Morgunblaðið - 24.02.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 21
ERLENT
Viðræður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna við ráðamenn í Bagdad
Niðurstaðan sögð styrkja
stöðu Saddams Husseins
Bagdad, Kuweit, London. Reuters.
ÞÓTT ríkisstjórnir vestrænna ríkja
muni vísa því á bug, bendir flest til
að Saddam Hussein íraksforseti
komi til með að standa uppi sem sá
sem hagnast mest á friðsamlegri
lausn deilunnar um vopnaeftirlit Sa-
meinuðu þjóðanna í landi hans. Þetta
er að minnsta kosti mat frétta-
skýrenda í Miðausturlöndum.
Að þeirra mati er fjarri því að hin
háværa og langvinna deila hafi graf-
ið undan einræðisherranum eins og
menn á Vesturlöndum höfðu bundið
vonir við. Þvert á móti þykir hætt við
því að þegar upp verður staðið hafi
Saddam tekizt að styi'kja tök sín á
valdataumunum innanlands og stöðu
sína almennt gagnvart nágrannaríkj-
unum.
Arásarhættu bægt frá
Honum hefur sennilega tekizt að
bægja hættu á hernaðarárás undir
forystu Bandaríkjamanna frá ríki
sínu í annað sinn á ijórum mánuðum,
auk þess að tvísti'a einingu alþjóða-
samfélagsins og að bæta tengsl
Iraks við sum nágrannan'ki. Enn-
fremur þykir trúlegt að honum hafí
tekizt að þoka málum nær því að
refsiaðgerðunum sem landið hefur
verið beitt í nafni SÞ verði aflétt, ef
öryggisráðið tekur þeirri niðurstöðu
vel sem Kofi Annan, framkvæmda-
stjóra samtakanna, tókst að semja
um í viðræðum sínum við íraska
ráðamenn í Bagdad um helgina, sem
lyktaði með undirritun samkomulags
í gærmorgun.
Annan átti þriggja klukkustunda
langan fund með Saddam Hussein
seint á sunnudag, en áður hafði
framkvæmdastjórinn setið á rökstól-
um við Taiæq Aziz, utanríkisráð-
heiTa Iraks, í þrjá daga. Öll helztu
málin, sem samkomulag þurfti að
nást um, tókst að leysa í viðræðum
þeirra Annans og Aziz, að undan-
skildu því sem mestur ágreiningur
stóð um: Kröfu Iraka um að vopna-
efth'litsmönnum verði sett ákveðin
tímamörk til að stunda leit í bygg-
ingum forsetans.
Athygli vakti að ekki var laust við
að Annan hældi hinum umdeilda
íraksleiðtoga á blaðamannafundi í
gærmorgun.
„Forsetinn var mjög vel upplýstur
og hafði fulla yfirsýn yfir staðreynd-
ir málsins. Ég var honum þakklátur
fyrir að við skyldum eiga hreinskiln-
ar og uppbyggilegar viðræður og að
lokum staðráðnir í að leysa þessa
deilu með samningum,“ sagði Annan.
í mótsögn við ímynd Saddams á
Vesturlöndum sem miskunnarlauss
einræðisheiTa sagðist Annan hafa
átt við hann „mjög, mjög vinsamleg-
ar“ viðræður.
Afnám viðskiptabanns í nánd?
Opinberlega vék Annan ekki orði
að því hvort afnám viðskiptabanns-
ins á írak hefði færzt nær eða ekki,
en hann vakti athygli á kvörtun
Iraka undan því að ekki hefði verið
létt neitt á viðskiptabanninu þrátt
fyrir alla þá afvopnun sem átt hefði
sér stað síðastliðin sjö ár.
Robin Cook, utanríkisráðhen-a
Bretlands, sagði á sunnudag að hann
teldi - ólíkt Bandaríkjamönnum - að
mögulega yi'ði viðskiptabanninu
aflétt „fljótlega" ef Irakar sýndu nú
vopnaeftirlitsmönnum undanbragða-
laust samstarf.
Stjórnmálaskýrendur bentu á að
þótt Saddam Hussein hefði neyðzt til
að sætta sig við óhindraða leit að
efna- og sýklavopnum á hallarlend-
um sínum þá hefði hann styrkt stöðu
sína að ýmsu leyti.
Ef leit vopnaeftirlitsmanna skilar
ekki árangri innan tveggja mánaða
eða svo má gera ráð fyrir stóraukn-
um þrýstingi á að viðskiptabanninu
verði aflétt.
„Saddam vinnur á tveimur víg-
stöðvum - fyrst hjá leiðtogum ann-
arra arabaríkja sem sögðust nær all-
ir frábiðja sér ái'ásir á Irak,“ sagði
Mahdi Abdul Hadi, palestínskur
fréttaskýrandi. „I öðru lagi eru Ara-
bar götunnar alveg á hans bandi,
jafnvel þótt hart hafi verið haldið aft-
ur af mótmælaaðgerðum í Jórdaníu,
Egyptalandi og Palestínu."
Saddam ennþá ógn við
umheiminn
Jafnvel þótt svo fari að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna, sem hlýðir í dag
á skýrslu Kofís Annans um atburði
helgarinnar, skyldu verða þau að fall-
izt verði á niðurstöðuna og hemaðar-
árás á írak þai' með afstýrt — í bili — þá
munu Bandaiíkjamenn og bandamenn
þeiri'a halda enn um sinn þeim herafla
sem búið er að byggja upp á og við
Persaflóann, því ekki mun veita af því
til að nægur þrýstingur sé fyrir hendi
til að Saddam Hussein virði nýjustu
skuldbindingar sínar. Og víst þykir að
eins lengi og hinn metnaðarfulli ein-
ræðisherra - sem hefur tekizt að koma
sér upp gereyðingarvopnabúri þrátt
fyrir allt eftírMt og alþjóðlegar skuld-
bindingar - helzt við völd í Irak, þá
muni ríki hans vera ógn við ríkin í
kring og öryggi heimsins í heild.
Reuters
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (t.v.), á fréttamannafundi með Tareq Aziz, varaforsætisráðherra íraks, við undirritun sam-
komulags SÞ og Iraksstjórnar í Bagdad í gærmorgun.
Samningnum tek-
ið með fyrirvara
íbúum ESB-landa
fjölgar lítillega
Lúxemborg. Reuters.
ÍBÚAFJÖLDI í aðildarlöndum
Evrópusambandsins (ESB) jókst
lítillega á liðnu ári, með fleiri ný-
bura og færri látna en árið 1996.
Þetta kemur fram í skýrslu hag-
stofu ESB Eurostat um mann-
fjöldaþróuu í sambandinu, sem
birt var í gær.
Samkvæmt áætlun Eurostat
fjölgaði fæðingum í ESB-löndun-
um annað árið í röð, í þetta sinn
um 0,4% eða í 4.061.500 nýbura-
fæðingar samtals.
Þetta er smáræðisaukning frá
því 1995, þegar metfáir nýburar
komu í heiminn í sambandinu,
4.001.800, en mjög langt frá því
sem var á miðjuin sjöunda ára-
tugnum, þegar um tveimur millj-
ónum fleiri nýburar komu árlega
í heiminn í þessum löndum en
nú.
Andlátum fækkaði í flestum
ESB-löndum, að meðaltali um
0,1% í 3.721.400 á árinu í fyrra,
sem þýðir að fbúum ESB fjölgaði
í heild um 340.100.
I upphafi árs 1997 var heildar-
íbúafjöldinn í aðildarlöndunum
fimmtán 373,7 milljónir.
Ekki þykir sennilegt að áfram-
hald verði á fjölgun fæðinga
fram yfir aldamót, þar sem kon-
ur sem tilheyra stóru árgöngun-
um sem fæddust um miðjan sjö-
unda áratuginn komast brátt af
barneignaraldri.
Brussel, London, Róm, Bagdad. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR aðildar-
ríkja Evrópusambandsins (ESB) fógn-
uðu í gær samkomulagi því sem Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), gerði við Tareq Aziz,
aðstoðarforsætisráðherra Iraks.
NoktaTr ráðherrar sögðu þó, að þeir
vildu kynna sér samkomulagið betui'
áður en þeir felldu um það dóm. Robin
Cook, utanríkisráðherra Bretlands,
sagði að samkomulagið væri „upp-
örvandi" en skoða þyrfti það nánar.
Cook sagði í gær að samkomulagið
sýndi svo ekki yrði um villst að það
hefði verið rétt að beita Iraka þrýst-
ingi með því að hóta loftárásum yrðu
þeii' ekta skilyrðislaust við ta'öfum um
óheftan aðgang vopnaefth'litsmanna.
ESB hefm* lítið látið tíl sín heyra í
heild í deilunni og þegar utam'íkisráð-
herra Hollands, Hans van Mierlo, vai'
spurður um þögn ESB sagði hann að
fastaseta Bretlands og Frakklands í
öryggisráðinu hefði gert að verkum að
erfitt hefði verið að móta samræmda
stefnu ESB-ríkja í máH er varðaði SÞ.
Þjóðverjar tóku undir með Banda-
ríkjamönnum og Bretum og kváðust
ekki vilja segja endanlega af eða á
um samkomulagið fyrr en það hefði
verið skoðað nánar. Italir tóku í
sama streng, en talsmaður Romanos
Prodis, forsætisráðherra, sagði hann
vera „mjög ánægðan" með að sam-
komulag hefði náðst.
Dagblöð í írak sögðu ekki margt í
gær um samkomulagið. Ekkert
þeirra greindi beinlínis frá því að
samkomulag hefði náðst, en Babel,
sem er í eigu sonar Saddams
Hússeins og áhrifamesta blað í land-
inu, sagði í leiðara að „frumskógar-
lögmálið" hefði orðið undir.
Sagði í leiðaranum að samkomu-
lagið væri til marks um að vilji þjóða
heims, sem höfnuðu styrjöld og árás
um, hefði reynst sterkai'i en hið
bandai-íska frumskógarlögmál. Þá
veittist Babel að Madeleine Albright
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og
kallaði hana „ljóta gamla konu“.
SETTU
SVIPÁ
HEIMILIS
Mikið úrval
af fallegum
smávörum.
V A
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bfidshöfði Z0 -112 Rvík - S:510 8000