Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Silli í HÓPI Borgarhólsskólanema. Sendiherra Breta heimsækir Húsavík Húsavík - Sendiherra Breta á ís- landi, Jim McColloch, var á Húsavík síðastliðinn fóstudag með konu sinni og syni á ferð um Norðurland í tilefni af því að á komandi hausti er áformað samkvæmt væntanlegri námskrá að hefja kennslu í ensku sem fyrsta erlenda tungumáli. Fyrst kom sendiherrann í Borg- arhólsskóla og hitti þar skólastjór- ann, Halldór Valdimarsson, og hóp 10 ára nemenda, sem hefja eiga enskunám á komandi hausti og verða fyrstu nemendur þess skóla, sem hefja nám í ensku áður en þeir hefja dönskunám, en þó er ætlast til að þeir læri dönsku jafnt og áður. Sendiherrann ávarpaði börnin og sagði að hann vissi að þau skildu hann ekki nú. En hann vonaðist til þess að koma til þeirra að fímm ár- um liðnum og þá mundu þau geta betur talað saman og vita meira um heiminn eftir að þau hefðu kynnt sér bókina „Geography of the World“, sem hann afhenti skólanum að gjöf. Ánægður með kunnáttu í ensku Því næst var farið í Framhalds- skólann og tók þar á móti gestunum Guðmundur Birkir Þorkelsson skólameistari og sagði þeim sögu skólans og kynnti starfsemi hans. Sendiherrann sagðist vera kom- inn hingað norður bæði til að kynna sér staðinn og svo kennslu og kunn- áttu nemenda í ensku. Hann kom í kennslustund og lét þar í ljós ánægju sína yfír því hve vel ung- Iingarnir skildu og töluðu ensku. Hann sagðist sérstaklega hafa tekið eftir þvi þegar hann ávai’paði allan hópinn hve vel þau fylgdust með máli hans. Skipst var á gjöfum og það þótti sendiherranum sérstaklega skemmtilegt að fara með minjagripi frá Framhaldsskólanum á Húsavík, sem nemendur skólans höfðu hann- að og smíðað. Útigöngufé finnst ' á Reykjaheiði Morgunblaðið/Atli Vigfusson SYSTKININ Páll Helgi Buch og Guðný J. Buch á Einarsstöðuin í Reykjahverfi með úti- gönguféð sem fannst á Reykjaheiði. Laxamýri - Tvær útigöngukindur, ær og lambhrútur, fundust nú í vikunni við Mælifell á Reykjaheiði, eftir töluverða leit. Það var starfsmaður ferðamannafyrir- tækisins Fjallasýnar, Hafsteinn Halldórs- son, sem var á svæð- inu við Þeistareyki ásamt erlendum ferðamönnum fyrir nokkru og sá þá kindurnar. I fram- haldi af því var haf- in leit, sem ekki bar árangur fyrr en núna. Um var að ræða þrjár kindur en fundust bara tvær, þriðju kindar- innar er leitað. Eigandi ánna, Guðný J. Buch á Einarsstöðum í Reykjahverfi, vigtaði féð þegar það kom í hús og reyndist ærin vera 35 kg en hrúturinn 26 kg. Vitað var að þessar ær höfðu sloppið í göngum á sl. hausti nálægt Lamba- fjöllum. Ærin, sem er tæplega tveggja vetra og ber nafnið Jenný, er með lambi og ber lík- Iega nú um sumarmál. BLIKAHJALLI 3-7-11, SUÐURHLÍÐUM KÓPAVOGS. Sími 533 4040 Fax 588 8366 Glæsileg raðhús á tveimur hæðum m/innb. bílskúr. Stærð ca. 200 fm. Húsin verða seld í núverandi ástandi, fullbúin að utan, en fokheld að innan. Frábær staðset- ning. Verð frá 10,9 m. Áhv. húsbréf. Allar uppl. og teikn. á skrifstofu. 8675 Armúla 21 DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali. í^>n FASTEIGNA rf fMJ MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540 OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18 Netfang: http://habil.is/fmark/ Hringbraut Hf. Glæsileg 140 fm efri sérhæð og ris í tvíbýlishúsi. Ris er nýlega byggt og neðrí hæðin öll nýlega endurnýjuð. Stórar stofur. Parket á öllum gólfum. Glæsilegt útsýni. Verð 12,5 millj. Jón Guðmundsson, sölust.i, lögg. fasteigna- og skipas. Mozart í að- alhlutverki á árshátíð Hveragerðl - A árshátíð miðstigs Grunnskólans í Hvergerði sem haldin var nú nýverið má segja að Mozart og tónlistin hans hafi ver- ið í hávegum höfð. Sérsamin leik- gerð Töfraflautunnar var flutt og síðan var einnig sýnt leikrit er sýndi samskipti Mozarts við Sali- eri, krakkarnir sýndu það og sönnuðu þarna að tónlist gömlu meistaranna er þeim ekki eins framandi eins og margur gæti haldið. Frumsamið leikrit um samskipti þjóða og leikrit byggð á þjóðsög- unni um Nykurinn vöktu einnig mikla athygli. Þá söng kór miðstigs nokkur lög og stúlkur sýndu fím- leika. Að skemmtiatriðum loknum bauð 7. bekkur uppá kaffí og vöffl- ur en að því loknu var stiginn dans við dúndrandi tónlist fram eftir kvöldi. Árlega leggja nemendur allra stiga mikinn metnað í dagskrá árshátíðar þar sem foreldrar og forráðamenn fjölmenna til að sjá börn sín á sviði. Mikil áhersla er lögð á það að allir nemendur taki þátt í dagskránni og öðlist þannig dýrmæta reynslu í því að koma fram. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir FRA brunaæfingu Grunnskólans á Reyðarfirði. Brunaæf- ing í Grunn- skóla Reyð- arfjarðar Reyðarflrði - Brunaæfíng var haldin í Grunnskóla Reyðarfjarðar, samæf- ing slökkviliðsins og skólans. Starfs- liði og nemendum skóians var til- kynnt að brunaæfing yrði ákveðinn dag. Kl. 11.15 var hringt og tilkynnt um eld í skólanum. Nemendur og starfslið björguðu sér út um glugga og niður brunastiga. Sumum fannst nokkuð hátt niður en allt gekk vel. Eidur hafði verið kveiktur í vél- fræðistofu og iagði mikinn reyk upp stigaganga og inn í kennslustofur í eldri hluta skólans. Skólastjóri og tveir nemendur földu sig í húsinu og urðu reykkafarar að leita þeirra. Fundust þeir nokkuð fljótt og varð ekki meint af. Skólinn var síðan reykræstur. I framhaldi af þessu verður bætt úr því sem betur má fara. Slökkvi- liðsstjóri er Þorbergur Hauksson. Eskfirðingar og Reyðfirðingar eru með sameiginlegt slökkvilið og tóku jjj tíu Reyðfirðingar auk slökkviliðs- stjóra þátt í æfingunni. .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.