Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
0 LEIKFÉLAG J
REYKJAVÍKUR
VIPM
Strika
Gunnar G. Schram lagaprófessor
þarf út ákvæði
rétt til hálendis
um
GUNNAR G. Schram lagaprófess-
or sagði í gær að sú yfirlýsing Da-
víðs Oddssonar forsætisráðherra á
Alþingi þá um daginn að frumvarp
um þjóðlendur, sem lagt var fram á
síðasta þingi, yrði lagt fram
óbreytt á þessu þingi væri mikil-
væg vegna þess að það leiddi til
þess að strika yrði út bráðabirgða-
ákvæði frumvarps til sveitarstjórn-
arlaga þess efnis að staðarmörk
sveitarfélaga, sem liggja að miðhá-
lendi íslands verði framlengd inn
til landsins og sama eigi við um
staðarmörk sveitarfélaga á jöklum.
Umræða um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar til sveitarstjórnar-
laga hófst á Alþingi í gær. Hafði
henni verið frestað um einn dag á
meðan beðið var komu Sighvats
Björgvinssonar, formanns AJþýðu-
flokks, frá útlöndum.
„Bráðabirgðaákvæðið í sveitar-
Ákvæðið á skjön
við frumvarpið um
þjóðlendur
stjómarfrumvarpinu er náttúrlega
algerlega á skjön við frumvarpið
um þjóðlendur og nú þurfa menn
að setjast niður og reyna að breyta
ákvæðinu til samræmis við þjóð-
lendnafrumvarpið eða reyna að
semja við Davíð um að slaka eitt-
hvað til, sem ég vona að takist
ekki,“ sagði Gunnar. „Því það er
fráleitt að fjögur prósent þjóðar-
innar nái tangarhaldi á 40 prósent-
um landsins."
Hann vísaði á bug orðum Jóns
Kristjánssonar, þingmanns Fram-
sóknarflokks og formanns nefndar-
innar, sem félagsmálaráðuneytið
skipaði til að semja frumvarpið til
sveitarstjórnarlaga, að frumvarpið
fjallaði aðeins um stjómsýsluna og
bara væri verið að láta sveitarfé-
lögin hafa vald í umhverfis-, bygg-
inga- og skipulagsmálum.
„Það er út í bláinn að það sé eng-
in breyting," sagði Gunnar. „Það er
rétt að þetta snýst ekki um eignar-
rétt, en sá, sem er kominn með
skipulagsréttinn og stjómsýslu-
réttinn er kominn með valdið. Þá
getur hver sem er af þessum 40
hreppum með 15 þúsund íbúa reist
hamborgarasjoppur út um allt há-
lendið án þess að hægt sé að banna
þeim það. Þetta leiðir augljóslega í
óefni.“
Jón Kristjánsson sagði i samtali
við Morgunblaðið að hann áttaði
sig ekki á gagnrýni Gunnars og ít-
rekaði að hér væri ekki um eignar-
rétt að ræða. Gunnar væri að mgla
saman ólíkum hlutum.
Íð)
Verð aðeins frá kr. 7.390,-
til kr. 16.800,- (sjá mynd).
/FOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420
Vildi skrifa um Díönu
af smekkvísi og reisn
BRESKI rithöfundurinn Anthony
Holden kom í gær hingað til lands
til að kynna nýja bdk sína um
Díönu prinsessu. Hoiden hefur
fylgst með bresku konungsfjöl-
skyldunni í rúma tvo áratugi og
skrifað um hana nokkrar bækur.
Hann var vinur Karls Bretaprins
þar til hann ákvað að draga taum
Díönu eftir að erfíðleikar í sam-
búð hennar og Karls urðu opin-
berir. Eftir það kdlnaði milli hans
og Karls en hann varð trúnaðar-
vinur Díönu.
Sagt hefur verið um Holden að
hann hafí fyrstur kallað Díönu
„prinsessu fdlksins" en þau orð
notaði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, þegar hann
ávarpaði bresku þjdðina eftir and-
lát prinsessunnar af Wales í
bflslysi í París.
Holden sagði í samtali við
Morgunblaðið skömmu eftir kom-
una í gær að Díana lifði áfram í
hjörtum fdlks eftir dauðann og
hann hefði viljað skrifa bdk af
smekkvísi og reisn vegna þess að
ndg væri gefið út af hallærisleg-
um og væmnum bdkum um
Anthony Holden
prinsessuna. Holden flytur fyrir-
lestur um Diönu og framtíð
breska konungdæmisins í Há-
skdlabídi klukkan tvö síðdegis 1
dag.
Alfa 156
sýndur
SÝNING verður á nýjum Alfa
Romeo 156 í húsakynnum Istrakt-
ors, umboðsaðila Alfa, í Smiðsbúð 2
í Garðabæ um helgina. Bíllinn var
kosinn bíll ársins í Evrópu 1998.
Hátt í 30 manns hafa staðfest
pöntun á Alfa Romeo 156 en seink-
un er á afhendingu vegna mikillar
eftirspumar erlendis. Bílamir em
á svipuðu eða lægra verði en víðast
hvar í Evrópu, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá Istraktor.
Opið verður laugardag og sunnu-
dag frá kl. 13-17.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar
Samið um
tæpa 5 millj-
arða vegna
Nesjavalla
SAMIÐ hefur verið við Norræna
fjárfestingabankann um að fjár-
magna 50% eða 2,45 milljarða aí
kostnaði vegna Nesjavallavirkjunar
og hafa þegar verið teknar 800 millj.
af láninu. Jafnframt hafa staðið yfii'
viðræður við Council of Europe Soci-
al Development Fund um fjármögn-
un á fjárfestingum í skólum vegna
einsetningar. Borgarstjóri sagði við
fyrri umræðu um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar að samkvæmt
útkomuspá lækkuðu skuldir borgar-
sjóðs að raungildi um 550 milljónii' á
árinu 1997 og að ekki væri gert ráð
fyrir aukningu skulda í fjái'hagsáætl-
un næsta árs.
Sagði borgarstjóri að 2 milljarðar
hafi verið teknir að láni á árinu hjá
European Investment Bank til end-
urfjármögnunar á eldri og óhag-
stæðari lánum, vegna holræsafram-
kvæmda. Það hafi verið tímamóta-
samningur í sögu bankans, þai' sem
Reykjavík hafi verið fyrsta sveitarfé-
lagið sem bankinn lánaði án utanað-
komandi ábyi'gðar. Lánið hafi verið
tekið í þremur myntum og væru
vaxtakjör þess þau hagstæðustu seni
borginni hefði boðist hingað til.
Sagði borgarstjóri að bankinn hefði
jafnframt samþykkt að fjánnagna
50% framkvæmdakostnaðar á
Nesjavöllum með 2,45 milljörðum
en á árinu var einnig gengið frá
samningi við Norræna fjárfestinga-
bankann um sömu upphæð vegna
N esj avallavirkjunar.
EINI DJÚPSTEIKINGARPOTTURINN
MEÐ HALLANDI SNÚNINGSKÖRFU:
* Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í
stað 2,5 Itr. í venjul. pottum.
* Styttri steikingartími, jafnari
steiking og 50% orkusparnaður.
* Einangrað ytrabyrði og
sjálfhreinsihúðað innrabyrði.
* Gluggi á loki og 20 mín.
tímarofi með hringingu.
FALLEGUR FYRIRFERÐARLÍTILL FLjÓTUR.
ALFA Romeo 156, bfll ársins í Evrdpu.
Stofnfundur nýs
stéttarfélags
Dagsbrúnar og
Framsóknar í dag
STOFNFUNDUR nýs sameinaðs
stéttarfélags Dagsbrúnar og
Framsóknar verður haldinn í
Súlnasal Hótels Sögu í dag kl. 13.
Á sjötta þúsund félagsmenn verða
í hinu nýja stéttarfélagi og heild-
areignir þess verða um einn millj-
arður króna. Þar af eru eignir
Dagsbrúnar að verðmæti rúmlega
800 milljónir króna og eignir
Framsóknar tæplega 200 milljón-
ir. Sameining félaganna mun hafa
í fór með sér talsverða lækkun á
tilkostnaði við starfsemi félag-
anna, auk þess sem öll vinna við
undirbúning kjarasamninga verð-
ur einfaldari í sniðum.
Viðræður um sameiningu fé-
laganna hófust fyrst 1993 og í at-
kvæðagreiðslu hjá Dagsbrún í
síðasta mánuði var frumvarp að
lögum nýja félagsins og samein-
ingunni samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta greiddra at-
kvæða. Þá samþykkti félagsfund-
ur Framsóknar einnig nýtt laga-
frumvai'p og tillögu um samein-
inguna með 97% atkvæða. Sa-
meining félaganna verður ekki að
fullu um garð gengin fyrr en í lok
næsta árs.
í forystu kjarabaráttunnar
í hartnær eina öld
Núverandi stjórnir Dagsbrúnar
og Framsóknar munu fara sam-
eiginlega með stjórn nýja félags-
ins þar til í maí á næsta ári, en
fyrsta kosning stjómar félagsins
fer fram í apríl. Kosið verður um
nafn á hinu nýja stéttarfélagi í
byrjun næsta árs og munu félags-
menn þá velja á milli fimm nafna
sem tillaga verður gerð um. Þar
til kosið verður um nafn á félaginu
mun það bera heitið Dagsbrún og
Framsókn - stéttarfélag.
Verkamannafélagið Dagsbrún
og Verkakvennafélagið Fram-
sókn hafa hátt í eina öld verið í
forystu í íslenskri verkalýðsbar-
áttu. Verkamannafélagið Dags-
bnín var stofnað í ársbyrjun 1906
og var Sigurður Sigurðsson bú-
fræðingur kosinn fyrsti formaður
félagsins. Fjórtán hafa gegnt for-
mennsku í félaginu og meðal
þeirra sem lengst gegndu for-
mennskunni voru Héðinn Valdi-
marsson, Sigurðui' Guðnason,
Eðvarð Sigurðsson og Guðmund-
ur J. Guðmundsson. Núverandi
formaður Dagsbrúnar er Halldór
Björnsson.
Verkakvennafélagið Framsókn
var stofnað árið 1914 og var Bríet
Bjamhéðinsdóttir aðalhvatamað-
ur að stofnun þess ásamt fleiri
konum. Höfðu konumar farið
fi'am á inngöngu í Dagsbrún en
verið hafnað. Fyrsti formaður fé-
lagsins var Jónína Jónatansdóttir
sem var formaður til ársins 1935,
en þá tók Jóhanna Egilsdóttii' við
formennskunni og gegndi hún
henni til 1962. Jóna Guðjónsdóttir
var formaður Framsóknai'
1962-1974 og Þórunn Valdimars-
dóttir 1974-1982, en þá tók nú-
verandi formaður Framsóknar,
Ragna Bergmann, við formennsk-
unni.
Eins og hjá Dagsbmn hefur
kjarabaráttan alla tíð verið í far:
arbroddi í starfsemi félagsins. í
dag semur það fyrir fiskvinnslu-
fólk, fólk í ræstingu, mötuneytum
og matvælaiðnaði, og eru vinnu-
veitendur félagsmanna yfir eitt
þúsund talsins.
,noí,or og JÓns Mú/a ^
tex.wrt'
9s«rá meS tónlist og
»—Flytjendur: ^
Andrea Gylfadóttir '
n I - r\ / I
Bergþór Pólsson v
Jóhanna Jónas
Kjartan GuSjónsson
Selma Björnsdóttir
Theodór Júlíusson jf~
og Víðir Stefónsson
Hljómsveit^yÁ
Kjartan ValdemdÉso'
Gunnlaugur Brre^j',
SigurSur Flosason :
og Þórður Högnason
Samontekt pg stjórn
Jón H. Hiartarafh
Á Stóra sviði Borgadeikhússins 6., 7., 13., 14. og 19. desember Id. 20:30
V <s & (/C£/ </ í/ j anddyrinu frá kl. 20:00
BORGARLEIKHUSIÐ
Sími: 568 8000