Morgunblaðið - 24.02.1998, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gravediggaz
og Prodigy
til Islands
PRODIGY og Gravediggaz
verða báðar með tónleika hér-
lendis í mars. Rappsveitin Gra-
vediggaz verður með tónleika í
Fylkishöllinni 7. mars og dans-
sveitin Prodigy verður í Laug-
ardalshöll 28. mars.
Nod Ya Head Crew og
Subterranean hita upp
Að sögn Þorsteins Kragh,
hljómleikahaldara, sem rekur
fyrirtækið Motion Promotion,
munu íslensku sveitimar Nod
Ya Head Crew og Subterran-
ean hita upp fyrir Gravediggaz.
Hann segir að miðaverð verði
2.300 krónur og að ekki verði
seldir fleiri miðar en tvö þús-
und.
Danssveitin Prodigy, sem
treður upp í Laugardalshöll 28.
mars, hefur haldið tónleika
hérlendis þrisvar áður. Hún
fyllti Laugardalshöllina tvisvar
og tróð einnig upp á útihátíð-
inni Uxa á Kirkjubæjar-
klaustri. Miðasala hefst í
næstu viku, en ekki fékkst
uppgefið hvað miðaverðið
verður hátt.
Ingvar Þórðarson, sem áður
hefur staðið fyrir komu
Prodigy hingað til lands, segir
að vegna vinsælda hljómsveit-
arinnar hafi reynst mun tor-
sóttara af fá hana hingað að
þessu sinni og kostnaður því
mun meiri. Hann segir ekki
fara milli mála að vinsældir
Prodigy í Bandaríkjunum und-
anfarna mánuði hafi skipað
hljómsveitinni á stall með dýr-
ustu tónleikahljómsveitum sem
hingað hafi komið.
■ Gravediggaz/56
PSlSllf
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
RENNSLIÐ í Skeiðará fer dagvaxandi og mun ná hámarki eftir nokkra daga að sögn vatnamælingamanna.
Hlaupið í Skeiðará hef-
ur ekki náð hámarki
Hnappavöllum. Morgunblaðið.
HAEIÐ er hlaup í Skeiðará en ekki
er búist við stóru hlaupi í þetta sinn
þar sem lítið vatn er í Grímsvötnum
að sögn vísindamanna. Rennsli í ánni
síðdegis í gær var 575 rúmmetrar á
sekúndu og segir Ásgeir Gunnarsson
vatnamælingamaður að hlaupið eigi
nokkra daga í að ná hámarki.
Vatnamælingamenn mældu hlaup-
ið síðast sl. miðvikudag og var
rennslið þá 150 rúmmetrar á sek-
úndu. Ásgeir sagði að vatnamæl-
ingamenn spáðu því að rúmlega
hálfur rúmkílómetri af jökulvatni
kæmi niður í þessu hlaupi. Ásgeir
sagði að ekkert hlaupvatn væri í
Gígjukvísl. Hann sagði að flest benti
til að hlaupið færi eingöngu í Skeið-
ará. Menn hefðu þó ekki útilokað að
eitthvað færi í Gígjukvísl.
Vegagerðarmenn vinna nú af
kappi við að byggja nýja brú á
Gígjukvísl. Nú er notast við bráða-
birgðabrúna á Gígjukvísl og er þess
tæplega að vænta að hún standi af
sér stórt hlaup. Myndin var tekin sl.
sunnudag.
Hitasótt breiðist út meðal hrossa á höfuðborgarsvæðinu
Allir hestaflutn-
ingar verði
stöðvaðir
VEGNA hitasóttar sem hefur
stungið sér niður í fjölda hrossa á
höfuðborgarsvæðinu og víðar beinir
yfirdýralæknir þeim tilmælum til
hestafólks að allir flutningar hesta
milli hesthúsa, hesthúsahverfa og
landshluta verði stöðvaðir. Auk
þess er mælst til þess að hvers kon-
ar hestasamkomum verði frestað
og hestafólk hvatt til þess að hirða
hesta sína sjálft og bíða með allar
heimsóknir eða starfsemi þar sem
farið er milli hesthúsa.
Veikin lýsir sér einkum í háum
hita og lystarleysi og að sögn
Steins Steinssonar, héraðsdýra-
læknis í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, getur hitinn farið allt upp í 42
stig. Hann segir að hrossin verði
slöpp og lystarlaus, en eftir með-
höndlun dýralækna virðist þau ná
sér furðufljótt, eða á fimm til sjö
dögum.
Enn er ekki Ijóst hvað veldur
veikinni en blóðsýni eru í rannsókn
og er niðurstaðna þeirra að vænta
eftir nokkra daga. „Mig er farið að
gruna að þama geti verið vírus á
ferðinni,“ segir Steinn og ítrekar að
mikilvægt sé að sem minnstur um-
gangur verði á milli hesthúsa, hvort
heldur er umgangur manna, hesta
eða hunda. „Þeir eru jú allstaðar
snuðrandi í öllu og gætu hæglega
borið smit.“
Veikum hestum eru gefin hita-
lækkandi lyf og jafnvel fúkkalyf, en
Steinn segir að sé þetta veirusýk-
ing virki fúkkalyfin ekki á veiruna,
heldur á bakteríur sem komi í kjöl-
far hennar. Spurður um hvað
hestaeigendur geti gert til þess að
gera hestum sínum lífið bærilegra
meðan þeir eru veikir af hitasótt-
inni segir hann að hestunum verði
að halda inni og ekki megi gefa
þeim of mikið fóður, enda hafi þeir
yfírleitt ekki lyst á því.
Læra að skjóta og
keyra skriðdreka
TVEIR fslenskir læknar og tveir
hjúkrunarfræðingar eru nú í
Ijögurra vikna þjálfun hjá
breska hernum. Hópurinn fer til
starfa f Bosnfu um miðjan mars
og segir Gréta Gunnarsdóttir, á
alþjóðaskrifstofu utanrfkisráðu-
neytisins, fólkið ekki vera í
þjálfun til mannúðarstarfa held-
ur friðargæslustarfa. Það komi
því til með að sinna breskum
hermönnum en ekki almennum
borgurum nema í bráðatilfell-
um.
Hildur Helgadóttir, annar
hjúkrunarfræðinganna, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
þjálfunin miðaði bæði að þvf að
aðlaga þau að herlífi og að búa
þau undir þær kröfur sem
gerðar yrðu til þeirra í Bosnfu.
Þeim hefði t.d. verið kennt að
skjóta af byssum þó ekki yrði
ætlast til þess að þau beittu
skotvopnum. „Við þurfum að
kunna að fara með skotvopn
þannig að við getum gert þau
óvirk þegar við fáum vopnaða
hermenn til aðhlynningar,"
segir hún.
Næstum gengin í herinn
Einnig hafa þau fengið þjálf-
un í að keyra farartæki hersins
og til stendur að þau læri að
keyra skriðdreka á æfingum
með NATO í vikunni.
Hildur segir fjórmenningana
ekki hafa haft hugmynd um
hvað þeir væru að fara út í þeg-
ar þeir héldu til Englands. Sjálf
hafi hún átt von á meira harð-
ræði, en þar sem þau séu með
liðsforingjatign búi þau í besta
yfirlæti. „Það er þó óneitanlega
skrýtið að vera næstum gengin í
herinn,“ segir hún. „Það gerir
mann mjög hugsandi að
þramma um á hermannakloss-
um, með gasgrfmu f beltinu og
kannski var eins gott að þetta
kom allt saman f smáskömmt-
um.“
Hún segir allt hafa gengið
nyög vel. íslendingarnir séu all-
ir í þessu á svipuðum forsendum
og hafí haft stuðning hver af
öðrum.
Þetta er annar hópurinn sem
fer til Bretlands á vegum utan-
ríkisráðuneytisins. Fjórar ís-
lenskar konur, sem nú eru
starfandi í Bosníu, voru einnig
þjálfaðar í Bretlandi. Fastlega
er gert ráð fyrir því að íslend-
ingar haldi áfram þátttöku
sinni í friðargæslunni með þess-
um hætti.
Fjórir
viðurkenna
hrað-
bankaránið
FJÓRIR menn sem hafa ver-
ið í haldi lögreglu að undan-
fórnu vegna ráns á hraðbanka
í lok seinasta mánaðar hafa
allir játað á sig aðild að
verknaðinum og telst ránið að
fullu upplýst. Búið er að láta
þrjá þeirra lausa en sá fjórði
afplánar nú fangelsisvist
vegna eldra máls.
Mennirnir fjarlægðu í heilu
lagi hraðbanka úr anddyri
Kennaraháskólans og upp-
götvaðist hvarf hans snemma
laugardagsmorguninn 31. jan-
úar síðastliðinn. Fljótlega
voru tveir menn handteknir
og var annar þeirra sá sem
hafði seinastur notað greiðslu-
kort sitt til að komast inn í
anddyri skólans. Hinum var
sleppt eftir yfírheyrslur.
Verðmæti á
sjöttu milljón
Að kvöldi þess dags sem
ránið uppgötvaðist, fannst
hraðbankinn í sendiferðabíl
sem hafði verið lagt í Hlíða-
hverfi og hafði þjófunum mis-
tekist að opna bankann og
taka úr honum það fé sem í
honum var geymt. Talið er að
verðmæti bankans og þess
sem í honum var nemi á
sjöttu milljón króna.
I kjölfar þessa voru tveir
menn til viðbótar handteknir
og settir í gæsluvarðhald og
skömmu seinna mennirnir
tveir sem handteknir voru
sama dag og ránið uppgötv-
aðist. Þeir hafa allir gengist
við aðild að ráninu og telst
málið að fullu upplýst sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Tyrkneska konan
þiggnr boð utanrflc-
isráðuneytisins
Afar þakklát
fyrir við-
brögðin
TYRKNESKA konan sem ut-
anríkisráðuneytið hefur boðið
að flytjast hingað til lands af
mannúðarástæðum með ung-
an son sinn hefur þegið boðið.
Utanríkisráðuneytinu barst í
gær símbréf frá konunni, þar
sem hún kveðst afar þakklát
fyrir viðbrögðin og þiggur að-
stoðina.
Að sögn Stefáns Hauks Jó-
hannessonar, skrifstofustjóra
í utanríkisráðuneytinu, er
undirbúningur að móttöku
mæðginanna þegar hafinn.
Ráðuneytið mun koma far-
seðlum til þeirra á næstu dög-
um en Rauði kross íslands
mun taka á móti þeim, skjóta
yfir þau skjólshúsi og aðstoða
þau við að aðlagast íslensku
umhverfi.
Konan lýsti bágum aðstæð-
um sínum í bréfi til Morgun-
blaðsins fyrir skömmu og eft-
ir að frétt þessa efnis birtist í
blaðinu sendi ráðuneytið
henni bréf og bauð fram að-
stoð sína. Konan er einstæð
móðir en barnsfaðir hennar
er íslenskur ríkisborgari.
Mæðginin eiga undir högg að
sækja í Tyrklandi, þar sem
þau eru undir miklum samfé-
lagslegum og trúarlegum
þrýstingi, að því er fram
kemur í bréfi hennar til
blaðsins.