Morgunblaðið - 26.04.1998, Side 2
2 SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ákvörðun
ríkissij órnarinnar
Engar
hvalveiðar
á þessu ári
HVALVEIÐAR verða ekki hafnar
að nýju í sumar þar sem veiðamar
hafa ekki verið undirbúnar nægilega
vel fyrir þessa vertíð, að sögn Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra.
Davíð sagði að óháð því hvenær
hvalveiðar hæfust væri sú stefna
stjómvalda óbreytt að íslendingar
hefðu rétt til að nýta þessa auðlind
sjávar með varfærnum hætti. Hann
sagði að megin ástæða þess að
ákveðið var að hefja ekki hvalveiðar í
sumar væri sú að ekki var talið hægt
að tryggja bestu fáanlegu veiðitæki.
„Þar emm við ekki að hugsa um
veiðitæki, sem ná mestum árangri
við veiðamar, heldur þau sem gera
veiðamar sem mannúðlegastar, ef
svo má segja,“ sagði forsætisráð-
herra.
-------------
N eytendasamtökin
Jóhannes
kjörinn
formaður
JÓHANNES Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, hefur verið kjörinn formaðui-
samtakanna og Jón Magnússon
hæstaréttarlögmaður varaformaður.
Kynnt var niðurstaða úr stjómar-
kjöri á þingi Neytendasamtakanna
upp úr hádeginu í gær.
„Þingstörfín hafa gengið mjög vel
og þrátt fyrir ólgu innan samtak-
anna, sem vart varð fyrir þingið, þá
hafa menn hér, viðtakandi stjómar-
menn og aðrir, fallist í faðma og lýst
yfir einlægum vilja til að vinna sam-
an að framgangi hagsmunamála
neytenda," sagði Jón Magnússon,
varaformaður samtakanna, í gær.
-----♦ ♦♦----
Lést í
vinnuslysi
MAÐURINN sem lést í vinnuslysi í
Vestmannaeyjum sl. fóstudagskvöld
hét Hákon Steindórsson til heimilis
að Engihjalla 1 í Kópavogi.
Hákon var á 56. aldursári. Hann
lætur eftir sig fjórar uppkomnar
dætur.
Morgunblaðið/Ásdls
DANSKIR grunnskólanemendur skoðuðu íslensku handritin á Árnastofnun sl. föstudag.
Stóraukinn áhugi
norrænna nemenda
á Arnastofnun
ÓVENJUMARGIR erlendir hóp-
ar, ekki síst norrænir mennta-
skóla- og grunnskólanemendur,
hafa heimsótt Stofnun Áma
Magnússonar undanfarinn mán-
uð, að því er fram kemur í sam-
tali við Svanhildi Gunnarsdótt-
ur, safnkennara stofnunarinnar.
Hún segir að nemendurnir sýni
íslensku handritunum yfírleitt
mikinn áhuga og að norsku
nemendumir biðji sérstaklega
um að fá að sjá handrit Gunn-
laugssögu ormstungu, enda sé
sú saga mikið lesin í norskum
skólum.
Svo virðist sem þessi aukna
aðsókn að Áraastofnun haldist í
hendur við æ fleiri heimsóknir
norrænna menntaskóla- og
grunnskólanemenda hingað til
lands, m.a. á vegum nemenda-
skiptaáætlunar Norrænu ráð-
herranefndarinnar, sem nefnist
Nordplus-junior. Sú áætlun
styrkir stuttar námsferðir nor-
rænna menntaskólahópa milli
Norðurlandanna og að sögn Sig-
urlínar Sveinbjaraardóttur,
framkvæmdastjóra Norræna fé-
lagsins, er sífellt meiri áhugi á
að koma hingað til lands.
Fastráðinn
leiðsögumaður
Á Árnastofnun hefur Svan-
hildur Gunnarsdóttir það hlut-
verk að taka á móti íslenskum
og erlendum hópum og sýna
þeim handritin sem þar eru
varðveitt, en til að mæta
aukinni aðsókn var hún fast-
ráðin nú í byrjun apríl. Svan-
hildur segir að átta hópar nor-
rænna grunn- og framhalds-
skólanema, alls 222 nemendur,
hafí heimsótt Áraastofnun frá
20. mars til 24. apríl en það er
mun meiri fjöldi en á sama
tíma á síðasta ári.
„Nemendurnir virðast yfirleitt
áhugasamir um að skoða þær
bækur sem íslensk þjóðmenning
byggist á,“ segir Svanhildur, en
bætir því við að það sé alltaf
viss kúnst að láta krakka verða
uppnumda yfir því að horfa á
gamla bók í glerkassa. Áhuginn
sé vissulega mismikill, en flest
virðast þau þó þekkja ýmsar
bækur eins og til dæmis Kon-
ungsbók Eddukvæða og Snorra-
Eddu. Einnig hafi norskir
grunn- og menntaskólanemend-
ur mikinn áhuga á að sjá hand-
rit Gunnlaugssögu ormstungu,
enda sé sú saga mikið lesin í
norskum skólum.
Þá segir Svanhildur að
norrænu nemendumir séu
margir hverjir ófeimnir við
að spyrja nánar út í handritin
og séu til dæmis forvitnir um
skinnverkun og liti. Einnig
spyrji þau til dæmis um það
hvenær handritin hafi verið
skrifuð og hveraig þau hafi
varðveist í tímans rás.
Sviptur netaðgangi tímabundið eftir að hafa fjölsent 112 síðna skjal í tölvupósti
Póstkerfi HI
kiknaði
undan álagi
ÁKVEÐIÐ hefur verið að svipta
háskólanema aðgangi að tölvukerfi
Háskóla íslands tímabundið eftir
að hann sendi á miðvikudagskvöld
yfir 4.000 háskólanemum tölvupóst
sem innihélt 112 síðna skjal, alls 1,8
megabæt að stærð. Tölvupóstkerfi
HI þoldi ekki álagið og tapaði hluti
háskólanema póstsendingum auk
þess sem margir urðu fyrir öðrum
óþægindum innan skólans, að sögn
Douglas A. Brotchie forstöðumanns
Reiknistofnunar HÍ.
Sendingin yfirfýllti svokallaðan
póstgeymslustað, disk sem tölvu-
pósturinn hefur til umráða. Dou-
glas segir þetta hafa valdið notend-
um miklum óþægindum en menn
telji þó að póstur hafi ekki glatast
nema í nokkrum tugum tilvika
samkvæmt fyrirliggjandi upplýs-
ingum.
Skjalið sem notandinn sendi inni-
hélt, að sögn Douglas, kosninga-
upplýsingar frá Sjálfstæðisflokkn-
um í Reykjavík vegna komandi
borgarstjórnarkosninga. Ekki sé
ljóst hvort hann hafi sent skjalið
óumbeðinn eða ekki. „Þetta var
mjög myndarleg sending og það
umfangsmikil og fagmannlega unn-
in að ég myndi halda að hún hafi
verið unnin á auglýsingastofu," seg-
ir Douglas.
Var gert í óþökk
Sjálfstæðisflokksins
Samkvæmt upplýsingum Ágústs
Ragnarssonar, á kosningaskrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, var skjalið
sent í óþökk Sjálfstæðisflokksins.
Um var að ræða kosningaáherslur
sem Arni Sigfússon frambjóðandi
flokksins hafði sent til hóps stuðn-
ingsmanna sinna með tölvupósti.
Umræddur háskólanemi er í þeim
hópi og tók hann það upp hjá sjálf-
um sér að framsenda skjalið á net-
fangaskrá háskólanema. „Þetta var
gert í óþökk okkar. Þarna var um
að ræða of duglegan ungan mann
sem gerði þetta í grandaleysi og
það olli vandræðum. Þetta átti ekki
að gerast svona, þetta eru ekki okk-
ar vinnubrögð," sagði Ágúst.
Douglas kveðst telja að áður hafi
póstur verið sendur á alla skráða
notendur, en þetta tilvik sé hins
vegar umfangsmeira en önnur til-
vik sem upp hafi komið. Um
PowerPoint-skjal var að ræða sem
innihélt glærur og var hver glæra á
að giska fimm síður. „Þetta var
virkilega óþægilegt og olli okkur
rekstrarerfiðleikum, bæði aukinni
vinnu hjá starfsfólki sem reyndi að
bjarga skjölum af öryggisafritum
til að lágmarka fjölda þeirra gagna
sem töpuðust og hjá nemendum.
Sendingin olli því að póstþjónustan
dó hjá okkur með fullum diski og
var óvirk þar til kerfisstjóri kom á
vettvang og bjargaði málunum. Við
þurftum að endurbyggja póstkerf-
ið, en það er tjón sem við verðum
að bera,“ segir hann.
Um 5.500 nemendur í HÍ eru
með skráð netfong, en nemandan-
um tókst ekki að senda á alla nem-
endur áður en brugðist var við.
Aðvörun ef brot
er ítrekað
„Þetta er brot á notkunarreglum
Reiknistofnunar HÍ og hegðunar-
reglum, auk þess að vera brot á
reglum Intís. Við munum loka fyrir
frekari notkun þessa notanda tíma-
bundið og ég mun taka hann á ein-
tal og útskýra fyrir honum að þessi
hegðun sé óheppileg," segir Dou-
glas. „Ef hann er svo kærulaus að
brjóta af sér aftur fær hann aðvör-
un hjá stjórnarformanni Reikni-
stofnunar. Hins vegar hafa mál að-
eins tvívegis á sjö árum farið svo
langt og yfirleitt hefur dugað að
veita fólki tiltal."
Dýrasta heilbrigðis-
vandamái í heimi
►Kostnaður hér á landi vegna
bakvandamála skiptir milljörðum á
ári. /10
í fjötrum sögunnar?
►Vaxandi stjórnmálaólga í
Suður-Ameríkuríkinu Paraguay.
/14
í góðærinu á að
búa íhaginn
►Nýi fiármálaráðherrann Geir H.
Haarde í viðtali. /20
Byggjum á
langri reynslu
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Erlend
Hjaltason, framkvæmdastjóra ut-
anlandssviðs Eimskips. /30
B
► 1-20
Bær Eiríks rauða og
Þjóðhildarkirkja
►Sumarið 2000 verða mikil hátíð-
arhöld í Brattahlíð á Grænlandi í
tilefni þess að þá verða 1000 ár
liðin frá því að Leifur heppni fann
Ameríku. ►l&lO-ll
Leiklistin er lífsmiðill
►Birgir Sigurðsson hefur stigið
fram á leiksvið Þjpðleikhússins
með nýtt leikrit, Óskastjörnuna,
eftirll áraþögn. /4
Þrjátíu ára ferill
►Björgvin Halldórsson, söngvari,
tónskáld, tónlistarmaður og mark-
aðsráðgjafi lítur yfir farinn veg.
/12
FERÐALÖG
► 1-4
Hraunin við
Straumsvík
►Á þessum árstíma þegar vorið
kaliar fólk til útivistar er oft
ástæðulaust að leita langt yfir
skammt. /3
íslendingar hafa ekki
uppgötvað Búdapest
►Rútuferðir um Evrópu og leigu-
flug til Búdapest og Prag með
Guðmundi Jónassyni. /4
BÍLAR____________
► 1-4
Kaupendamarkaður
í Bandaríkjunum
►Vísbendingar um að nokkurra
verðlækkana sé að vænta. /2
Reynsluakstur
►Léttur Grand Vitara með væn-
um búnaði. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Starfsnám Hins
hússins hafið
►Sjöunda starfsnám Hins hússins
hófst sl. mánudag, 20. apríl. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbrét 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í fréttum 54
Minningar 36 Útv./sjónv. 52,62
Myndasögyr 48 Dagbók/veður 63
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 7b
Hugvekja 50 Mannlífsstr. 14b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6