Morgunblaðið - 26.02.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BOKAMARKAÐUR Félags íslenskra bókaútgefenda verður opnaður almenningi í dag en í gær var opið sér-
staklega fyrir fulltrúa almennings- og skólabókasafna.
ÁRLEGUR bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda verður
opnaður í Perlunni í dag. Hátt í
þrjátíu þúsund titla er þar að
fínna að meðtöldum fombókum.
Metsala var á markaðnum í fyrra
og kveðst Ólafur Ragnarsson for-
maður félagsins gera sér vonir
um enn meiri sölu að þessu sinni -
að minnsta kosti ekki minni.
Ólafur segir að markaðurinn sé
með svipuðu sniði og undanfarin
ár enda hafi hann jafnan fallið í
góðan jarðveg. Vinnureglan er sú
að tvenn jól Iíði frá útgáfu.
Yngstu bækurnar á markaðnum
nú komu þannig út fyrir jólin
1995.
„Annars er þarna að finna
bækur frá síðustu Qörutíu til
fimmtíu árum í einhverju upp-
Hátt í
þrjátíu
þúsund
titlar
lagi, auk forabóka, sem margar
hverjar eru mun eldri,“ segir
Ólafur en í fornbókadeildinni er
eintakafjöldi niður í eitt. Þá er á
markaðnum talsvert af gömlum
tímaritum, auk útlitsgallaðra
bókmenntaverka. Sem fyrr er svo
boðið upp á bókapakka á sérstök-
um kjörum.
Ólafur segir markaðinn reyna
að koma til móts við þarfir sem
flestra, enginn vilji sé til að tak-
marka. „Þarna eru bókstaflega
allar tegundir íslenskra bóka, íjöl-
breytni efnisflokka er mikil.“
Að sögn Ólafs spannar bóka-
markaðurinn allan verðskalann
en algengt er að afslátturinn sé á
bilinu 30-40% og allt upp í 80-90%.
„Það er sem sagt hægt að gera
góð kaup í Perlunni enda telja
bókaútgefendur þetta eitt mikil-
vægasta átakið til að viðhalda
bókalestri og bókaeign í landinu."
Bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda í Perlunni verður
opinn daglega frá kl. 10-19. Hon-
um lýkur sunnudaginn 8. mars.
)
Joan Backes sýnir I
í Hafnarborg
BANDARÍSKI listmálarinn Joan
Backes opnar sýningu á verkum
sínum í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar
(kaffistofu), laugardaginn 28. febr-
úar kl. 14.
Á sýningunni eru myndir unnar
með blandaðri tækni. Með collag-
eaðferðinni byggir hún upp grunn-
myndina og dýpkar hana síðan
með penslinum og blandar jafnvel
sandi í litinn til að gefa klettinum
viðeigandi þyngd, segir í fréttatil-
kynningu frá Hafnarborg.
Joan Backes er fædd í Wiscon-
sin. Hún lauk M.F.A. námi frá
Northwestern University í Hlinois-
fylki í Bandaríkjunum og hefur síð-
an unnið að list sinni í Bandaríkj-
unum og víða um heim. Hún hefur
einnig kennt við listadeildir North-
westem háskólans, Háskólans í
Kansas, Kansas City Art Institute
og nú við Brown háskólann á
Rhode Island.
Laðast að ströndum
N-Atlantshafsins f
Joan Backes hefur laðast að
ströndum N-Atlantshafsins og er
nú búsett í Massaehusetts en ferð-
ast til Noregs, Skotlands og Is-
lands til að mála.
Hún hefur hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir list sína og verk eft-
ir hana em í opinberum söfnum ,
víða í Bandaríkjunum, í Skotlandi
og hér á landi, segir ennfremur í *
fréttatilkynningunni. )
Sýningin stendur til 18. mars.
Gítartónlist í
Haukshúsum
EINAR Kristján Einarsson held-
ur gítartónleika í Haukshúsum
föstudagskvöldið 27. febrúar kl.
20.30. A efnisskrá verða verk eftir
Albeniz, Asturias, de Narvaez,
Tarrege, Sor, Villa-Lobos, Yocoh
og Barrios.
Einar Kristján Einarsson nam
gítarleik á íslandi og í Englandi.
Hann hefur auk þess sótt námskeið
hjá mörgum þekktum gítarleikur-
um. Hann hefur víða haldið tón-
leika m.a. leikið með Caput-hópn-
um og Sinfóníuhljómsveit Islands
auk þess að taka þátt í mörgum
tónlistarviðburðum.
Myndlistarsýning
Lista- og menningarfélagið )
Dægradvöl á Álftanesi opnar
myndlistarsýningu í Haukshúsum
laugardaginn 28. febrúar kl. 14.
Myndlistarklúbburinn hefur ver-
ið rekinn í þrjá vetur og er þetta í
annað sinn sem haldin er sýning á
vinnu klúbbfélaga, áður var sýnt
árið 1996. Að þessu sinni verður
haldin sýning á vatnslitamyndum )
en hópurinn hefur notið leiðsagnar ^
vatnshtakennarans og -málarans
Gunnlaugs St. Gíslasonar um !
nokkurt skeið.
Allslierjar
svikamylla
Leikritið Svikamylla eftir Bretann Anthony Shaffer
verður frumsýnt í Kaffíleikhúsinu í kvöld kl. 21.
Þröstur Helgason fylgdist með æfíngu og var óafvit-
andi orðinn þátttakandi í leikritinu.
Morgunblaðið/Þorkell
„WYKE hefur leikið margan gráan leik en nú hittir hann fyrir mann sem er ekki alveg
tilbúinn að láta fara illa með sig og svarar fyrir sig, en fylgir bara ekki sömu leikreglum
og Wyke. Þar með fer gamanið að kárna.“ Arnar Jónsson og Sigurþór A. Heimisson í
hlutverkum sínum.
ÞEGAR leikritið Svikamylla hefst veit áhorf-
andinn ekki betur en hann sé ekkert annað
og meira en einmitt það: áhorfandi á leiksýn-
ingu. Smámsaman áttar hann sig á því að svo
einfalt er það nú ekki; óafvitandi er hann
nefnilega orðinn þátttakandi í leikritinu,
hann er orðinn að eins konar leiksoppi þess
og veit hvorki hvað snýr upp né niður, ekki
frekar en persónur verksins. Leikritið virðist
vera allsherjar svikamylla.
Leikritið gerist á heimili Andrews Wykes
(Amar Jónsson) sem er vinsæll morðsagna-
höfundur, að minnsta kosti að eigin mati.
Hann er farinn að lifa sig svo inn í heim
skáldsagna sinna að svo virðist sem mörk
skáldskaparins og raunveruleikans séu að
verða honum æ óljósari. Hann er heltekinn
af þykjustuleikjum sem hann setur á svið af
mikilli snilld. Þegar leikritið hefst hefur
Wyke boðað til sín ungan ástmann eiginkonu
sinna, Milo Tindle (Sigurþór Heimisson).
Tindle er alvara með ást sinni á eiginkonunni
og hefur í hyggju að kvænast henni og allt
útlit er fyrir að Wyke hafi ekkert á móti
ráðahagnum, þvert á móti á hann sér enga
ósk heitari en að „losna við hana“. Hann býð-
ur Tindle að taka þátt í litlum leik með sér
sem muni ef hann tekst verða mikill ávinn-
ingur fyrir þá báða.
Og þar með hefst spuninn á klækjavefnum
sem sífellt verður þéttari. Og líkt og persón-
ur verksins vita áhorfendur vart lengur
hvort nú sé verið að leika á þá eða ekki.
Leikir settir á svið
Höfundur leikritsins SvikamyUu (e.
Sleuth) er Bretinn, Anthony Shaffer. Það var
frumsýnt í London árið 1970 og síðar sama
ár í New York. Verkið vakti strax mikla at-
hygli og hlaut Tony verðlaunin árið 1971. Ári
síðar var gerð kvikmynd eftir leikritinu með
Sir Lawrence Olivier og Michael Caine í að-
alhlutverkum, voru þeir báðir tilnefndir til
Óskarsverðlauna fyrir leik sinn en hvorugur
útnefndur. Shaffer hefur einkum fengist við
að skrifa sjónvarpsþáttahandrit síðan en á
næstunni verður fyrsta leikrit hans fyrir
leiksvið frá því hann skrifaði Svikamyllu
frumsýnt í London, The Thing in the
Weelchair.
Sigurþór segir að sér hefði á sínum tíma
þótt kvikmyndin eftir leikritinu frábær en
hún sé hins vegar bam síns tíma. „Það er
ýmislegt í henni sem við gætum aldrei sam-
þykkt í kvikmynd í dag. En svo gerum við
líka hluti í uppsetningunni okkar sem ekki er
hægt að gera í kvikmynd. Við náum ýmis-
legu út úr leikritinu sem ekki er hægt að ná í
kvikmynd. Nálægðin við áhorfendurna er til
að mynda meiri hjá okkur hér í Kaffileikhús-
inu en hún skiptir verulegu máli í þessu
verki. Áhorfendur eru þátttakendur í sýning-
unni og eru raunar inni í stofu heima hjá
Andrew Wyke og taka þátt í þeim leikjum
sem hann setur þar á svið.“
Wyke kallar Tindle „ítalaviðrini" og að
sönnu er hann hálfaumur þegar hann lendir í
klónum á hinum útsmogna og greinda
spennusagnahöfundi. „Já, en það kemur í
ljós að það er þónokkuð spunnið í hann,“
svarar Sigurþór, „hann hefur í sér nokkuð af .
þessum ítölsku töffaragenum og lætur ekki
hvem sem er vaða yfir sig. Hann kann að I
svara í sömu mynt.“ )
Á veruleikamörkum
Wyke virðist standa með fæturna í tveim-
ur heimum, heimi sagnanna sem hann er
alltaf að semja og svo raunveruleikanum. Og
hann veit ekki alltaf í hvom fótinn hann stíg-
ur. „Hann er kominn að ákveðnum veru-
leikamörkum," segir Arnar, „hann er
kannski kominn í dálitla einangmn og það er )
að fjara undan honum. Fólkið er hætt að lesa ,
sögurnar hans og hann hefur dregið sig inn í
svolitla skel. Hann verður svolítið klikkaður )
fyrir vikið og stundar það að setja á svið
leiki. Hann segist hafa tekið þátt í að skapa
svo marga spennandi leiki að Jung og Ein-
stein væm stoltir af því að vera boðin þátt-
taka. Hann hefur skemmt sér konunglega
við þessa iðju þótt oft hafi gamanið verið
grátt. Hann hefur leikið margan gráan leik
en nú hittir hann fyrir mann sem er ekki al-
veg tilbúinn að láta fara illa með sig og svar- t
ar fyrir sig, en fylgir bara ekki sömu leik- )
reglum og Wyke. Þar með fer gamanið að .
káma.“
Snilldarlega
spunninn svikaþráður
Svikamylla er snilldarlega spunninn svika-
þráður enda hefur því verið haldið fram að
leikritið væri „meistaralegasta ráðgáta“ sem
sett hafi verið á svið. Hið snjallasta í verkinu
er þó það að um leið og persónumar leika á ,
hvor aðra leikur höfundurinn sér að áhorf-
andanum. I
Leikstjóri sýningarinnar er Sigríður Mar- )
grét Guðmundsdóttir. Með aðalhlutverk
fara, eins og fram hefur komið, Arnar Jóns-
son og Sigurþór A. Heimisson en með önnur
hlutverk fara Albert Þórsson, Gísli Sigurðs-
son og Magnús Bjamason. Leikmynd gerir
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, lýsingu Ævar
Gunnarsson, hljóðmynd Margrét Ömólfs-
dóttir og förðun annast Sigríður Rósa
Bjamadóttir. )
Sýningin er samstarfsverkefni Kaffileik- .
hússins og Reykjavíkurleikhússins. Þetta er
fyrsta sviðsetning verksins hér á landi en I
það hefur verið flutt í útvarpi.