Morgunblaðið - 06.12.1997, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
MORGUNB LAÐIÐ
U1ELLJHI5 316 THEN HE
KIP LIAS TAKIN6 5AID H£ U)A5
ALL THE 60IN6 T0
CRAY0N5,5EE? PUNCH ME
IN THE ^NOSE..^
w W)
HI5 MOTHER
COMPLAINEP
aboutME?.1
5IR? YOU
KNOW U)HAT
I THINK?
YOU ANP 1 5H0ULD
60 OUTTOPINNER
SOMETIME, ANP
TALK ABOUT THI5..
Já, herra skóla-
stjóri.
Þessi stóri tók
alla litina, skil-
urðu?
Síðan sagði
strákur að
hann ætiaði
að gefa mér
einn á’ann
Kvartaði
mamma hans
undan MÉR?!
Herra? Veistu
hvað ég held?
Þú og ég ættum að
fara út að borða ein-
hvern tíma og ræða
um þetta.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringian 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Afkvæmi fætt;
barn, bók
Frá Normu E. Samúelsdóttur:
ÉG HEF kveikt á aðventukerti
mínu, smáfæðing í aðsigi!
Bók eins og bam lýtur náttúru-
legu lögmáli - samruni anda, efn-
is. Meðganga. Alltaf einstakt
kraftaverk, ferli. Fullkomnun þeg-
ar best lætur.
Og hverju „foreldri" finnst sinn
„fugl“ fagur, eitthvað sem óx og óx
af fræi, tók vitund tökum, tilhlökk-
un, sársauki, allt þar á milli. Eftir-
vænting.
Ég velti þessu fyrir mér um leið
og ég horfi á kertalogann, „höfund-
ur“ nokkurra bóka, móðir barna, -
og slekk á ljósinu til morguns, er
kveikt verður aftur.
Barn hefur fæðst, vel skapað og
innileg gleði og tilfinning um að af-
rek hafi náðst, kitlar. Ferlinu er
lokið: Getnaður (hver svo sem „fað-
irinn“ er!), meðganga, fæðing.
„Eigið“ bam er það besta í heimi,
spuming hvort „mitt“ verk sé að
þeyta lúðram, því er það ekki
þannig að öllum finnst sitt bam
fagurt? Kannski er þó nauðsynlegt
að sækja um „meðlag“, afla fæðu,
klæða, húsaskjóls. - Láta fagur-
fræðinga, heimspekinga, fjármála-
spekúlanta meta „afurðina” elsk-
uðu, biðja um gæðastimpil! En til
hvers? Ég er tvístígandi. Efins.
Eftir að hafa „fætt“ nokkur böm
og bækur, svona í rólegheitunum,
rifjast nú upp fyrir mér, er ég les
kjallaragrein eftir nýjan rithöfund,
(Mikael Torfason) sem nánast
skorar gagnrýnendur á hólm, -
alls bramboltsins kringum nýjar
bækur. (Mikið þegar stór forlög
gefa út, minna, nánast ekkert ef
höfundur kýs að gefa út sjálfur.
Góður verri verstur?) og ... missi
áhugann á að keppa um hylli.
í dag, er bam fæðist á fæðinga-
deild, fá aðeins foreldri, ömmur og
afar, systkini, að koma þar inn,
notalegur aðlögunartími, móður og
afkvæmis.
Ég leyfi mér að segja ungum
listamönnum, sem vinna við sköp-
un, að halda bara ró sinni, þetta er
allt saman hjóm, hismi, allt nema
sköpunin, nátturalega ferlið er
„okkar“ afrek. (Ef þið viljið ekki
svelta, þá er auðvitað leið út, lág-
launastörfin við höfnina, eða í póst-
inum hálfan daginn!!) Mín bók, þín
bók, okkar bók, þeirra bók. Jú, jú,
það má vel vera að þetta sé allt
saman mjög spennandi (fer eftir
hveiju við sækjumst eftir!), „fræð-
ingamir" fá svo að leika sér að gefa
stjömur, skoða málfars-formgalla
bókar. Sum okkar stéttar verða
„rík“ án hóls, aðrir verða ríkir af
hóli sem vefur upp á sig, sem vafn-
ingsjurt. (Ferlið er það sama, nema
e.t.v. lokahnykkurinn, að afstaðinni
fæðingu. Að duga við að koma sér á
framfæri. Verða „ríkur ráðherra” í
lokin, ef vill, eða bara „vera“ sjálfs
sín ,,herra“.)
Ef til vill eiga sum okkar ekki að
eignast mörg böm, né skrifa marg-
ar bækur, en hvers er að ákveða
ferli einstaklings sem hefur „þenn-
an ólæknandi sjúkdóm" í sér (svo
notuð séu orð nýbakaðs prests/rit-
höfundar Eðvarðs Ingólfssonar).
Hvaða vefur?
Til hamingju með „afkvæmið”.
Hvað heitir það?
NORMA E. SAMÚELSDÓTTIR,
Miklubraut 16, Reykjavík.
Ný byggðastefna
Frá Ingimundi Gíslasyni:
í STAKSTEINUM Morgunblaðs-
ins, laugardaginn 29. nóvember sl.,
er sagt frá því að 80% verkfræði-
nema og ríflega 60% nema í raun-
vísindum telji líklegt að þau muni
snúa til starfa erlendis að loknu
námi og í ræðu í kvöldfréttatíma
ríkisútvarpsins, mánudaginn 1.
desember, sagði Þorvaldur Gylfa-
son, prófessor, að opinberir íjár-
festingarsjóðir og bankar hefðu
orðið að afskrifa 67 milljarða á síð-
astliðnum 10 áram.
Ungt fólk á íslandi sættir sig
ekki lengur við láglaunastefnu
stjómvalda. Þessi láglaunastefna
er bein afleiðing gríðarlegrar sóun-
ar á almannafé undanfama ára-
tugi. Alþingi íslendinga og þá um
leið kjósendur bera höfuðábyrgð á
þessari sóun. Gæluverkefni alþing-
ismanna hafa gjarnan forgang en
hinir stóra almennu málaflokkar
eins og heilbrigðis- og menntamál
verða auðveldlega homreka.
Bankaráð ríkisbanka og stjómir
Byggðastofnunar og fleiri fjár-
málastofnana eru skipuð alþingis-
mönnum eða öðram fulltrúum
stjómmálaflokka. Þröng pólitísk
sjónarmið ráða allt of oft ráðstöfun
fjármagns og því fer sem verður
um skattfé okkar og sparifé.
Við þurfum nýja byggðastefnu í
stað þeirrar gömlu sem hefur
bragðist. Hin nýja byggðastefna
leggur áhersluna á að Island hald-
ist í byggð. Að ungt og velmenntað
fólk sjái sér hag í því að búa áfram
hér á landi. Að hér verði áfram
blómstrandi þjóðlíf og almenn hag-
sæld. Að Island verði annað og
meira en vesöl verstöð á hjara ver-
aldar.
Byrjum á því að jafna atkvæðis-
rétt landsmanna. Þá mun draga úr
kjördæmapoti og atkvæðakaupum
og betur verður farið með fé skatt-
greiðanda. Allt þetta mun leiða til
minni sóunar og þá verður hægt að
borga fólki hærri laun. Áfram
verður búið á íslandi öllu.
INGIMUNDUR GÍSLASON
augnlæknir.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.