Morgunblaðið - 03.01.1998, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
(Ibm-
tmkur
g| FORSETAFRÚIN Hillary
Rodham Clinton f kjól frá
Oscar de la Renta.
Wi JULIANNA Margulies úr þáttun-
um um Bráðamóttökuna f svört-
um kjól Oscars.
H CANDICE Bergen I silfurlituðum
kjól hönnuðarins.
Ð SJÓNVARPSKONAN Barbara
Walters í antík-grænum kjól
Oscars.
uður
ar. Oscar telst
einn af klassísku
tískuhönnuðun-
um og er vinsæll
meðal heldri
kvenna sem
kjósa glæsileika
umfram frum-
leika. Kjólar
Oscars de la
Renta þykja sér-
staklega kvenleg-
ir og gjaman skreyttir
á ýmsan hátt. Prátt
fyrir að Oscar sé helst
þekktur fyrir
iISKUKONGINN Oscar de la Renta
þarf vart að kynna enda á hann ára-
tuga feril að baki sem einn helsti hönn-
hátískunn-
TÍSKUKÓNGURINN
Oscar de Ia Renta.
glæsikjóla og viðhafnarfatnað er hönnun hans fjöl-
breytt. Hann hannar meðal annars ullardragtir,
silkináttföt og handmálaða kjóla svo eitthvað sé
nefnt. A myndunum má sjá að viðskiptavinahópur
hönnuðarins er fjölbreyttur og glæsilegur.
Hvernig er hægt að verjast geðsjúkdómum
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Það geta væntanlega
allir verið sammála um að betra
er að koma í veg fyrir geðsjúk-
dóma en að þurfa að lækna þá,
þegar þeir dynja yfir. Með því
má koma í veg fyrir miklar
mannlegar þjáningar og mér
kæmi ekki á óvart þótt mikið
mætti draga úr kostnaði við geð-
heilbrigðisþjónustuna, ef meiri
vinna væri lögð í fyrirbyggjandi
starf. Hverjar eru helstu aðferðir
til þess að koma í veg fyrir geð-
sjúkdóma?
Svar: Hin síðari ár hafa menn
gert sér betur og betur ljóst, að
forvamir geta komið í veg fyrir
að fólk fái suma sjúkdóma og
dregið úr öðram. Stöðugt meiri
þekking verður til um orsaldr
ýmissa sjúkdóma og hvaða ráð
era til að spoma við þeim. Við
vitum í dag um orsakatengslin á
milli reykinga og lungnakrabba,
og um tengsl mataræðis og
hreyfingar við hjartasjúkdóma.
Eftir því sem fólk verður upp-
lýstara um þessi tengsl má gera
ráð fyrir að það breyti venjum
sínum smátt og smátt í átt til
heilbrigðari lífshátta og eigi þá
von á lengra og betra lífi. Þetta
era nefndar fyrsta stigs forvam-
ir. Annars stigs forvamir era í
því fólgnar að greina sjúkdóma
strax í byrjun þeirra til þess að
hægt sé að grípa inn í áður en í
óefni er komið, og þar hefur t.d.
krabbameinsleitin hér á landi
skilað miklum árangri.
I geðsjúkdómum era orsaka-
tengslin ekki jafn ljós og þegar
um líkamlega sjúkdóma er að
ræða. Þó hefur safnast mikil og
traust þekking á því hvaða lífs-
skilyrði og lífshættir era líkleg-
astir til að skapa farsælt líf og
koma í veg fyrir geðræn einkenni
og suma geðsjúkdóma. Sérstak-
lega á þetta við um geðrænt
ástand sem ræðst að meira eða
minna leyti af ytri skilyrðum og
áhrifum í bemsku, sem síðar
geta valdið hugsýki og persónu-
leikatraflunum. Minna er vitað
um orsakavalda hinna alvarlegri
geðsjúkdóma, en þó er ljóst að
hafi einstaklingurinn hlotið heil-
brigt uppeldi og farsæla aðlögun
þegar þá sjúkdóma ber að garði,
er hann betur í stakk búinn til að
mæta þeim og vinna bug á þeim.
Rannsóknir era undirstaða
allra forvama og á sviði geð-
vemdar hafa rannsóknir í sál-
fræði og geðlæknisfræði vísað
veginn um það hvaða þætti skuli
helst leggja áherslu á. Þessari
þekkingu er síðan komið til skila
í menntun fagfólks og með al-
Forvarnir
menningsfræðslu. Mikilvægasti
vettvangur geðvemdar er
langoftast heimilið og fjölskyld-
an, og í þessum pistli gefst að-
eins rúm til að drepa lítillega á
þennan þátt. í foreldrahúsum er
lagður homsteinninn að farsælli
aðlögun einstaklingsins síðar
meir með því fyrst og fremst að
skapa honum tilfinningalegt ör-
yggi með nánum og varanlegum
tengslum við sína nánustu. Ast-
ríki og umönnun foreldranna
leggur granninn að aðlögun ein-
staklingsins alla ævi og skapar
þá sjálfsmynd og sjálfstraust
sem hverju bami er nauðsynleg.
Böm sem fara á mis við náin og
varanleg tengsl við foreldra sína,
og þau sem koma frá sundraðum
bernskuheimilum (t.d. vegna
skilnaðar foreldra), era í mun
meiri hættu að lenda í aðlögunar-
erfiðleikum og fá persónuleika-
traflanir síðar á ævinni.
Löngu er vitað að vistheimili
eða uppeldisstofnanir fyrir böm
era ekki heppilegar til að skapa
bami tilfinningalegt öryggi og
tengsl við aðra. Foreldraheimilið
er alltaf betri kostur að þessu
leyti, jafnvel þótt ytri aðbúnaður
kunni að vera lakari þar en á
stofnunum. Aður fyrr var meira
en nú lagt upp úr efnahag, hrein-
læti og ytri umgjörð heimilisins
þegar metnar vora uppeldisað-
stæður fyrir böm. Nú er lögð
höfuðáhersla á að bam alist upp
hjá foreldram sínum eða fóstur-
foreldram en hið opinbera reynir
fremur að veita þeim fjárstuðn-
ing og leiðsögn ef þess gerist
þörf. Uppeldisstofnanir heyra að
mestu leyti fortíðinni til.
Rannsóknir hafa sýnt að lang-
ur aðskilnaður lítils bams við
foreldra sína, t.d. vegna sjúkra-
húsvistar, getur traflað eðlilegan
tilfinningaþroska og jafnvel haft
varanleg áhrif á tilfinningalíf
þess. Þeir sem eldri era muna
það væntanlega að heimsóknir til
bama á sjúkrahúsum vora tak-
markaðar við eina klukkustund í
viku til þess að koma þeim ekki í
uppnám. Nú era foreldrar hvatt-
ir til að vera sem mest og lengst
með börnum sínum á sjúkrahúsi
og annast þau eftir því sem að-
stæður leyfa, til þess að börnin
haldi eðlilegum og varanlegum
tengslum við foreldra sína og líði
sem best.
I foreldrahúsum lærir barnið
vissar umgengnisvenjur og regl-
ur, lærir að taka tillit til annarra,
svarar hæfilegum kröfum og fær
tækifæri til að taka á sig ábyrgð í
samræmi við þær. En jafnvel í
heilbrigðum fjölskyldum koma
þó upp vandamál og árekstrar,
og það er mikilvægt að tekið sé á
þeim sem fyrst áður en þau fá að
grafa um sig. Stundum getur
fjölskyldan þurft að leita sér ut-
anaðkomandi ráðlegginga af
þessum sökum, og þá er mikil-
vægt að slík ráðgjafaþjónusta sé
aðgengileg og jafnsjálfsagt að
leita þangað eins og að fara með
bílinn í viðgerð. Fjölskylduráð-
gjöf er nú bæði rekin af opinber-
um og einkaaðilum og þangað er
leitað í vaxandi mæh. Fræðsla,
námskeið og jafnvel þjálfun í
uppeldi barna og samskiptum
innan fjölskyldunnar stendur nú
til boða, aðallega frá fagfólki sem
hefur sérhæft sig í fjölskylduráð-
gjöf.
%Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem þeim
liggur á þjarta. Tekið er á móti
spurningum á virkum döguni milli
klukkan 10 og 17 fsfma 569 1100 og
bréfum eða símbréfum merkt: Viku-
lok, Fax: 569 1222. Ennfremur
sfmbréf merkt: Gylfi Ásmundsson,
Fax: 560 1720.