Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 45^
ATVINNUA'UG LV S I IM B A
Kerfisstjóri
MYLLAN
Myllan-Brauð hf óskar að ráða
tölvumann til að annast kerfis-
stjórnun í fyrirtækinu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu á:
UNIX-kerfum
Novell-netkerfi
PC netkerfi og interneti og NT-server.
Oracle gagnagrunnskerfi og Concorde
Starfið erfjölbreytt og krefjandi og
viðkomandi þarf að geta starfað
mjög stjálfstætt. Starfið byggist á
stöðugu viðhaldi og uppbyggingu
tölvukerfisins.
Einnig er nauðsynlegt að viðkom-
andi eigi auðvelt með mannleg
samskipti og sé þjónustulundaður.
Mjög góð vinnuaðstaða er fyrir
hendi.
Upplýsingar veita Katrín S. Óladóttir og
Eyrún M. Rúnarsdóttir.
Skriflegar umsóknir ásamt mynd óskast
sendartil Ráðningarþjónustu Hagvangs
hf. merktar „Myllan-Brauð hf" fyrir 8.
apríl n.k.
Rétt þekking á réttum tíma
-fyrir rétt fyrirtœki
HAGVANGUR RADNINGARMÓNUSIA
Coopers & Lybrand
Hagvangur hf.
Skeifan 19
108Reykjavík
Sími 581 3666
Bréfsími 5688618
Netfang
radningar@coopers.is
Veffang
http://www.coopers.is
Skólafulltrúi
Siglufjarðarkaupstaður óskar eftir því að ráða
skólafulltrúa til starfa frá 1. júní nk. í 50% stöðu.
Meðal verkefna skólafulltrúa eru að veita bæj-
arstjórn/skólanefnd og skólastjórnendum ráð-
gjöf um skólamál, að hafa milligöngu um að
útvega skólanum sérfræðiþjónustu, að safna
og miðla upplýsingum um skólamál, að vinna
að nýbreytni og þróun skólastarfs og að vinna
með skólastjóra að mati á skólastarfi.
Skólafulltrúi og félagsmálastjóri bæjarins skulu
hafa samstarf og vinna saman að málum þegar
það á við.
Við grunnskólann eru að jafnaði 300 nemendur
í tveimur skólahúsum. Nú er unnið að um-
fangsmiklum endurbótum á húsnæði og allri
starfsemi skólans.
Umskóknir þurfa að hafa borist á bæjarskrif-
stofur Siglufjarðar kl. 12.00 á hádegi þann
14. apríl nk. Undirritaðurveitirallarfrekari upp-
lýsingar sé þess óskað í síma 460 5600.
Bæjarstjórinn á Sigiufirði,
Gránugötu 24,
580 Siglufirði,
sími 460 5600, bréfsími 467 1589.
F élagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Ritari/Fulltrúi
Ritari/fulltrúi óskast á hjúkrunarheimilið Drop-
laugarstaði, Snorrabraut 58, frá 1. maí nk.
Um er að ræða 50% framtíðarstöðu.
Umsækjandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu
og reynslu af ritarastörfum.
Nánari upplýsingar veitirforstöðumaður, Ingi-
björg Bernhöft, í síma 552 5811 fyrir hádegi
næstu daga.
Grunnskólakennarar
/sérkennarar
Kennara vantar að Borgarhólsskóla, Húsavík,
næsta skólaár. M.a. vantar bekkjarkennara á
yngsta stigi og miðstigi. Sérkennara vantar
í fullt starf. Reynt er að útvega niðurgreitt hús-
næði. Flutningsstyrkur er greiddur.
Borgarhólsskóli er einsetinn, heildstæður
grunnskóli.
Vel er að skólanum búið í nýju húsnæði.
Nánari upplýsingar veita Halldór Valdimars-
son, skólastjóri, vs. 464 1660, hs. 464 1974,
og Gísli Halldórsson, aðstoðarskólastjóri,
vs. 464 1660, hs. 464 1631.
Umsóknarfrestur ertil 14. apríl nk.
Járnamenn
— kranamenn
Óskum að ráða vana járnamenn og vana krana-
menn á byggingakrana við byggingu Sultar-
tangavirkjunar. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar í síma 487 8008 (Hákon).
ÍSIAK
Notaðir bílar
Óskum eftir liprum og viljugum starfsmanni
til að selja notaða bíla.
Heiðarleiki, þjónustulund og stundvísi skilyrði.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 6. apríl,
merktar: „V — 440".
AUGLYSINGAR
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Sérbýli óskast
Óskum eftir litlu sérbýli, raðhúsi eða einbýlis-
húsi á höfuðborgarsvæðinu til leigu fyrir reglu-
söm, barnlaus hjón.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„Sérbýli — 4081", fyrir 6. apríl.
TILK YNNINGAR
Hveragerðisbær
Myndlistarmenn
— rithöfundar
Menningarmálanefnd Hveragerðisbæjar
auglýsir eftir umsóknum um dvöl í húsinu
Varmahlíð í Hveragerði en með því fylgir
einnig ca 45 m2 vinnustofa. íbúðarhúsið er
búið öllum húsgögnum og tækjum og Hvera-
gerðisbær mun greiða kostnað vegna raf-
magns og hita. Gestalistamenn fá endurgjalds-
laus afnot af húsinu.
Óskað er eftir því að í skriflegum umsóknum,
sem senda átil menningarmálanefndar Hvera-
gerðisbæjar, Hverahlíð 24, 810 Hveragerði,
komi fram æskilegt dvalartímabil og að hverju
listamaðurinn hyggst vinna meðan á dvölinni
stendur.
Úthlutun dvalartímabila mun fara fram í mai
nk. og mun tímabilinu september 1998 til sept-
ember 1999 verða úthlutað.
Allarfrekari upplýsingar svo og umsóknareyðu-
blöð fást á skrifstofum Sambands íslenskra
myndlistarmanna, Hverfisgötu 12,101 Reykja-
vík, sími 551 1346 og Rithöfundasambands
íslands, Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8,104 Reykja-
vík, sími 568 3190. Einnig er hægt að leita upp-
lýsinga hjá skrifstofustjóra Hveragerðisbæjar
í síma 483 4000.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk.
Menningarmálanefnd
Hveragerðisbæjar.
Sumarbústaðir
Dagsbrún og Framsókn-stéttarfélag
Frestur vegna umsókna
um orlofshús
Vakin er athygli félagsmanna Dagsbrúnar og
Framsóknar-stéttarfélags á því að fresturtil
að skila umsóknum um sumarbústaði félagsins
rennur út 3. apríl nk.
Umsóknareyðublöð fylgdu síðasta félagsblaði
D&F. Þau liggja einnig frammi á skrifstofu
félagsins. Vinsamlega skilið umsóknum fyrir
3. apríl nk.
Stjórn Dagsbrúnar og
Fram só kn ar-stéttarf élag s.
FUISIDIR/ MANNFAGNAÐUR
—, „ mww
Aðalfundur
AðalfundurTaugagreiningar hf verður haldinn
á Hótel íslandi, fundarsal á 2. hæð, fimmtudag-
inn 16. apríl nk. og hefst kl. 16.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við 16.
gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga til aukningar hlutafjár.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á skrif-
stofu félagsins í Ármúla 7B, Reykjavík, dagana
8 — 15. apríl nk. milli kl. 10.00 — 15.00 og á
fundarstað.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1997, ásamt
tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða
hluthöfum til sýnis á sama stað frá 8. apríl.
Reykjavík, 2. apríl 1998.
Stjórn Taugagreiningar hf.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur'
Opið hús verður hjá Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur í fundarsal félagsins á Háaleitisbraut 68
föstudaginn 3. apríl kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Veiðistaðalýsing frá Stóru Laxá IV undir
leiðsögn Jóns G. Baldvinssonar.
2. Hvernig hugsar þú um vöðlurnar þínar?
Veist þú hvað Polaroid er?
Fróðlegt erindi frá Lárusi í Skóstofunni.
3. Vísubotnakeppnin helduráfram og hér
kemur fyrriparturinn:
Að stríðu strengjunum þfnum,
sterkast liggur mín þrá. ■<.
4. Hið landsfræga happdrætti á sínum stað.
Senn er biðin á enda — sjáumst í vorskapi —
allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
Aðalfundur
Aðalfundur Félags jarðeigenda við Þingvallavatn ,
verður haldinn, samkvæmt áðursendu fundar-
boði, í Kringlukránni, Kringlunni 4, Reykjavík,
laugardaginn 4. apríl næstkomandi kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn eru hvattirtil að mæta.
Stjórn Félags jarðeigenda m
við Þingvallavatn. *