Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 34

Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 34
34 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Verðkönnun samstarfsverkefnis NS, ASÍ og BSRB Ekki mikill verð- munur á hreinsun milli landshluta EKKI er mikill verðmunur milli landsbyggðarinnar og höfuðborgar- svæðisins á hreinsun fatnaðar. Umtalsverður verðmunur er samt milli efnalauga. Ibúar suðvestur- hornsins geta þó valið milli mis- dýrra efnalauga ólíkt því sem íbúar minni sveitarfélaga eiga kost á. í lok nóvember kannaði starfs- fólk samstarfsverkefnis ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna um verð- lagsaðhald og verðkannanir verðlag hjá 16 efnalaugum utan höfuðborg- arsvæðisins og bar niðurstöðurnar saman við samskonar könnun sem Samkeppnisstofnun gerði á 27 efnalaugum á höfuðborgarsvæðinu. Könnunin var framkvæmd 28. nóv- ember síðastliðinn og var um að ræða verð á hreinsun fatnaðar og gluggatjalda. Tvisvar ódýrast úti á landi Að sögn Birgis Guðmundssonar, verkefnisstjóra samstarfsverkefnis- ins, var verðið í tveimur tilvikum lægra úti á landi en lægsta verð á höfuðborgarsvæðinu. Hreinsun á kvensilkiblússu með löngum ermum var á 355 krónur hjá efnalauginni Vík í Keflavík meðan lægsta verð á höfuðborgarsvæðinu var 425 krónur. Hreinsun á rykfrakka kost- aði 880 krónur hjá efnalauginni Gullfossi á Selfossi en á höfuðborg- arsvæðinu var lægsta verðið á hreinsun rykfrakka 890 kr. „Meðalverð úr könnuninni á landsbyggðinni er mjög svipað því sem var í könnuninni á höfuðborg- arsvæðinu. í fímm tilvikum af tíu er meðalverð á landsbyggðinni lægra en meðalverð á höfuðborgar- svæðinu.“ Birgir bendir á að hafa verði hugfast að íbúar í minni byggðarlögum geta ekki valið milli ódýrra og dýrra efnalauga eins og íbúar höfuðborgarsvæðisins. yÞannig myndu efnalaugamar á ísafirði, Siglufirði og Vopnafirði flokkast sem dýrar á höfuðborgar- svæðinu á meðan efnalaugarnar tvær á Selfossi myndu flokkast sem ódýrar á höfuðborgarsvæðinu." Mishátt verð eftir efnum Birgir segir rétt að taka fram nokkur atriði varðandi þessa könn- Verðkönnun hjá efnalaugum utan Reykjavíkur nóvember 1997 4*^. Jakki Buxur Pils Peysa Jakka- peysa Silki- blússa Kápa Kápa með hettu/ skinnkraga Ryk- trakki Glugga- tjöld pr. kg. Efnalaug Suðurnesja Æj 550 550 550 350 575 650 870 950 950 550 Efnalaugin Vík, Keflavík 580 580 580 355 580 355 930 930 1025 580 Múlakot, Borgarnesi 560 560 560 340 560 560 895 980 980 560 Albert, ísafirði 600 600 600 620 670 620 1000 1000 1000 600 Efnalaugin Lind, Siglufirði 610 610 610 375 610 400 990 990 990 610 Fatahreinsunin Þernan, Dalvík 560 540 540 475 550 475 840 920 920 500 Fatahreinsun ht. Hofsbót 4, Akureyri 600 600 500 4-450 450 600 990 990 990 Slétt oq fellt, Akureyri 9 580 570 570 475 540 475 930 990 995 500 Fatahreinsun Húsavíkur N. 540 540 540 330 540 655 870 955 955 540 Etnalaug Vopnafjarðar 600 600 600 500 600 500 1000 1200 1000 550 Hraðhreinsun Austurlands, Egilsstöðum 600 600 600 400 450 690 980 980 980 600 Þvottabjörn, Reyðarfirði 550 550 550 450 550 450 1200 1200 1000 550 Efnalaug Dóru, Höfn í Hornafirði 550 550 550 550 610 650 850 900 950 500 Efnalaug Suðurlands, Selfossi ^ ► 525 525 525 400 400 745 840 930 930 525 Efnalauqin Gullfoss, Selfossi 500 500 500 350 420 440 880 930 880 500 Straumur, Vestmannaeyjum 590 590 590 380 380 590 1050 1050 1050 590 Lægsta verð utan Reykjavlkur í nóvember 500 500 500 330 380 355 840 900 880 500 Meðalverð utan Reykjavíkur í nóvember 568 567 560 423 530 553 945 993 975 550 Hæsta verð utan Reykjavíkur í nóvember Æ- J510 610 610 620 670 745 1200 1200 1050 610 Lægsta verð í Reykjavík í október '97 500 500 500 300 325 425 800 850 890 440 Meðalverð í Reykjavík í október '97 564 563 557 401 521 622 964 998 997 583 Hæsta verð í Reykjavík í október '97 590 590 590 475 610 715 1150 1250 1150 835 I un. „Hreinsun á stuttu pilsi miðast við þröngt pils. Oft þarf að greiða aukalega fyrir hreinsun á víðum pils- um eða pilsum með fellingum. Hreinsun á kvenblússu miðast við silkiblússu en oft er ódýrara að hreinsa aðrar blússur. Sumar efna- laugar taka einnig mishátt verð eft- ir efnum þannig, verð á jakka mið- ast við jakka úr viskose og ull, þar sem viskose er hærra hlutfall, en í nokkrum tilvikum er verð hærra ef bara er um ull að ræða. Jafnan er sama verð hvort sem um kápu með hettu eða skinnkraga er að ræða en fatahreinsun Austurlands hreins- ar ekki skinnkraga. Einnig er miðað við síðar kápur en oft er ódýrara að hreinsa stuttar kápur. Peysa mið- ast við létta peysu en þess eru dæmi að ef um efnismikla peysu eins og lopapeysu er að ræða sé verð hærra.“ Hann leggur að lokum áherslu á að hvorki er lagt mat á þjónustu fyrirtækjanna né gæði hreinsunarinnar heldur er hér ein- göngu um verðsamanburð að ræða. Föndrað á aðventu Jólatré úr vírherðatrjám STARFSFÓLKI efnalauga ber saman um að sala á vírherðattjám hafi tekið kipp að undanförnu. Ástæðan? Fólk er að föndra jóla- tré úr herðatijánum sem skreytt eru litskrúðugum borðum og jóla- ljósum. Herðatrén eru mjög skrautleg eins og myndin sýnir og þegar rökkva tekur njóta þau sín til dæmis vel í gluggum barna- herbergisins. Yfirleitt kosta vírherðatrén um 15 krónur ef fólk á þau ekki inni í skáp og kaupir þau í efnalaug. Alls þarf 6 herðatré. Fimmtíu ljósa seríur koma vel út á trénu og alls þarf um 8-10 metra af borða. Ein- angrunarlímband þarf í föndrið svo og fjögur kapalbönd sem kosta um 5 krónur stykkið. Stefanía Knútsdóttir sýnir hér handbrögðin við jólatrésgerðina. FESTIÐ tvö herðatré saman á þennan hátt og límið efst með einangrunarlímbandinu. FESTIÐ grindina saman með rafmagnsvírnum bæði fyrir miðju og ofarlega, eða þangað til hún er orðin stöðug. ÞEGAR búið er að festa herðatré saman tvisvar er öðru settinu stungið inn í hitt. Það sama er síðan gert við þriðja settið af herðatrjám. Morgunblaðið/Þorkell JÓLASERÍAN er nú sett með limbandi á grindina. Byrjað er efst á trénu og síðan farið niður og upp. Morgunblaðið/Árni Sæberg HULDA Jensdóttir, Sandra Mar Huldudóttir, Marín Geirsdóttir og Fríða Jónsdóttir. Allt fyrir barnshaf- andi konur VERSLUNIN Þumallína hefur fært úr kvíarnar og opnað nýja deild sem ætluð er barns- hafandi konum. Þar er til sölu sérstakur nærfatnaður fyrir þær, sokkabuxur, stuðnings- belti og stuðningsbuxur. Þá eru þar til sölu brjóstagjafa- og meðgöngubijóstahöld og mjúk ullarinnlegg í bijósta- haldara og ýmsar aðrar teg- undir af innleggjum. Að sögn Huldu Jensdóttur, eiganda verslunarinnar, selur hún líka fatnað fyrir barnshaf- andi svo sem buxur, smekkbux- ur, boli, mussur, peysur, kjóla og alls konar jakka og treyjur. Að auki er hún með stutt pils, sundfatnað og jafnvel síða samkvæmiskjóla, slæður og sjöl við og jakka. Fatnaðurinn er aðallega fluttur inn frá Danmörku, Hollandi og Bret- landi. AÐ lokum er um 4 sentimetra breiðum borða vafíð um tréð. Hægt að festa með límbandi ef þarf. Byijað er efst og vafið niður. AIls þarf um 8-10 metra af borða á tréð. Sumir nota gervigreni til að vefja með. Morgunblaðið/Ásdís TILBÚIÐ í glugga. Jólabjórinn kominn JÓLABJÓRINN frá Viking ölgerð er kominn í verslanir ÁTVR og á veitingastaði. Hann kom fyrst á markað árið 1990. í fréttatilkynn- ingu frá Viking ölgerð segir að við framleiðslu bjórsins sé notað svo- kallað karamel malt sem gefur hon- um dökkan lit og keim af brenndri karamellu. Sérstakt við framleiðslu hans er að hann er látinn eftirgerj- ast við lágt hitastig eftir að geijun er lokið. Nýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.