Morgunblaðið - 26.02.1998, Side 42

Morgunblaðið - 26.02.1998, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Tryggvi Guð- mannsson fædd- ist í Hafnarfirði 6. mars 1919. Hann lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmann Hró- bjartsson vélstjóri og Þórunn Ólafs- -H dóttir verkakona. Tryggvi kvæntist Ragnheiði Guðrúnu Hjaltalín 1964 en hún lést 1977. Stjúpsynir hans eru Hilmar, f. 1948, Gunnar, f. 1950, og Ragnar Þór, f. 1956 en hann iést 1987. Tryggvi kvæntist eftirlifandi Sorg fyllti hugann þegar okkur hjónum barst fregnin um að vinur okkar, Tryggvi Guðmannsson, væri allur. Reyndar höfðum við fylgst með heilsu hans að undanförnu og gerðum okkur fyllilega grein fyrir að ekki var langt eftir af veru hans á þessu tilverustigi. Við hjónin höfðum haft kynni af Tryggva sl. 19 ár, en á þeim tíma, sem við höfðum samskipti urðum við þess fullviss að Tryggvi var ein- stakur maður. Kynni okkar hófust árið 1979 þegar við vorum svo lánsöm að sjá litla auglýsingu í dag- blaði þar sem auglýstur var sumar- bústaður til sölu í Eilífsdal í Kjósar- hreppi. Þennan sumarbústað byggði Tryggvi og seldi okkur og upp frá því hófust vinatengsl, sem ,'*Wstu mjög djúpt. Tryggvi hafði áður byggt sér sumarhús á næstu lóð við þá, sem okkar bústaður var á og urðum við því nágrannar í Eilífsdal. Tryggvi var á margan hátt sér- stakur. Hann var ákaflega duglegur maður. Hann var laghentur, mjög greindur og vissi skil á flestum hlut- um. Oft var maður hissa á því hvað hann var vel að sér í öllu og það var sama hvað rætt var um, hann hafði skoðanir og skil á öllu og átti á ein- eiginkonu sinni, Stefamu K. Bjania- dóttur, 23.11.1991. Tryggvi lauk vél- stjóraprófi frá Vél- skólanum í Reykja- vík 1941, auk raf- magnsdeildar árið 1944. Tryggvi fór ungur að vinna til sjós og lengst af sem vélstjóri. Hann vann í vélsmiðjunni Kletti um áratug og síðan í Hampiðj- unm til starfsloka eða í rúman aldar- fjórðung. Útfór Tryggva verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. stakan hátt auðvelt með að gera öðrum grein fyrir því sem verið var að tala um í það og það skiptið. Hann hafði sérstakan persónuleika, sem gerði það að verkum að hann skaraði fram úr á mörgum sviðum og bar maður sérstaka virðingu fyr- ir skoðunum hans, sem hann færði aldrei fram á annan hátt en þann að færa fyrir þeim skilmerkileg rök. Tryggvi var mjög skemmtilegur í viðræðum, glettinn og spaugsamur og fann alltaf skemmtilegu hliðarn- ar á málunum. Samverustundir okkar í Eilífsdal voru mjög eftir- minnilegar. Við gerðum svo margt í sameiningu og fylgdumst ávallt með þyí hvað hinn var að gera. Við hjálp- uðumst að ef verkéfnin gáfu tilefni til slíks og glöddumst ætíð saman yfir því, sem vel tókst. Tryggvi var góður ræktunarmaður og það var með ólíkindum hverju hann áorkaði í ræktun í reitunum sínum í Eilífs- dal. Þegar við hjónin kynntumst Tryggva var hann einstæður; hafði misst eiginkonu sína. Það var svo fyrir sex árum, að Tryggvi kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Stefaníu Bjarnadóttur. Þau áttu yndislegt heimili í Skólagerði 65 í Kópavogi og þangað var ávallt gott að koma í heimsókn eins og að Eyrarseli í Eilífsdal. Það var mikið gæfuspor fyrir Tryggva þegar hann giftist Stefaníu. Hún var ættuð og uppalin í Kjósinni og naut þess, ekki síður en Tryggvi, að vera þar og saman unnu þau af mikilli atorku að hugð- arefni sínu í Eilífsdalnum. Hann sagði mér það að einhvern tíma, þegar hann var ungur drengur og var í sveit í Kjósinni í Blöndholti, en þar ólst hann upp að nokkru leyti, hafi hann kynnst Stefaníu og eftir það hafi hann, alla tíð, vitað af henni. I Eilífsdalnum var þeirra sælureitur og þar voru þau öllum stundum sem þau gátu og ávallt voru þau að vinna að því að rækta og snyrta reitinn sinn. Það var mjög lærdómsríkt að fylgjast með því, sem þau voru að gera og mannbæt- andi að vera í návist þeirra. Með Tryggva er genginn góður maður, sem af leikni og alúð sinnti hverju því, sem hann tók sér fyrir hendur. Eftir lifum við ríkari, að hafa kynnst manni, sem bar virð- ingu fyrir lífinu og sinnti öllu því, sem hann kom að með kostgæfni. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við hjónin kveðja þennan góða vin okkar, sem reyndist okkur svo vel, að um eilífð munum við minnast hans með hlýhug og virðingu. Kæra Stefanía. Megi guð styrkja þig og fjölskyldu þína í sorginni vegna fráfalls Tryggva. Minningin um góðan dreng mun lifa með okk- ur öllum. Eðvar Ólafsson, Guðbjörg Guðjónsdóttir. Okkur, sem komin erum á efri ár- in, finnst lífsklukkan tifa hratt. Góð- vinir og samferðamenn hverfa hver af öðrum yfir móðuna miklu. Eg kynntist Tryggva Guðmanns- syni fyrst vorið 1955, þegar við ásamt fleirum hófum byggingu hús- anna nr. 32 og 34 við Hagamel, hann á 1. hæð nr. 32 og ég á 1. hæð nr. 34 og sameiginleg innkeyrsla varð þess valdandi að við gátum tal- ast við á tröppunum. Okkar góðu kynni hafa staðið æ síðan, þótt hann flytti fyrir nokkrum árum í Kópa- voginn. I sumarbústaðalandinu í Eilífsdal í Kjós hefur líka verið stutt á milli okkar. Tryggvi starfaði lengst í Hamp- iðjunni, en fyrir slíkan athafnamann var átta tíma vinna ekki mikið, enda vanari lengri vöktum sem vélstjóri á sjó. Hann byggði sér fljótlega bfl- skúr á Hagamelnum og þar var hann öllum stundum í frítímum sín- um að gera við, smíða tjaldvagna eða báta og síðast en ekki síst að smíða sumarbústaði. Ég fékk tjald- vagn hjá honum á sínum tíma, sem reyndist vel í ferðalögum og kom hann að góðum notum síðar, þegar ég fór að byggja sumarbústaðinn í Kjósinni að áeggjan Tryggva, sem var boðinn og búinn að hjálpa mér við smíðina. Eg hafði áður komið í bústaðinn hans, Eyrarsel, sem hann teiknaði sjálfur og vildi ég hafa minn bústað á svipuðum nótum með mörgum gluggum svo hægt væri að njóta útsýnisins. Við vorum ekkert að flýta okkur, létum tímann vinna með okkur og upp komst fallegur bústaður, þökk sé Tiyggva og vin- um og vandamönnum. Það var sama á hverju gekk; Tryggvi sá alltaf ráð við hlutunum. Ef eitthvað fékkst ekki þá smíðaði hann það bara sjálf- ur, enda var hann jafn hagur á tré ogjárn. Tryggvi var um skeið einn af for- mönnum Valshamars, félags sumar- bústaðaeigenda í Eilífsdal í Kjós. Þar vann hann óeigingjarnt starf, sem einkenndist af hagsýni og dugnaði hans sjálfs við að gera hlut- ina sem best úr garði án mikils kostnaðar fyrir félagsmenn. r 3lómabúðin > öarðskom . v/ Fossvogski^Ujwgarð . X^Sími. 554 0500 / Það er mikill sjónarsviptir að Tryggva úr Dalnum. Hann var upp- alinn í Kjósinni og átti á þessum slóðum sín æskuspor. Hann var áhugamaður um skógrækt og það er frábært hversu miklu hann hefur fengið áorkað í að fegra landið í kringum bústaðinn, enda einhver alduglegasti maður sem ég hef þekkt. Hann var alltaf hress og með spaugsyrði á vörum og reytti af sér brandara á góðum stundum. Það er margs að minnast á langri vegferð sem eigi verður hér talið, en það er mest um vert að eiga góðar minningar um mætan mann sem mætti veikindum sínum með ótrú- lega jákvæðu hugarfari og lét aldrei bugast. Slík reisn er fáum gefin. Að leiðarlokum þökkum við Ragna áralanga vináttu og góðar samverustundir. Stefaníu og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Víglundur Sigutjónsson. Þrátt fyrir að Tryggvi hefði átt við erfið veikindi að stríða í nokkur ár kom lát hans engu að síður á óvart. Hann bar sig alltaf vel þrátt fyrir veikindin og var ég því ætíð bjartsýnn fyrir hans hönd eftir að fundum okkar hafði borið saman. Jákvætt hugarfar og þrautseigja var einkennandi fyrir Tryggva og mótaði allt viðhorf hans til lífsins. Tryggvi var sonur Guðmanns Hróbjartssonar járnsmiðs, en hann var einn af stofnendum Hampiðj- unnar árið 1934. Það ár var Tryggvi 15 ára og var að byrja nám í jám- smíði hjá föðurbróður sínum í Hafn- arfirði. Meðfram námi, um jól og á sumrin, vann hann sem vélstjóri á togara. Að námi loknu og allt fram til 1955 starfaði hann sem fyrsti vél- stjóri á togara sem sigldi með afl- ann til Englands. Alls sigldi hann yfir 100 sinnum yfir Atlantshafíð og þar af oftsinnis í stríðinu. Tryggvi hætti á sjónum eftir 16 ár eða árið 1955 og dreif þá í því að byggja átta íbúða hús á Hagamel 32 ásamt þrem öðrum vélstjómm. Byggingin tók stuttan tíma eða frá maí fram í desember. Þeir félagarnir gerðu nánast allt sjálfir, slógu upp, hrærðu steypu, steyptu og rifu utan af. Eina aðkeypta vinnan var múr- húðun. Þegar byggingunni var lokið hóf Tryggvi störf hjá Vélsmiðjunni Kletti í Hafnarfirði og vann að mestu við uppsetningu vé!a í frysti- hús næstu árin. I smiðju Hampiðjunnar byrjaði hann síðan i ágúst 1969. Þar unnu þá sex menn við viðhald og nýsmíði. Tryggvi var afar góður og útsjónar- samur smiður og alltaf fann hann leiðir til að leysa smíðaverkefni sem vafist hefðu fyrir öðrum. Þar hjálp- aði það mikið hve léttur hann var í skapi og átti auðvelt með að sjá björtu hliðarnar á málunum. Hann var sérlega greiðvikinn við þá sem leituðu til hans og gerði það sem hann gat til að liðsinna þeim. Til þess var tekið hve fljótur hann var ætíð að koma sér að verki og ljúka því. Tryggvi starfaði óslitið í smiðj- unni i 25 ár og þar af var hann smiðjuformaður frá 1973 til 1980. Þrátt fyrir langan vinnudag varð Tryggva alltaf mikið úr verki í frí- tíma sínum. Seinni árin varði hann þeim tíma í Eilífsdal við Meðalfells- vatn, en þar byggði hann sumarhús. Ekki lét hann þar við sitja heldur byggði þrjú hús til viðbótar og þar að auki fjölmarga báta sem notaðir voru á vatninu og í Hvalfirði. Áhugi hans á bátum var ætíð mikill og fyr- ir nokkrum árum eignaðist hann trillu sem hann hafði mikla ánægju af að gera upp og sigla á. Fyrir rúmum áratug kynntist Tryggvi eftirlifandi eiginkonu sinni, Stefaníu Bjarnadóttur, og var það samband honum afar mikilvægt. Þegar Tryggvi hætti störfum hjá Hampiðjunni fyrir aldurs sakir þá sagði hann síður en svo skilið við fyrirtækið. Þó nokkur ár kom hann til starfa i fáeinar vikur í senn til að vinna ákveðin verkefni sem hann einn hafði náð góðu lagi á. Þar að auki vann hann önnur verk fyrir okkur heimavið í aðstöðunni sem hann hafði komið upp í Holtagerð- inu. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA BJÖRGVINSDÓTTIR fyrrum prestskona á Raufarhöfn og Skinnastað, andaðist að morgni þriðjudagsins 24. þessa mánaðar. Sigurvin Elíasson, börn, tengdabörn og barnabörn. t ■JG Ástkær móðir mín, dóttir okkar og systir, UNNUR HILMARSDÓTTIR skrifstofustjóri, Ástúni 14, Kópavogi, lést sunnudaginn 22. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstu- daginn 27. febrúar kl. 15.00. Hilmar Jökull Stefánsson, Hilmar Guðbjörnsson, Sveinbjörg Einarsdóttir, Sigrún Heiða Hilmarsdóttir, Elín Hilmarsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA KR. JÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 24. febrúar sl. Gyða Hansen, Úlfar Guðmundsson, Jón Kr. Hansen, Ingibjörg Júlíusdóttir, og barnabörn. TRYGGVI “ GUÐMANNSSON Hampiðjan og samstarfsmenn vilja hér með koma á framfæri þakklæti fyrir störf Tryggva Guð- mannssonar og við vottum fjöl- skyldu hans og aðstandendum dýpstu samúð okkar. Hjörtur Erlendsson, framleiðslustjóri. Kallið er komið. Látinn er Tryggvi Guðmannsson vélstjóri, stúpfaðir minn. Tryggvi og móðir mín, Ragnheiður Hjaltalín Gunn- arsdóttir, hófu búskap á Hagamel árið 1962. Hann gekk okkur bræðr- unum þremur í föðurstað á sínum tíma, með aga og gildum, sem ég hafði ekki kynnst fyrr. Hann hafði lært til vélstjóra og verið til sjós lengst af, bæði á togurum og fragt- skipum, en var þá kominn í land og vann í Vélsmiðjunni Kletti í Hafn- arfirði. Seinna hóf hann störf í Hampiðjunni og vann þar við góð- an orðstír þar til hann hætti störf- um fyrir fáeinum misserum. Tryggva var margt til lista lagt og var ótrúlega iðjusamur og féll aldrei verk úr hendi. Hann var vandvirkur og sannkallaður þús- undþjalasmiður, jafnvígur bæði á járn og tré. Ég man þegar hann var að smíða sinn fyrsta bát, það var aluminium- bátur, sem festur var á toppgrind á bfl hans. A þessum bát fórum við oft til veiða, oftast á Kleifarvatn. Árið eftir smíðaði hann krossviðarbát, þann fyrsta af mörgum, og eftir það oftast einn bát á ári um árabil. Ég tók þátt í þeirri smíði með honum við að skrúfa og líma krossviðinn á grindina. Það var mikill hamagang- ur meðan á því stóð. Þetta var það eina sem hann bað um aðstoð við, allt annað gerði hann sjálfui'. Það var alltaf gaman þegar nýr bátur var sjósettur, sem ýmist var gert niðri á höfn eða á Kleifarvatni, og ótaldar veiði- og skemmtiferðir voru farnar á þessum bátum hans, bæði á sjó og á vötnum. Sérstaklega er mér minnisstæð ferð sem farin var seinnipart sumars á Kleifar- vatn, þar sem sameinuð var veiði- og skemmtiferð. Dóttir mín, sem þá var á þriðja ári, var með í þeirri ferð ásamt móður minni. Voru þær ferjaðar yfir vatnið þar sem þær nutu sín í góðu veðri við að tína ber, en við Tryggvi vorum að veiða. Skemmtileg ferð og ljúf minning. Tryggvi var sannkallað náttúru- barn og á ég og fjölskylda mín margar góðar minningar frá þess- um árum, ekki síst meðan móðir mín var enn á lífi. Tryggva dugði ekki eingöngu að smíða báta heldur hóf hann að smíða sumarbústaði. Þann fyrsta byggði hann við Þingvallavatn, síð- an tvo í Eilífsdal í Kjós. Þar hefur Tryggvi átt sinn sælureit, ræktað þar reitinn sinn; gróðursett fjölda trjáa ásamt seinni konu sinni, Stef- aníu Bjarnadóttur, og veit ég að þar áttu þau margar góðar stundir. Ég aðstoðaði Tryggva við smiði þessara bústaða og eins vann ég með honum við að smíða bátanaust í Laxárvogi, og lýsir sú bygging vel virðingu Tryggva fyrir náttúrunni. Bátaskýlið skyldi falla vel inn í um- hverfi sitt og mátti helst ekki sjást frá þjóðveginum, þó að það væri í góðu sjónfæri. Þetta tókst vel Naustið er þarna enn og varla sést fráveginum. Ég gleymi ekki þeirri umhyggju sem Tryggvi bar fyrir móður sinni, Þórunni, sem hann hugsaði einstak- lega vel um. Þórunn bjó í íbúð Tryggva á Barónsstíg. Hann fór með mat til hennar nær daglega og bar hag hennar mjög fyrir brjósti. Samband þeirra var mjög sérstakt. Ég þakka Tryggva fyrir árin okk- ar saman og þó að samband okkar hafi ekki verið eins mikið nú síðustu árin og áður, þá er minningin um þau ljúf. Einnig vil ég þakka honum vel- vild og hlýju í garð bamanna minna, ekki síst til Tryggva Þórs, sem nú sér á bak afa sínum og nafna með miklum söknuði. Ég sendi Stefaníu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Tryggva Guðmanns- son mun lifa. Hilmar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.