Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. AJPRÍL 1998 1 5 FRÉTTIR BATGIRL REIMAÐUR Unnið að stefnumótun í atvinnu- málum hjá Reykjavíkurborg um 40 þúsund ar gagnvart einstökum fyrirtækjum og í sem minnstum mæli gagnvart einstökum atvinnugreinum. „Það er kannski auðveldara um að tala heldur en að framkvæma því að í og með þá beinast opinberar að- gerðir kannski allar að ákveðnum atvinnugreinum og vonandi sem minnst að einstökum fyrirtækjum," sagði hann. Sveinn S. Hannesson sagði að þeir mælikvarðar sem notaðir væru til að meta atvinnulífið væru rangir. Alltaf væri miðað við hve mikið væri flutt út í krónum eða kílóum, en ekki væri spurt að því hvaða vinnsluvirði verð- ur eftir í landinu. Morgunblaðið/Golli FJÖLMENNI var á ráðstefnu atvinnu- og ferðamálanefndar Reykjavíkurborgar um hið opinbera og atvinnulífið. Ráðstefna um Reykjavíkurborg og atvinnulífið Á NÆSTU árum mun fólki á vinnu- aldri, 20-69 ára, fjölga um tæplega 40 þús. og framboð á vinnuafli að öllu óbreyttu mun aukast um 30-35 þús. þar af að minnsta kosti 20-25 þús. á höfuðborgarsvæðinu, segir í skýrslu um Samræmda stefnumótun í atvinnumálum hjá Reykjavíkur- borg. Fram kemur að því þurfi að fjölga störfum um 1.000 á ári á höf- uðborgarsvæðinu til að koma í veg fynr aukið atvinnuleysi. I skýrslunni kemur einnig fi’am að um 48% vinnuafls er með starfs- og framhaldsmenntun og um 19% er með háskólamenntun og fara báðir hóparnir stækkandi. Um 33% heild- arvinnuafls er með grunnskóla- menntun og fer sá hópur hægt minnkandi. Veruleg eftirspurn er eftir vinnuafli með iðn- og starfs- menntun á sama tíma og margt bendir til að nokkuð offramboð sé á fólki með stúdentspróf sem loka- próf. Atvinnuleysi meðal ungra kvenna Bent er á að frá árinu 1991 hafi atvinnuleysi farið vaxandi í Reykja- vík þótt verulega hafi dregið úr vaxtarhraða síðustu misseri. Velt er upp þeim möguleikum að ástæðan fyrir auknu atvinnuleysi geti verið sú að í júlí 1993 hafí einstaklingar utan stéttarfélaga öðlast bótarétt. Síðar sama ár hafí sjálfstætt starf- andi einstaklingar öðlast rétt á bót- um og frá árinu 1995 hafí Félags- málastofnun skyldað alla atvinnu- lausa, sem þiggja bætur hjá stofn- uninni til að skrá sig atvinnulausa. Atvinnulausar konur í Reykjavík voru 59% af heildarfjölda atvinnu- lausra í lok ágúst sl. en 41% karlar. Atvinnuleysið kemur verst við ung- ar konur en 35% atvinnulausra í maí árið 1996 voru konur á aldrinum 21-40 ára en 20% karlar á sama aldri. I skýrslunni kemur fram að at- vinnuleysi í Reykjavík er mest með- al 21-40 ára eða fólks á besta aldri sem ætti að vera eftirsótt af at- vinnurekendum. Það veki upp spurningar um hvort hluti hópsins sé fólk sem fínni fljótt vinnu með bættu árferði eða hvort hluti hóps- ins sé ekki tiltækur fyrir atvinnu- markaðinn og er þá fyrst og fremst átt við mæður með ung börn en því hafí verið haldið fram að það borgi sig frekar fyrir þær að vera á at- vinnuleysisbótum en stunda launa- vinnu. Og loks hvort hluti hópsins sé ekki tiltækur fyrir atvinnulífið af fé- lagslegum orsökum eða af heilbrigð- isástæðum. ----------------- Bensín lækkar um 80 aura OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu bensín- verð í gær um 80 aura. Lítrinn af 95 oktana bensíni kostar nú 74,20 kr. og 78,90 kr. af 98 oktana bensíni. Esso og Olís riðu á vaðið í gær- morgun og Skeljungur fylgdi í kjöl- farið eftir hádegi. Bensínorkan lækkaði bensín- og hráolíuverð í fyrradag um 1,20 krónur lítrann. Þar kostar 98 oktana bensínlítri nú 74,10 kr., 95 oktana bensín 69,40 kr. og dísilolía 23,70 krónur lítrinn. Á ÓB-stöðvunum var lækkunin 1 króna og 20 aurar þannig að nú kostar bensínlítrinn þar 69,60 kr. Ofangreint verð er fullt verð en öll félögin bjóða 2-3 króna afslátt við sjálfsafgreiðslu, mismikinn eftir stöðvum, auk þess sem Esso býður 4 króna afslátt á Artúnshöfða vegna framkvæmda þar. Ástæða verðlækkunar er lækkun á birgðaverði en breytingar á heims- markaðsverði eru alltaf nokkurn tíma að skila sér inn í verðið hér- lendis þar sem birgðir berast að jafnaði aðeins mánaðarlega til lands- ins. STEINAR WAAGE Skapa þarf réttar leik- reglur og samkeppnis- hæft umhverfi ATVINNU- og ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar efndi í gær til ráðsteínu um Reykjavíkurborg og atvinnulífið þar sem kynnt var stefna borgarinnar og ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum, varpað Ijósi á samspil menntunar og atvinnulífs og gerð grein fyrir viðhorfí hagsmunaaðila atvinnulífsins gagnvart stefnu og að- gerðum í atvinnumálum. Að loknum framsöguerindum voru pallborðsumræður sem í tóku þátt þau Árni Magnússon, aðstoðarmaður viðskipta- og iðnaðarráðherra, Helga Jónsdóttir borgarritari, Eygló Eyj- ólfsdóttir, skólastjóri Borgarholts- skóla, Sigfús Jónsson rekstrarráð- gjafi, Pétur Jónsson, formaður at- vinnu- og ferðamálanefndar Reykja- víkurborgar, Kári Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Islenskrar erfðagrein- ingar hf., og Sveinn S. Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins. Kári Stefánsson gerði meðal ann- ars að umtalsefni fjármögnun fyrir- tælga og sagði hann mikilvægt að leitað væri eftir fjármagni erlendis og þá helst í þeim löndum þar sem markaðssetja ætti það sem verið væri að skapa. Með fjármagninu kæmi þannig sérþekking, rekstrar- þekking og tengsl. Þá tilraun að byggja hér upp stóra sjóði til að fjár- magna alfarið fyrirtæki með íslensku sagðist hann telja óeðlilega og óæskilega samkeppni við erlent fjár- magn. „Það vill svo til að það er ofgnótt af peningum í heiminum í dag, en það eru ofyfáar hugmyndir til að vinna með. Ég held að það sé enginn vandi að ná inn erlendu fé til að fjár- magna að minnsta kosti að hluta til allflest atvinnulíf á íslandi, en þetta er ekki bara spurning um að koma fé í þessi fyrirtæki heldur spurning um að setja þau í það rekstrarumhverfi sem gerir þessum fyrirtækjum mögulegt að ná fótfestu, ná þeim tengslum sem þau þurfa, og gera þeim kleift að selja vöru sína,“ sagði hann. Skipulag menntunar og sam- keppnishæft umhverfi Eygló Eyjólfsdóttir lagði áherslu á að byggja þyi-fti upp öflugt starfs- nám á framhaldsskólastigi sem næði til allra nemenda og virkja ætti þá hugmyndaauðgi sem unga fólkið byggi yfir. Helga Jónsdóttir sagði að það sem mestu máli skipti væri að skipuleggja menntun þannig að hæfileikar fólks nýttust sem best og það væri kannski höfuðviðfangsefni stjórnvalda í nánustu framtíð. Þá sagði Helga mikilvægt að geta boðið fyrirtækjum upp á umhverfi sem væri samkeppnishæft við það sem væri í þeim löndum sem verið væri að keppa við og finna þyrfti leið til að laða hingað hæfasta fólkið. Vandinn væri hins vegar sá að gæta þyrfti jafnræðis og ekki mætti stíga ofan á eigin vaxtarsprota í löngun- inni í því að fá aðild að því sem kæmi annars staðar frá. „Þetta er ekki einfalt viðfangsefni og ég held að í grunninn þá sé það hlutverk stjórnvalda að sinna stjórn- sýslu og því að til verði samkeppnis- hæft umhverfi, og t.d. að skattaum- hvefið sé með þeim hætti að það laði að,“ sagði Helga. Sigfús Jónsson sagði að skatta- kerfið hér á landi væri fjandsamlegt þeim sem væru að byrja atvinnu- rekstur og á þessu sviði yrðu stjórn- völd að laga leikreglurnar. Þá sagði hann að það væri óæskilegt að stjórnvöld hefðu á hendi rekstur og starfsemi sem þau ættu ekki að skipta sér af heldur láta einkaaðilum eftir. Opinberar aðgerðir séu ekki sértækar Pétur Jónsson sagði sjálfsagt að hið opinbera skapaði réttar leikregl- ur, en það ætti jafnframt að kosta rannsóknir á hagkvæmni þess að nota auðlindir landsins, sem hver sem er gæti síðan notfært sér. Árni Magnússon sagði að hlut- verk opinberra aðila hlyti fyrst og fremst að vera það að tryggja sam- keppnishæft rekstrarumhverfi, t.d. með því að viðhalda efnahagslegum og pólitískum stöðugleika, og búa þannig um hnútana að íslenskt at- vinnulíf búi við það rekstrarum- hverfi að það standist samkeppni við það sem best gerist í nágrannalönd- unum. Hann sagði að opinberar að- gerðir ættu því ekki að vera sértæk- STEINAR WAAGE ^ SKÓVERStUN SÍMI 551 8519 # STEINAR WAAGE . SlMI 568 9212 •#> Teg. 40634 Verð kr. 2.995 Stærðir: 24-33 Litur: Svartir Ath. Fleiri tegundir til Teg. 40635 Verð kr. 2.995 Stærðir: 24-33 Litur: Hvítir m/lilluðu Teg. Horace Verð kr. 2.995 Stærðir: 23-30 Litur: Hvítir m/bláu 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR POSTSENDUM SAMDÆGURS Fólki á vinnu- aldri fjölgar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.