Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUIM
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 51
STOÐUGLEIKIOG FRAM-
FARIR í REYKJAVÍK
REYKJAVIKUR-
LISTINN hefur lokið
vinnu við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir
árið 1998 og verður
hún til fyrri umræðu
á fundi Borgarstjórnar
Reykjavíkur 4. desem-
ber. Þessi fjárhagsá-
ætlun er hvort tveggja
í senn, sú síðasta á
yfirstandandi kjör-
tímabili og sú fyrsta á
næsta kjörtímabili.
Með henni er merkum
áfanga náð í því upp-
byggingarstarfi sem
Reykj avíkurlistinn
hefur staðið fyrir í
borginni á þessu kjörtímabili og
áfram verður fjárfest með framtíð-
ina í huga á því næsta.
Reykjavíkurlistinn bauð fram
undir kjörorðinu Opin og lýðræðis-
leg borg - heimili - atvinna - skóli
og lagði þar með höfuðáherslu á
þá grundvallarþætti sem öðru frem-
ur stuðla að velferð einstaklinganna
í nútíma borgarsamfélagi. Reykja-
víkurlistinn vildi með framboði sínu
bæta úr brýnni þörf fyrir betri og
sveigjanlegri þjónustu við reykvísk-
ar fjölskyldur, stuðla að aukinni
atvinnu, vinsamlegra og öruggara
umhverfi, opnara stjómkerfi og lýð-
ræðislegri stjórnarháttum.
Reykjavíkurlistinn lofaði í upp-
hafi þessa kjörtímabils að beita sér
fyrir úrbótum í eftirtöldum mála-
flokkum:
Fjármálum borgarinnar og sívax-
andi skuldasöfnun. Allt þetta kjör-
tímabil hefur verið festa í fjármál-
um borgarinnar og skuldasöfnun
borgarsjóðs hefur verið stöðvuð.
Stjórnsýslu borgarinnar og gera
hana opnari og lýðræðislegri. Leik-
reglur eru nú skýrar og búið að
afnema kerfi hentistefnu og fyrir-
greiðslu. Að frumkvæði borgarinn-
ar nær eftirlitsskylda umboðs-
manns Alþingis nú líka til stjórn-
sýslu sveitarfélaganna.
Dagvistarmálum, sem voru úr
takt við allan veruleika borgarbúa.
Hjón og sambúðarfólk á nú rétt á
heilsdagsvistun, 1.100 ný heils-
dagspláss hafa bæst við og allir sem
þess óska njóta nú niðurgreiddrar
dagvistar af einhvetju tagi fyrir
börn sín.
Skólamálum, en nær allir grunn-
skólar borgarinnar voru tvísetnir.
Aldrei hefur meira fjármagni verið
varið til skólamála en á þessu kjör-
tímabili og nú eru 18 af 29 grunn-
skólum borgarinnar einsetnir.
Uppbyggingu í atvinnumálum, í
stað dýrra bráðabirgðalausna. Raf-
orkuvirkjun á Nesjavöllum skapaði
nauðsynlegar forsendur fyrir upp-
byggingu í stóriðju og þar með
auknum hagvexti. Reykjavíkurhöfn
hefur úthlutað fleiri lóðum á þessu
ári en nokkru sinni áður í 80 ára
sögu hafnarinnar. Skráðir atvinnu-
lausir í Reykjavík hafa ekki verið
færri síðan á árinu 1992.
Festa í fjármálastjórn
Annað árið í röð er nú lögð fram
hallalaus fjárhagsáætlun. Fjárhags-
áætlun ársins 1997 stóðst og ekki
er gert ráð fyrir nýjum lántökum á
næsta ári. Samkvæmt útkomuspá
fyrir árið 1997 hafa skuldir borgar-
sjóðs lækkað að raungildi um 550
milljónir króna á milli áranna 1996
og 1997.
Reykjavíkurlistinn hefur staðið
við loforð sitt um að hækka ekki
útsvar og halda álögum á borg-
arbúa í lágmarki. Hvergi á landinu
greiða íbúar lægra útsvar og sam-
anlögð skattabyrði vegna útsvars
og fasteignagjalda í Reykjavík er
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
með því lægsta sem
þekkist á landinu.
Á árinu 1998
hækka skatttekjur og
rekstrargjöld borgar-
innar um u.þ.b. 1.200
milljónir króna frá út-
komuspá ársins 1997.
Rekstrargjöld eru nú
um 85% af skatttekj-
um borgarinnar en
voru um 84% á síðasta
ári. Um 700 milljónir
af hækkun rekstrar-
gjalda á rót sína að
rekja til aukins launa-
kostnaðar vegna kja-
rasamninga. Þá er í
áætluninni gert ráð
fyrir 260 milljónum króna vegna
ófyrirséðra útgjalda bæði vegna síð-
ari umræðu um ljárhagsáætlun og
vegna útgjalda sem kunna að koma
upp á næsta ári.
Með rammaáætlunum í einstök-
um málaflokkum, aðhaldi og sparn-
aði hefur verið unnt að bæta þjón-
ustu við borgarbúa umfram það sem
aukin rekstrarútgjöld segja til um.
Yfirstjórn borgarinnar hefur leitast
við að ganga á undan með góðu
fordæmi eins og risnukostnaður
borgarsjóðs vitnar um. Samanlagð-
ur risnukostnaður áranna 1995-
1997 er 64 milljónum króna lægri
en hann var á árunum 1991-1993.
Skattalækkun
Á næsta ári er áformað að veita
tekjulitlum elli- og örorkulífeyris-
þegum meiri afslátt af fasteigna-
sköttum og hoiræsagjaldi en gert
hefur verið hingað til. Hefur fram-
talsnefnd Reykjavíkurborgar verið
skrifað og hún beðin að hækka
viðmiðunartekjur næsta árs um rúm
18%, en sá grunnlífeyrir Trygginga-
stofnunar sem hingað til hefur ver-
ið miðað við hækkar aðeins um
3,62% milli ára. Reikna má með að
afsláttarþegum fjölgi um rúm 22%
og kostnaðarauki borgarsjóðs verði
um 22 milljónir króna.
Fjárfest í framtíðinni
Á næsta ári verður haldið áfram
að fjárfesta í framtíðinni. Stærstu
verklegu framkvæmdir borgarinnar
á því ári eru í virkjunarmálum. Á
Nesjavöllum verður tekin í notkun
ný virkjun í eigu borgarinnar, en
framkvæmdakostnaður Hitaveitu
Reykjavíkur við virkjunina á næsta
ári er áætlaður um 3.600 milljónir
króna. Að auki mun Rafmagnsveita
Reykjavíkur veija um 295 milljón-
um króna í línulögn o.fl. sem teng-
ist Nesjavallavirkjuninni. Tekjur af
virkjuninni munu stuðla að mun
lægri orkugjöldum til almennings í
framtíðinni og skapa fyrirtækjum í
Reykjavík ný sóknarfæri.
Nýbyggingaframkvæmdir borg-
arsjóðs verða dregnar saman á
næsta ári um 300 milljónir króna.
Áfram verður þó mikil uppbygging
í skólamálum, en áætluð framlög til
skólabygginga eru 700 milljónir á
næsta ári. Byggt verður við 6 grunn-
skóla, en stærstu verkefnin þar eru
viðbygging við Háteigsskóla, Rima-
skóla, Melaskóla, Fossvogsskóla og
Vesturbæjarskóla auk síðasta
áfanga við Fjölbrautaskólann í Borg-
arholti. Þá verður lokið við byggingu
leikskóla við Mururima í Grafar-
vogi, byggður leikskóli við Seljaveg
og hafist handa _við byggingu leik-
skóla í Selási. Áætluð framlög til
byggingar leikskóla eru 250 milljón-
ir króna. Af hálfu borgarsjóðs verð-
ur varið 33 milljónum króna til loka-
frágangs á hjúkrunarheimillinu
Skógarbæ og hafínn undirbúningur
að byggingu nýs hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða Reykvíkinga.
Lokið verður við byggingu sund-
laugar í Grafarvogi og byggingu
yfir skautasvellið í Laugardal. Haf-
in verður athugun á byggingu fjöl-
notahúss við Laugardalshöllina og
undirbúningur að byggingu 50 m
yfirbyggðrar keppnislaugar við
Laugardalslaugina. Framkvæmd-
um við Iðnó verður lokið í mars og
hafist handa við að innrétta Lista-
safn í Hafnarhúsinu og aðalsafn
Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu
15. Er við það miðað að starfsemi
í þessum húsum geti hafist á árinu
2000 þegar Reykjavík er menning-
arborg Evrópu.
Framkvæmdir Reykjavíkurhafn-
ar munu aukast verulega á næsta
ári og vega þar þyngst framkvæmd-
ir við nýja olíubryggju í Örfirisey,
en áætlað er að verja til þess verk-
efnis 281 milljón á næsta ári. Áætl-
að er að framkvæmdum ljúki á ár-
Framtíðarsýnin er,
segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, að Reykja-
vík verði framúrskar-
andi borg til búsetu
jafnt fyrir fólk sem
fyrirtæki.
inu 1999, en þá munu olíuskip geta
lagst að bryggju í Örfirisey sem
dregur verulega úr þeirri mengun-
arhættu sem er samfara dælingu
úr skipunum.
Sameining Kjalarness og Reykja-
víkur felur í sér mikla möguleika
fyrir þróun byggðar í Reykjavík
meðfram strandlengjunni til norð-
urs og tryggir nægjanlegt bygging-
arland í Reykjavík um langa fram-
tíð. Sameiningin endurspeglast ekki
í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir
árið 1998, þar sem hún tekur ekki
gildi fyrr en eftir næstu sveitar-
stjórnarkosningar og að þeim lokn-
um verður ijárhagsáætlun endur-
skoðuð með tilliti til samreksturs
þessara tveggja sveitarfélaga.
Sameiginlegt átak
Reykvíkinga
í holræsamálum er lokið fram-
kvæmdum við hreinsistöð við Mýr-
argötu og verður hún tekin í notkun
nú í janúar. Stærsta verkefnið á
næsta ári er 1. áfangi nýrrar dælu-
og hreinsistöðvar við Laugarnes sem
stefnt er að því að ljúka á árinu
2000. Að því verki loknu verður
hreinsun strandlengjunnar umhverf-
is Reykjavík lokið að mestu. Þessar
framkvæmdir hafa m.a. verið fjár-
magnaðar með holræsagjaldi borg-
arbúa, en ávinningurinn skilar sér í
hreinum ijörum og heilbrigðara líf-
ríki náttúrunnar í borginni. Þess sér
m.a. stað á næsta ári, en þá verða
byijunarframkvæmdir hafnar við
útivistar- og baðaðstöðu í Nauthól-
svík. Áætlað framlag til holræsa-
framkvæmda er 571 milljón á árinu
1998, en á móti koma 440 milljóna
króna tekjur af holræsagjaldi. Sam-
tals hefur þá verið varið rúmlega
2.100 milljónum króna til holræsa-
framkvæmda á þessu kjörtímabili,
en auk þess hafa um 570 milljónir
króna verið greiddar í vexti vegna
lántöku á síðasta kjörtímabili.
Betra líf í borginni
Reykjavíkurlistinn hefur lagt
kapp á að koma til móts yið þarfir
fjölskyldna í borginni. Á síðustu
þremur árum hafa fjölskyldumál
verið forgangsmál og áhersla lögð
á að búa yngstu kynslóðinni tryggt
umhverfi og góð uppeldisskilyrði.
Áfram verður haldið á þessari braut
eins og uppbygging í skóla-og leik-
skólamálum ber með sér. Á næsta
ári verður þó lögð aukin áhersla á
innra starf leikskóla og grunnskóla.
Hjá Dagvist barna er fyrirhugað
að gera átak í menntunarmálum
starfsmanna í leikskólum og sál-
fræði- og sérkennsludeildin verður
styrkt vegna sérstuðnings við fötluð
börn og börn með þroskafrávik. Á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur verður
unnið að ýmsum umbótum í skóla-
starfi. Sem dæmi má nefna að sér-
kennsla og sálfræðiþjónusta verður
endurskipulögð, haldið áfram því
átaki í kennslu í eðlis-, efna- og
stærðfræði sem hófst á þessu skóla-
ári, kennslustundum fjölgað um
eina stund í L, 2., 3. og 5. bekk,
lögð aukin áhersla á mat á skóla-
starfi og stefnt að því að bæta tölvu-
búnað skólanna þannig að nemend-
ur eigi þess kost að kynnast tölvu-
notkun allt frá 1. bekk. Þá verður
fjárhagslegt sjálfstæði skóla aukið.
Í umhverfismálum verður haldið
áfram endurgerð leik- og útivistar-
svæða í eldri hverfum borgarinnar,
en meginþungi framkvæmda verður
þó í nýju hverfunum, s.s. Engja-,
Borga- og Víkurhverfum.
Reykjavíkurborg hefur samþykkt
umferðaröryggisáætlun sem miðast
við að fækka umferðarslysum um
20% fram að aldamótum. í sam-
ræmi við hana verða framlög til
úrbóta í umferðaröryggismálum
hækkuð úr 54 milljónum króna á
þessu ári í 85 milljónir króna á
næsta ári, lokið við göngubrú yfir
Kringlumýrarbraut á móts við
Laugarneskirkju, sem er þriðja
göngubrúin sem byggð er á þessu
kjörtímabili, haldið áfram átaki við
endurbætur aðalgangstíga og
gönguleiða og m.a. lokið gerð
göngu- og hjólreiðastígs meðfram
Sæbrautinni út á Laugarnes og
stígar meðfram Miklubrautinni end-
urbættir. Þá verður hafist handa
við tvöföldum Gullinbrúar. Stefnt
er að því að halda áfram átaki til
að bæta þjónustu SVR á næsta
ári, sérstaklega í nýrri hverfum
borgarinnar, og fjölga biðskýlum í
borginni með sérstökum samningi
við þjónustuaðila. Aðgerðir í um-
m
'elsi
<frrUH KOtWW
Bætt kjör kvenna
skila sértil barnanna
og samfélagsins.
Munið gíróseðlana.
(jl" HJÁLMRSTOFNUN
\r\rj kirkjunnar
S - heima og hciman
ferðarmálum og almenningssam-
göngum eru í samræmi við stefnu-
mótun aðalskipulags Reykjavíkur
1996-2016.
Af helstu framkvæmdum í mið-
borginni má nefna að ráðist verður
í endurbætur á Laugavegi, milli
Frakkastígs og Barónsstígs, en
áætlaður kostnaður er 160 milljónir
króna. Nú um áramótin verður lok-
ið fyrsta áfanga við vinnslu þróun-
aráætlunar fyrir miðborgina og í
framhaldi af henni verður mótuð
stefna um aðgerðir til að endurreisa
miðborgina sem miðstöð verslunar,
menningar og stjórnsýslu í landinu.
Skilvirkara stjórnkerfi
Stjórnkerfi borgarinnar hefur
verið í stöðugri endurskoðun á kjör-
tímabilinu með það að leiðarljósi
að Reykjavíkurborg er þjónustufyr-
irtæki í eigu borgarbúa og rekin í
þeirra þágu. Mikil áhersla er lögð
á valddreifingu, árangur og hag-
kvæmni. Sjálfstæði og ábyrgð
stjómenda og starfsmanna hefur
verið aukin. Samþykkt hefur verið
metnaðarfull starfsmannastefna og
jafnréttisstefna og auknum fjár-
munum er varið til starfsmenntunar
og jafnréttismála.
Sérstök húsnæðisskrifstofa tók
til starfa á árinu og geta borgarbú-
ar í húsnæðisleit nú leitað á einn
stað eftir upplýsingum um hvað
eina sem varðar húsnæðismál í
borginni.
Merkasta nýjungin í stjórnkerfi
borgarinnar er þó án efa Miðgarð-
ur, þjónustumiðstöð í Grafarvogi.
Þar geta íbúar nú fengið á einum
stað þá þjónustu sem áður var hjá
Félagsmálastofnun, Fræðslumið-
stöð, Dagvist barna og íþrótta- og
tómstundaráði. Náið samráð er við
allar stofnanir og félagasamtök í
hverfinu og íbúar tilnefna fulltrúa
sína í stjórn Miðgarðs. Á næsta ári
verður lokið flutningi verkefna til
Miðgarðs og eru áætlaðar 32,9
milljónir króna til rekstursins.
Framtíðarsýn
Á þessu kjörtímabili hefur gmnn-
ur verið lagður að því að gera
Reykjavík að gróskumikilli fjöl-
skylduborg þar sem búið er í haginn
fyrir framtíðina. Á árinu 1998 verð-
ur haldið áfram á sömu braut og
þar með markað upphafið að því
sem koma skal á næsta kjörtíma-
bili. Framtíðarsýnin er að Reykjavík
verði framúrskarandi borg til bú-
setu jafnt fyrir fólk sem fyrirtæki.
1 allri starfsemi borgarinnar verði
fyllsta virðing borin fyrir íbúum og
borgin hafi öryggi þeirra og þroska-
kosti í fyrirrúmi. Reykjavík verði
nútímaleg höfuðborg í fullri sátt
við þjóðina og landið sjálft og í
góðum tengslum við umheiminn.
Höfundur er horgarstjóri.
Biússur
og
silkibolir
Frábært
verð
Glugginn
Laugavegi 60 sími 551 2854
Tilboð 20% afsláttur
Verð frá kr. 2.4S0.
Sníðum þær í giuggann þinn.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
f FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.