Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 3

Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 3
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN HF./SÍA. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 3 m ■ „Sagðar af mikilli list“ Elín Ebba Gunnarsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 1997 fyrir smásagnasafnið Sumar sögur. í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Sumar sögur eru sagðar af mikilli list og höfundurinn leitast við að nota sem fæst orð. Undir fáum orðum textans, hálfkveðnum vísum og áhrifaríkum svipmyndum opnast botnlaus hyldýpi og mörg atriði úr Sumum sögum eiga eftir að fylgja lesandanum ævilangt." „ Smám saman grípa þessarstuttu og knöppu sögurmann... meistarataktar..." - Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðinu Höfundur sem mikið mun kveða að í framtíðinni. é VAKA- HELGAFELL SÍÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 550 3000. www.vaka.is B O KME NNTAVE RK" Eyvindur Pétur Eiríksson hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 1997 fyrir bókina Landið handan fjarskans. í umsögn segir dómnefnd meðal annars: „Skáldsagan Landið handan fjarskans er einkar margslungið bókmenntaverk. Sögusvið bókarinnar er óvenjulegt í íslenskri sagnagerð en Ijóst er að höfundur hefur lagt mikla vinnu og alúð í að kanna og skapa umhverfi sögunnar svo að lýsingar allar verða sannferðugar og hugstæðar". Landiðhandan fjarskans er meistaralega skrifuð skáldsaga, áleitin og áhrifamikil. í efnistökum og vali á viðfangsefni fer höfundur nýjar og spennandi leiðir og veitir ferskum blæ inn í íslenskt bókmenntalíf. „ ... magnaðar lýsingar... Þetta verk sækir sér aukinn styrk í óvenjulegt sögusvið og sögutíma og ekki síst í óvenjulega söguhetju." - Arnar Guðmundsson, Rás 1 í niyrkri og kulda Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson var valin besta sagan í samkeppninni um íslensku barnabókaverðlaunin 1997. Lesandinn slæst í för með Gabríel sem fer að heimsækja afa sinn vestur á land milli jóla og nýárs. i þykku myrkrinu fjarri borgarljósunum fara undarlegir atburðir að gerast og hamslaust óveður einangrar bæinn frá umheiminum. Bækur Þorgríms hafa notið einstakra vinsælda en alls hafa komið út eftir hann níu bækur fyrir börn og unglinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.