Morgunblaðið - 03.01.1998, Side 32
32 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
...livað annað?
Opið
10-19 virka daga
10-16 virka daga
1^-17 sunnudaga
B.T.Tölwur
Grensásvegur 3 • Sími: 5885900 • Fax : 5885905
www.bttolvur.is • bttolvur@mmedla.is
DVD Encore Dxn
Frábært DVO drif með MPE6-1 korti og
tveimur frábænim leikjum. Ekkiklikkaá
þessari margmiðlunarbombu.
DVD myndir
MiKið úrval af toppmyndum
Sony Playstatio
Fullt af leikjumTvony Playstation
P( leikir
Mikið úrval af leikjum fyrir P(
Alfræði-
bók á
geisladisk
Vinsælasta alfræðibók
heims er gefín út á geisla-
disk og kallast Encarta.
Fyrir stuttu kom út ný út-
gáfa hennar, kallast
Encarta 98, og á henni er
meðal annars að fínna
30.000 greinar um ýmis efni.
FÁTT hentar betur íyrir geisladiskaútgáfu en al-
fræðibækur. Tölvutæknin gerir að verkum að
auðvelt er að fletta upp og leita í gögnum, aukin-
heldur sem hægt er að vista hljóð og hreyfímynd-
ir ef vill og þannig gefa ýtarlegri mynd af við-
fanginu en ef bara væri stuðst við prentað
mál.
Helsta alfræðibók heims er Britannica al-
fræðibókin, sem fá má í fjölmörgum stórum
bindum eða einum geisladisk. Reyndar ber
geisladisksútgáfan af Britannicu þess nokk-
uð merki að vera upphaflega sett saman
fyrir prentmiðil því hún er stirðbusalega
upp sett og fráleitt nógu lifandi. Þess í
stað hefur önnur alfræðibók ná forskoti
í tölvutæku formi, Encarta alfræðibók-
in frá Microsoft, sem kom út fyrir
skemmstu í fimmtu útgáfu og kallast
Encarta 98.
Hægt er að fá tvær útgáfur Enearta
98, venjulega útgáfu og svonefnda
Þrá vél-
menni
rafær?
Deluxe. í lúxuspakkanum eru þrír geisladiskar
og verulega aukið myndefni, en að auki fylgja
ýmis forrit, þar á meðal eitt til að auðvelda rann-
sóknir, ekki bara fyrir Encarta, heldur til að
sanka saman upplýsingum úr ýmsum áttum, slá
þær inn á eins konar gataspjöld og ná þannig að
halda utan um grind að ritgerð eða stærra verki.
Þann hugbúnað má setja beint inn á harðan disk
tölvunnar, en ekki alfræðibókina sjálfa sem
dregur nokkuð úr notagildi hennar. Reyndar ber
að geta þess að
Encarta 98 er
komin út á
DVD-disk
með ýmsum
Hálfur tíundi
klukkutimi af hljóði
I Encarta 98 Deluxe eru 30.000 greinar,
12.000 myndir og teikningar, 140 hreyfimynd-
skeið og 4.000 tónlistar og hljóðbútar, samtals
hálfur tíundi klukkutími af hljóði. Meðal kosta
er gagnvirkni, þ.e. til að mynda er hægt að velja
frasa og tölvan flytur hann á ýmsum tungumál-
um.
Margir kannast við Encarta 97, en til viðbótar
við aukið efni og uppfært eru leitarmöguleikar
Encarta 98 töluvert betri, því ekki er bara leita í
atriðisorðum, heldur leitar forritið í greinunum
sjálfum sem gefur nákvæmari leit þó hún sé fyr-
ir vikið á köflum full umfangsmikil.
Hægt er að fara sýndarferð og skoða ýmsar
furður í 360° skoðunarferð og þannig svipast um
í Höfðaborg, Tikal, París, musteri í Kathmandu
og Westminster kirkju, svo fátt eitt sé talið.
Til að tryggja að ávallt séu nýjustu upplýs-
ingar innan seilingar gefst notendum Encarta
kostur á að sækja mánaðarlegar uppfærslur á
heimslóð Microsoft. Einnig er þar að finna mik-
ið vefslóðasafn, alls 10.000 slóðir, en með í
pakkanum eru 5.000 slóðir.
Encarta stenst Britannieu ekki snúning sé
litið til lengri greina og fræðilegs bakgrunns,
en á móti kemur að hún hentar bráðvel fyinr
unglinga og böm, ekki síst í ljósi þess að inn-
byggður er leikur sem er til þess ætlaður að
hvetja börnin til að leita sér fróðleiks, en vitan-
lega þurfa þau að kunna ensku til að njóta
leiksins.
Hugbúnaðinn leiðir notandann í gegnum
uppsetningu á tölvu viðkomandi, en eins ekki er
hægt að setja hugbúnaðinn allan inn á harðan
disk tölvunnar og því þarf að skipta um diska ef
svo vill tU að að það sem leitað var að sé ekki á
disknum sem er í drifinu. Eins og áður getið
hefur Microsoft gefið út Encarta á DVD diski
og kemst þá allt alfræðiritið fyrir á einum
diski, en á sama disk er einnig að finna
Virtual Globe, sem er mikið landfræðirit,
og uppflettisafn Microsoft sem í eru
American Heritage orðabókin, tilvitn-
anasafn Columbia Bookshelf Premi-
r Web Search, sem byggir á leit á
400.000 völdum vefslóðum og svo
mætti telja.
stuttu kom út leikur byggð-
ur á myndinni að hluta og
ber hennar nafn.
✓
I kvikmyndinni Blade
Runner er þeirri spurningu
velt upp hvað það sé sem
geri okkur mennsk. Fyrir
LEIKIR
Blade Runner, leikur fyrir Windows
95 sem gerir kröfu um 90 MHz Penti-
um hið minnsta, með 16 Mb innra
minni, 2 MB hljóðkort sem styður
DirectX 5.0, fjögurra hraða geisla-
drif og 150 Mb rými á hörðum diski.
Westwood framleiðir.
MARGIR kannast við myndina
Blade Runner og sumir við bókina
sem myndin er byggð á, Do
Androids Dream of Electric Sheep
eftir Philip Kendred Dick. Undan-
farið hafa menn svo beðið með önd-
ina í hálsinum eftir leiknum Blade
Runner sem sækir innblástur í
myndina að nokkru.
Kvikmyndin er mögnuð, ekki síst
eftir að aulalegur endir var klipptur
aftan af henni og annar trúverðugri
settur við. Samnefndur leikur bygg-
ir þó ekki á myndinni nema hvað
stemmningu varðar og grunnþátt
söguþráðarins, þ.e. leikandinn er
lögreglumaður sem leita á að vél-
menni, eftir að hópur slíkra sleppur
til jarðar. Jörðin er drungalegur
staður þegar hér er komið, í nóvem-
ber 2019, alltaf rigningarsuddi og
sífellt lágskýjað sem hvort tevggja
er afleiðing kjarnorkustyrjaldar.
Eins og getið er er ætlunin að leita
uppi vélmenni og hefst þegar leik-
andinn, rannsóknarlögreglumaður-
inn Ray McCoy, er kallaður á stað
þar sem glæpur hefur verið fram-
inn. Grafíkin í leiknum vekur þegar
hrifningu og ekki minnkar hún þeg-
ar spyrst að ekki þarf að kaupa þrí-
víddarskjákort til að njóta hennar,
nóg er að hafa almennilegt hefð-
bundið skjákort, sem er vissulega
tilbreyting frá 3Dfx-leikjunum.
Eins og getið er er rannsóknar-
lögreglumaður aðalpersóna leiksins
og hægt að velja viðmót hans, allt
frá því að vera hvers manns hug-
ljúfi, og fá engu áorkað, eða að vera
hvumpinn og skapstyggur, sem gef-
ur bestan árangur. Vélmennin finn-
ast með því að kanna vísbendingar
og hægt að fletta ýmsu upp í tölvu
lögreglunnar, en þess ber að geta
að um leið og leikandinn er að leita
að vélmennum eru aðrir lögreglu-
menn líka að leita og því má segja
að leitin sé kapp við tímann. Til að
koma í veg fyrir að keppinautarnir
nái að njóta ávaxta erfiðis manns, er
þó hægt að fara í verslun eina
skammt frá fátækrahverfi borgar-
innar og fá þar breytt vasatölvu
sem vistar vísbendingar. Þannig er
hægt að sækja gögn hinna í móður-
tölvuna án þess að láta eigin vís-
bendingar af hendi. Leikurinn er
reyndai’ upp fullur með slíkum
skemmtilegum smáatriðum.
Vélmennaleitin er aðalatriðið og
iðulega þarf að gera Voigt-Kampff-
próf á grunuðum til að ganga úr
skugga um hvort þeir séu af holdi
og blóði. Þegar vélmenni er fundið
er síðan spurningin hvað á að gera,
eyðileggja það á staðnum eða láta
sem ekkert sé en sú ákvörðun hefur
mikil áhrif á framvinduna og í raun
gæti eins komið í ljós að Ray
McCoy sé vélmenni sjálfur. Einnig
skiptir máli að skjóta ekki saklausa
vegfarendur, því ef upp kemst
verður viðkomandi handtekinn og
þátttöku hans í leiknum þar með
lokið.
Til að eigendur hafi nennu til að
leika leikinn oftar en einu sinni
bryddar framleiðandinn upp á því
að láta hlutverkaskipan breytast í
hvert sinn sem hann er endurræst-
ur, þ.e. vélmennin eru ekki sömu
fígúrur og í fyrri skiptin, en einnig
er endir leiksins mismunandi eftir
framvindunni.
Þó enn séu menn að fjarlægjast
upphaflega spurningu Philips K.
Dicks, hvað geri okkur mennsk, er
hún nálæg í leiknum, en það fer
reyndar nokkuð eftir vilja þess sem
leikur; hann getur látið sem ekkert
sé, skotið eins og hann eigi lífið að
leysa og fengið medalíu í lokin, eða
farið að fá samúð með vélmennun- |
um sem kjósa það eitt að fá að „lifa“
sín fjögur ár innan um fólk. Þetta
gefur leiknum dýpt og þegar við
bætist skemmtileg grafík, hæfilega
þungar þrautir og frábær sögu-
þráður er Blade Runner eigulegur í
meira lagi.
Árni Matthíasson