Morgunblaðið - 03.01.1998, Page 68
(58 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Vinaleg
drottning
hryllings-
mynda
► COURTENEY Cox vakti fyrst at-
hygli árið 1984 þegar hún dansaði við
sjálfan Bruce Springsteen í myndband-
inu við lagið „Dancing in the Dark“
sem komst á toppinn það ár. Það var
Jeikstjórinn Brian De Palma sem valdi
Courteney úr stórum hópi umsækjenda og í
kjölfarið fékk hún hlutverk í sjónvarps-
myndum. Hún lék kærustu Michael J. Fox í
þáttunum „Family Ties“ og lék á móti Jim
Carrey í myndinni „Ace Ventura" svo eitt-
hvað sé nefnt. Það var hins vegar fyrir
rúmum þremur árum að hún fékk hlutverk
í nýjum þáttum um sex hressa vini að
stjarna hennar fór að skína skærar. Cour-
teney var sú eina af sexmenningunum í
„Friends" sem var þekkt andlit en að sögn
Lisu Kudrow, sem leikur Phoebe, var hún
aldrei með stjörnustæla og small inn í
hópinn. Það var svo á síðasta ári að vin-
irnir í „Friends" fóru að sjást á hvíta
tjaldinu við misjafnar undirtektir. Cour-
tenev lék fyrst í lítt þekktri mynd
ijConiinandnients" en þar á eftir birtist
hún sem fréttakonan ákafa í hryllings-
myndinni „Scream" sem sló óvænt í gegn.
Núna í desember var svo frumsýnd fram-
haidsmyndin „Scream 2“ en persóna Cour-
teney var ein fjögurra aðalleikaranna sem
lifðu af fyrri myndina.
Courteney Cox fæddist 15. júní 1964 í
Alabama og á að baki næstum fimmtán ára
feril sem fyrirsæta og leikkona. Hún hitti
leikarann Michael Keaton árið 1989 og var í
sambúð með honum þar til fyrir tveimur ár-
>im og segist enn vera að jafna sig eftir
skilnaðinn. Hún hefur verið orðuð við mót-
leikara sína, þar á meðal Liev Scrieber úr
„Scream 2“, en sjálf segir hún þau einungis
vera góða vini. Aðdáendur leikkonunnar
geta fylgst með Courteney Cox og vinum
hennar í „Friends" á laugardagskvöldum á
Stöð 2.
COURTENEY Cox er hvekkt eftir tvær vinsæl-
ar hryllingsmyndir á tveimur árum og horfir
ekki á blóðugu atriðin í „Scream“-myndunum.
FOLK I FRETTUM
Söluhæsta tónlist í
Bandaríkjunum 1997
i
iSí
DANSSKÓLI
STVALDSSONAB
aldrinum 10-25 ára
kemur hinn frábæri
Amir El Falaki með
allt bað nviasta í dag.
Þessi ótrúlegi dansari
verður með námskeið
í janúar.
Það fyrsta hefst 7. janúar!
Námskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna í
alnraennum dönsum hefjast 12. janúar.
Innritunarsíminn er 552 0345
kl. 13.
Sæti Diskur / plata / spóla Tónlistarmenn Seld eintök
1. Spice Spice Girls 5,3 milljónir
2. Pieces of You Jewel 4,3 milljónir
3. No Way Out Puff Daddy 3,4 milljónir
4. Sevens Garth Brooks 3,4 milljónir
5 Middle of Nowhere Hanson 3,2 miiljónir
I 6. Life flfter Death Notorious B.I.G. 3,2 milljónir
4 7- Bringing Down The Horse Wallflowers 3,1 milljón
8. Falling Into You Celíne Dion 3,0 milljónir
9. Space Jam (úr kvikmynd) 2,9 milijónir
10. ■f You Light Up My Life LeAnn Rimes 2,9 milljónir
SPICE Girls prýða forsíðu
nýjasta tölublaðs Vogue.
Kryddpíur vinsælar vestanhafs
SÖNGVARINN Garth Brooks er fyrstur tónlistar-
manna til að tróna fimm vikur í röð í efsta sæti banda-
ríska vinsældalistans síðan No Doubt sló í gegn í árs-
byrjun 1997.
Nýjasta skífa hans „Sevens" seldist í tæplega 700
þúsund eintökum í síðustu viku. Hann er ekki sá eini
sem heldur velli því sldfurnar „Let’s Talk About Love“
með Celine Dion, „Higher Love“ með Barbra Streisand
og „You Light Up My Life“ með LeAnn Rimes hafa
einnig verið í fjórum efstu sætunum undanfarnar fjórar
vikur.
Þegar litið er yflr árið þarf fáum að koma á óvart að
kryddpíumar í Spice Girls eiga söluhæstu tónlist í Banda-
ríkjunmn árið 1997. Nýjasta skífa þeirra „Spice“ hefur selst
í 5,3 milljónum eintaka eða milljón fleiri eintökum en næsta
skífa sem nefhist „Pieces of You“ með Jewel.
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ► 21.00 Það er Harold Ramis
sem leikstýrir myndinni Með fjöl-
skylduna á heilanum - (Stuai't Saves
His Family, ‘95), og er ein ástæðan
fyrir því að hún er forvitnileg þrátt
fyrir að hafa mislukkast gjörsam-
lega hvað aðsókn snerti á sínum
tíma. Ramis á margar góðar myndir
að baki sem handritshöfundur,
(Ghostbusters, N.L. Animal House)
og sem leikstjóri smellsins Ground-
hog Day, (‘93). Stuart (AI Franken)
er vinsæll sjónvarpsmaður sem á í
vandræðum í fjölskyldulífmu og
með Bakkus. Franken ætti að vera
kunnugur hlutverkinu þvi hann er
einn af fastamönnum sjónvarpsþátt-
anna góðkunnu, Saturday Night Li-
fe. Þetta er frumsýning myndarinnar
hérlendis, sem er sögð í svipaða ,
gráglettna dúmum og þættimir.
Agætir aukaleikarar koma við
sögu einsog Harris Yulin,
Shirley Knight, Vincent
D'onofrio og Laura San Gi-
acomo. IMDb gefur 6,5,
Gleiberman hjá Entertain-
ment Weekly C+, en Roger
Eberf-iHHF
Sýn ► 21.00 Kossinn - (CrazyFor
a Kiss, ‘95) er sjónvarpsmynd sem
frumsynd er hérlendis í kvöld. Um
hana er ekki margt vitað. Leikstjór-
inn, Chris Bould, vann þó til verð-
launa á kvikmyndahátíðmni í Berlín
1995 fyrir barnamyndina Jói vinur
minn, með John Cleese. Þá má
gjarnan benda lesendum á að Bud
Cort stingur hér upp kollinum í
hlutverki Salina læknis. Cort gerði
nafn sitt ódauðlegt með makalaus-
um leik í öðra aðalhlutverki „cult-“
myndarinnar um Harold and
Maude.
Sjónvarpið ► 22.20 Enn ein frum-
sýning kvöldsins. Að þessu sinni á
glænýrri mynd, Lituð réttvísi -
(The Color of Justice), en hún birt-
ist fyrst á skjánum í september síð-
astliðnum. Efnið er athyglisvert;
Fjórir ungir blökkudrengir stela
bíl með þeim afleiðingum að þeir
verða mannsbanar í ógáti. Síðan
gerist atburðarásin innan veggja
réttarsalanna þar sem sitt sýnist
hverjum. Leikaravalið er forvitni-
legt. F. Murray Abrahams leikur
dómarann, Bruce Davison,
Gregory Hines, Judd Hirsch og
fleiri góðkunnir leikarar koma
einnig við sögu. Leikstjórinn, Jer-
emy Kagan, vekur líka áhuga, hann
gerði nokki-ar þokkalegar kvik-
myndir fyrir hvíta tjaldið fyrir
röskum áratug, þ.á m. The Chosen,
The Sting II og Disneymyndina
frábæru The Journey of Natty
Gann. Síðan sneri hann aftur til
sjónvarpsins og hlaut Emmy verð-
launin fyrir leikstjórn þáttanna um
Chicago Hope 1994.
Stöð 2 ► 22.40 Stjörnurnar Alec
Baldwin og Demi Moore skína að
öllu jöfnu, en því miður eiga allir
vondan dag í Kviðdómandanum -
(The Juror, ‘96). Moore (það storm-
ar af henni í G.I. Jane) leikur einn
kviðdómenda í réttarhöldum í máli
tengdu Mafíunni. Baldwin leikur
hálan skrattakoll sem beitir öllum
brögðum til að hafa áhrif á hana.
Bragðdauft. ★★
Stöð 2 ► 0.40 Leikkonan snjalla,
Jodie Foster, fær tækifæri til að
taka á honum stóra sínum í myndi-
unni Nell, (‘94), og hún fer sannar-
lega hamfómm í hlutverki stúlku
sem elst upp í óbyggðum Norður-
Karolínufylkis og skilur aðeins sitt
eigið tákn- og tungumál. Verður
rannsóknarefni tveggja málvísinda-
manna (Liam Neeson og Natsha
Richardson), sem komast á spor
hennai'. Myndin virkar fjári yfir-
borðskennd við aðra skoðun og hin
reynda Foster tekur svona glans-
hlutverk í nefið svo frammistaðan
segir ekkert markvert um hæfíleika
hennar. Leikstjórnin er ekki af verri
endanum í höndum Michaels Apted
- sem hefur oft gert betur. ★★!4
Stöð 2 ► 2.30 Besta mynd kvöldsins
er að öllum lítóndum súperharð-
hausamyndin Sannar Lygar - (True
Lies, ‘94), ★★★, með hinni einu,
sönnu hetju slíkra mynda, Amold
Schwarzenegger. Illyrmið í lítið
síðri höndum Arts Malik. Við stjórn-
völinn enginn annar en guðfaðir
þessa geira kvikmyndanna, sjálfur
James Cameron. Það er einmitt ver-
ið að sýna nýjustu skrautfjöðrina í
hans hatti, Titanic, í bíóum borgar-
innar. Hér blandar hann saman
rómantík og ofurhasar á gamansam-
an hátt. Það ætti engum að leiðast.
Sæbjörn Valdimarsson
Frá og með I. janúar 1998 tekur
HEKLA að sér einkaumboð á íslandi
fyrir framleiðanda Skodabifreiða.
Frá 2. janúar 1998 mun HEKLA panta
alla varahluti í sömu bifreiðar. Aætlað
er að fyrstu Skodabifreiðarnar komi
til HEKLU á vormánuðum 1998.
f Oa>
TQr
Volkswagen Group
HEKLA