Morgunblaðið - 02.04.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 02.04.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 35 LISTIR Leikrit er ekkibara leikrit Þrír þjóðþekktir leikritahöfundar sátu fyr- ir svörum og ræddu leikritun sína á loka- kvöldi námskeiðs Endurmenntunarstofn- ✓ unar Háskóla Islands og Þjóðleikhússins um íslenska samtímaleikritun sem staðið hefur undanfarnar vikur. Hávar Sigurjóns- son fylgdist með umræðunum. Þorkell ÞÓRHALLUR Sigurðsson leikstjóri og leikskáldin Ólafur Haukur Sím- onarson, Kjartan Ragnarsson og Birgir Sigurðsson. UMFJOLLUNAREFNI námskeiðsins var höf- undarverk þeirra Birgis Sigurðssonar, Ólafs Hauks Símonarsonar og Kjartans Ragnarssonar með áherslu á þau þrjú verk sem eru á fjölum Þjóð- leikhússins í vetur; Grandaveg 7 í leikgerð Kjartans og Sigríðar M. Guðmundsdóttur, Meiri gaura- gang eftir Ólaf Hauk og Óska- stjörnuna eftir Birgi sem frum- sýnd var á dögunum. Leikstjór- arnir Stefán Baldursson og Þór- hallur Sigurðsson ásamt Árna Ib- sen leikskáldi og Gunnlaugi Ast- geirssyni bókmenntafræðingi tóku einnig þátt í umræðunum sem Melkorka Tekla Ólafsdóttir stýrði. Spurningin í upphafi snerist um samvinnu höfundar og leikstjóra, hvort leikritin tækju miklum breytingum á æfmgatímanum í meðförum leikstjóra og leikara. Þeir Ólafur Haukur og Þórhallur sögðu að samvinna þeirra tveggja stæði á gömlum merg, Meiri gauragangur væri sjöunda leikrit- ið sem Þórhallur leikstýrði eftir Ólaf og vissulega væri samvinna þeirra orðin slípaðri en í upphafí. Ólafur benti þó á að leikritum hans mætti skipta í tvo flokka, „annars vegar leikrit sem era hefðbundin textaleikrit sem unnin era nánast til enda við skrifborðið heima (Milli skinns og hörunds, Bílaverk- stæði Badda, Hafið, Kennarar óskast) og hins vegar leikrit eins og Þrek og tár og Gauragangur sem eru samsettari, bútasaumur sem ekki er hægt að sjá fyrir sér við skrifborð. Þau verður að sníða til á staðnum, sjá hvað virkar og hvað ekki.“ Kjartan Ragnarsson sagði að vinnuaðferð hans sem höfundar hefði breyst mjög mikið í gegnum árin. „Fyrstu verkin mín samdi ég við skrifborðið en seinni árin hef ég gert meira að því að leyfa handrit- inu að þróast á æfingatímanum. Eg vil líka taka það fram að undanfar- in ár hef ég nánast alltaf haft ann- an höfund mér við hlið, Óskar Jón- asson við leikgerðirnar á Þrúgum reiðinnar og Evu Lunu, Einar Kárason við Djöflaeyjuna og Is- lensku mafíuna og nú síðast Sigríði Margréti Guðmundsdóttur við Grandaveg 7. Bh'gir Sigurðsson sagði greini- lega misjafnt hvem hátt höfundar hefðu á við samningu verka sinna. „Eg hef engar sérstakar kenning- ar um þetta og engin almenn regla er í gangi. Eg nálgast leikrit mín á sama hátt annan skáldskap minn, ég næ honum ekki fram nema í einrúmi. Maður er að reyna að koma á framfæri einhverjum per- sónulegum sannindum og fyrir mér er það svo erfiður hlutur að finna hvað er satt eða logið í sjálf- um mér að ég get ekki gert það með hjálp annarra. Þegar ég skila leikritum mínum era þau tilbúin til að leika þau. Þegar Stefán Bald- ursson setti upp Dag vonar minnir mig að tólf setningar hafi verið strikaðar út á æfingatímanum, það var svipað núna með Óskastjörn- una.“ Höfundarnir veltu næst fyrir sér spurningu um útlit og umgjörð sýninganna. Birgir sagðist sjá mjög skýrt fyrir sér umhverfi leiksins og skrifa mjög nákvæmar lýsingar í handrit sín. „Hins vegar hvarflar ekki að mér að leikmynda- höfundur eigi að taka þessar lýs- ingar bókstaflega. Þær era miklu fremur ætlaðar sem hugmynda- brannur fyrir hann að sækja í.“ Stefán Baldursson, leikstjóri Dags vonar, sagði frá því að við uppsetn- ingu þess hefði leikmyndin tekið talsverðum breytingum frá því sem Birgir hefði lagt til í verkinu. „Fyr- ir leikstjóra er handrit verks hrá- efni til áframhaldandi sköpunar og sá innblástur sem leikstjórinn fær af verkinu er sá grannur sem hann byggir vinnu sína á. Stundum er sýn höfundarins á ákveðin atriði verksins mjög fastmótuð og stang- ast jafnvel á við túlkun leikstjór- ans.“ Kjartan Ragnarsson sagði að við frumuppfærslu verks ætti höfund- ar alltaf að hafa síðasta orðið um allar ákvarðanir um túlkun og út- færslu. „En það má ekki gleyma hlut leikaranna. Þeir þurfa að koma til móts við verkið en verkið þarf líka að koma til móts við leik- arana.“ Ólafur Haukur benti á að leikrit væra mjög misjöfn að gerð, sumum væri auðvelt að breyta á meðan önnur þyldu varla að teknar væru út setningar. „Sum leikrit era þannig byggð að það er mjög erfitt að hrófla við þeim. Leikrit eins og Þrek og tár er hins vegar stykkjað saman og þolir alveg að tekin séu út atriði eða þau færð til innan heildarinnar." Hér var þeiiri spurningu varpað til höfundanna hvort raunsæisleg verk væru verr fallin til breytinga og ólíkra túlkana en önnur verk. Birgir greip þetta á lofti og spurði á móti hvað væri raunsæisverk. Ólafur Haukur spurði hvort raun- sæi væri yfirleitt til í leikhúsi. Ámi Ibsen íifjaði upp tilsvar Kjartans Ragnarssonar í öðru samhengi og nefndi tilfinningalegt raunsæi í leikhúsinu. „Þekkjanlegur vera- leiki í samskiptum persóna þótt umhverfið sé stílfært." Birgir benti á að leikrit væri ekki bara handrit, ekki bara hráefni til túlkunar fyrir leikstjóra og leikara. „Leikrit er allur sá veraleiki sem þar býr, rétt eins og í skáldsögu. Ég tel mig skrifa mjög þéttriðin leikrit og möguleikarnir til túlkunar era ekki minni heldur bara öðravísi." Guðný í Variety SAGT er frá fyrirhuguðum tökum á mynd sem Guðný Halldórsdóttir hyggst gera eftir smásögu föður síns, Hall- dórs Laxness, „Ungfrúin góða og húsið“, í bandaríska kvik- myndablaðinu Variety. „Öll verk hans fjölluðu um fegurð, sem menn öðlast eða missa,“ segir hún í samtali við blaðið. „Ungfrúin góða og húsið er saga fallegrar persónu sem bíður skipbrot vegna siða- reglna eldri systur." Tökur á myndinni, sem kallast á ensku „Honour of the House“, hefjast í ágúst og á hún að gerast árið 1910. Kostnaður er áætlaður um 2,2 milljónir dala, um 158 milljónir, og framleiðendur eru fyrirtæki Guðnýjar, Umbi, og Nordisk Film í Danmörku. „Ungfrúin góða og húsið“ er önnur kvikmyndin sem Guðný gerir eftir sögu fóður síns en hún gerði „Kristnihald undir jökli“ árið 1988. Þá er sagt í greininni í Variety frá láti Halldórs Laxness, Nóbels- verðlaununum sem hann hlaut árið 1955 og afköstum hans á bókmenntasviðinu. Sýningum lýkur Hafnarborg SÝNINGU Sigurðar Þóris listmálara í tilefni fimmtugsaf- mælis hans lýkur mánudaginn 6. apríl. I tilefni tímamótanna hefur verið gefin út listaverkabók um Sigurð og prýða hana fjöl- margar myndir. Bók þessi er til sýnis og sölu á sýningunni í Hafnarborg. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýningu vetrarins, Svífandi form, lýkur sunnudaginn 5. apríl. Safnið verður lokað um páskana en opnað aftur 25. apríl. Góðir punktar KVIKMYNPIR Háskólabfö «}• Laugarásbíó WAG THE DOG ★ ★>/2 Leikstjóri: Barry Levinson. Hand- ritshöfundar: Hilary Henkin og David Mamet. Aðalhlutverk: Ro- bert De Niro, Dustin Hoffman og Anne Heche. New Line Cinema 1997. KYNLÍF forseta og annarra stöðuhárra manna og kvenna hefur alltaf þótt merkilegra en kynlíf meðaljónsins. Það þarf engan fréttahák til þess að hafa orðið var við fjaðrafokið út af meintum rassaklipum Clintons forseta, og kemur það það lítið á óvart að Hollywood var búin að gera kvik- mynd um fjaðrafokið áður en það átti sér stað. „Wag the Dog“ segir frá aðstoðar- mönnum forseta Bandaríkjanna sem reyna að hylma yfir kynlífs- sögur forsetans tólf dögum fyrir kosningar. Þeir fá kvikmynda- framleiðanda í Hollywood til að setja á svið stríð í Albaníu til að beina athygli almennings í aðra átt. Heildarhugmyndin er mjög góð og sýnir á gamansaman hátt og gagnrýninn hvernig „Stóra bróð- ur“ tekst að stjórna heiminum og stórviðburðum með sjónvarpi, réttu orðunum og peningum. Sannleikstónninn er hrollvekjandi og á kvikmyndin á vissan hátt er- indi til allra því öll erum við leiksoppar þess sem gerist í vestri og ráðum litlu um það hvort við erum skottið eða hundurinn. Þótt handritið innihaldi marga góða punkta og vel íróníska verður það því miður aldrei sérstaklega beitt sem var án efa tilgangurinn með verkinu. Það er alltaf skemmtilegast þeg- ar fólk hefur húmor fyrir sjálfu sér (og heimsyfirráðum þjóðar sinnar). Framan af er myndin fyndin, en það verður of lítil þróun í handrit- inu, og sniðugheitin mikið endur- tekin í nýjum búningi, sem felst í því hversu langt þau komast með tilbúna stríðið sitt og hvað stendur á vegi þeirra næst, og verður það heldur óspennandi til lengdar. Endirinn er samt góður og segir margt. Persónusköpunin er hluti af grín- inu og þar tekst vel til. Persónurn- ar eru ýktar en skemmtilega sannfærandi. Leikararnir eru ekki af verri endanum og standa sig eftir því. Fer kannski Dustin Hoffmann þar fremstur í flokki enda hefur hann úr mestu að moða sem sjálfumglaður og at- hyglissjúkur kvikmyndaframleið- andi. Robert De Niro og Anne Heche leika aðstoðarmenn eða bjargvætti forsetans. Bob karlinn hefur verið í svo mörgum myndum undanfarið og leikur alltaf líka karla, og er langt síðan hann gaf frá sér „Raging Bull“ frammi- stöðu þótt hann skili alltaf sínu vel. Anne Heche er ung kona á uppleið í stjörnuheiminum, og hér leikur hún með prýði unga konu í ábyrgðarstöðu. Margir frægir koma fram í smáhlutverkum, en slíkt gleður alltaf hjarta áhorf- enda. Woody Harrelson leikur geðsjúkling, William H. Macey er alríkislögga og Willy Nelson er Hollywood lagasmiður. Þessarar umtöluðu kvikmyndar hafði verið beðið með mikilli eftir- væntingu af minni hálfu þar sem ég er sérlegur áhugamaður um heldri manna kynlíf og varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum með hana. Hún er um margt sniðug en handritið dregur hana nokkuð nið- ur. Hildur Loftsdóttir Djass fyrir alla Tríó Olafs Stephensen og Jóhanna Jónas TRÍÓ Ólafs Stephensen og Jóhanna Jónas leika í Hafnai'borg fimmtu- daginn 2. apríl kl. 21. Það eru Gild- isskátar í Hafnarfirði sem standa að þessum tónleikum og eru þetta þeir 14 í röðinni. Djass fyrir alla er til styrktar byggingu skátaheimilis í Hafnarfirði. Á tónleikunum mun Tríó Ólafs Stephensen og Jóhanna Jónas flytja hluta af dagskránni „Central Park North“. Sú dagskrá var í minningu skáldsins Langstons Hughs. Tónlistin er mestmegnis frá New York sjötta áratugarins sem var gullöld New York og ekki síst Hai'lem. Með Ólafi Stephensen í tríói era Guðmundur R. Einarsson og Tómas R. Einarsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.