðstoð," sagði
Kristín.
A Jólaperlunni
var boðið upp á
fjölbreytt _ skemmtiatriði
þar sem Iþróttaálfurinn
úr Latabæ kom fram,
Skúli rafvirki, Snörurnar
og Gaui litli auk þess sem
nokkrir tónlistarmenn
kynntu hljómplötur sínar.
Einnig kynnti fjöldi fyrir-
tækja vörar sínar og þjón-
ustu og haldin var tísku-
sýning. A hátíðinni var
boðið til sölu Krakkalýsi
en allur ágóði sölunnar
rann til Barnaheilla. Það
var því líf og fjör í
Perlunni um síðustu helgi
og ljóst að gjafmildi og
skemmtun fara vel saman.
lýst upp
CAFÉ CAPRICE
Glæsileg kaffivél sem
sýður kaffið sjálf.
Verð kr. 10.830.
Úrval kaffivéla frá
kr. 1.990.
Fást víða um land.
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 tt 562 2901 og 562 2900