Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ inn í eldhús, erum um það bil að klára sósuna og meðlætið. Siggi er búinn að saxa tómata í litla ferninga og út í það bætum við balsamediki og ögn sykri. „Best er að hafa maple- síróp en það er einnig hægt að nota sykur. Sírópið eða sykurinn tekur mestu sýruna úr tómötunum og gerir þá skemmtilega," segir Siggi. Sérvitur á bákina mínu En hvemig stóð nú á því að hann ákvað að gefa út bók? Er hún búin að vera lengi í deiglunni? „Þetta er ekki ný hugmynd og í raun hefur alitaf legið fyrir, frá þvi ég byrjaði með þættina mína á Stöð 2, að þetta yrði gert. Þetta hefur síðan verið að velkj- ast með manni í gegnum árin og er nú komið á koppinn. Eg hef alltaf verið sérvitur á þessa bók mína og staðið fastur á því að ef ég myndi gefa út uppskriftir úr þáttunum mín- um þá yrði ég að ráða framsetning- unni í einu og öllu. Auðvitað hafa hugmyndir manns um það hvernig bókin eigi að vera þróast í gegnum árin. Ég vildi til dæmis ekki vera háður neinu nema elduninni. Ég hef gert mikið af uppskriftum er notaðar hafa verið í auglýsingaskyni í gegn- um árin og hef haft gaman af því. Þetta er hins vegar persónuiegra," segir hann, tekur fillet-sneiðamar af pönnunni og stingur inní ofn. En er hann sáttur við útkomuna? „Eins og maður er sáttur við sjálfan sig og það sem maður er að gera. Ég er sáttur við þá sem unnu með mér, Kristján Maack ljósmyndara og Björgvin Halldórsson, framkvæmda- stjóra verkefnisins. Ég er sáttur við útlit bókarinnar og þakklátur Is- lenska útvarpsfélaginu fyrir þetta tækifæri. Það er síðan aukaatriði hversu sáttur ég er með minn þátt.“ Lambaréttur þessi er einnig með þeim gamalgrónari í pússi Sigurðar og var lengi á matseðlinum á veit- ingahúsinu er þau hjónin ráku um árabil í Noregi. Var þetta einn vin- sælasti rétturinn sem þar var boðið upp á kannski engin furða. Einfaldur Og ótrúlega ljúffengur. Brauðmylsnu- hjúpurinn (heimatilbúinn úr bakstri Svölu og blandað kryddjurtum) held- ur safanum vel inní kjötinu, tómat- arnir gefa ferskleika og sósan hefur heppnast fullkomlega, ekki síst síð- asta viðbótin salvía og sérrí gefur mikin keim í bland við öflugt soðið. Með þessu síðan blandað grænmeti og kartöflugratín. Við fáum okkur öll tvo væna skammta. Til gamans ákvað ég að hafa tvö ólík rauðvín með. Við dreypum á því fyrra og Sigurður veltir því mikið fyrir sér. Það var þó kannski nokkuð andstyggilegt að setja þetta vín fram, Montecillo Gran Reserva 1970, því þó það sé orðið 27 ára er það enn einstaklega ferskt og ungt í sér og villir þar með á sér heimildir. „Þetta mætti vel vera merkilegt alskegg en aðal sérkenni hans voru tvær vörtur, önnur upp við hársrætur og hin á milli augnanna efst á nefinu. Hann talaði um að hann hefði mjög bitra reynslu af fjölmiðl- um, sem hefðu ekki virt hann viðlits þrátt fyrir borðliggjandi sannanir fyrir mætti hans. Hann biðlaði til eig- inkonu sem hann sagði að byggi í Fredriksstad í Noregi, 26 ára gömul, ■stjórnmálafræðingur, hann vissi bara það um hana að hún væri útskrifuð í -ár og ynni sem einkaritari í dag. Hún jværi rík, brúnhærð, há og grönn. ., Ráðning (: Þessi draumur talar um falsspá- imenn (Jesú með merkilegt skegg og vörtur, vartan milli augnanna kemur (í stað þriðja augans, vörtur tákna íeitthvað óhreint) sem herja jörðina jen hafa ekki fengið þann híjómgrunn :(bitra reynslu af fjölmiðlum) er þeir ætluðu sér hér á landi. Seinni hlutinn bendir til að utanaðkomandi (eigin- kona í Noregi) aðili snúi vörn þeirra í sókn. •Þeir lesendur sem vilja fá driiumn sína birta og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni til hirtingar til: Drmimstafír Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavf LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 39 eldra,“ segir Sigurður. Honum geng- ur betur með síðara vínið. „Nú hljót- um við að vera í Bordeaux ... Þetta er ekki Médoc ... of stórt til að vera St. Emilion. Er þetta kannski Pomerol?“ Og viti menn. Pomerol var það. Petit Village 1989. Við dásömum vínið en snúum okkur svo aftur að lambinu. „Þetta er eiginlega nútímaútfærsla af klassísku lambakótilettunum í raspi sem voru fastur liður á íslenskum heimilum.“ Við Ijúkum við matinn og setjumst mett í þægilegri stóla með kaffibolla. Svo heppilega vildi til að Sigurður hafði fyrr um daginn verið í upptöku með Jóhannesi Felixsyni kökugerð- armeistara og hafði kippt með sér dásamlegri kransaköku. Það hefur greinilega sína kosti að vera sjón- varpskokkur en hvemig leggst það í Sigurð? „Það gæti virst vera þannig að sjónvarpskokkar séu kokkar sem elda ekki heldur búa bara til rétti til sýnis. Það er ekki rétt. Ég elda alla réttina sem ég nota í þáttunum frá upphafi til enda. Allt frá upphafi hef- ur það verið markmiðið að stytta sér ekkert leið þótt þetta sé fyrir sjón- varp. Síðan er það auðvitað svo að maður er hálfpartinn búinn að gefa þjóðinni sjálfan sig með því að vera stöðugt á skjánum hjá fólki. Aðalat- riðið finnst mér vera að láta það ekki stíga sér til höfuðs. Þetta er bara mín vinna. Henni fylgir að flestir kannast við mann og margir hika ekki við að hnippa í mann út í búð eða hringja í mann til að leita ráða.“ En hvemig er það, hlýtur kokk sem lengi rak sitt eigið veitingahús ekki ávallt að dreyma um að vera með sinn eigin stað? „Ég er fyrst og fremst kokkur. Og þótt sjónvarps- þættirnir veiti mér mikla ánægju og ég eigi góða vini hjá íslenska út- varpsfélaginu þá blundar ýmislegt í manni og manni finnst það vera eðli- leg afleiðing af því sem ég hef verið að gera undanfarin ár að blanda mér inn í veitingamennskuna á nýjan leik.“ En meðan ég man, hvaða ráð gafstu konunni með frosnu gæsimar? „Láta þær liggja í volgu vatni þangað til þær þiðna. Það er það eina sem hægt er að gera í svona stöðu.“ Tilvalin jólagjöf / M Jólasveinar koma í heimsókn og skemmta Kringlugestum Opið verður lengur Laugardagur 6. des. kl. 10-18 Sunnudagur 7. des. ki. 13-18 Laugardagur 13. des. kl. 10-22 Sunnudagur 14. des. ki. 13-18 Miðvikudagur 17. des. kl. 10-22 Fimmtudagur 18. des. ki. 10-22 Föstudagur 19. des. kl. 10-22 Laugardagur 20. des. kl. 10-22 Sunnudagur 21. des. kl. 10-22 Mánudagur 22. des. kl. 10-22 Þorláksmessa23. des. kl. 10-23 Aðfangadagur24. des. ki. 09-12 Opið lengur um helgina jr i/m Bílastæði Kringlunnar eru yfir 2.000 á tveimur hæðum við bæði norður- og suðurhús. Þá eru viðbótarbílastæði í nágrenninu sem gott er að vita af. Þau eru á bak við Sjóvá-Almennar, við Verslunarskólann, á grassvæðinu fyrir norðan Hús verslunarinnar, á bílastæði starfsmanna Kringlunnar fyrir austan húsið og á bílastæði norðan við Útvarpshúsið, Efstaleiti. Barnagæsla Ævintýrakringlan er á 3. hæð í norðurhúsi Kringlunnar. Þar geta viðskiptavinir Kringlunnar fengið gæslu fyrir börn 2-8 ára. Ævintýrakringlan er opin: Virka daga frá kl. 14, laugardaga frá kl. 10 og sunnudaga frá kl. 13. Gjafakort Kringlunnar fast í Byggt og Búið KRINGMN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.