Morgunblaðið - 06.12.1997, Side 77

Morgunblaðið - 06.12.1997, Side 77
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 77 v- - FOLK I FRETTUM Frumleiki og þor TðJVLIST Geisladiskur FISKUR NR. EITT Fiskur nr. eitt, fyrsta geislaplata Berglindar Ágústsdóttur. Öll ljdð og textar eftir Berglind, lög eftir hana, Viðar Hákon Gíslason, Þorvald Hápunkt Gröndal, Gunnar Óskars- son, Sölva Blöndal, EIízu Geirsdóttur, Birgi Örn Thoroddsen og Helgu Sif Guðmundsdóttur. Hluti af útgáfuröð Smekkleysu, Skært lúðrar hljóma. 999 kr. 19 mín. NÚ ER NÓG af hæfileikaríku ungu tónlistarfólki á íslandi. Fólki sem þorir að fara sínar eigin leiðir með frumlegri hugsun. Berglind Agústsdóttir ljóðskáld er í þessum hópi; hún kemur snögglega fram á sjónarsviðið með stórgóðan geisla- disk, Fiskur nr. eitt. Reyndar á Berglind ekki heiður- inn ein, þar sem hún fær til liðs við sig ýmsa tónlistarmenn úr „neðan- jarðar“geiranum sem fara á kost- um og leggja til stórgóðar laga- smíðar. Sölvi Blöndal úr Quarashi á lagið Regnið hættir ekki; kraft- mikið lag sem rífur mann með sér á dansgólfið í huganum. Berglind les ljóðið rámri röddu undir geggj- uðum trommutaktinum. Birgir Öm Thoroddsen, sem þekktastur er fyrir að vera í einsmanns sveit- inni Curver, á tvö lög, En skyndi- lega og Aðeins tvö. Hið síðar- nefnda semur hann með Berglindi. Bæði eru mögnuð, þótt hið fyrr- nefnda sé máske lítið annað en upphafstónn og ljóð. Aðeins tvö er lokalagið, þar er hljómborðsflauta atkvæðamest en einhvers staðar á bakvið er söngur Berglindar, hljómborðsbassi og rafrænn trommutaktur. Gunnar Óskarsson leggur fyrsta lagið til, Hraðar, sem byrjar á ró- legum nýaldartónum en brátt hellist yfir hlustandann yfirþyrm- andi danstónlist. Elíza úr Kolrössu Kubrick týnist í pósti STJÓRNENDUR kvikmyndahátíð- ar til heiðurs Stanley Kubrick komust í bobba á dögunum þegar filmumar sem átti að sýna á hátíð- inni týndust í pósti. Tíu kvikmyndir Kubricks, þar á meðal „2001: A Space Odeyssey", „Spartacus", og »,The Shining“, hurfu á leiðinni frá Mílanó til Cataniu á Sikiley, þar sem halda átti hátíðina. DHL sá um sendingu myndanna sem voru ekki tryggðar. Starfs- menn fyrirtækisins vinna nú með ítölsku lögreglunni að því að reyna finna myndimar. Kannski einhver eldheitur ítalskur Kubrick-aðdáandi hafa tekið filmumar traustataki? -------------- krókríðandi semur lagið Víðir með Berglindi, en það var samið handa þeim góða dreng Víði Óla Guð- mundssyni. Elíza sér um undirleikinn sem er ein- ungis á fiðlu. Viðar Hákon Gíslason og Þorvaldur (sem ber hið skemmtilega viðumefni (eða nafn) Há- punktur) Gröndal eru höf- undar Jæja, þar sem rifinn bassi leikur við orgel og trommutakt. Helga Sif Guðmundsdóttir á lagið Flugfisk, hreint frábæran seið sem myndi sóma sér vel í mynd eftir Hrafn Gunnlaugsson. Þegar skáld gefur út geislaplötu fyndist manni við hæfi að textamir fylgdu í bæklingi, þar sem þeir eru misvel greinanlegir með bemm eyrum. Berg- lind hefur augljóslega lagt mikla vinnu í ljóðagerðina og þar má heyra góða tilburði. Ljóðin em áreynslulaus; líða ró- lega fram í samtalsstíl og em svo sannarlega betri en megnið af nýj- um íslenskum textum: „Mig langar að renna niður Laugaveginn / renna á snjóþotu og fella niður glæsipíur borgarinnar. / Æi þá á ég við þær sem líta allar eins út, / þú veist ofdekraðar vel klæddar ljóskur með hárið í lagi. / Æi þú veist þama þessar sem líta á naglabrot sem heimsendi...“ Fiskur nr. eitt er stutt plata eins og aðrar plötur í þessari stórgóðu útgáfuröð Smekkleysu, Skært lúðrar hljóma. Hann er að sama skapi ódýr og því hefur unnandi fagurra lista enga afsökun fyrir því að gefa hann ekki vinum sínum í jólagjöf. Víst er að verri plötum verður pakkað inn um þessi jól. ívar Páll Jónsson ítölsk leðursófasett Sófi og tveir stólar. Margar gerðir. húsgögn Ármúla 44 sími 553 2035 I Stjörnum prýdd heimild- armynd í FLJÓTU bragði er ekki augljóst hvað Bette Midler, Whoopi Gold- berg, Lily Tomlin, Robin Williams, Billy Crystal, Elizabeth Taylor, Shirley MacLaine og Cher eiga sameiginlegt. Það verður raunar ekki ljóst fyrr en á Sundance-kvik- myndahátíðinni í janúar þegar frumsýnd verður heimildarmynd á gamansömu nótunum með Bruce Vilanch í aðalhlutverki. Hann hefur í mörg ár samið gamanefni fyrir leikarana þegar þeir hafa komið fram við ýmis tilefni, t.d. verðlauna- afhendingar, og verða einþáttungar nieð þeim sýndir í myndinni sem nefnist „Get Bruce". ERUM AÐ TALA UM TOMMUR cs Schneider montana Flatur Blackline Super myndlampi Nicam Stereo 2x35wött Textavarp, scarttengi Sjálfvirk stöðvainnsetning Fjarstýring, ofl. Opnunartilboð 55.990 Bylting á íslandi! SXÍQjÖIVIir * GRENSÁSVEGUR 3 -108 RVK - SÍMI588 5900 ■ 111111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.