Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 25
Barist á götum
Phnom Penh
Phnom Penh. Reuters.
ÁTÖK brutust út á strætum Phnom
Penh, höfuðborg Kambódíu, í gær
milli stuðningsmanna Norodoms
Ranariddhs prins og andstæðinga
hans. Átökin urðu þegar fleiri en 100
andstæðinga hans gerðu atlögu að
stuðningsmönnum prinsins fyiir
framan hótel það sem Ranariddh
dvelst á. Þar hafa stuðningsmenn
Ranariddhs gert sig heimakomna
síðan á mánudag, en þá snéri Rana-
riddh heim úr útlegð, og lauk átök-
unum í gær með flótta þeirra. Nokk-
ur meiðsl urðu á fólki samkvæmt
heimildum fíeuters-fréttastofunnar.
Prinsinn deildi stóli forsætisráð-
herra með Hun Sen þar til í júlí í
fyrra þegar Hun Sen rak hann úr
embætti. Ranariddh snéri hins
vegar aftur úr útlegð sinni á mánu-
dag í samræmi við friðaráætlun
sem Japanir beittu sér fyrir og
mun líklega bjóða sig fram í kosn-
ingum í júlí.
Samkvæmt heimildum tælenska
hersins brutust einnig út átök á
landamærum Kambódíu og
Thailands milli stríðandi fylkinga
innan skæruliðasamtaka Rauðu Kh-
mei-anna.
ERLENT
Reuters
RANARIDDH prins ræddi hugsanlegt framboð
við fréttamenn í gær.
Sprengjutil-
ræði á Spáni
San Sebastian. Reuters.
SPRENGJUR sprungu við heimili
fjögurra stjórnmálamanna í Baska-
landi í gærmorgun en þeir eru allir í
stjórnarflokknum á Spáni, Þjóðar-
flokknum. Þykir líklegt, að liðsmenn
ETA, aðskilnaðarhreyfmgar Baska,
hafi komið þeim fyrir.
Ein kona meiddist lítillega þegar
sprengjurnar sprungu en talið er að
ETA sé að hefna þess að nýlega
handtók lögreglan meira en 10 liðs-
menn hennar. ETA-menn hafa að
undanfórnu gert mörg tilræði við fé-
laga í Þjóðarflokknum, sem þeir
segja vera arftaka Franciscos heitins
Francos einræðisherra en hann
bannaði Böskum að leggja rækt við
þjóðerni sitt.
V arnarmálanefnd
breska þingsins
Varað við
drætti á
stækkun
NATO
London. Reuters.
VARNARMÁLANEFND breska
þingsins sagði i gær, að það myndi
valda „óumræðanlegum skaða“ ef
ekkert yrði af fyrirhugaðri stækkun
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Hins vegar telur nefndin hugsan-
legt, að kostnaður við stækkunina,
um 180 milljarðar ísl. kr., sé veru-
lega vantalinn.
NATO hefur ákveðið að veita Pól-
landi, Tékklandi og Ungverjalandi
aðild að bandalaginu en þjóðþing
allra aðildarlandanna 16 verða að
samþykkja það. Utanríkismála-
nefnd bandarísku öldungadeildar-
innar samþykkti stækkunina með
16 atkvæðum gegn tveimur en
Trent Lott, leiðtogi meirihluta
repúblikana í þingdeildinni, frestaði
umræðum um málið í ótilgreindan
tíma vegna átaka á þingi, sem urðu
til þess, að frumvarp repúblikana
um menntamál fékkst ekki tekið
fyrir.
Rússar una stækkuninni
I skýrslu bresku varnarmála-
nefndarinnar segir, að láti eitthvert
NATO-ríki það ógert að staðfesta
stækkunina muni það hafa mjög
neikvæðar afleiðingar fyrir ríkin í
Nið- og Austur-Evrópu. Segir
nefndin, að þótt Rússar hafi mót-
mælt stækkuninni, hafi þeir í raun
sætt sig við hana enda hafi þeir
ekkert neitunarvald í málefnum
NATO.
H j á l m a r
og því vandaöri því betri. Bandarísku TREK
hjálmarnir eru með þeim betri.
Vapor
Fyrir unglinga og fullorðna, með
öryggisskyggni, stillanlegri
hnakkaspennu og
hraðstillismellu fyrir festibönd.
Litir: Svart, blátt og hvítt
Kr. 3.252,- stgr.
Inertia trek
Fyrir fullorðna, með öryggisskyggni,
15 loftræstigötum, stillanlegri
hnakkaspennu og hraðstillismellu
fyrir festibönd
Litir: Blátt, mango-gult
Kr. 4.376.- stgr.
Tempest trek
Fyrir fullorðna, með
öryggisskyggni, 15
loftræstigötum, stiilanlegri
hnakkaspennu, hraðstillismellu
fyrir festibönd.
Scribble tmzemc^
Fyrir börn og unglinga, með
öryggisskyggni, stillanlegri
hnakkaspennu og hraðstillismellu
fyrir festibönd.
Kr. 2.993.- stgr.
HVAÐ METUR t>Ú MEST?
Litur: Gult
Kr. 6.455,- stgr.
Racing Stripe
Fyrir börn og unglinga, með
öryggisskyggni, stillanlegri
hnakkaspennu og hraðstillismellu
fyrir festibönd.
Kr. 2.993.- stgr.
veita
Stillanleg Hnakkaspenna
heldur hjálminum mun stöðugri á
Flowers (mynd) og
Tractors
Fyrir ungbörn. 47-50cm/51 -54 cm.
Einstaklega djúpir og verja því allt
höfuðið mjög vel. Tvær stærðir tveir litir.
Kr. 2.993,- stgr.
hjálmarnir eru ekki aöeins
með CE öryggisstimpil
heldur einnig ASTM, sem
tryggir enn frekar gott öryggi
að margra mati.
ferð og truflar því ekki stýrigetu.
Opið laugardaga frá 10-16
ÖRNINNu
SKEIFUNNI 1 1 • SÍMI 588
VERSLAÐU VIÐ FAGMANNINN - ÞAÐ BORGAR SIG