Morgunblaðið - 03.01.1998, Page 4
.
4 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Blys og flugeldar við áramót
BLYS lognðu víða gflatt og flugeldum var
skotið af kappi þegar ungir sem gamlir
kvöddu gamla árið og heilsuðu því nýja.
Talsvert var um meiðsli af völdum hand-
blysa en víðast hvar fóru áramótin þó vel
og skikkanlega fram.
Galli í kínversk-
um handblysum
veldur slysum
GALLI hefur komið fram í ákveðn-
um tegundum handblysa, bengal-
blysum, sem framleidd eru í Kína og
voru seld á tveimur stöðum í Reykja-
vík fyrir áramót. Hafa blysin
sprungið í höndum fólks og valdið
bruna og meiðslum. Sala þeirra hef-
ur verið stöðvuð. Innflytjandi
blysanna telur ýmislegt benda til að
raki hafí komist í blysin og skemmt
þau.
Að sögn Skarphéðins Njálssonar,
varðstjóra hjá lögreglunni í Reykja-
vík, eru blysin með merkingunni A
6205, A 6206 og A 6207. Á bleikum
miða eru leiðbeiningar á íslensku um
notkun. Skarphéðinn segir að ekkert
sé athugavert við innflutning
blysanna, hann sé að öllu leyti lög-
legur og að nauðsynlegar upplýsing-
ar um þau liggi fyrir. Ljóst sé hins
vegar að einhver galli valdi því að
þau hafi sprungið á þennan hátt og
valdið slysum. Blysin voru seld við
Skeifuna 8 í Reykjavík og við Um-
ferðarmiðstöðina en innflytjandinn
er Steinvík.
Talið er að samtals hafi kringum 9
þúsund blys af þessum þremur gerð-
um selst en þau voru bæði seld í fjöl-
skyldupakka og fjögur saman í
pakka. Skarphéðinn segir að kærur
hafi borist vegna slysa sem hlotist
hafa af blysunum. Af 27 manns, sem
leituðu til slysadeildar á nýársnótt,
voru 20 með meiðsl af völdum hand-
blysa sem urðu þegar logaði út úr
hlið blysanna. Skarphéðinn hvetur
menn til að gæta að því hvort þeir
hafi blys með áðurgreindum merk-
ingum enn undir höndum og skila
þeim til lögreglu til eyðingar, ef svo
er, eða til seljenda ef menn vilja
reyna að fá þau endurgreidd.
Lögi-eglan heldur samráðsfúnd í
byrjun árs með nokkrum stærstu
innflytjendum skotelda til að fara yf-
ir hvað megi betur fara í þessum efn-
um og hvað skuli heimila til notkun-
ar hérlendis.
Raki líkleg orsök
gallans
Lögreglan tók skýrslu af innflytj-
endum blysanna í gær. Annar þeirra
sagði í samtali við Morgunblaðið að í
yfirheyrslunum hefði komið fram að
rétt hefði verið staðið að innflutn-
ingnum. Blysin væru frá viður-
kenndum framleiðanda í Kína og þau
hefðu verið á markaði hér í sex ár.
Hann sagðist harma mjög þau óhöpp
sem orðið hefðu vegna notkunar
blysanna. Mál þetta yrði rannsakað
hér á landi og í Kína. Ymislegt benti
til að raki hefði komist í blysin í gámi
sem fluttur var inn í desember. Þá
væri ekki hægt að útiloka fram-
leiðslugalla. Hann útilokaði hins veg-
ar að um gamla vöru væri að ræða.
Þetta væru ný blys sem komið hefðu
til landsins í gámi í desember. Skipið
hefði lent í vondu veðri á leið til
landsins og raki hefði verið fremst í
gámnum þegar hann var opnaður.
Blysin hefðu verið prufuð áður en
þau voru send á markað og ekkert
hefði bent til að neitt af þeim væri
gallað.
Innflytjandinn sagði að varan væri
tryggð og framleiðandinn í Kína
væri sömuleiðis tryggður. Hann
sagðist engu geta svarað um bótaá-
byrgð. Það mál væri til skoðunar.
Mikið að gera á slysa-
deild á nýársnótt
MUN meira var að gera hjá slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur um
nýliðin áramót en þau síðustu og
leituðu 80 manns til deildarinnar frá
miðnætti á gamlárskvöld til morg-
uns á nýársdag. Jón Baldursson yf-
irlæknir segir það um 20 fleiri en
um mörg undanfarin áramót.
„Þetta er bæði talsvert meira en
um venjulega helgi og meira en um
síðustu áramót. Slys af völdum flug-
elda voru 27 en eru venjulega ekki
nema um 10 og þar af voru 20 af
völdum handblysa sem sprungu í
höndum fólks,“ segir Jón Baldurs-
son. „Þegar við sáum hversu mörg
slysin voru af völdum handblysanna
létum við lögregluna vita, þetta var
orðið mál sem varðaði almanna-
heill,“ sagði Jón ennfremur. Hann
sagði að venjulega væri mest um
áverka og slys af völdum ofbeldis og
áfengisneyslu en þau hefðu þó verið
í minna lagi en áður. „Það var mjög
líflegt hér, einn læknir á vakt að
næturlagi og við lifðum á því að fá
aðstoð lækna frá öðrum deildum.“
Jón Baldursson sagði mikið álag
á læknum slysadeildarinnar og
sagði það fyrirsjáanlegt áfram. Búið
væri að auglýsa fjórar stöður sér-
fræðinga á deildinni, sem hefði ver-
ið ákveðið áður en deila unglækna
kom upp en það tæki nokkrar vikur
og jafnvel mánuði að manna þær.
Kvaðst Jón vona að unglæknamálið
leysist sem fýrst, læknar slysadeild-
ar myndu fagna því mjög.
Hringdu núna
*
v- ,
**rlr heP*
&■
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS oOO OÖll
vænlegast til vinnings
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kært
vegna
nauðgnn-
ar og lík-
amsárása
EIN nauðgun og þrettán lík-
amsárásir voru kærðar til
lögreglunnar í Reykjavík um
áramótin. Heldur rólegra var
hjá lögreglunni nú en fyrir
ári, að sögn Ómars Smára
Armannssonar aðstoðaryfir-
lögregluþjóns. Mestur erill
var vegna afskipta af ölvuðu
fólki og erjum í heimahúsum.
Fæm voru þó teknir grunað-
ir um ölvun við akstur um
þessi áramót eða 21 á móti
29.
Kona kærði nauðgun til
lögreglunnar í Reykjavík um
klukkan 4 á nýársnótt og
hafði atburðurinn gerst í húsi
í miðborginni. Skömmu síðar
var maður handtekinn og var
hann að kvöldi nýársdags úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í
viku.
Ein alvarleg líkamsárás
var kærð um miðnætti á
gamlárskvöld. Tveir bræður,
fæddir 1980 og 1981, veittust
að manni við brennuna við
Ægisíðu. Hafði flugeldur frá
þeim farið í manninn og hann
beðið þá að fara varlega en
þeir brugðust ókvæða við og
réðust að manninum. Veittu
þeir honum talsverða áverka
í andliti og víðar og var hann
hugsanlega talinn nefbrotinn.
Þeir hlupu síðan á brott en
náðust skömmu síðar. Var
þeim sleppt eftir yfírheyrslu.
Þeir hafa oft áður komið við
sögu hjá lögreglunni vegna
afbrota.
Morgunblaðið/Þorkell.
VINKONURNAR Alyson Perry og Angela Brown fögnuðu nýju ári
í Perlunni.
Fjöldi útlendinga fagnaði áramótum á íslandi
Flugeldar,
brennur og
snjór helsta
aðdrátt-
araflið
BRENNUR, flugeldar og snjór
segir Haukur Birgisson, markaðs-
stjóri Ferðamálaráðs íslands, að
hafi trúlega laðað að um 1500 er-
lenda ferðamenn til að fagna nýju
ári á íslandi. Endanlega tölu segir
hann þó ekki liggja fyrir, en telur
líklegt að fjöldinn sé svipaður og í
fyrra.
„Bandaríkjamenn, Svisslending-
ar, Þjóðverjar og Japanir eru í
miklum meirihluta. Frá Bandaríkj-
unum komu fleiri nú en í fyrra, en
aftur á móti færri frá Þýskalandi.
Batnandi efnahagsástand í Banda-
ríkjunum og markvisst kynningar-
starf á Islandi þar í landi á efalítið
þátt í aukningunni. Mér virðist er-
lendu gestirnir vera á öllum aldri
þótt meirihlutinn sé miðaldra og
vel efnum búinn.“
Á vegum Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar komu á sjötta
hundrað erlendir gestir, flestir
Bandaríkjamenn og Svisslending-
ar. Að sögn Hjördísar Davíðsdótt-
ur í sérhópadeild kom lítill hluti
annan í jólum en þeir siðustu á
gamlársdag því seinkun varð á
flugi vegna óveðurs þann þrítug-
asta. „Svisslendingamir fóru á
dansleik á Hótel Sögu á gamlárs-
kvöld, en Bandaríkjamenn, Bretar,
Japanir og fleiri fögnuðu nýju ári í
Perlunni.
Ilótelstjórum stærstu hótelanna
í Reykjavík bar saman um að
fjöldi erlendra hótelgesta um ára-
mótin hafi verið örlítið minni en í
fyrra. Á Hótel Sögu voru þeir 270,
Hótel Islandi 173, Hótel Borg 75,
Hótel Loftleiðum 215, Hótel Esju
160 og Grand Hótel 173, en þar
voru þeir þó fleiri en í fyrra. Ein-
ar Olgeirsson, hótelstjóri Hótel
Esju og Hótel Loftleiða, segir her-
bergisnýtinguna um áramótin 70-
80%.
Mættust á miðri leið
Flestir erlendu gestirnir fóru af
landi brott í gær. Gömlu skólasyst-
urnar Alyson Perry, nemi frá
Boston, og Angela Brown, ensku-
kennari í Nurnberg í Þýskalandi,
báðar bandarískar, ætla þó að
dvelja hér fram í næstu viku. Þeim
fannst tilvalið að mætast á miðri
leið og fagna nýju ári saman á Is-
landi, enda hafa báðar áhuga á
norrænni sögu og menningu. „Við
fórum í Perluna á gamlárskvöld
og skemmtum okkur mjög vel. Ut-
sýnið var stórkostlegt og miklu
fleiri flugeldar á lofti en við áttum
von á. Einnig höfðum við gaman af
að sjá brennuna við sjóinn þótt við
legðum ekki í að fara að henni.“
Þær stöllur höfðu heyrt að ís-
lendingarnir sem safnast saman
við brennurnar yrðu sumir
alldrukknir og fyrirferðarmiklir.
Þeim fannst því ekki ráðlegt að
blandast í þann hóp þar sem erfitt
yrði um vik fyrir Alyson, sem er
sjónskert, að fóta sig áfram í slíku
margmenni. En Alyson segist ekki
geta kvartað yfir neinu og hún
hafi vel greint ljósadýrðina frá
Perlunni og skemmt sér prýðilega
það sem af er dvölinni. Angela tek-
ur í sama streng og segir að von
þeirra vinkvenna hafi ræst þegar
fór að snjóa á gamlársdag. „Loftið
er einstaklega hreint og vatnið
tært. Einu vonbrigði okkar eru að
allar búðir eni lokaðar annan jan-
úar, en þá ætluðum við einmitt að
gera svolítil innkaup."
Þótt Alyson og Angela hafi fyrst
og fremst komið hingað til að end-
urnýja gömul kynni, segja þær að
áramótin á íslandi hafi komið
skemmtilega á óvart „... brennur,
flugeldar og snjór, allt eins og best
er á kosið“.