Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 50

Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 50
50 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR 4 t Hver spyr að því? Hagsmunagæslu ai- mennings er mjög ábótavant hvað varðar hin nýju upplýsingalög og kærur til opinberra stofnana. T.d. ætti það að vera skilyrðislaust forgangsatriði að kæ- rendum í málum gegn hinu opinbera sé útveg- aður lögfræðingur sér til trausts og halds á meðan á málssókn stendur án þess að þeir þurfí að bera kostnað- inn frekar en þær stofnanir sem í hlut eiga hveiju sinni. Jafn- framt þarf að tryggja fyrirspyijendum og kærendum í upplýsinga- og kærumálum nafn- leynd og reglubundnar upplýsingar um framvindu mála frá þeirri stofn- un sem leitað var til. Að öðrum kosti er engan veginn hægt að tryggja réttaröryggi íslenskra ríkis- Ekki á að vera hægt, segir Páll Björgvins- son, að sníða lög að hagsmunum valdhafa. borgara í málssókn þeirra hjá stofn- unum eins og Samkeppnisstofnun, umboðsmanni Alþingis, úrskurðar- nefnd um upplýsingamál eða borg- ar- og ríkisstofnunum og þar með loku skotið fyrir eitt aðalmarkmið stjómsýslu- og upplýsingalaga; réttaröryggið. Reynslan hefur nefni- lega sýnt að fyrirspyijendur og kærendur eiga á hættu að verða fyrir aðkasti og útskúfun valdhafa sem fá sendar fyrirspumir m.a. hvað varðar atvinnutækifæri í þjóðfélag- inu, sbr. reynslu greinarhöfundar af félagsmálaráðuneyti, bæjarverk- fræðingi Hafnarfjarðarbæjar, Borg- arskipulagi og byggingadeild borg- arverkfræðings Reykjavíkurborgar. klæðskerasníða lands- lög að duttlungum eða hagsmunum valdhafa. Að gera landslög sýnileg Aðstæður stjórn- valda til þess að veita aðgang að upplýsingum þarf sem sagt að bæta til mikilla muna, sé ein- hver meining á bak við hin nýju upplýsingalög. íslensk stjómsýsla í dag á fyrsta ári upplýsinga- laga er bæði frumstæð og laus í reipunum, engin samhæfing virð- ist vera á milli embætta hennar og lítill gaumur gefinn að því að markmið landslaga séu þann- ig sniðgengin af sjálfum stjómvöld- unum sem í raun ættu að sjá til þess að þeim væri framfylgt. Sam- hljóma lög hvað varðar stjómsýslu, upplýsingar og samkeppni ásamt óháðu aðhaldi opinberra stofnana er nauðsynleg forsenda þess að vinnubrögð valdhafa byggist á vand- aðri hagsmunagæslu fyrir almenn- ing, og að embættismenn æðstu stofnana landsins hirði um að standa vörð um að íslenskum lögum sé framfylgt í hvívetna og að mannrétt- indasáttmálar séu virtir í raun af hálfu hins opinbera. Þá má öraggt telja að innbyrðis áreksrar landslaga og árekstrar markmiða landslaga ásamt vafasamri hagsmunagæslu embættis- og ráðamanna geti valdið stórslysi hvað varðar almennings- álitið i landinu. Réttaröryggi þjóðar- innar krefst þess að stjómvöld leggi niður ósiðinn hver spyr að því og til hvers á að nota upplýsingamar. En þjóðarsálin krefst þess að stjóm- völd íslands taki upp upplýsinga- stefnuna. Ekkert lok og læs og ailt úr stáli - opna fyrir Pétri og Páli! Höfundur er arkitekt. Páll Björgvinsson Orðið bræðir gamalt hjarta Sjúkrahúspresti var eitt sinn falið að koma Nýja testamentum fyr- ir í náttborðsskúffun- um við sjúkrarúmin á stóra sjúkrahúsi. Gekk honum sú iðja vel í fyrstu og þurfti hann oft að staldra lengi við rúm sjúklinganna, sem gjaman höfðu frá mörgu að segja. Flestir sjúklinganna vora afar jákvæðir og þakklátir fyrir heimsóknina og þótti sjálfsagt að fá Nýja testamentið í skúffuna. Á einni stofunni lá gamall sjómaður, sem hafði verið á sjúkrahúsinu í allnokkurn tíma. Maður þessi hafði oft komist í hann krappann og kallaði ekki allt ömmu sína. Þegar presturinn kom inn á stofuna til hans, segir sá gamli: „Hvað er nú? Á að fara að undirbúa jarðarförina mína eða hvað? Viltu að ég velji sálmana núna? Ég er nú ekki alveg dauður ennþá, sérðu það ekki maður?“ Presturinn brosti aðeins góðlátlega og sagði: „Ég er nú bara að koma með bók handa þér, hún á síðan að vera hérna í náttborðinu." „Bók?“ spurði sá gamli. „Já, Við eigum að nota að- ventuna, segir Sigur- björn Þorkelsson, til að lesa Biblíuna. þetta er Nýja _testamentið,“ svaraði presturinn. „Ég kæri mig ekkert um að hafa neitt Nýja testamenti hérna á stofunni. Ég hef nú komist af án þess fram að þessu. Hví skyldi ég taka upp á því núna að lesa í Biblíunni?" sagði sá gamli og bætti við: „Svona, ég vil ekki sjá þetta, hef ekkert með þetta að gera.“ Presturinn settist hinn rólegasti niður við rúmið hjá honum og spjölluðu þeir lengi saman. Sá gamli var nú ekki eins harður þegar á reyndi, hann var bara dálítið töff í munninum, annars hinn besti karl. „Jæja,“ sagði sjómaðurinn loks, „skildu þá þetta Nýja testamenti héna eftir, en þú verður að lofa að koma aftur á morgun og taka það.“ Þegar presturinn kom síðan dag- inn eftir til að vitja hans, sagði sá gamli: „Heyrðu, blessaður ætli það sé ekki i lagi þótt bókin fái að liggja hérna í nokkra daga. Ég sé ekki að það geri nokkuð til. En komdu samt aftur í næstu viku og taktu hana.“ Hann hafði nefnilega byrjað að lesa í bókinni án þess að nokkur vissi og síst af öllu vildi hann að presturinn kæmist að því, sérstak- lega ekki eftir það sem á milli þeirra hafði farið daginn áður. Einhverra hluta vegna komst presturinn ekki til gamla sjó- mannsins fyrr en tveimur vikum seinna. Var þá sá gamli orðinn óþolinmóður og farinn að bíða eft- ir prestinum. Hann hafði lesið í Nýja testamentinu upp á hvern dag og það bæði kvölds og morgna. Þegar presturinn loksins kom til Sigurbjörn Þorkelsson hans sagði blessaður gamli maður- inn: „Ég verð að játa fyrir þér að mér hafa orðið á mikil mistök. Ekki það að ég byijaði að lesa í þessari bók sem þú komst með, heldur að ég skyldi ekki hafa byijað að lesa í Biblíunni fyrr á ævinni, ég sé það nú að ég hef farið mikils á mis. Ég held bara að ég sé orðinn trúað- ur. Jesús Kristur er hin eina sanna hjálp. Viltu nú ekki vera svo góður að setjast héma hjá mér og biðja fyrir mér, biðja Guð að fyrirgefa mér og mig langar að þakka honum fyrir að ég má vera barnið hans, þótt ég sé nú kannski ekkert barn lengur." Til fundar við Jesú um aðventu og jól Þeir era ríkir sem eiga frelsarann Krist að vini. Látum það ekki bíða fram á gamals aldur að kynnast frelsaranum Jesú. Þessum einstaka vini, sem fæddist á jólum og lagði síðan líf sitt í sölumar fyrir vini sína, svo að þeir sem trúa á hann glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Jesús Kristur hefur sigrað dauðann og vill gefa okkur lífið. í Biblíunni kemur fram væntum- þykja Guðs fyrir sköpun sinni. Hann vill ekki láta okkur afskiptalaus. Hann vill að allir menn verði hólpn- ir og komist til þekkingar á sann- leikanum, sem er Jesús Kristur og við finnum svo vel í orðum Biblíunn- ar. Frelsarinn okkar Jesús vill fá að hjálpa okkur, leiða okkur og blessa. Hann hefur heitið því að vera með okkur allt til enda veraldar. Er ekki upplagt að nota aðvent- una og sjálfa fæðingarhátíð frelsar- ans til þess að lesa í Biblíunni/Nýja testamentinu og kynnast þannig frelsaranum okkar Jesú nánar? Leyfum orðum ritningarinnar að leika um okkur og blessa nú á að- ventu, um jólin, já og allt til enda veraldar. Höfundur er framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins á ísiandi. Markxnið landslaga Sé helsta markmið stjórnsýslu- laga haft í huga - að tryggja sem best réttaröryggi manna í skiptum við hið opinbera, jafnt ríki sem sveitarfélög í átt til löglegrar, traustrar og vandaðrar stjórnsýslu íslands - er ljóst að kröftugt innra eftirlit og óháð aðhald er bráðnauð- synlegt fyrir stjórnsýsluna hjá borg og ríki, sem og virkur talsmaður aukinnar hagsmunagæslu almenn- ings. Eigi líka að framfylgja því markmiði stjómsýslulaga, að lögin verði sem aðgengilegust fyrir al- menning og starfsmenn stjórnsýsl- unnar og að málsmeðferð í stjórn- sýslunni verði einföld, hraðvirk og ódýr, verður að senda starfsfólk hins opinbera á þjónustunámskeið í þessum efnum. Sama gildir um upplýsingalögin, ef þeim er ætlað að stuðla að auknu réttaröryggi í stjórnsýslunni og eiga möguleika á að framfylgja sínu helsta mark- miði; þ.e. að í nútíma lýðræðsþjóðfé- lagi sé það talið sjálfsagt að al- menningur eigi þess kost að fylgj- ast með því sem stjómvöld hafast að, m.a. með því að fá aðgang að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Séu upplýsingalögin raunveralega liður stjórnvalda í því að draga úr tor- tryggni almennings í garð ráða- manna, sem oft og einatt hefur átt rót sína að rekja til þess að upplýs- ingum hefur óþarflega oft verið haldið leyndum, er embættismönn- um og starfsmönnum hins opinbera heldur ekki stætt á því að torvelda aðgang að upplýsingum eða snið- ganga ákvæði landslaga að eigin geðþótta. Hér virðist upplýsinga- lögin lika vanta áhersluákvæði sem taki af allan vafa um rétt almenn- ings til upplýsinga, og því þörf á lagabreytingum sem komi í veg fyrir undanbrögð ráðamanna, þann- ig að þeir geti ekki sagt að þeim sé ekki skylt að veita upplýsingar þótt þeir hafi heimild til þess. Það á nefnilega ekki að vera hægt að Hringskaffi til styrktar Barna- spítalanum KVENFÉLAGIÐ Hringurinn var stofnað fyrir tæplega öld. í upphafi aldarinnar studdu Hringskonur snauða og færðu meðal annars fátækum sæng- urkonum fatnað og mjólk. Allar götur síð- an hafa Hringskonur unnið líknarstarf af fórnfýsi og óeigingirni. Undanfama áratugi hafa Hringskonur ötul- lega stutt Barnaspítala Hringsins. Sá stuðn- ingur er Bamaspíta- lanum ómetanlegur og starfsfólkinu mikil hvatning. Fjölmörg tæki og tól til lækninga og umönnunar eru gjafir frá Hringskonum. Þannig á Kvenfé- lagið Hringurin hlutdeild í þeim árangri sem næst á Barnaspítala Hringsins. Nýr barnaspítali Fyrir 40 árum var stofnuð barna- deild innan veggja Landspítalans og nokkram árum síðar flutti deild- in í núverandi húsnæði sem þó var ekki hannað fyrir börn. Aðstaða veikra barna og að- standenda þeirra er því enn slæm og nauðsyn úrbóta hefur lengi ver- ið ljós. Enn hafa Hringskonur verið í forystusveit þeirra sem barist hafa fyrir nýjum barnaspítala. Sú bar- átta ber nú árangur. Innan skamms lýkur samkeppni um teikningu nýs Barnaspítala Hrings- ins á Landspítalalóð og framkvæmdir við bygginguna munu hefjast á næsta ári. í nýjum barnaspítala gefst tækifæri til að búa vel að veikum börnum og aðstand- endum þeirra. Jafn- framt gefast betri möguleikar á að með- höndla böm án inn- lagnar á spítala. Á þann hátt geta veik börn dvalist heima, sé þess nokkur kostur, en fengið meðferð á göngudeild eða dag- deild. Óhjákvæmilega mun þó alltaf mikill fjöldi barna þurfa á innlögn að halda. Mikilvægt er að aðbúnað- ur þeirra sé góður. Það er verðugt verkefni að beijast fyrir bættri að- stöðu veikra barna. Oflugur stuðn- ingur Hringsins hefur skipt hér sköpum. Hringskaffi Á morgun, sunnudaginn 7. des- ember, halda Hringskonur sína ár- legu kaffisölu sem hefst klukkan 13:30 á Hótel íslandi. í boði er sem fyrr kaffi og veitingar, jólakort og jólaskraut auk happadrættis með fjölda góðra vinninga. Allur ágóði Hringskaffisins rennur til styrktar nýjum Barnaspítala Hringsins. Það er vonandi að sem flestir sjái sér fært að sýna kvenfélaginu Ásgeir Haraldsson FRÁ gjörgæslu nýbura og fyrirbura - vökudeild. Á myndinni eru fimm börn í hitakössum í litlu rými. Þorri tækjanna er gjaf- ir frá Hringnum. BÖRN á Barnaspítala Hringsins. Það er verðugt verkefni, segir Ásgeir Haralds- son, að berjast fyrir bættri aðstöðu veikra bama. Hringnum stuðning í verki í Hringskaffinu á morgun og njóta um leið frábærra veitinga. Hrings- konur eiga heiður skilinn fyrir sitt fórnfúsa starf að líknarmálum á íslandi í tæpa öld. Á íslandi eru nú um 70-80 þúsund börn eða meira en fjórðungur þjóðarinnar. Markmiðið er að hér rísi sem fyrst sérhannaður barnaspítali, veikum börnum til gagns og þjóðinni til sóma. Það er verðugt verkefni okk- ar allra. Höfundur er prófessor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.