Morgunblaðið - 03.01.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.01.1998, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Sjö milljarða viðskipti með kreditkortum á 24 dögum VIÐSKIPTI með kreditkortum voru um sjö milljarðar frá 1. til 24. desember sl., ef frá eru taldar rað- greiðslur og greiðslur í handvirk- um vélum. Velta á kreditkortum hjá Visa- Island nam 5,7 milljörðum króna á tímabilinu, sem er um 19% aukning frá sama tímabili í fyrra, og velta á kreditkortum hjá Kreditkortum hf. nam 1,3 milljörðum á þessu tíma- bili, sem er um 16,5% aukning frá því í fyrra. Aukning í debetkortum Úttektir með debetkortum hjá Visa-ísland námu 4,5 milljörðum króna frá 1. desember sl. og fi-am til jóla og er það um 35% aukning frá sama tímabili í fyrra. Að sögn Em- ars S. Einarssonar forstjóra Visa-ís- land er sú aukning að hluta til vegna aukinnar notkunar debetkorta. Samanlagt námu viðskipti með kortum Visa-ísland í desertiber um tíu milljörðum króna. Að sögn Ein- ars eru það um 2,5 til 3 milljarðar umfram það sem venjulegt er aðra mánuði ársins. Atli Örn Jónsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri Kreditkorta hf. gerir hins vegar ráð fyrir að veltan á kreditkortum hjá Kreditkortum hf. sé um 20% hærri í desember en í meðalmánuði. - ÉSjífl má EG Morgunblaðið/RAX Sjálfstæðismenn gagnrýna vinnubrögð varðandi Geldinganes Grjótnám sam- þykkt eftir frestun Skipa- viðgerðir um jólin STÆRSTUR hluti fiskiskipaflot- ans var í höfn um jdl og áramót og notuðu margir tfmann til að dytta að skipunum. Siglingastofnun tek- ur allmörg skip til skoðunar á þessum tfma og útgerðarmenn leggja áherslu á að þau séu f full- komnu ástandi þegar skipaskoð- unarmaður kemur um borð. Síld- ar- og loðnuflotinn fer ekki á sjó fyrr en um miðjan janúar og þetta er því góður tími til að sinna við- haldi á honum. Á myndinni er ver- ið að skipta um ljós í Guðrúnu Hlfn BA-122. Lífifi ti criufii vid t>ig V» HaaaM Ijili |UI* «J*lrt I&kvmAni I nbnlhlutvorbi MEÐ blaðinu í dag fylgir átta síðna auglýsingablað frá Happ- drætti SIBS. BORGARSTJÓRN samþykkti í gær á sérstökum aukafundi tillögu borgarráðs um grjótnám í Geld- inganesi. Sjálfstæðismenn lögðu fram bókun þar sem meðferð þessa máls var gagnrýnd harðlega. Á síðasta borgarstjórnarfundi, 18. desember sl., var þetta mál einnig til umfjöllunar og var þá fellt á jöfnum atkvæðum. Pétur Jónsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, sat þá hjá við atkvæðagreiðsluna og fór síðan fram á frestun málsins. Gengið var til atkvæða um frestun- ina og hún samþykkt með 8 atkvæð- um gegn 7. í bókun sjálfstæðismanna segir að grjótnám í Geldinganesi sé fyrsta aðgerð R-listans til að breyta ákjósanlegasta íbúðarsvæði í borg- EMBÆTTI ríkissáttasemjara barst samtals 101 kjaradeila á nýliðnu ári og hefur sáttasemjari aldrei haft jafnmörg mál til meðferðar á einu ári. Framundan eru til úrlausnar kjarasamningar sjómannastéttarinn- ar. Samkvæmt upplýsingum Póris Einarssonar ríkissáttasemjara tókst að ljúka 96 kjaradeilum sem vísað var til sáttameðferðar á seinasta ári. inni í stóriðnaðar- og hafnarsvæði. Þetta gerist á sama tíma og fólks- fjölgun sé gífurleg í nágrannabæj- arfélögum en aðeins um 1% í Reykjavík. I bókuninni segir ennfremur: „Undirbúningur við sprengingar og grjótnám á þessu fallega svæði í for- grunni Reykjavíkur hófst í byrjun desember án heimilda borgarstjóm- ar þar sem deiliskipulag skorti. Þeg- ar málið var loks lagt fyrir borgar- stjóm 18. desember sundraðist R- listinn. Borgarstjóm felldi því til- lögu um deiliskipulagið og þar með að hefja aðgerðir við grjótnám sem þó vom augljóslega hafnar. Borgar- stjóri virti lögmæta ákvörðun borg- arstjómar að vettugi og lét halda áfram undirbúningi sprenginga og Síðasta málið sem leitt var til lykta hjá sáttasemjara var kjaradeila starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar íslands og viðsemjenda, sem leyst var aðfaranótt gamlársdags. Kjaradeilur Sjómannasambands- ins, Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, Vélstjórafélags íslands og Alþýðusambands Vestfjarða fyrir hönd sjómanna á Vestfjörðum við út- vegsmenn vom enn óleystar um grjótnáms. Nú er boðað til sérstaks aukafundar í borgarstjóm þar sem R-listinn hefur skipt út einum borg- arfulltrúa sínum til að samþykkja þessar ólögmætu aðgerðir. Það er í verkahring borgarstjóra að fylgja eftir ákvörðun borgarstjómar. Með því að ganga gegn þessari ákvörðun hefur borgarstjóri sýnt valdhroka og lítilsvirðingu við ákvörðun borg- arstjórnar. Það hefur hún gert bæði með því að stöðva ekki framkvæmd- ir áður en málið var lagt fyrir borg- arstjórn og halda þeim áfram þrátt fyrir synjun borgarstjórnar. Nú hef- ur borgarstjóri boðað til nýs fundar til að knýja fram aðra niðurstöðu hjá R-listanum. Þetta em fáheyrð vinnubrögð og ógnun við lýðræðið í borginni.“ samningi þessi áramót. Þórir segir að þessar deilur séu mjög erfiðar viðfangs. „Það komu langtum fleiri mál til embættisins á árinu en ég átti von á. Þau urðu fleiri en nokkra sinni áður. Það má líka segja að gengið hafi bet> ur að leysa þau en búast mátti við,“ segir Þórir. Hann segir allt árið hafa verið annasamt því fyrstu kjaradeil- unum var vísað til embættisins í byrj- un ársins. 96 málum lauk með Reyklaus- ir Bessa- staðir ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, greindi frá því í áramótaávarpi sínu á nýárs- dag að forsetasetrið á Bessa- stöðum væri nú reyklaust. Forsetinn fjallaði í ávarpi sínu um skaðsemi reykinga og sagði stjómvöld víða hafa hafið baráttu gegn reykingum til að bjarga heilsu fólks og komast hjá milljarðaútgjöldum í heil- brigðiskerfinu. „Evrópusam- bandið hefur nýlega samþykkt lög sem hamla gegn sölu á tó- baki, einkum til æskufólks. Sama hefur verið gert í Bandaríkjunum og á Islandi sjást einnig víða merki um nýj- an tíðaranda. Já, hér á Bessa- stöðum hefur að fmmkvæði Guðrúnar Katrínar orðið sú breyting að forsetasetrið hefur nú í rúmt ár verið reyklaus staður - og flestir tekið því vel,“ sagði Olafur Ragnar. Yínveitinga- leyfi í Víðidal í sex mánuði BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að veita Hestamannafé- laginu Fáki, Víðivöllum í Víði- dal, almennt vínveitingaleyfi til sex mánaða. Leyfið er veitt með því skil- yrði að hávaði frá hljómflutn- ingstækjum á veitingastaðnum valdi nágrönnum ekki ónæði. I umsögn skrifstofustjóra Félagsmálastofnunar segir að um almennt vínveitingaleyfi fyrir félagsheimili sé að ræða. I viðræðum við umsækjanda hafi komið fram að fyrst og fremst sé um að ræða fóst vín- veitingaleyfi vegna kvöld- skemmtana á vegum félagsins og útleigu á sal vegna einka- samkvæma. Telur hann stigs- mun vera á hvort leyfið sé vegna kvöldskemmtana hjá fullorðnum eða fyrir opinn bar að degi til, þar sem stundaðar em fjölskylduvænar íþróttir fyrir alla aldurshópa. Veiðikort hækka VEIÐIKORT hækkuðu um ára- mótin um 100 kr., úr 1.500 kr. í 1.600. Ásbjöm Dagbjartsson veiðistjóri segir að það sé bundið í lög að verð á veiðikortum fylgi breytingum á framfærsluvísitölu. Ásbjöm segir að veiðikort hafi ekki hækkað í verði frá gildistöku laganna sumarið 1994. Engar aðrar breytingar verða á veiðikortum að þessu sinni að því undanskildu að korthöfum býðst að hafa mynd af sér í kortunum. Gefin hafa verið út 10 þúsund veiðikort og skilar hækkunin því einnar milljónar kr. hærri tekjum. Dómsmála- gjöld hækka DÓMSMÁLAGJÖLD hækk- uðu um áramótin um 20%. Dómsmálagjöld em greidd vegna aðgerða sýslumanns- embætta og dómstóla, t.d. vegna nauðungarsölu og fjár- náms. Hækkunin er ekki vísitölu- bundin heldur er hún gerð með beinum hætti. Gjöldin em mis- jafnlega há eftir aðgerðum en verðlagshækkunin var um 20%. Hækkunin tengdist að hluta til fjárlagagerð fyrir næsta ár og skilar hún um 70-80 milljónum kr. í auknum tekjum ríkissjóðs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.