Morgunblaðið - 06.12.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 41
MIKIL samkeppni er um þrí-
víddarkort og sýnist sitt
hverjum; tekist er á um ör-
gjörva, minnistilhögun og gagnagátt.
Deilur standa þó um fleira en vél-
búnaðinn, því hugbúnaðarmál eru í
uppnámi, ekki síst á meðan enn er
óútkljáð hvaða staðall verði ofaná,
OpenGL eða Direct3D.
OpenGL rekur ættir til þess að
Silicon Graphics, sem hafði á sínum
tíma griðarlega yfírburði í grafískum
vinnustöðvum, lagði til að staðallinn
sem fyrirtækið hafði þróað fyrir
vinnustöðvar yrði að almennum
staðli. Microsoft hugnaðist þó lítt að
sjá Silicon Graphics staðal verða of-
aná, leit enda hýru auga til vinnu-
stöðvamarkaðarins sem fyrirtækið
hyggst sölsa undir sig með NT. í
þess stað kynntu Microsoft-menn
lausn fyrir ári sem þeir kalla
Direct3D og er hluti af DirectX.
íslensk við-
bót við MS
fhigherminn
EINN vinsælasti tölvuleikur heims
til margra ára var flughermirinn
Micrososft Flight Simulator, sem
nýtur enn gríðarlegrar hylli, en fyr-
ir skömmu kom út sjötta útgáfa
hans. Til eru islenskir flugvellir og -
vélar til að nota við herminn og ís-
lenskir flugáhugamenn hafa kunn-
að því vel. Fyrir skemmstu kom svo
út viðbótarpakki við MS Flight
Simulator, heitir einfaldlega ísland,
og er hannaður af hollenskum ís-
landsvin, Thierry Mathijs.
Mathijs segist hafa mikið dálæti á
íslandi og því hafi honum þótt mið-
ur þegar haim komst yfir flughermi
fyrir nokkrum árum og vildi fljúga
til Islands hve flugveliirnir væru
dauflegir. „Ég gat lent meðal ann-
ars á Keflavíkurflugvelli en mér
fannst hann heldur berangurslegur,
ekkert að sjá, engin fjöll eða lands-
lag; fyrir Microsoft er Island flat-
lendi. Ég ákvað þvf að búa til slíka
velli sjálfur, hófst handa í nóvember
á síðasta ári og hef unnið við það
með hléum sfðan. Það getur verið
erfitt að smfða rétt kort, ekki síst
fyrir það að erfitt getur verið að
komast yfir réttar staðfræðiupplýs-
ingar. Víðast í Evrópu halda menn
að Island sé þakið sjó og ís og þar
búi inúftar og ísbimir."
Mathijs er lærður flugmaður ekki
sfður en áhugamaður um flugherma
og hefúr mikið flogið í herminum.
„Það er auðvelt að fljúga með flug-
hermi og ódýrt, því það er svo dýrt
að fljúga. Ekki skemmir sfðan að
það er óhætt að hrapa í flughermi,"
segir haim og kfmir, „þvf það gerir
ekkert til, það er bara að byija aft-
ur.“ Mathijs segir að fyrir þeim sem
ekki þekkja til sé harla lítið að ger-
ast f flughermi, en kunni menn á
leikinn eða að fljúga sé heilmikið að
gerast og eins gott að vera vel með
á nótunum, vera nákvæmur og að-
gætinn. „Það þarf að vera vel á
verði, því lítið má útaf bera, og
einnig er snúið að miða út rétta
stefnu eftir radíóvitum og viðmið-
unarpunktum. Mér finnst þetta ekki
erfitt, því ég kann að fljúga og
fínnst það alltaf gaman, aldrei erf-
iði. Það er líka góð æfing fyrir flug-
menn að fljúga í flugherm og góð
æfing í blindflugi."
Að öðru leyti er Islandsviðbótin
eins nákvæm og hægt er að hafa
hana og allir mælipunktar eiga að
vera réttir. Einnig tengist viðbótin
því sem er fyrir í MS Flight
Simulator, þannig að hægt er að
fljúga beint frá Sauðárkróki eða
Vestmannaeyjum til New York eða
Lundúna svo dæmi séu tekin.“
Mathijs segir að vinnunni sé alls
ekki lokið þó komin sé út viðbót, því
hann eigi eftir að endurbæta grafík-
ina, sé meðal annars búinn að koma
sér upp betri hugbúnaði til að vinna
hana í, en einnig hyggst hann bæta
við fleiri flugvöllum og -vélum og
bæta landslagið. „Skráðir notendur
geta líka tengst vefslóð og sótt
þangað viðbætur eftir því sem mér
gefst tfmi til að auka við pakkann,
en ný útgáfa er ekki væntanleg fyrr
en eftir ár hið minnsta.“
Tæknival dreifir útgáfii Mathijs
hér á landi.
Vinnur Direct
3D á OpenGL?
Flestir leikjavinir þekkja DirectX
óskapnaðinn, ekki síst þegar setja á
upp leiki, því fyrstu útgáfur af
DirectX yfirskrifuðu flest sem þær
fundu á vél viðkomandi og gilti þá
einu þó fyrir væri á vélinni nýrri út-
gáfa; innsetningarforritið yfírskrif-
aði nýju útgáfuna með tilheyrandi
hremmingum fyrir aðra leiki.
Þessu til viðbótar eru reklamál al-
mennt í molum og samkvæmt tölum
frá Microsoft eru 80% allra marg-
miðlunarvandamála vegna rekla-
bögga og algengt að 20 til 30 böggar
séu i rekli sem jafnvel viðurkennd
fyrirtæki senda frá sér.
Direct3D viðbótinni við DirectX
var ætlað að leysa öll leikjavandamál
og tryggja að leikimir gengju á öll-
um tölvum og jaðartækjum. Mestu
réð um velgengni OpenGL að slík út-
gáfa kom af Quake og eins og þeir
þekkja sem séð hafa þykir lausnin
frábærlega vel heppnuð. John Car-
maek, yfirforritari hjá Id, útgefanda
Quake, segir og að OpenGL hafi
mikla yfirburði yfir Direct3D þegar
skrifa á grafíkskipanir og kerfisköll í
OpenGL. Að hans sögn þarf iðulega
tvöfalt lengri kóða til að gera ein-
falda hluti í Direct3D en í OpenGL.
Þrátt fyrir þetta er mál fretta-
skýrenda í tölvuheimum að þau
gömlu sannindi að markaðshlutdeild
ráði stöðlum eigi eftir að koma
Mircrosoft til góða á þessu sviði eins
og svo mörgum öðrum. Fyrirtækið
hefur og treyst stöðu sína með því að
taka mark á kvörtunum vegna galla
á DirectX, hljóp yfir útgáfu 4 og
sendi frá sér útgáfu 5 sem forritarar
hafa tekið vel. Innsetning er öll orðin
auðveldari og í stað þess að yfir-
skrifa gamlar skrár spyr forritið um
leyfi og gefur leiðbeiningar um
hvemig eigi að bakka út úr uppsetn-
ingunni ef vill. Allt er þetta til þess
fallið að treysta Direct3D í sessi,
ekki síst eftir að spurðist að fjöl-
margt úr OpenGL yrði tekið upp í
næstu útgáfum á Direct3D.
1
1 ^ •-'ff
■
plNSÖNGUR |99 * %
:'A
p 1 ’ ’1
■ 1 jfeF' ’A f
Tjólf íslenskar
|L ...og skafmiði með!
Guðrún Birgis/Peter Maté: Fantasie
"Flutningur er fullur af skilningi og
músík...Hljómdiskur sem mælt er með,
alveg eindregið." O.B. - Mbl.
KK: Heimaland
Heimaland er fjölbreytt og
öðruvísi KK plata.
Sigqa Beinteins: Sigga
jnduð e
s: Sigga
Vönduð en umfram allt roleg og
Ijúf ballöðuplata í hæsta
gæðaflokki.
TATÓNIIST |jjt
**k
Elín Ósk: Söngperlur
"Frábær söngkona. Satt að segja veit
ég ekki um margar jafngóðar söngkonur
og Elínu Ösk. ...sannkallaðar
söngperlur." O. B. - MBL
Veðmálið
Emilíana Torríni kynnir lögin úr hinu
vinsæla leikriti, Veðmálið. Einstaklega vel
heppnuð plata. Inniheldur m.a. Heaven
Knows og aukalagið Perlur og svin.
Snörurnar: Eitt augnablik
Stórskemmtileg plata, sem allir
ættu að kunna að meta.
Power Flower
Prlnr fVlkMl
Steinunn Birna & Bryndís Halla:
Ljóð án orð
Rómantisk og lióðræn verk m.a. eftir
frönsk og spænsk tónskáld. Einstaklega
vönduð og innileg plata.
Asking For Love
Nýr geisladiskur með lögum Jóhanns G
Jónannssonar í flutningi frábærra
listamanna. Meðal flytjenda Danlel
Ágúst’ Emilíana Torrlni o.fl.
Pétur Östlund: Power Flower
"Ein heilsteyptasta jazzplata
áratugarins." Orkester Journal
Guðmunda Elíasdóttir: Endurómur
Innileiki og einlæg túlkun eru
aðaleinkenni meðferðar á sönglögum
þeim sem valin eru á geisladisk pennan.
Partyzone:
PZ plötusnúðarnir Margeir og Andrés fara
á kostum. Eitt samfellt diskó-house flæði.
Björn Thoroddsen: Jazz Guitar
Óskaplata gltargeggjarans.
Kaupir þú geisladisk í verslunum Japis fyrir jól, ert þú með í
Skafmiðaleik Japis, og það er glaðningur á hverjum miða.
JAPIS
-hljóma betur
BRAUTARHOLTI • KRINGLUNNI
OG LAUGAVEGI 13
SfMI 562 5200
P( LEIKIR
Blade Runner
Háipennutryllir $em er
byggður á ipennutrylli
Ridiey Scott Byiting I
ævintýraleiKjuni, þú
verður að eignait
þennann.
Fift Soccer1
Knampymuleiloir eins
og þeir gerait bestir.
Mikil ipenna og
klikkaður hraði gera
þetta að frábærum
leik.
Worms 2
Ormaðu eða vertu
ormaður I þeisum
klikkaða ormaleik þar
sem ormar ráðaitá
orma með urmul af
ormavopnum
^6q0.-
PIAYSTATION
Gakktu til liði við
bandamenn eða snar-
vitlauia Rússa í
bardaga um Evrópu.
m-
Motoracer
Kepptu við hina bestu í
þessum frábæra leik.
Kappakstur eins og
hann gerist bestur.
4790.
(rash Bandicot z
Þrælskemmtilegur
leikur um reflnn Crash
sem virðist í eilífri
baráttu við hinn illa
Or. Neo.
4.99O.-
ORUGGT 06 6DÝBT W
BTOTHwur
Grensásvegur 3 • Sími: 5885900 • Fax : 5885905
www.bttolvur.is • bttotvur@mmedia.is