Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUE 2. APRÍL 199á MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Maður verður ekki söngvari á einum degi Sinfóníuhljómsveit íslands helgar óperutónlist krafta sína á tónleikum í Háskólabíói í kvöld kl. 20 og á laugardag kl. 14. Qrri Páll Ormarsson ræddi við Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur, Diddú, sem verður sérstakur gestur hljómsveit- arinnar á tónleikunum. ALLIR vita að hláturinn lengir lífið. Sumir segja að söngurinn geri það líka. Sé það rétt má ljóst vera að Sinfóníuhljómsveit íslands hyggur á langlífi. Söngurinn hefur nefnilega ómað dátt á tónleikum hennar í Háskólabíói undanfarið. Fyrst kom fríður flokkur söngvara frá Bret- landi til að gera söngleikjatónlist skil, þá stakk við stafni suður-afrísk söngkona með Strauss á vörum og nú er röðin komin að ein- um ástsælasta listamanni þjóðarinnar, Sig- rúnu Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu, að taka lagið þar vesturfrá. Og talandi um langlífi, þá ætti Diddú, eins og hún er jafnan kölluð, að verða margra daga auðið - hún hefur ekki aðeins sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, heldur hlegið sig þangað líka. Það er ávallt stutt í brosið og hláturinn þegar Diddú er annars vegar. En skyldi henni verða hlátur í huga á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar? „Bæði og. Þetta verður blandað efni sem ég kem til með að syngja, dramatískt og léttara." Blandað efni! Þýðir það að engin aría er lögð í munn konu í andarslitrunum? „Já, svei mér þá. Eg dey aldrei á þessum tónleikum,“ segir Diddú og skellir upp úr eins og henni einni er lagið. Hún viðurkennir þó að efnisvalið sé smám saman að „þykkjast". „Á þessum tónleikum mun ég meðal annars syngja aríur sem mig hefur lengi dreymt um að syngja en til þessa hreinlega ekki haft hugrekki til að fleygja mér út í laugina, ef svo má að orði komast. Nú finnst mér ég aftur á móti vera tilbúin að fást við erfiðari verkefni en áður. Þorið hefur aukist enda þekki ég mín takmörk, mína getu, betur. Við þetta bætist að ég hef haft óvenju mikið að gera upp á síðkastið, þannig að ég er í góðu formi, sem er nauðsynlegt þegar maður tekur sér verkefni sem þetta fyrir hendur." Röddin verður að þroskast Diddú segir söngvara verða að fara varlega - ætla sér ekki of stóra hluti snemma á ferlin- um. „Maður verður ekki söngvari á einum degi. Það er því mikilvægt að fara ekki of geyst, ætli maður sér að endast inn í framtíð- ina. Röddin verður að fá að þroskast með verkefnunum, annars slokknar bara á manni!“ Aríurnar sem Diddú ætlar að syngja eru allar úr þekktum óperum, svo sem Rakaran- um í Sevilla eftir Rossini, Alcinu eftir Hándel, Rusölku eftir Dvorák, La Boheme eftir Puccini og I Vespri Siciliani eftir Verdi. Síð- ast en ekki síst syngur Diddú aríuna Casta Diva úr óperunni Normu eftir Bellini en hún var eitt af glansnúmerum Mariu Callas. Fyrirhugað er að Diddú og Sinfóníuhljóm- sveitin hljóðriti hluta þessarar efnisskrár, ásamt öðru efni, í næsta mánuði. Tónsprotinn verður þá í höndum Bretans Robins Stap- letons, sem meðal annars hefur stjórnað Diddú í sýningunni á Astardrykknum eftir Donizetti í Islensku óperunni síðustu vikur. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum nú verð- ur aftur á móti landi Stapletons, Paul Wynne- Griffiths. Sérsvið hans er óperutónlist og hef- ur hann stjórnað óperuuppfærslum í mörgum óperuhúsum í Evrópu, svo sem Covent Gar- den, Skosku óperunni og Gautaborgaróper- unni. Meðal söngvara sem sungið hafa undir stjórn Wynne-Griffiths eru Katia Riccarelli, Grace Bumbry, Jose CaiTeras, Carlo Bergonzy og Montserrat Caballé. Hann er nú listrænn stjórnandi BBC Pavarotti Masterclass. Diddú ber lof á Wynne-Griffiths - létt sé yfir honum, eins og sönnum enskum séntil- Morgunblaðið/Golli SIGRUN Hjálmtýsdóttir, Diddú, ætlar að syngja óperuaríur um ýmsum áttum sem hana hefur lengi dreymt um að gera skil á tónleikum. manni sæmir. „Hann er enn eitt dæmið um það hversu lítill óperuheimurinn er. Við höf- um að vísu aldrei unnið saman áður en hann hefur á hinn bóginn ekki aðeins starfað með nokkrum íslenskum söngvurum, heldur jafn- framt fólki sem var samferða mér í námi í Guildhall School of Music and Drama í Lund- únum.“ Diddú segir það ávallt ómetanlegt að fá tækifæri til að koma fram með Sinfóníu- hljómsveit Islands, þar sem hún á marga vini og vinnufélaga í gegnum árin. Hún er meira að segja gift einum hljóðfæraleikaranna, Þor- keli Jóelssyni hornleikara. „Það er ákaflega gott að vinna með Sinfóníuhljómsveit Islands. Hún leikur ekki bara frábærlega, heldur er hún alltaf jafnfljót upp á lagið, enda reynsiu- mikið fólk með víðan starfsvettvang á ferð. Við þetta bætist að margir meðlimir hljóm- sveitarinnar eru jafnframt í Hljómsveit Is- lensku óperunnar, sem kemur sér vel á þess- um tónleikum. Enginn „leynigestur“ Diddú hefur margoft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Islands, síðast á liðnu starfsári, þegar hún steig óvænt á svið sem leynigestur á tónleikum sem Jónas Ingi- mundarson kynnti. Er blaðamanni kunnugt um að margir hafi orðið vonsviknir yfir því að missa af þeirri uppákomu. Leynigestirn- ir voru reyndar fleiri það kvöld, því Diddú var barnshafandi. Skömmu síðar fæddist þeim Þorkeli dóttirin Melkorka. Að þessu sinni verður aftur á móti enginn „leynigest- ur“ í Háskólabíói, „að minnsta kosti ekki það ég viti,“ eins og Diddú tekur hlæjandi til orða. Sem fyrr segir hefur Diddú verið störfum hlaðin síðustu vikur, hélt meðal annars ljóða- tónleika í Listasafni Kópavogs á dögunum, auk þess sem hún hefur sungið hlutverk kvenhetjunnar, Adinu, í Astardi’ykknum. Að loknum tónleikunum á laugardag hyggst hún því taka sér langþráð frí. „I næstu viku fer ég af landi brott með mitt hafurtask enda er ég búin að vera á „varatanknum“ um skeið og hann er alveg að verða tómur. Fljótlega kem ég þó aftur - það er ekki hægt að fara frá hundunum!" Svo mörg voru lokaorð húsfreyjunnar að Túnfæti í Mosfellsdal að þessu sinni. NOATUN ISLENSK Drottningan skinka Tilbúin stórveisia á aðeins 30 mínútum Verslanír Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld. NOATUN NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. • ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68 Soðið, úrbeinað svínaiæri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.