Morgunblaðið - 03.01.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mismunandi áherzlur í nýársávörpum leiðtoga heims
Bjartsýni á Vesturlöndum en
efnahagsáhyggjur í A-Asíu
London, París, Moskvu, Hilton Head í S-Karolínuríki, Tókyó, Seoul, Róm. Reuters.
í NÝÁRSÁVÖRPUM sínum lýstu
leiðtogar Evrópu og annarra Vest-
urlanda bjartsýni á horfrn- ársins
1998, en ávörp leiðtoga Austur-As-
íuríkja einkenndust af áhyggjum af
þróun efnahagsmála í þeim heims-
hluta.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hét Bretum því í ávarpi
sínu á nýársdag að þeir myndu eiga
betra líf á árinu 1998. Hann tjáði
þjóð sinni í undirrituðu bréfi sem
birt var í The Sun að síðasta ár
hefði verið gott, en „næsta ár geti
orðíð ennþá betra“. Hann hét því að
stjórnin myndi halda ótrauð áfram
með áform sín um uppstokkun vel-
ferðarkerfisins, með þeim orðum að
þjóðin „hefði ekki efni á að eyða
milljörðum ' í rangar fjárfestingar
þegar við þurfum að fjárfesta meira
í velgengni". En hann lofaði því
jafnframt að fé yrði ekki tekið „frá
fólki sem ekld getur séð sér far-
borða nema með stuðningi velferð-
arbótakerfisins".
Jaqcues Chirac Frakklandsfor-
seti hét því í hefðbundnu sjónvarps-
ávarpi til þjóðar sinnar að hann
myndi halda áfram að hika hvergi
við að andmæla hinni vinstrisinnuðu
ríkisstjóm fullum hálsi þegar hann
væri ósammála henni, og að halda
tryggð við einarða Evrópustefnu
sína.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í sínu ávarpi að Rússland væri
enn að berjast við „vaxtarverki og
ótta við breytingar“, samfara aðlög-
uninni að markaðshagkerfí, en hét
því að ríkisstjómin næði helztu tak-
mörkum sínum fyrir lok ársins
1998. Hann viðurkenndi að rúss-
neska stjómin, sem fyrir ári lofaði
því að 1997 yrði ár hagvaxtar eftir
langt samdráttarskeið, hefði ekki
náð settu marki. Nú heitir ríkis-
stjórnin því að rússneskur efnahag-
ur njóti hagvaxtar í fyrsta sinn frá
því Sovétríkin hrandu í lok árs
1991.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti,
sem um áramótin var viðstaddur
1.400 manna veizlu í Suður-Kar-
olínuríld, mun á árinu 1998 eiga
þýðingarmiklar viðureignir við
repúblikana, sem era í meirihluta á
Bandaríkjaþingi, um fjárlög og
skattamál, en hann hélt ekkert
nýársávarp eins og aðrir leiðtogar
heims. Pess í stað mun hann flytja
stefnuræður hinn 27. janúar (svo-
kallað State of the Union-ávarp) og
er hann mælir fyrir fjárlagaáætlun
stjómar sinnar 2. febrúar. I þessum
ræðum er búizt við að Clinton leggi
áherzlu á innanlandsmál, þeirra
helzt hvernig bæta megi menntun-
artækifæri og aðgang bandarísks
almennings að bamaumönnun og
heilsugæzlu, einkum hins fátækari.
A-Asíuleiðtogar áhyggjufullir
Ryutaro Hashimoto, forsætisráð-
herra Japans, hét því á nýársdag að
efnahagslíf landsins fínni leið út úr
vandræðum sínum á árinu, áreiðan-
leiki fjármálakerfís landsins verði
tryggður og að allt verði gert sem
þörf krefur til að koma í veg fyrir að
Japan komi af stað nými
heimskreppu. En hann skoraði á
landsmenn sína að hafa ekki
áhyggjur af framtíð japansks efna-
hags.
Kim Dae-jung, nýkjörinn forseti
Suður-Kóreu, dró heldur ekkert
undan í loforðum um að leggja allt í
sölurnar til að koma efnahag lands-
ins aftur á réttan kjöl. Sagði hann
þetta munu takast með hjálp AI-
þjóðagjaldeyrissjóðsins innan
tveggja ára. En hann varaði jafn-
framt við erfíðleikum framundan.
„Mörg raunin bíður okkar á nýju
ári,“ sagði hann.
Að lokum má geta þess, að Jó-
hannes Páll II páfi skoraði í
nýársávarpi sínu á ítölsku ríkis-
stjómina að búa í haginn fyrir komu
nýs árþúsunds. Páfinn hefur lýst
aldamótaárið 2000 heilagt ár. Því er
spáð að er það gengur í garð
streymi meiri fjöldi pílagríma til
Rómar en nokkru sinni fyrr í sög-
unni.
Reuters
Litadýrð í Lundúnum
MIKILL mannfjöldi safnaðist saman í miðborg Lundúna um áramótin
til að fylgjast með mikilli flugeldasýningu sem borgaryfirvöld stóðu fyr-
ir. Þessi litadýrð yfir Tower Bridge ber glæsileik sýningarinnar merki.
Fuglaflensan
Próf gerð
á hundum
og köttum
Hong Kong. Reuters.
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í
Hong Kong láta nú skoða hunda og
ketti til að kanna hvort dýrin séu
sýkt af fuglaflensu, sem hefur vakið
skelfingu í borginni. Um einni millj-
ón kjúklinga hefur verið slátrað til
að koma í veg fyrir útbreiðslu veik-
innar sem hefur orðið fjóram mönn-
um að bana.
Ekki hefur verið upplýst hvort
um flækingshunda og -ketti er að
ræða en nokkrir dagar era frá því
að hafíst var handa við próf á dýr-
unum. Yfirvöld hafa verið sökuð um
að bregðast seint og illa við málinu
en þau hafa vísað gagnrýninni á
bug. Um jólin var innflutningur á
lifandi kjúklingum frá Kína bannað-
ur og fyrirskipuð slátran á um millj-
ón fuglum. Fullyrt var í gær að
fjöldi fugla hefði sloppið og gengi
laus á Nýju svæðunum í Hong
Kong.
Með prófum á spendýrum á að
kanna hvort veiran, sem veldur
fuglaflensunni, hefur borist í aðrar
dýrategundir en lítið er vitað um
smitleiðir hennar. Þó er talið að hún
hafí boríst beint úr fuglum í menn
en vart manna á milli.
Aspen. Reuters.
MICHAEL Kennedy,
sonur Roberts Kenn-
edys, lést af völdum
meiðsla á höfði og
hálsi sem hann varð
fyrir í skíðaslysi á
gamlársdag.
Kennedy, sem var
39 ára, lést eftir að
hafa rennt sér á skíð-
um á tré í Aspen-fjöll-
um í Colorado. Hann
hafði verið þar í skíða-
ferð með fjölskyldu
sinni, m.a. þremur
börnum sínum.
Skíðamenn á staðn-
um sögðu að þegar
slysið varð hefði Kennedy verið að
leika „skíðabolta", íþrótt sem venja
er að stunda í Áspen-fjöllum á
gamlársdag. Þátttakendurnir kasta
þá á milli sín hlutum eins og bolta
meðan þeir renna sér.
„Hann var fær skíðamaður en
leikurinn sem þau vora í hefur lfk-
lega dregið athyglina frá skíða-
iðkuninni," sagði Will
Rodman, læknir á
sjúkrahúsi sem Kenn-
edy var fluttur á. Vinur
Kennedy-fjölskyldunnar
sagði að hún hefði verið
vörað við hættunni sem
stafar af leiknum.
Rodman sagði að fjöl-
skylda Kennedys hefði
gert árangurslausar
lífgunartilraunir á slys-
staðnum og síðan flutt
hann á tveimur sleðum
niður fjallið. Krufning
leiddi í ljós að Kennedy
lést af völdum áverka á
höfði og hálsi.
Clinton vottar fjölskyldunni
samúð sína
Líkið var flutt með flugvél til
Hyannis í Massachusetts. Bræður
Michaels Kennedys, Joseph og Ro-
bert F., voru í flugvélinni ásamt
Patrick Kennedy, syni Edwards
Kennedys öldungadeildarþings-
manns, sem tók á móti þeim á flug-
vellinum.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, var í áramótaveislu þegar
honum bárast tíðindin og gekk út
úr veislusalnum til að hringja í
Kennedy-fjölskylduna og votta
henni samúð sína.
Michael Kennedy fór fyrir góð-
gerðasamtökum sem sáu fátæku
fólki fyrir eldsneyti til kyndingar
og hann stjórnaði kosningabaráttu
Edwards Kennedys árið 1994.
Hann sætti mikilli gagnrýni á liðnu
ári vegna ásakana um að hann hefði
verið í tygjum við unga barnfóstra
fjölskyldunnar. Skömmu áður hafði
hann skilið við eiginkonu sína.
Michael var tíu ára þegar faðir
hans, Robert Kennedy öldunga-
deildarþingmaður, var myrtur á
kosningaferðalagi fyrir forseta-
kosningamar 1968. Robert og kona
hans, Ethel, eignuðust ellefu börn
og eitt þeirra, David, lést árið 1984
vegna of stórs skammts af kókaíni
og lyfjum.
Michael Kennedy
deyr af slysförum
Lenti á tré í skíðabrekku í Aspen í Colorado
Michael Kennedy
Kúrdar
flýja til
Italíu
RÚMLEGA 1000 manns,
þ.á m. Kúrdar frá Tyrklandi,
Iran og Irak, hafa komið sjó-
leiðis frá Tyrklandi til Ítalíu á
undanförnum dögum, og bár-
ust fregnir síðast í gærmorg-
unn af skipi sem var sagt hafa
lagt upp skammt frá Istanbúl
á leið til Ítalíu eða Grikklands
með um 300 manns innan-
borðs. Segja ítalir flóttafólldð
vera velkomið, því ekki væri
vafi á að Kúrdar væru ofsótt
þjóð. Þjóðverjar hafa hvatt til
þess að Italir stemmi stigu við
fólksstraumnum og Tyrkir
hafa boðist til að flytja flótta-
fólkið til baka.
Ahtisaari lof-
ar samstarf
MARTTI Ahtisaari Finnlands-
forseti sagði í áramótaávarpi
sínu að samskipti Finna og
Svía hafi aldrei verið jafn náin
og nú. Telst þetta vera óbein
gagnrýni á forsætisráðherra
ríkjanna, Paavo Lipponen og
Göran Persson, sem hafa verið
nokkuð harðorðir í garð hvors
annars á síðkastið. Ágreining-
ur hefur komið upp milli for-
sætisráðherranna um stækkun
Evrópusambandsins og fyrir-
hugað myntbandalag þess.
284 féllu í
Búrúndí
TALA þeirra sem féllu í árás
uppreisnarmanna hútúa nærri
flugvellinum í Bujumbura í
Búrúndí er nú komin í 284 að
því er hermálayfirvöld í land-
inu greindu frá í gær. Þeir sem
féllu voru flestir óbreyttir
borgarar og uppreisnarmenn.
Pol Pot sagð-
ur flúinn
POL POT, fyrrverandi leiðtogi
Rauðu khmeranna í Kambó-
díu, hefur flú-
ið frá landinu
og er kominn
til Kína, að
því er dag-
blöð þar
greindu frá í
gær. Var
hann sagður
hafa sloppið
úr stofufangelsi þar sem hann
beið hann þess að verða dreg-
inn fyrir rétt, ákærður um
glæpi gegn mannkyninu. Emb-
ættismenn í kínverska sendi-
ráðinu sögðu fregnir þess efnis
að Kínverjar hefðu aðstoðað
við flóttann tilhæfulausar og
að yfirleitt væri ekkert til í því
að Pol Pot væri i Kína.
Hundur
gleypti síma
EFTIR mikla leit að týndum
farsíma, sem hafði átt að vera
óvænt jólagjöf, reyndi eigand-
inn að hringja í símann og
heyrði þá daufa hringingu inn-
an úr belg sofandi hunds sam-
býlismanns síns. The Sun
greindi frá þessu í gær. Farið
var með hundinn til dýralækn-
is, sem lagði til að ekki yrði að-
hafst. Sólarhring síðar skilaði
síminn sér með náttúrulegum
hætti - í nothæfu ástandi.
W