Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 80

Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 80
 Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF 3M0, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Viðræður Halldórs Asgrímssonar og Knuts Vollebæks Stefnt að þríhliða við- ræðum við Rússa í maí Vorveður ýtir undir ,, „ hraðakstur MAÐUR var tekinn á 155 km hraða við Úlfarsfell á Vesturlandsvegi í gær og var sviptur ökuleyfi á staðn- um. Hámarkshraði er 90 km/klst. þar sem maðurinn var stöðvaður. Hann kvaðst að sögn lögreglu ekki hafa verið að horfa á hraðamælinn. Nokkuð var um hraðakstur víða um landið í gær og rakti lögregla það til þess að vor væri í lofti. I Kópavogi stöðvaði lögregla fjóra bílstjóra vegna hraðaksturs í gær og var einn þeirra grunaður um ölvun. Lögreglan í Stykkishólmi stöðv- ,.,,aði sjö fyrir of hraðan akstur og p^ijifcfn marga fyrir að nota ekki örygg- isbelti. Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur á ísafirði og sex á Akur- eyri. HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra og Knut Vollebæk, utanrík- isráðherra Noregs, lýstu yfir því á blaðamannafundi í gær að þeir hefðu orðið ásáttir um ramma utan um samstarf um veiðar í Barentshafi og stefnt væri að því að hefja þríhliða viðræður í maí fallist Rússar á að taka þátt í þeim. Utanríkisráðherrarnir hittust í tvígang í gær og var samstarf land- anna og ágreiningur í sjávarútvegs- málum rædd á fyrri fundinum. „Það eru að verða tvö ár síðan síð- ast var haldinn samningafundur milli Islands, Noregs og Rússlands um þessi mál,“ sagði Halldór. „Þó að við höfum haldið stöðugu sambandi um þau hefur ekki verið talin ástæða til þess að boða til samningafundar á nýjan leik. Nú hefur verið skapaður rammi utan um hugsanlegt samstarf svo framarlega sem Rússar geta sam- þykkt hann. Við hugsum okkur að slíkir samningar gætu byrjað í maí.“ Vollebæk segir að þjóðirnar hljóti að finna lausn Vollebæk sagði að hér væri um að ræða mikilvægt mál bæði fyrir Is- lendinga og Norðmenn. Hann ætti ekki von á öðru en hægt yrði að semja og spurði hvernig hægt væri að ætlast til þess að aðrar þjóðir næðu samkomulagi, ef ríki, sem ættu jafn margt sameiginlegt og íslend- ingar og Norðmenn, gætu ekki jafn- að ágreining sinn. Halldór kvaðst hafa rætt fyrirætl- anir Islendinga í hvalamálum við Vollebæk og sagði að mikilvægt væri að eiga samvinnu við Norðmenn og Japana í þeim efnum. Vollebæk kom í opinbera heim- sókn í gær og heldur brott á morgun. I dag mun hann meðal annars fara til Þingvalla ásamt fóruneyti. Hann ræddi einnig við Davíð Oddsson for- sætisráðherra í gær. ■ Ramminn kominn/12 Morgunblaðið á Netinu Heimsókn- ir yfir 280 þúsund MORGUNBLAÐIÐ á Netinu hefur fengið yfir 280 þúsund heimsóknir frá því að Frétta- vefur Morgunblaðsins og Fasteignavefurinn hófu göngu sína fyrir tveimur mánuðum. Þetta eru ámóta margar heimsóknir og Islendingar eru margir. Sem dæmi um að- sóknina fékk Morgunblaðið á Netinu 8.770 heimsóknir frá miðnætti sunnudagsins 30. mars til miðnættis mánudags- ins 31. mars. Slóð Morgunblaðsins á Net- inu er www.mbl.is. Lögregla hættir að vakta banka bg varsla boðin út ÁKVEÐIÐ hefur verið að inn- brota- og viðvörunarkerfí banka á höfuðborgarsvæðinu verði ekki beintengd lögreglustöðvum frá og með 1. september næstkomandi. Þessi háttur hefur verið hafður á um árabil. Gert var ráð fyrir að þessi breyt- ing yrði um seinustu áramót, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, en að beiðni bankastofnana var framkvaemd málsins frestað fram á haust. I framhaldinu er reiknað með að varsla öryggiskerfanna verði boðin út. Ekki lengur andvígur Jónmundur Kjartansson, yfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, kveðst hafa verið and- vígur þvf í upphafi að lögreglan hætti að vakta boðkerfi banka- stofnana með þessum hætti. Hins vegar hafi hann í ljósi við- bragða Búnaðarbankans vegna innbrots í útibú hans í Mjódd síð- astliðinn sunnudag, styrkst í þeirri trú að rétt sé að aðrir hafi þennan málaflokk með höndum en stjórnstöð lögreglunnar. Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, kveðst telja þessa breytingu eðlilega enda sé það vart í verkahring lögreglu að sinna útköllum vegna öryggis- kerfa nema sérstök ástæða sé til. ■ Lögregla segir/14 — Morgunblaðið/Ásdís Heilbrigðisráðherra um gagnrýni á frumvarp um gagnagrunn Fyrsti Tölvunefnd og vísinda- siðaráð annist eftirlit vorísinn UNGI maðurinn datt heldur betur í lukkupottinn á Ingólfs- torgi þegar hann fékk fyrsta vorísinn í góða veðrinu en stundum getur verið erfitt að athafna sig með ís í annarri hendi. TÖLVUNEFND hefur gert athuga- semdir við frumvarp heilbrigðisráð- herra um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Einnig hafa stjórn og siðfræði- ráð Læknafélags Islands lýst yfir miklum áhyggjum vegna frum- varpsins, og forsvarsmenn fyrir- tækja í lyfjaiðnaði hafa gagnrýnt frumvarpið, en þeir hafa miklar efa- semdir um réttmæti þess að veita einum aðila einkaleyfi til aðgangs að _ Jfceilsufarsupplýsingum sem færðar verði í gagnagrunn. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið að verið væri að leggja frum- varpið fram til kynningar og það hefði alla tíð verið ljóst að skoðanir um þetta mál væru skiptar. I frum- varpinu væri hins vegar beinlínis HKert ráð fyrir því að vísindasiðaráð og Tölvunefnd komi að eftirliti upp- lýsinganna í gagnagrunninum á öll- um stigum málsins, og í meðferð frumvarpsins yrðu kallaðir til allir þeir aðilar sem að því kæmu. „Sumpart tel ég að sú gagnrýni sem fram hefur komið stafi af því að menn séu kannski ekki með endan- legt frumvarp í höndunum, en þetta mál hefur verið að taka breytingum undanfamar vikur og við höfum kallað mjög marga til. Eg fagna hins vegar umræðu um málið, en það er mjög mikilvægt að umræðan um það sé opin. Við erum að tala um fram- þróun í læknavísindum og við erum hvergi að hefta vísindamenn inni á stofnunum. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að ekki sé hægt að fá þess- ar upplýsingar í gagnagrunn nema með samvinnu við heilbrigðisstarfs- menn á stofnunum, og því er ekki verið að taka neitt vald af stofnun- unum. Þá finnst mér gæta misskiln- ings varðandi einkaleyfið, en verið er að tala um einkaleyfi á flutningi ópersónutengdra heilbrigðisupplýs- inga frá stofnunum í gagnagrunn- inn, og það breytist ekkert að vís- indamenn inni á stofnunum halda áfram sínum rannsóknum með þær upplýsingar sem þeir hafa og stofn- anirnar ráða hvort upplýsingarnar verða tengdar gagnagrunninum,“ sagði heilbrigðisráðherra. Takmörk á því hvað hægt er að gera að verslunarvöru Að sögn Sigrúnar Jóhannesdótt- ur, framkvæmdastjóra tölvunefnd- ar, mun það m.a. verða skoðað hvort það fái samrýmst þjóðréttarlegum skuldbindingum að pólitískt yfirvald hafi með höndum ráðstöfun og ákvörðun um meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga eins og frum- varpið geri ráð fyrir. Þá segir hún að það þurfi athugunar við hvort það sé raunverulega framkvæmanlegt að færa heilsufarsupplýsingar yfir í gagnagrunninn með þeim hætti að útilokað sé að rekja þær til einstak- linga. I bráðabirgðaáliti siðfræðiráðs Læknafélags Islands er vísað til þess að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að einkafyrirtæki verði veitt einkaleyfi á upplýsingunum í gagna- grunninum í 12 ár og einkaleyfishaf- inn hafi leyfi til að markaðssetja gagnagrunninn gegn greiðslu. Telur stjórn siðfræðiráðsins að það hljóti að vera takmörk á því hvaða við- kvæmar upplýsingar um heilsufar sé hægt að gera að verslunarvöru. ■ Miklar efasemdir/10 ----------------- 81 árs kona lést í bflslysi BANASLYS varð þegar ekið var á 81 árs gamla konu á móts við bens- ínstöð OLIS við gatnamót Safa- mýrar, Ármúla og Háaleitisbrautar laust fyrir klukkan 13.30 í gær. Að sögn lögreglunnar í Reykja- vík var konan að ganga yfir götuna þegar ekið var á hana á fólksbíl og er málið í rannsókn. Konan var flutt meðvitundarlaus í Sjúkrahús Reykjavíkur. Þar feng- ust þær upplýsingar að hún hefði látist af höfuðáverka tveimur klukkustundum síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.