Morgunblaðið - 03.01.1998, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 69
í gönguferð með Sigurbirni biskup á aðfangadag
FÓLK í FRÉTTUM
Fáir vænir fiskar úr torfunni
SIGURBJÖRN Einarsson biskup
hefur löngum haft það fyrir sið að
fara í göngutúr með börnum sín-
um að morgni aðfangadags. Hann
tók fyrst upp á þessum sið með
bömum sínum en síðan hafa
barnabörn og „langömmuböm"
tekið við.
Þegar blaðamaður leit í heim-
sókn til Sigurbjörns og Magneu
Þorkelsdóttur, eiginkonu hans, að
morgni aðfangadags var hann ný-
kominn úr gönguferð með
nokkrum af langömmubömum
sínum sem sátu útitekin og prúð
við borðstofuborðið og þáðu veit-
ingar. „Þetta eru fáir vænir fiskar
úr torfunni og alveg tilviljun hvað
kom upp á öngulinn hjá mér,“
sagði Sigurbjörn og brosti góðlát-
lega.
Hann hefur líka ástæðu til þess
því hann er barnmargur maður.
Þau Magnea eiga 8 böm, 21
bamabam og 22 langömmuböm.
Blaðamaður lítur yfir hópinn og
honum verður á að spyrja hvort
þau séu búin að ákveða hvað þau
ætli að gefa langafa í jólagjöf. Það
færíst leyndardómsfullur svipur
yfir barnsandlitin og Sigurbjöm
flýtir sér að segja: „Hann er nú af-
skrifaður á því sviði. Þótt ég vilji
nú ekki flokka mig með jólasvein-
unum fá þeir víst engar gjafu'.“
En hvað tekur við að lokinni
gönguferðinni á aðfangadag? „Það
veit maður aldrei - óðar en líð-
ur,“ svarar Sigurbjörn. „Við verð-
um heima í ró og næði í dag og á
morgun fáum við fjölskylduna í
heimsókn. Það verða aðeins 40 til
50 manns að þessu sinni. Það em
svo margir fjarverandi - búsettir
erlendis."
„Við fórum á aftansöng klukkan
sex og í kvöld förum við á mið-
næturmessu. Það eru fastir liðir,“
segir Magnea. „Að öðru leyti sitj-
um við hér, horfum hvort á annað
og þykjumst hafa gott af því enn,“
segir Sigurbjörn. Aðspurður segir
hann að synir þeirra, Karl og Arni
Bergur, verði báðir með aftan-
söng klukkan sex. Hann lítur á
Magneu og segir kankvíslega:
„Kannski skiptum við okkur.“
Morgunblaðið/Golli
VÉDÍS Pálsdóttir, 7 ára, Sigurbjöm Einarsson biskup, Guðbjartur Há-
konarson, 3 ára, Guðrún Mist Sigfusdóttir, 11 ára, Steinunn Vala Páls-
dóttir, 5 ára, Þorkell Helgi Sigfússon, 9 ára, og Álfríín Pálsdóttir, 14 ára.
Pappírs
áramót í
New York
► HUNDRUÐ þúsunda fögnuðu
nýju ári á Time Square í New
York og var mikið um dýrðir.
Ríflega 1.500 kflóum af mislitum
pappír var varpað úr byggingum
sem standa við torgið þegar
klukkan sló tólf á miðnætti.
Innbiáts-,
öryggis- og
brunakerfi
ELFA-GRIPO
ein mest seldu öryggiskerfin
í Evrópu.
Samþykkt af viðurkenndum
prófunarstofnunum og
fjarskiptaeftirliti ríkisins.
Mjög hagstætt verð.
Kapalkerfi frá kr. 13.410 stgr.
Þráðlaus frá kr. 19.890 stgr.
Úrval aukahluta:
Reykskynjarar, sírenur,
símhringibúnaður, fjarstillingar.
Ódýr og örugg heimilisvernd.
Tæknileg ráðgjöf - auðvelt í
uppsetningu.
MSMS Einar
SSS" Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 • Sfmar 562 2901 og 562 2900
„HEYRÐU GÓÐI,
TAKTU NÚ SJÁLFAN
ÞIG TAKI“
Hrokafull gömul frænka. Lætur fólk hafa það óþvegið. Reykir ekki
Við vitum hvað er erfitt að hætta að reykja
Fólk sem aldrei hefur reykt á ekki gott með að skilja hve
þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem
hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar
sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda
oft að það að hætta sé einungis spuming um að taka sjálfan
sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja
hefur ekki bara með viljastyrk að gera.
Til er eðlileg skýring á því af hverju erfitt er að h<etta
Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil
fráhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins
sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með
sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk.
Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf
líkamans á nikótíni smám saman og komast þannig yfir
erfiðustu vikumar eítir að reykingum er hætt.
Að minnka þörfina er lcið til að hætta
Nikótínlyf innihalda nikótín í ákveðnum
skömmtum sem nægja til þess að minnka
nikótínþörfina og þú ert laus við tjöm og
kolmónoxíð úr sígarettureýknum. Nikótín er ekki krabba-
meinsvaldandi efni og þú munt ekki verða háður nikótíni
með því að nota nikótínlyf; sem reykingamaður ert þú
þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf vom þróuð til
að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta
að reykja.
Að ná árangri
Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi
með því að nota Nicorette®, leiðandi vömmerki um allan
heim fyrir nikótínlyf, allt ffá því Nicorette® nikótíntyggi-
gúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett.
Mismunandi einstaklingar, mismunandi þarfir, mis-
munandi leiðir til að hætta
I dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggi-
gúmmí, forðaplástur og innsogslyf án lyf-
seðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað
_ _ viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú
ákveður að hætta að reykja.
3SSSS
NICDRETTE’
NICORETTE
Við stöndum meðþér
Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem í er sett rör sem inniheldur nikótfn. Nicorette® innsogslyf er ætlaö til aö auövelda fólki aö hætta aö reykja.
Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag í a.m.k. 3 mánuöi og venjulega ekki lengur en 6 mánuöi. Nicorette® innsogslyf getur valdiö
aukaverkunum eins og hósta, ertingu í munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviöi, ógleöi, hiksti, uppköst, óþægindi I hálsi, nefstífla og blöörur í munni geta einnig komiö
fram. Viö samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og viö reykingar, veriö aukin hætta á blóötappa. Nikótín getur valdiö bráöum eitrunum hjá börnum og
er efniö því alls ekki ætlaö börnum yngri en 15 ára nema í samráöi viö lækni. Gæta skal varúöar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Þungaöar konur og
konur meö barn á brjósti ættu ekki að nota lyfiö nema í samráöi viö laekni.
Lesiö vandlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakknlngu lyfsins.
Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær.
Söluumboð Akureyri: L/ósgj'afinn